Alþýðublaðið - 10.04.1920, Page 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Xoli konaiignr.
Eftir Upton Sinclair.
Önnur bók:
Prœlar Kola konnngs.
(Frh.).
Alt í einu stóð eftirlitsmaðurinn
á fætur. „Heyrðu", sagði hann,
„mundir þú hafa nokkuð á móti
því, að fara upp sem snöggvastf'
Hallur gat ekki gert að sér, að
hlægja. „Já, svo sannarlega, mjög
mikið", sagði hann. „Gg hefi ekki
fengið annað en vatn og brauð í
þrjátíu og sex klukkustundir, og
mundi þykja mjög vænt um að
komast út og fá að anda að mér
gúlsopa af hreinu lofti'.
„En eg er nú“, sagði hinn
hæglátlega, „nauðbeygður að
senda þig þangað upp“.
„Það er annað mál“, sagði
Hallur. „Ef þér sendið mig þang-
að, þá fer eg, en það verður yð-
ur sjalfum verst. Þér hafið haldið
mér hér í algerðu heimildarleysi,
ákærulaust og án þess að gefa
mór tækifæri til þess að hafa tal
af málfærslumanni. Mér skjátlast
mjög, ef þér berið ekki lagalega,
en félagið siðferðislega, ábyrgð á
þessu. En það kemur auðvitað
engum, við nema yður. Eg vil að
eins gera málið ljóst — fyrst þér
spyrjið mig hvort eg hafi nokkuð
á móti því að fara upp, þá svara
eg, að eg hafi mjög mikið á móti
því“.
Eftirlitsmaðurinn staldraði við
og nagaði vandræðalega vindil-
stúfinn. Því næst gekk hann að
dyrunum. „Hallo, Gusl“ kallaði
hann. Vörður Halls kom inn og
Cotton hvíslaði einhverju að hon-
um, svo fór hann aftur. „Eg sagði
honum, að hann ætti að útvega
þér mat, þú getur svo verið hér
og borðað hann. Hæfir þér það
betur f “
„Það er undir því komið“, sagði
Hallur til þess að gera eins mikið
úr því og unt var, „hvort þér
bjóðið mér sem fanga, eða sem
gesti yðar“.
„O. þegiðul' sagði hinn.
„Mér þætti gaman að vita,
hvernig eg nú er settur, lögum
samkvæmt. | Malafærslumanni mín-
um getur síðar orðið það að liði“.
„Vertu þá gestur minn", sagði
Cotton.
Gætið ha^muria yðar.
Látið okkur leggja rafleiðslur í hús yðar núna.
— Með því fáið þér það ódýrt og fljótt af hendi leyst.
cJCf %5Sofmf. tJCiti & JSjos.
Vonarstræti 8. Sími 830.
Félagsmenn og innsækjendur verða nú afgreiddir
í gamla Landsbankanum hvern virkan dag frá kl.
9 árdegis til 6 síðdegis.
„Þegar gestur hefir borðað,
getur hann farið, ef hann vill*.
„Það skal eg láta þig vita, áð-
ur en þú ert mettur".
„Jú, jú, flýtið yður þá. Eg er
fljótur að borða".
„Og þú lofar, að fara ekki fyrí“
„Ef eg fer“, ansaði hinn, „þá
verður það þangað, sem skyldann
býður mér að vera. Þér getið
leitað mín í vogarskýlina, Cotton".
Keiislo
tek eg að mér. T. d. að búa nem-
endur undir inntökupróf í i. bekk
gagnfræða- eða lærdómsdeildar
Mentaskólans (spec. stærðfræði).
Upp'ýsingar í síma 081.
Halldór Kolbeins,
cand. theol.
Alþýðubladið
er ódýrasta, fjölbreyttasta og
bezta dagblað landsins?
Kanpið það og lesið, þá
getið þið aldrei án þéss verið.
Mótorlampar viðgerðir og
hreinsaðir brennarar í prímusa-
viðgerðinni Laugaveg 12. Fljótt
og vel unnið.
Dilkakjöt
I. flokks á kr. 1,35 pr. V2 kg. I
verzluninni
Skóg’afoss
Aðalstræti 8. Sími 353.
Sá
sem vill vera viss um að verka-
lýðurinn lesi auglýsingar sínar,
verður að auglýsa í Alþýðublað-
inu, sem er eign verkalýðsins og
gefið út af honum.
Sumar- og fermingar-
kort. — Afmæliskort.
Nýjar teikningar.
Heillaöskabréf við öll
tækifæri.
Láugaveg 43 B.
Friðfinnur L. Guðjónsson.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ólafnr Friðriksson.
Prentsmiðjan Gutenberg.