Tíminn - 26.04.1961, Síða 2
T í fti .11: miSvikudagian 26. apriT' 19613
f 2
í gær lauk samnlngaviSræðum milll rlklsstjórna íslands og Sovét um samvinnu á sviði menningarmála, tækni
og víslnda. Stjórnarráðlð sendi blaðinu I gær þessa mynd, er tekin var, þegar þeir Guðmundur í. Guðmunds-
son utanriklsráSherra og A. M. Alexandrov, sendiherraSovétrík|anna hér, undirrituðu samnigninn. „Samkvæmt
ákvæðum samnlngs þessa ber báSum samnlngsaSllum i hvívetna að stuðla að aukinni samvinnu á sviðl menn
ingarmála," segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.
Sumarfagnaður
í Vestmanna-
eyjum
Vestmannaeyjum, 22. apríl.
Á sumardaginn fyrsta hélt
barnaskóli Vestmannaeyja
myndarlega skemmtun í sam-
komuhúsi bæjarins og hófst
hún kl. 2.
Skemmtunin var sett af Stein-
grími Benediktssyni kennara. Þá
lék Lúðrasveit barnaskólans nokk-
ur lög, undir stjóm Oddgeirs Krist
jánssonar, leikið var á blokkflaut-
ur, sýndir tveir leik'þættir, skóla-
kórinn söng undir stjórn Oddgeirs
Kristjánssonar og sýndir voru
þjóðdansar og fimleikar undir
stjóm Hafdísar Árnadóttur, leik-
fimiskennar'a og að lokum lék
lúðrasveitin á ný.
Fór skemmtun þessi í alla staði
ágætlega fram og var kenurum og
nemendum til sóma. Húsfyllir var
og komust færri að en vildu.
Fyrr um daginn gengu skátar
skrúðgöngu frá skátaheimilinu að
Landakirkju og fór þar fram skáta
messa. Séra Jóhann Hlíðar pródik-
aði. SK.
Enn ein tilraun
Frakka
París/Moskva 25/4 (NTB).
Frakkar sprengdu í dag fjórðu
kjarnorkusprengju sína I Sahara-
eyðimörkinni. Segir í opinberri
tilkynningu, að þetta hafi verið
lítil sprengja og að hlé muni nú
verða á tilraunum með kjarnorku-
sprengjur í Sahara a. m. k. ofan-
jaróar.
Moskvuútvarpið sagði í dag, að
þessi tilraun Frakka drægi mjög
úr samkomulagshorfum um bann
við kjarnorkuvopnum. Tilraunir
Frakka væru ógnun við friðinn I
heiminum. í sérstakri útvarps-
sendingu til Afríku sagði Moskvu-
útvarpið, að enn hefðu nýlendu-
herrarnir framið glæp gagnvart
Afríku. Hin skítuga aska frá
frönsku kjarnorkusprengjunni hef-
ur enn einu sinni skyggt á bjartan
himin Afríku.
Aðalfundur Félags ís-
lenzkra símamanna
Aðalfundur Félags ísienzkra
símamanna var nýlega halidnn. í
framkvæmdastjór'n voru kjörnir
Sæmundur Símonarson, formaður,
Agnar Stefánsson, varaformaður,
Vilhjálmur Vilhjálmsosn, ritari og
Guðlaugur Guðjónsson, féhirðir.
Svohljóðandi tillaga var sam-
þykkt á fundinum:
Aðalfundir Félags íslenzkra
símamanna haldinn 19. apríl 1961
styður einhuga kröfur þær, sem
Snjó rutt af
heiðavegunum
Akureyri, 24. apríl.
í dag var verið að ryðja snjó
af Öxnadalsheiði, og átíi því
verki að Ijúka í kvöld. Snjór
er þar ekki mjög mikill. Miklu
meiri er hann á Holtaörðu-
heiði, sem einnig er verið að
opna í dag. Ennfremur er ver-
ið að ryðja Vaðlaheiði, og
verða nú allar helztu leiðir
frarar, austur og vestur.
Austur I Þingeyjarsýslu er ver
ið að opna veginn' fyrir Tjörnes,
on þar er lítill snjór nema i gilj-
um, sem þar eru að vlsu mörg og
stór að vestanverðu. Á Mývatns-
heiði er lítill snjór.
