Tíminn - 26.04.1961, Side 8

Tíminn - 26.04.1961, Side 8
í® TÍ MINJN, miJWikudaginn 26. apríl 1961. 50 ára afmæli F Ásahrepps r ) / / / / / / / / / / / * / / / / / / / / / / '/ / / / / '/ / '/ '/ ? / / / / / / / / / / / / '/ / / '/ ) / / / / / '/ / / / / / / / / / / * r '/ / '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ / '/ '/ '/ '/ Þú étur um efni fram f Alþýðublaðinu 16. apríl síðastl. gerir ritstjórinn, Bene- dikt Gröndal, nokkurn saman- burð á efnahagsmálastefnu Kennedys Bandaríkjaforseta og stefnu núverandi ríkisstjórnar á íslandi. Um þetta segir þessi talsmaður ríkisstjórnarinnar m.a. orðrétt: „Frægasti hagfræðingur Bandaríkjanna, Paul Samuel- son, hefur líkt vandamáli Bandaríkjanna við dreng, sem þjáist af lystarleysi og vex ekki. Það þarf að örva matarlystina og hleypa vexti í piltinn. Hins vegar mætti segja að íslenzki drengurinn vaxi ört, enda étur hann um efni fram, en hann hefur þjáðst af upp- bótarsárum í maga og verð- bólgusótt. Að lækna báða drengina með sömu ráðum væri hrein vitleysa.“ Það er vafamál, hvort við- reisnarstefnu ríkisstjórnarinn- ar hefur nokkurn tíma verið lýst svo hreinskilnislega, sem hér er gert. Auk þess talar hér ritstjóri stjórnarblaðs og þing- maður stjórnarflokks. Það hefur mörgum verið ráð gáta, hvað rekið hafi stjórnar- flokkana til þeirrar hörku gégn öllum þorra landsmanna, sem lýsir sér í dýrtíð, vaxtaokri, lánsfjárkreppu, skattabyrðum, framkvæmdasamdrætti og al- mennri kjaraskerðingu viðreisn arstefnunnar. f fyrrnefndum orðum Ben. Gröndals, þessa talsmanns rík- isstjórnarinnar, felst þó skýr- ingin á þessu og þarf enginn að efa að hún er í fyllsta sam- ræmi við hugarfar og tilgang stjórnarinnar. Og skýringin er efnislega þessi: íslenzki drengurinn vex of ört, íslenzki drengurinn étur um efni fram. íslenzki drengurinn fær magasár af ofáti. En hver er „íslenzki dreng- urinn“ á máli þessa talsmanns ríkisst j órnarinnar ? Hann er bóndinn við búskap- inn. Hann er verkamaðurinn á eyrinni. Hann er sjómaðurinn á mið- unum. Hann er handverksmaðurinn í iðnaðinum. Hann er verksmiðjustúlkan í verksmiðjunni. Hann er bókarinn í skrifstof- unni. Hann er skrifstofustúlkan við ritvélina. Hann er kennarinn í skólan- um. Hann er presturinn í kirkj- unni. „íslenzki drengurinn" er hinn almenni borgari, í þjón- ustu hins opinbera eða einka- reksturs, sem nýtur aðeins launa eða arðs af vinnu sinni og óskar þess eins að eigin vinna fullnægi honum til fram- færis sér og sínum og veiti honum viðunandi lífskjör. Þessum borgurum þjóðfé- lagsins sendir ritstjóri Alþýðu- blaðsins kveðju ríkisstjórnar sinnar svohljóðandi: Þú hefur vaxið of ört, svo að þú skalt ekki vaxa meira um sinn. Þú hefur étið um efni fram' og þess vegna skaltu hafa minni skammt en áður. í samræmi við þennan meg- inkjarna viðreisnarstefnu ríkis- stjórnarinnar, sem talsmaður hennar hefur lýst svo rækilega, koma sjálf boðorðin, sem fylgt hefur verið og fylgt mun verða meðan núverandi stjórnarflokk- ar fara með völd: 1. Þótt þú launþegi, bóndi eða sjómaður viljir byggja íbúð yfir þig og fjölskyldu þína, þá skaltu láta af þeirri hugsun, því að þá ertu að éta um efni fram. Þess vegna hefur dýrtíðin verið aukin, vextirnir hækkaðir, dreg- ið úr lánveitingum, skattarnir þyngdir, lánstíminn styttur og launum þínum haldið niðri. 