Tíminn - 26.04.1961, Side 3
1Jt'i^j^Svikudagiiui.^^Blflí&eí.
Frakkar óttast ennþá ör-
þrifaráð uppreisnarmanna
París 25/4. (NTB).
í dag sendi de Gaulle, Frakk
landsforseti, franska þinginu
boðskap, þar sem hann segir,
að hann hafi tekið sér alraeðis-
vald samkvæmt stjórnarskrá
fimmta franska lýðveldisins
með tilliti til þess, að lýðveld-
inu væri ógnað vegna aðgerða
herforingjanna í Alsír. í boð-
skap þessum, sem lesinn var
fyrir báðum deildum þingsins
af þingforsetum, leggur de
Gaulle áherzlu á það, að ein-
ræðisvald hans breyti í engu
löggjafarvaldi þingsins né
heldur hafi það áhrif á sam-
band þings og stjórnar nema
hvað viðkemur þeim málum,
er beint eða óbeint varða her-
foringjauppreisnina í Alsír.
Forsetinn sagðist bera einlæga
virðingu fyrir þinginu. Ein-
ræðisvaldið taki hann sér til-
neyddur og vænti stuðnings
þingsins í þeim mikla vanda,
sem franska lýðveldið sé nú í.
Er boðskapur þessi var lesinn í
þingdeildum risu allir þingmenn úr
sætum nema nokkrir öfgamenn til
hægri, er sátu sem fastast.
, Eftir að boðskapur forsetans
hafði verið lesinn upp, tók Debré,
forsætiaráðherra til máls. Hann
sagði, að hiklaust yrði ráðizt gegn
uppreisnarmönnum, ef þeir gæfust
ekki upp við sitt vonlausa tiltæki,
sem allra fyrst. Þessum ummælum
var fagnað af þingmönnum með
húrrahrópum. Hægri menn sátu þó
hljóðir, og nokkrir æptu að for-
sætisráðherranum.
Debré lýsti því yfir, að uppreisn-
armenn hlytu að taka ábyrgðina af
því, að hafa nær komið af stað
borgarastyrjöld í Frakklandi. Á-
standið í Alsír liggur nú ljóst fyrir.
Franska stjórnin hefur útnefnt
fjölda nýrra embættismanna í land
Uppreisnin talin sjálfdauí, nema reynt vertii a<5
rá<5ast inn í Frakkland. — De Gaulle fær traust
hvaftanæva a<5
inu og mun ná sambandi við þá
innan tíðar.
Debré sagði, að þjóðin væri ein-
huga gegn uppreisnarmönnum og
tilræði þeirra því vonlaust. Hann
sagðist vilja leggja áherzlu á það,
að allra tiltækilegra ráða yrði neytt
til þess að brjóta uppreisnarmenn
á bak aftur. Það verður stundum
að beita meiru en löglegum aðferð
um til þess að hrinda ólöglegu at-
hæfi, sagði forsætisráðherrann. —
Þessum orðum hans var fagnað á-
kaflega af öllum nema hægri mönn
Reyna a8 ná Frakklandi
Forsætisráðherrann greindi frá
því, að uppreisnarmenn hefðu í
morgun reynt að ná á sitt vald
flotastöð í Alsír, en ekki tekizt það.
Uppreisnarmenn myndu nú minna
á það í æ ríkari mæli, að fleiri og
fleiri snerust gegn þeim. Þeir munu
og skilja það, sagði forsætisráðherr-
ann, að þeir hafa kallað á vopna-
viðskipti fyrr en síðar, sem ekki
munu verða þeim hagstæð.
Debré lagði áherzlu á það, að
augljóst yrði að teljast, að uppreisn
armenn hyggðust ekki aðeins reyna
að ná Alsír á sitt vald. Þeir myndu
einnig reyna að ná völdum í Frakk
landi sjálfu. Allar varúðarráðstaf-
anir eru því enn gerðar í Frakk-
landi. Enda þótt uppreisnarmenn
hafi ekki enn lagt til árásar gegn
Frakklandi sjálfu, verðum við að
vera við öllu búin. Enn hafa ekki
orðið blóðsúthellingar, sagði for-'
sætisráðherrann, en þær geta orð-
ið, og ábyrgðin hvílir á uppreisnar
mönnum.
Mikill viðbúnaður
Einn af talsmönnum franska flota
málaráðuneytisins skýrði frá því í
París i dag, að franski Miðjarðar-
hafsflotlnn hefði í dag lagt úr höfn
i Toulon. Það var áður vitað, að
Laosforingjar
fagna vopnahléi
Bardögum hætt á mit$nætti * nótt
London/Vientiane 25/4 (NTB),
Deiluaðilar í Laos hafa orð-|
ið við þeim tilmælum Bret-j
lands og Sovétríkjanna að!
hætta vopnaviðskiptum og til-|
kynnt hefur verið opinberlega!
í Vientiane, að Boun Oum,!
forsætisráðherra hafi fyrir-
skipað, að bardögum skuli
hætt á miðnætti í nótt.