Holklakr og aurbleyta
Jafnframt því, sem heiðarveg-
ir eru opnaðír, eru vegirnir víða
I byggðum að bregðast vegna aur-
bleytu. í hálkunni undanfarna
daga hefur mikið af njó bráðn-
að niður i þá, og einnig hefur
rignt nokkuð. Vaða farartækin
for ofan á klakanum, en vegirnir
verða alófærir eftir skamma stund.
Verður brátt farið að takmarka
þungaflutninga og loka aftur sum
um vegum. ED
stjórn B.S.R.B. hefur sent til ríkis-
stjómarinnar og skorar á ríkis-
stjórnina að verða við þeim.
f félaginu eru nú milli fimm
og sex hundruð manns. Félagið
rekur lánasjóð, sem veitir félags-
mönnum nokkurn stuðning við
húsbygigngar og aðrar fram-
kvæmdir, ennfremur rekur félag-
ið styrktar-, menningar- og kynn-
ingðarsjóði, sem margir félags-
menn hafa notið góðs af.
SÆMUNDUR SÍMONARSON,
íormaSur Félags íslenzkra
símamanna.
Illa skipt sól
og regni
Peking 25/4 (NTB).
Mikil úrkoma síðustu daga hefur
valdið því, að ár hafa flætt yfir
bakka sína í Kwantung og Kwangsi
héruðum í Suður-Kína, segir í
fréttum í Alþýðudagblaðinu í Pek-
ing. Sömuleiðis eru mikil flóð í
Hunanhéraði. Fólk hefur verið
flutt frá þessum héruðum og
björgunarsveitir sendar á vettvang
til þess að bjarga því, sem bjargað
verður.
Afburðasölur tog-
aranna erlendis
Marz fékk hæsta meíalvertJ, sem íslenzkur togari
hefur fengitl í Bretlandi. Kvóti mánatJarins fylltur.
Feiknasala Sólborgar í Þýzkalandi.
Síðustu dagana hafa nokkrir^
íslenzkir togarar selt afla sinrL
ísaðan í erlendum höfnum, og'
hafa allar þessar sölur verið
góðar, en sumar frábærar.
Togarinn Marz seldi í Hull í
gærmorgun 153,6 lestir fyrir
15,560 sterlingspund, og mun
þetta vera hæsta meðalverð, I
sem íslenzkur togari hefurj
fengið fyrir fisk erlendis.
I
Pétur Halldórsson seldi I gær-;
morgun I Grimsby 128,3 lestir fyrir
11.272 stp. I
Júpíter seldi í fyrramorgun í
Grimsby, 221,2 lestir fyrir 18.951
stp. Aflinn var ýsa, koli og þorsk-
| ur. Þetta er næsthæsta sala ís-
lenzks togara í Bretlandi fyrr og I
síðar. Neptúnus á metið, en hann!
seldi um árið fyrir 19 þúsund|
pund. Skipstjóri á Júpíter nú er
Bjarni Ingimarsson, en hann var
einmitt með Neptúnus, er hann
setti sölumetið. Samtímis þessari
löndun Júpiters í Grimsby, land-
aði Hallveig Fróðadóttir í Hull,
111,6 lestum, sem seldust fyrir
10,701 sterlingspund, sem er ágæt
sala.
meðalverð, sem íslenzkur togari
hefur fengið á Þýzkalandsmarkaði'.
Lagðist allt á eitt til þess að gera
söluna sem glæsilegasta. Kalt var
I veðri, fiskurinn mjög góður og
fallegur og skortur á fiski á mark-
aðinum. Einnig eru nú mörg þýzk
skip farin að sigla á England eins
og fyrr greinir.
Stórkostleg lausn
(Framhald af 1. síðu).
lengsta,- sem við höfðum komizt
áður í málinu. Danska ríkisstjórn
in gerð'i íslendingum þá það til-
boð, að handritin skyldu vera sam-
eign íslendinga og Dana. Danskt
blað komst í málið og skrifaði um
það á mjög villandi hátt og spillti
gersamlega málinu, þar sem grein
in olli ofsa hér heima. En þetta
er mjög viðkvæmt mál. Eg er viss
um, að engu lakari lausn hefði
þá fengizt, ekki færri handrit
fengizt heim, ef málinu hefði þá
ekki verið spillt. Sameignarorða-
lagið hræðir menn, sem líta á ís-
lenzkar fornbókmenntir sem eign.