2. Þótt þú bóndi viljir bæta jörð þína, stækka túnið með nýrækt, auka bústofninn, bæta húsakynnin og afla þér raf- magns, þá hugsaðu þér ekki þessa hluti því að þá ertu að éta um efni fram. Þess vegna hefur viðreisnarstefnan verið upp tekin, til þess að koma í veg fyrir slíkt bruðl, er aðeins myndi valda þér efnahagslegu magasári. 3. Þótt þú smáframleiðandi viljir auka reksturinn, kaupa þér vélar og tæki til framleiðsl- unnar og bæta afkomuskilyrðin, þá leyfðu þér ekki þá ofrausn því að þá ertu að éta um efni fram. Þess vegna hefur aðstaða ykkar, þessara smáu, til umbóta og framkvæmda, verið þrengd. Þeir stóru eiga ríkjum að ráða, en þið hafið vaxið of ört, Þetta er lækningin á „ís- lenzka drengnum“ sem ritstjóri Alþýðublaðsins segir að stjóm- arflokkarnir séu nú að fram- kvæma, af því að hann hafi étið um efni fram. Frammi fyrir þjóðinni standa þeir tveir, andspænis hvor öðrum, „íslenzki drengurinn", þ. e. fulltrúi vinnandi fólks og ritstjóri Alþýðublaðsins þ. e. talsmaður ríkisstjórnarinnar, og talast við. Og „íslenzki dreng- urinn“ segir: „Ég þoli ekki að- gerðirnar ykkar. Ég vil mega lifa af eigin afla anda og handa án óbærilegra byrða.“ En rit- stjórinn svarar: „Þú hefur vax- ið of ört. Þú hefur étið um efni fram. Vöxtur þinn skal stöðv- aður. Skammtur þinn skal minnkaður." Einn spekingur mannkyns- sögunnar sagði einu sinni: „Hann á að vaxa en ég að minnka.“ Talsmaður ríkisstjómarinnar segir nú: „Ég á að vaxa en þú að minnka“. Sigurvm Einarsson. Síðast liSinn laugardag ninntist Ungmennafélag Ásahrepps fimmtíu ára af- mælis félagsins með veg- legu hófi í Ásgarði, félags heimilinu í Ási. Öllum eldri félögum sem horfnír eru af félagssvæðinu og mök- um þeirra var boðið að sækja þessa samkomu. Auk þess voru þar mættir nokkr ir forráðamenn Héraðssam bandsins Skarphéðins og fé lagar úr UMF Ingólfi í Holtahreppi sem sýndu þjóðdansa með félögum úr Ásahreppi. Hátt á annað hundrað manns sóttu sam- komuna sem stóð með mikl um gleðskap lengi nætur. Samkoman hófst með borðhaldi. ormaður félags- ins, Ólafur H. Guðmunds- son 1 Hellatúni, ávarpaði gesti og rakti sögu Ung- mennafélags Ásahrepps. — Guðbjörn Jónsson, ritstjóri félagsblaðsins Ýlis, las upp greinar úr blaðinu og skemmtiþætti með til- kvöddum þátttakendum var fléttað inn í meðan set ið var utidir borðum. fsak Eiríksson frá Ási stjórn- aði almennum söng og Eiríkur ísaksson í Ási lék uudir á orgel. Því næst hófst þjóð- dansasýning undir stjórn Hafsteins Þorvaldssonar I- þróttakennara. Að henni lokinni kvaddi formaður, Ólafur H. Guðmundsson alla þá stofnfélaga, er sóttu samkomuna, uppá sviðið, en þeir voru ellefu alls. Afhenti Ólafur þeim hverjum fyrir sig heiðurs- skjal