Tíminn - 15.04.1961, Blaðsíða 1

Tíminn - 15.04.1961, Blaðsíða 1
85. tbl. — 45. árgangur. LeirkeragerS bls. 8—9. Langarðagur 15. aprfl l961. Einstæður atburður í sögu hæstaréttar: Guðlaugur Einarsson sviptur verjandastarfi Úrskurður hæstarétt- ar í gær um óhæfni verjandans. Til mikilla tíðinda dró í morðbréfamálinu í gær, er Guðlaugi Einarssyni, héraðs- dómslögmanni, skipuðum verj anda Magnúsar Guðmundsson- ar, var vikið frá sem verjanda með úrskurði hæstaréttar. Klukkan 10 í gær var dómþing sett í sakadómi Reykjavíkur, og hafði dómarinn, Halldór Þorbjörnsson, boðað til dóm- þingsins bæði sækjanda, Pál S Pálsson, og verjanda, Guð- laug Einarsson. Lyktir urðu þær, að verjandinn mætti ekki til að bera fram kröfu sína og greinargerð varðandi það, að dómari vikr sæti. Á sömu lund hafði farið í fyrradag, er dómarinn hafði boðað til dómþings kl. 2 síð- degis. Dómarinn, Halldór Þor- björnsson, setti rétt klukkan 10 í gærmorgun og var beðið Guðlaugs, þar til klukkan 11. Er málum var svo komið, að greinilegt var, að verjandi hugðist ekki mæta, ákvuð dómarinn að slíta rétti um ellefuleytið. Hæstaréttardómarar fjöll- (Frambald á 2. síðu.) GuSlaugur Einarsson við málflutning í morðbréfamálinu í hæstarétti 18. janúar í vetur. Réttarsalurinn er fullskipaður, enda þótti þegar framkoma Guðlaugs í þessu máli meS þeim hætti, að til stórtíðinda gæti dregið. Djákni til starfa i Grímsey í vor Innan skamms mun sú ný- lunda gerasf, að djákni verður vígður f«l starfa í Grímsey í þjónustu kirkjunnar. E'nar Einarsson frá Sigtúríum í Grímsey hefur að undanförnu sótt fyriríesfra í guðfræðideild Magnús hafnar verjanda Þegar Magnúsi Guðmundssyni hafði verið birt ályktun hæsta- rcttar, neitaði hann að fallast á, j að sér yrði fengmn nýr verjandi. j Skrifaði hann yfirlýsingu, efnis-; lega á þessa leið: Eg lýsi því yfir, að óg mun aldrei viðurkenna neinn verj- anda mér til handa, annan en Guðlaug Einarsson hdl., og mun ég aldrei tala við annan verj- anda né nokkru sinni svara fyr- ir rétti um þetta mál, nema ég fái minn verjanda aftur. í orðaskiptum, sem urðu í fram haldi af því, að Guðlaugur var sviptur störfum verjanda, sagði Magnús: „Þið megið dæma mig í ævi- langt fangelsi“. Mun flytja messur, annast fermingarundirbúning og kenna í sunnudagaskóla Djáknaefnið — Einar Einarsson háskólans til undirbúmngs djáknastarfniu og heldur senn norður til þess að taka við hinu nýja embætti. Það hefur löngum reynzt erfitt að fá presta til starfa í Grímsey, og þar 'hefur nú verið prestslaust síðan séra Róbert Jack fór þaðan. Hefur Akureyrarprestur gegnt þar nauðsynlegustu prestsverkum að undanförnu, en þar er mjög óhægt um vik, eins og gefur að skilja, og messur í Miðgarðskirkju hafa verið ærið strjálar. Verksvið djáknans Grímseyingar hafa unað því illa, að ekki skuli betur að þeim búið í trúarefnum en iþetta. Þess vegna hefur. það ráðizt fyrir tilstuðlan biskups, prests þess á Akureyri, sem gegnir prestsþjónustu í