Þessi handrit eru annað og meira
en eign. Aðalatriðið er varðveizla
þeirra hér heima, þar sem þau
voru upphaflega rituð.
Með þorskinn heim aftur
Með löndun Júpíters var lönd-
unarkvóti íslendinga fyrir þorsk
fylltur fyrir þennan mánuð, og
lönduðu skipin, sem á eftir komu,
Hallveig, Pétur og Marz, aðeins
eða mestmegnis ýsu en koma heim
aftur með þorskinn, og fer hann
hér til vinnslu. Með sölu Marz
fylltist ýsukvótinn, og átti hann
eftir 54 stp. virði af ýsu, er löndun
var stöðvuð. Júpíter átti einnig
eftir örlítið af þorski, er mælirini^
varð fullur, en mjög strangt eftir-
lit er með þessu, og fer ekki í land
sporður fram yfir hið umsamda
magn. Hið háa fiskverð I Bretlandi
stafar tvímælalaust af verkfalli
togaramanna I Grimsby, en þar
liggja enn yfir 150 togarar bundn-
ir við bryggjur. Danskir fiskibátar
og þýzk skip eru nú farin að fjöl-
sækja markaðinn I Bretlandi af
þessum sökum.
ísafjarðartogarinn Sólborg seldi
í gærmorgun I Bremerhaven 121
lest af fiski fyrir 123,300 mörk,
sem er gífurlega góð sala, og lík-
lega er hér um að ræða hæsta
Sýning á sænskri
graflist
Skilningur Dana
— Að unnum sigri getum við
þakkað Dönum góða varðveizlu
handritanna þessar aldir og full-
vissað þá um, að við munum ekki
gera aðbúnað þeirra né tilkostnað
síðri en áður. Sennilega er eins-
dæmi, að nokkur þjóð láti af
hendi bókmenntalega dýrgripi af
slíku tagi. Dönum er það til mik-
ils sóma, hve mikinn og góðan
vilja þeir hafa sýnt í þessu okkar
tilfinningamáli. Það hefur aldrei
verið auðvelt að setja sig I spor
annarra, en eftirtektarvert er, hve
margir Danir 'xilja, hvílíkt hjart-
ans mál þetta er íslendingum.
Sennilega hefðu öðruvísi lyntar
1 þjóðir en Danir ekki reynst jafn
viðbragðagóðar.
Árnastofnun
— Eg vona að Árnastofnun við
Kaupmannahafnarháskóla megi
haldast áfram, og megi handritin,
sem eftir verða, vera Dönum hvatu
jing til að gera veg þeirrar stofn-
unar ekki minni en verið hefur.
Árnastofnun hefur orðið til fyrir-
myndar um vísindalega meðferð
handritanna og nákvæma útgáfu-
starfsemi undir stjórn Jóns Helga-
sonar prófessors,
15 mestu dýrgripirnir
— Heim kemur nú yfirgnæfandi
Næstkomandi laugardag verður, meirihluti merkilegustu -handrit
jopnuð I bogasal þjðminjasafnsins anna. Af nítján sérstökum dýrgrip
; sýning á sænskri nútímagraflist um, sem birt voru I hinu fræga
(grafik). Sýningin er haldin á veg- safni Einars Munchsgaards, komá
um Svenska Institutet I Stokk- fimmtán hingað. Þrjú verða eftir,
hólmí í samvinnu við ambassador en eitt eiga Sviar, Ólafs sögu
Svía í Reykjavík og menntamála- helga. Fyrir íslenzk fræði er heim
ráðuneytið. Á sýningunni verða 68 koma handritanna ómetanlegur á-
myndir eftir 20 listamenn. vinningur.
Flokksstarfift i bænum
FÉLAG FRAMSÓKNARKVENNA
Félag Framsóknarkvenna heldur bazar 1 Framsóknarhúslnu sunnu-
daginn 30. þ. m. Konur eru beSnar að koma mununum á Ásvalla-
götu 67, síml 13277, Grettlsgötu 7, sími 14435 og BarmahlíS 17, sími
11668, fyrlr n. k. flmmtudagskvöld. Ennfremur verSur bazarnefndin
tll viðtals f skrlfstofu fulltrúaráðslns í Framsóknarhúsinu á fimmtu-
dagskvöld eftir k'l. 9. Símar í skrifstofunni eru 15564 og 12942. —
Bazarnefndin.