Tíminn - 08.04.1961, Side 13
TÍMINN, laugardaginn 8. april 1961.
13
I
VERZLUNARBANKI ISLANDS H.F.
HEFUR í DAR STARFSEMI SÍNA í
ŒD
ŒD ŒQ (m DD DD DD QD QD
a B ■ fl H fl ■ ■ ■
DD
IBl
n: n n
ImnTlntl
iniiin iiimi ■ «wwa
O O O O
BANKASTRÆTi 5
Bankinn er stofnaður fyrir forgöngu ábyrgíarmanna
Verzlunarsparisjóísins, samkvæmt heimild í Iögum nr.
46, 10. júní 1960, og tekur hann viÖ allri starfsemi
Verzlunarsparisjóísins og kemur að öllu leyti í hans
staí. — Hlutverk bankans er atS styftja verzlun lands-
manna. Verzlunarbankinn er algjör einkaba'nki og er
hlutafé hans 10,2 milljónir króna. Bankinn annast alla
innlenda bankastarísemi. — Verzlunarbankinn greiSir
yíur hæstu vexti af sparifé yíar, eins og þeir almennt
eru á hverjum tíma. AfgreiÖslutími bankans er alla
virka daga kl. 10—12,30, 14—16 og 18—19 fyrir
sparisjótis- og hlaupareikningsviðskifti. Laugardaga kl.
10—12,30
Laust starf
við hreingerningar h]á Lyfjaverzlun ríkisins,
Borgartúni 6. — Heilsdagsstarf.
Skriflegar umsóknir skal senda á skrifstofuna,
Hverfisgötu 4—6 fyrir þriðjudag 10. apríl n.k.
Bókamarkaðurinn
Listamannaskálanum
Gamla verðið.
Niðursett verð auk þess 10% afsláttur af öllum
bókunum.
Vestlendingar
(Framhald af 4. síðu).
sem deildu um auð og völd, eða
hinir, sem eyddu efnum og orku
í pólitískt starf og félagsmál. Þeg-
ar horft er úr slíkri fjarlægð á
mannlífið er ef til vill léttara að
átta sig á því hvað hefur lífsgildi
og hvað er neikvætt. Þannig er
líka hægt að ná réttara mati á
sjálfum sér og samtíð sinni, —
skilja sitt eigið líf í ljósi liðinnar
aldar. Þau rit, sem vekja slíkan
skilning hafa ótyírætt menntagildi.
Dr. Páll Eggert taldi sendibréf
mjög vafasama heimild. „Iilmæli,
þvaður og rógur vellur, sem hroði,
út úr miklu þess háttar heimilda".
Vitanlega eru ummæli manna í
bréfum misjafnlega réttmæt, en
þau em alltaf heimild um það,
hvað bréfritaranum bjó í brjósti.
Bréfið er heimild um viðhorf hans
og dóma um menn og málefni. í
sendibréfunum ræðast menn við
um menn og málefni og segja frétt
ir af því, sem er að gerast. Hitt
er annað mál, sem hver maður
þekkir úr sínum hóp og eigin lífi,
að undir fjögur augu og í einka-
bréf sleppir margur maðurinn
sleggjudómum. Ekkert er eðli-
legra. Menn eru misjafnlega hóf-
samir í orði, misjafnlega orðvarir
og umtalsgóðir. Þetta vita allir en
það er alltaf nokkur mannþekking
í því að heyra hvernig menn tala
um aðra. En hvernig sem þau bréf
eru í heild, sem Lúðvík hefur les-
ið og kannað, birtir hann það eitt
úr þeim, sem hefur heimildargildi
Bókamarkaðurinn Listamannaskálanum
fyrir söguna. Hann hefur ekki
kannað bréfin til að sækja þangað
persónulegt illmæli og róg.
Laxveiðimenn
Laxá í Hrútafirði fæst leigð til stangaveiði. Leigu-
tími 1 til 3 ár. Leigutilboð séu komin fyrir 1. maí
n.k. til undirritaðs sem gefur allar nánari upp-
lýsingar.
Réttur áskilinn ti lað taka hvaða tilboði sem er,
eða hafna öllum.
Jón Kristjánsson, Kjörseyri.
Sími um Brú.
Vestlendingar er gott framlag i
til íslenzkrar sögu. Sérstaklega er
þó ástæða til þess, að við, sem
búum vestan lands, séum þakklát-
ir fyrir verkið. Að vísu má segja,
að þjóðin sé ein og nú a. m. k.
liggja ættir manna um allt land.
Samt eru menn tengdir héraði
sínu og fer það vel. Ekki þarf að
rekja hvern þátt sagan og vitneskj
an um fortíðina á í þjóðrækni og
ættjarðarkennd. Þegar Runeberg
orti þjóðsöng Finna, þar sem hann
túlkar ógleymanlega ættjarðarást
þjóðar sinnar minnist hann sög-
unnar —
og hér það sinna happa naut,
og hér þess tár af augum hraut,
þess fólks, er vorar byrðar bar
frá byrjun vegfeiðar.
| Og eins og Stephan G. segir:
l„Ég skil, hvi vcrt heimaland
hjartfólgnast er:
Öll höppin og ólánið það,
sem ættkvísl þín beið, rifjar upp
fyrir þér
hver árhvammur, fjallströnd
og vað;
og það er sem holtin sjálf hleypi
í mann þrótt,
þar hreystiraun einhver var drýgð;
og svo er sem mold sú sé manni
þó skyld
sem mæðrum og feðrum er vígð“.
Ég trúi því að þeir verði margir
vestan lands, sem með rækt og
hlýju þakka Lúðvík Kristjánssyni
verkið. Og ég trúi því líka, að
þessi saga eigi sinn þátt í því að
gera ýmsa þá, sem hana lesa, betri
íslendinga og nýtari menn.
H. Kr.