Talsmaður brezka utanríkisráðu-
neytisins skýrði frá því í Lundún-
um í dag, að hin hægri sinnaða
stjórn í Laos hefði ákveðið að
taka upp samnmgsviðræður við
vinstri menn í landinu. í tilkynn-
ingu stjórnar Laos um þetta atriði
segir, að hún sá fús til þess hve-
nær sem er að setja sig í samband
við foringja vinstri manna til þess
að hægt sé að ákveða, hvenær
vopnahlésviðræður skuli hefjast. í
Lundúnum segjast menn líta svo
á, að Sovétstjórnin hafi snúið sér
til Pathet-Lao komúnista með
beiðni um að láta af vopnaviðsikpt
um.
Leiðtogi Pathet-Lao, Souphann-
ouvong prins, lýsti því yfir í dag,
að hann fagnaði samkomulagi
Breta og Sovétríkjanna og myndi
gera sitt til þess að ná samningum
um vopnahlé. Jafnframt segir
prinsinn, að hann styðji hugmynd-
ina um vopnahlé. Jafnframt segir
prinsinn, að hann styðji hugmynd-
ina um 14-rikja ráðstefnu, er leysi
framtíðarvandræði Laos.
Souvanna Phouma, forsætisráð-
herra hlutleysisstjórnar Laos, hef-
ur og lýst yfir stuðningi sínum við
samkomulag Breta og Rússa.
Phouma leggur til að mynduð
verði í Laos stjórn á breiðum
grundvelli, er sendi fultlrúa til
14-ríkja ráðstefnunnar í Genf 12.
maí n.k. — Stjórn Bandarikjanna
segist því aðeins munu taka þátt í
þessari ráðstefnu að tryggt sé, að
vopnahlé sé í Laos.
flotinn var albúinn að leggja úr
höfn. Ekki hefur verið látið uppi,
hvert flotinn stefnir, en taliS er
víst, að hann muni eiga að taka
þátt í því að fylgjast með hvort
uppreisnarmenn reyna að halda frá
Alsír til innrásar í Frakkland.
Upplýsingamálaráðherra frönsku
stjórnarinnar hafði áður skýrt frá
því, að hermenn þeir franskir, sem
dvelja í Þýzkalandi á vegum Atlants
hafsbandalagsins, hafi verið kvadd-
ir heim til þess að efla varnir
Parisarborgar. Þetta mun vera um
60 þúsund manna herlið. Ráðherr-
ann sagði, að þessi heimköllun
sýndi, að stjórnin efaðist ekki um
hollustu hersins.
Ónógur stuðningur í Alsír
Farþegaskipið E1 Mansour kom til
Port Vendres á suðausturströnd
Frakklands frá Alsír í dag. Farþeg-
ar með skipinu sögðu, að a.m.k.
tveir menn hefðu fallið í uppreisn-
inni, er þeir reyndu að verja út-
varpsstöðina í Algeirsborg. Jafn-
framt sögðu farþegarnir, að fransk
ir flugmenn í Alsír hefðu neitað að
fljúga með fallhlífasveitir til árása
á Frakkland. Farþegarnir sögðu, að
útvarpsræða de Gaulle forseta hefði
hljómað um gervallt Alsír og verið
fylgt með miklum áhuga. Ræðunni
var síðan dreift meðal íbúa lands-
ins.
Eins og fyrr segir mistókst upp-
reisnarmönnum að ná á sitt vald
flotastöðinni Mers-el-Kebir í Alsír.
Hermenn í fiotastöðinni snerust
gegn fallhlífarhormönnum, sem
reyndu ekki að stofna til frekari
átaka. Hins vegar segja uppreisnar-
menn í útvarpi frá Algeirsborg, að
fjölmargar herdeildir í Sahara hafi
gengið I lið með þeim. í Parls er
tilkynnt, að herinn í Alsír sé hvergi
nærri á bandi uppreisnarmanna. —
-Fallhlífadeildir hafi haft samband
við frönsku stjórnina og vottað holl
ustu sina. Jafnlramt hafi fjölda
flugmanna tekizt að sleppa frá
Alsír og lenda í Frakklandi.
Vopn handa verkamönnum
Þingmenn kommúnista héldu í
dag fund undir forsæti kommúnista
leiðtogans Maurice Thorez. Á fund
inum var gerð samþykkt um, að
stjórnin fengi verkamönnum vopn
í hendur svo þeir mættu taka þátt
í vörnum Frakklands, enda hefðu
verkalýðssamböndin áður krafizt
þessa. Jafnframt mótmæltu þing-
mennirnir, að ekki skyldu leyfðar
mótmælagöngur og fjöldafundir,
því að það væri fólkið í Frakklandi
er hefði máttinn til þess að mala
i niður þessa fasistísku ævintýra-
menn.
Helgitónleikar í Neskirkju
Bræð'rafélag Nessóknar hefur
efnt til nokkurra kirkjukvölda sl.
tvo vetur, og nú hefur félagið
fengið Martin Gunther Förste-
mann, hinn fræga blinda snilling,
til að halda helgitónleika í Nes-
kirkju fimmtudagskvöld kl. 8.30.