og voru þeir allir þar með gerðir heiðursfélagar. Fjórir stofnfélagar voru fjarverandi en fimm eru dánir. Meðalaldur stofnfé- laga mun vera um 70 ár en ekki var bert að þeir sem voru saman komnir í Ási hefðu yfirleitt náð þeim aldri. Flestir þeirra eru við beztu heilsu og margir gegna enn daglegum störf um. Áður en stofnfélagar gengu af sviðinu las for- (Framhald á 13. sífiu.) Stefán Sigurðsson, kennari: Stafsetning og framburður Ég geri ráð fyrir, að marg ir hafi hlustað með athygli á umræðumar um stafsetn- ingu í þætti Sigurðar Magn ússonar 9. þ.m. Það er eins og hann sagði, að þetta mál varðar okkur öll næstum frá vöggu til grafar, en auð vitað misjafnlega mikið. Mest varðar það þá, sem eru að kenna og læra stafsetn- ingu á hverjum tíma. Þetta verður nú víst að telj ast hálfgerð framhleypni af mér að leggja hér orð i belg. Ég er enginn málfræð- ingur. Samt hefur þetta ekki getað vikið úr huga mér síðan ég hlustaði á þess ar umræður. Það kemur alltaf fram í umræðum um þetta mál, að um þrjár leiðir er að velja. í fyrsta lagi að fara eftir uppruna, í öðru lagi að fara eftir framburði og í þriðja lagi að fara m'eðalveginn. Það kemur líka í rauninni alltaf fram, að allir eru sam mála um að fara einhvern meðalveg. En meðalvegirnir eru svo margir. Og þegar um það er að ræða, hvern þeirra skuli ganga, þá verða skoðanirnar mjög skiptar. Það er tvennt, sem eink- um þarf að taka tillit til: að samhengið í bókhenntum þjóðarinnar rofni ekki og að bilið milli framburðar og ritmáls verði ekki óþarflega mikið. Ég er ekki í vafa um, að hægt er að breyta stafsetn- ingunni og gera hana ei~i- faldarl og fljótlærðari, án þess að samhengið í bók- menntum rofni. Við getum okkur að skaðlausu losað okkur við z og tvöfaldan samhljóða á undan þriðja samhljóða. Við getum jafnt lesið eldri bókmenntir þjóð- arinnar fyrir því, en það mundi spara mikinn tíma, sem þarfara er að nota tii annars. Það var óhappa- verk, þegar þeim atriðum var troðið' inn í íslenzka staf setningu fyrir rúmum 30 ár um. Um é ætla ég ekki að ræða sérstaklega. Mér finnst sá stafur tiltölulega mein- laus og ekki skipta miklu máli. hvort við notum hann eða je. Svo er áreiðanlega fleira, sem breyta mætti. Ég nefni sem dæmi, að ég sé enga ástæðu til að rita rýja með j fremur en sícc. En ég ætla ekki að koma með nein ar tillögur í því efni, enda er ég ekki fær um það. En nú kem ég að einu at- riði, sem ekki var minnst á í nefndum umræðum. Ég var að vonast eftir að heyra eitthvað á það minnzt, því að um það atriði hefur verið rætt og deilt áður, en það er stafurinn y. Ég vil að við hættum að skrifa þann staf. Það er vafalaust rétt, sem Jón Helgason prófessor hef- ur sagt, að íslenzkan hafi misst mikið, þegar y-hljóðið hvarf. En nú er það horfið fyrir mörg hundruð árum og algjörlega runnið saman við annað hljóð. Hvers végna þá að vera að halda í þann staf? Vegna upprunans segja sumir. Orðið synda verður að bera það með sér,

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.