Tíminn - 26.04.1961, Qupperneq 13

Tíminn - 26.04.1961, Qupperneq 13
T f M I N N, miðvikudaginn 26. apríl 1961, K3 B L I K fjarlægir mjög auðveldlega alla fitu og skilar leirtauinu taumalausu og gljáandi B L I K hentar því mjög vel í allan uppþvott, en einkum er það gott fyrir allar uppþvotfavélar Blik gerir létt um vik— Blik gerir létt um vik - Blik gerir létt um vík— Blik (Framhald af 9. síðu). á hagkvæmu verði og greiði fyrir þeim á annan hátt. Fólkið þarf þá ekki að eyða dýrmætum tíma sín- um í hlaup út um hvippinn og hvappinn, það er líka ekki eins kunnugt hnútunum og maður sem er búinn að dvelja í Kaupmanna- höfn í 36 ár. Ég hef aldrei þurft að auglýsa þessa starfsemi mína, einn bendir öðrum á mig, og ég hef meira en nóg að gera. Ég hef mikla ánægju af þessari starfsemi (Framhald af 8 síðu' maður kveðju og afmælis- Ijóð frá Sigurði Símonar- syni á Akranesi, en hann var einn stofnfélaga, — og önnur heillaskeyti sem fé- laginu höfðu borizt og þakkaði afmælisgjöf, keppnisbikar í glímu, frá Önnu Sumarlið'adóttur frá Sandhólaferju, börnum hennar og Guðmundar Halldórssonar, sem nú er látinn. Því næst gaf formaður orðið frjálst. Þessir töluðu: Sigurður Greipsson, formað ur Héraðssamb. Skarphéð- ins; Stefán Jasonarson í Gaulverjabæ; Hafsteinn Þorvaldsson íþróttakenn- ari; Þorsteinn Þorsteinss., áður bóndi á Ámundarstöð um og Þorkell Bergsson frá Selfossi. Síðan var stiginn dans fram eftir nóttu. Ccho-kvartettinn frá Hvols velli lék fyrir dansinum. Þessi samkoma fór öll fram með myndar- og rausnarbrag, viðstöddum til ánægju og ungmenna- félaginu til sæmdar. minni, hef kynnzt fjölda góðra manna og eignazt trygga vini. Það er sennilega ekki algengt í við- skiptalífinu, að mönnum berist persónuleg þakkarbréf og kveðjur eftir að viðskiptin hafa átt sér stað, en ég hef fengið margar slík- ar kveðjur. Mér þykir enn vænna um þessi bréf og smágjafir af því ég veit, að íslendingar eru penna- latir við bréfaskriftir, af öðru skrifa þeir nóg. — Maður kynnist landanum miklu nánar og betur í útlendri. stórborg en heima, á nokkrum klukkustundum er ó- kunnur maður orðinn eins og alda gamall vinur. — Þú hefur kynnzt mörgum merkustu stjórnmálamönnum, blaðamönnum og listamönnum Norðurlanda. Hefurðu trú á nor- rænni samvinnu sem svo er nefnd? — Því svara ég hiklaust játandi, segir Geir án þess að hugsa sig um, menn eru alltaf að nöldra og mögla og halda því fram, að nor- ræn samvinna sé ekki nema veizlu höld og skálaræður, innantómar og meiningarlausar. En jafnvel samkvæmislífið og veizluhöldin hafa mikla þýðingu. Þarna kynn- ist margt fólk, sem að öðrum kosti mundi aldrei hittast, af vináttu þessa fólks sprettur samstarf, sem getur borið ríkulegan ávöxt. Þarna gefst fólki tækifæri til að skiptast á skoðunum, útskýra sín sjónarmið og útrýma misskilningi. — Það er held ég einsdæmi í heiminum að fimm sjálfstæðar þjóðir hafi með sér svo nána samvinnu á-öllum sviðum og hún á eftir að aukast, öllum þjóðunum í hag. Þó að eitt- hvert mál strandi á málþingum norrænnar samvinnu, þá er annað til lykta leitt, og þeir sem hafa fylgzt með framvindu