Mun hann leika verk eftir sjálfan
sig, Pachelbel, Buxtehude, Liibeck
og Reger. Verða þetta síðustu tón-
leikar Förstemanns í þessari ann-
ari heimsókn hans til íslands.
Bræðrafélagi Nessóknar hafa
hefur verið falið ýms störf innan
safnaðarins, og hyggur nú á aukna
æskulýðsstarfsemi og vonast til
að geta bætt t>g fegrað umhverfi
Neskirkju. Það vill með tónleik-
um þessum kynna starfsemi sína
og gefa safnaðarfólki og öðrum
Reykvíkingum, sem ekki eru í
Tónlistarfélaginu, kost á að heyra
Förstemann leika, áður en hann
hverfur af landi brott.
Bandarískur gervi-
geimfari „týndi lífi“
„Generalprufanu mistókst algerlega
CanaveralhöfSa 24/4 (NTB).
Enn hefur geimfaraáætlun
Bandaríkjamanna ekki gengið
að óskum. í dag tókst svo illa
til, að Atlaseldflaug með
gervihnetti, er fara skyldi
umhverfis jörðu, sprakk hálfri
mínútu eftir að eldflauginni
hafði verið skotið á loft frá
Canaveralhöfða.
i Það virðist nú Ijóst orðið, að upp
| reisnarmenn hafa þegar beðið ósig-
! ur, enda þótt enn sé óttazt, að þeir
j kunni að grípa til örþrifaráða. Eng-
inn hefur orðið til þess að lýsa yfir
stuðningi við uppreisnina og her-
inn í Alsír virðist hvergi nærri svo
hliðhollur uppreisnarmönnum, er
þeir vilja vera láta. Algert viðskipa
bann hefur verið sett á Alsír og er
ljóst, að uppreisnarmenn verða að
gefast upp innan skamms, ef þeim
tekst ekki að ná Frakklandi á sitt
vald.
Á sama tíma lýsa æ fleiri þjóðit-
yfir stuðningi við de Gaulle forseta,
og franska þjóðin virðist nær ein-
huga að baki honum, sem og meiri
hluti hersins. Blöð á Norðurlönd-
um segjast að vísu ekki hliðholi
Verkfallinu aflýst
- eftir dóminn
Vinnuveitendasambandi SuSur-1
nesja barst ngær bréf frá Verka-1
kvennafélagi Keflavíkur og |
Njarðvíkur þar sem aflýst var|
verkfalli því sem staðið hefur frá
23. marz s.l. Var verkfallinu af-
lýst eftir dóm félagsdóms en
hann var á þá lund að verkfaliið
væri ólöglegt. Samningum er
ekki hægt að segja upp nema
með mánaðar fyrirvara á sex
mánaða fresti og er þá miðað við
1. janúar og 1. júní. Samningarn-
ir munu því gilda til 1. júní n. k.
Þetta var eins konar „gener’al-
prufa“, áður en geimför Gagaríns
hins sovézka yrði endurtekin
vestra. Ekki vita menn hvað Óhapp
inu olli. Eldflaugin þaut upp í
himinblámann sem til var ætlazt,
en eftir aðeins 38 sekúndur
heyrðu menn á jörðu niðri og
sáu gífurlega sprengingu og síðan
aðra og eldflaugin með öllu til-
heyrandi var gereyðilögð.
Ekki var maður í þessari ferð,
heldur var gervimaður þar innan-
borðs. Var sá svo haganlega gerð-
ur, að hann átti að svara sem
venjulegur maður öllum áhrifum
einar geimfeiðar umhverfis jörðu.
| cinræðislegum athöfnum hans, en j
telja það háska fyrir vestræna sam- (
vinnu, ef uppreisnarmenn ná tök-
! um á Frakklandi.
Segja má, að millibilsástand ríki
nú. Talið er, að skammt muni að;
bíða þess, að örlög uppreisnarmanna
verði ráðin. I
2000. fundur
bæjarráðs
í dag verður haldinn 2000. fund
ur bæjarráðs Reykjavíkur. Fyrsti
fundur bæjarráðs var 6. ágúst
1932. f fyrsta bæjarráðinu áttu
sæti sem aðalmenn þeir Guðmund-
ur Ásbjörnsson, Hermann Jónas-
son, Jakob Möller, Pétur Halldórs-
son og Stefán ,Tóh. Stefánsson, e.n
fyrsti formaður þess var Knud
Zimsen þáverandi borgarstjóri.
Aðrir kjörnir formenn hafa verið
borgarstjórarnir Jón Þorláksson,
Pétur Halldórsson, Bjarni Bene-
diktsson, Gunnar Thoroddscn og
Geir Hallgrímsson.
Nú eiga þessir bæjarfulltrúar
sæti í bæjarráðinu: Geir Hall--
grímsson borgarstjóri, Auður Auð-
uns forseti bæjarstjórnar, Björg-
vin Frederiksen, Guðmundur Vig-
fússon og Magnús Ástmarsson.