Grímsey, og sóknar'barna heima fyrir, að komið yrði upp djákna- embætti. Á djákninn að flytja messur, búa börn undir fermingu og kenna í sunnudagaskóla. Akur- eyrarprestur mun svo skíra, ferma, gifta og jarðsyngja. Djáknaefnið Einar Einarsson, sem ‘fenginn hefur verið til þess að takast þetta embætti á hendur í nauðsyn Grímseyinga, er Skaftfellingur að ætt, en fluttist til Grímseyjar fyr- ir nokkrum árum og staðfestist þar. Hefur hann fengizt þar við myndskurð og hvers konar tré- smíði. (Framhald á 2. siðu.) „Þar, sem allt var áöur heitt” Siglufirði, 13. apríl. — Vatnsskortur er nú enn far- inn að segja til sín í Skeiðfoss- inum, og veldur það okkur Siglfirðingum bæði angri og óþægindum. Fyrir hálfum mánuði leit út fyrir, að orkan mundi endast, en frostin, sem verið hafa upp á síðkastið kollvörpuðu þeim vonum. og hefur nú orðið að hverfa að rafmagnsskömmtun. Fullt útlit er á, að svo verði enn um sinn, því þótt þítt sé við sjóinn, er frost til fjalla. Ekki er Skeiðfossvirkjunin þó með öllu „dauð“, en ríkisverksmiðjumar keyra nú þegar sínar vélar og til stendur, að Rauðka hlaupi einnig undir baggann. „— er nú kalt og freðið" Rafmagnsskorturinn veldur að sjálfsögðu margháttuðum erfið- leikum því þegar sú tækni bregst, sem fólk reiðir sig á, verða menn oft hjálparvana, líkt og fiskar á þurru landi. Mjög víða eru raf- magnsblásarar notaðir við olíu- kyndingarkatla, en þeir verða ó- virkir við skömmtunina, nema að því leyti, sem fólk getur notað rafmagnið til að knýja þá þær stundir, sem straumur er á. Ann ars staðar er eingöngu hitað upp með rafmagni, og ekki er ástand ið betra þar, J3ót er í máli, að Ijósatíminn er ekki langur orð- inn. (Framhald á 2. sfðu.) Jón Axel bankastjóri Bankaráð Lamlsbanka íslands hefur í dag, samkvæmt ósk Emils Jónssonar, sjávarútvegsmálaráð- herra, ráðið Jón Axel Pétursson, forstjóra, til að gegna störfum bankastjóra við Landsbanka ís- lands á meðan Emil Jónsson sinn ir ráðherrastörfum. (Frétt írá Landsbanka íslands). Kviknaði í bænum á Stóra-Vatnsskarði í fyrrakvöld kviknaði í bæj arhúsi ao Stóra-Vatnsskarði í Skagafirð'. Þótti útlitið svo al- varlegt urn tíma, að slökkvúið frá Sauðárkrók var kvatt á vettvang, en tekizt hafði að ráða niðuriögum eldsins, áður en það kcmst alla leið. Eldurinn kom upp milli klukk an átta og níu um kvöldið, og slökkviliðinu á Sauðárkróki barst kallið um níuleytið. Eldurinn kviknaði í þekju gamals torfbæj- ar, sem byggt hefur verið við. Brann dálítið gat á þekjuna, en tjón á innanstokksmunum varð ekki teljandi. Neisti frá reykháfrsum? Aðstaða til slökkvistarfsins var ágæt, nóg vatn við höndina, og menn dreif að frá nálægum bæj- um til hjálp/r. Var eldurinn að fullu slökktur, áður en slökkvi- liðið kom á vettvang. Talið er, að neisti frá miðstöðvarupphitun muni hafa komizt í þurra torf- þekjuna úr reykháfnum. Bændur á Stóra-Vatnsskarði eru Árni Árna son og Benedikt Péturssoa,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.