málanna eru sannfærðir um, að norræn sam- vinna á ekki aðeins rétt á sér, — heldur er hún lífsnauðsynleg í sam skiptum Norðurlandaþjóðanna inn byrðis og út á við. BARNAGULL TÍMANS 19 nÖgöaiiBÍa b 4 MANNLÝSING Það var 13. júní 1952, að ég man fyrst þann mann, sem ég hef hugsað mér að lýsa. Pétur amt- maður, eins og pabbi kallaði hann oft, af því að hann heitir Pétur Haf- stein, var þá 7 ára og langaði til að vera í sveit, eins og mörg kaupstaðar- börn. Ef hann ekki yrði irá af leiðindum mátti hann vera hér á Frosta- stöðum. En það er nú svona og svona að vera hjá öllum ókunnugum bara 7 ára. Jú, það bar ekki á öðru en að hann kynni vel við sig. Hann var góður og skemmtilegur leikfélagi okkar Gísla bróður míns. Af því ég var minni og seinni að hlaupa man ég að hann bar mig oft á bakinu. Eg kallaði hann hestinn minn og fannst það góður reiðskjóti. „NÚ ANGAR BLÓMABREIÐA". — Vorið er okmið og grundlrnar gróa, og bráðum skreyta sóley og fíflli ís- lenzk tún. Það verður varla langt þangað til börnin geta setzt í blómabreiðuna. Líklega hefur þetta ekki verið jafn góð skemmtun fyrir Pétur. En hvað um það, hann var hér 5 sum- ur í röð. Koma hans var jafn viss og koma far- fuglanna. Alltaf hlökkuð- um við jafnmikið til að hann kæmi með smágjaf- ir pg skemmtilegan fróð- leik. Við sátum og feng- um hann til að segja okk ur sögur frá Akureyri, því þar átti hann þá heima. Hann sagði okkur hvað á daga hans hefði merkast drifið um vetur- inn. Til dæmis að hann hefði verið kattarkóngur á öskudaginn og hefði reynt að skrópa úr sundi, þegar hann fékk því við komið. Pétur var mikill dýra- vinur og ég skildi vel að hann vildi komast úr kaupstaðnum í sveitina, í nána snertingu við gróð ur og dýralíf. Nú er þessi drengur orðinn 16 ára og getur talizt heimsborgari. Hann hefur ferðazt frá íslandi til Indlands og staldrað þar við í tvö ár. Á leið- inni skoðaði hann stór- borgir í Evrópu og Asíu. Á þessum ferðum hefur hann margt séð, til dæm- is fíla, Ijón, tígrisdýr, slöngur og tínt páfugla- fjaðrir, sem minjagripi. Pétur er hár og þrek- inn, með fallegt, liðað hár, svolítið bólugrafinn í andliti og notar gler- augu. Lundin er jöfn og létt og það er gott með honum að vera. Þórarinn Magnússon, Frostastöðum. (11 ára) ÞETTA eru þau Bobby og Lolla. Seppi er danskur en stúlkan íslenzk, en samt hinir ágæt- ustu vinir. Hundur- inn er vitur og mesta tryggðatröll, og með íslendingn- um og Dananum tókst hin ágætasta vinátta. Litla músin, sem náði stóra kettiniun Svarti kötturinn sat úti undir vegg, en músin sa„ uppiá veggnum. „Komdu hérna niður, mýsla mín“, sagði kött- urinn, „við skulum leika okkur“. „Fús er ég til þeas“, anzaði músin, „en ef við eigum að leika okkur, þá verður þú að koma hing- að upp.“ „Já, ef þetta væri tré“, sagði kisa, „en upp vegg- inn get ég ekki klifrað". „Þú getur heldur ekk- ert.“ „Hvað getur þú svo sem meira?" „Ég get þó þetta: Ann- an eins vegg og þennan get ég gengið upp eins og ekkert. Og ég get miklu meira en það. Ég náð þér, stóra, svarta 4i „Þú náð mér? Það nú ekkert af því. skal gefa þér eitthvað til þess.“ „Ja, peninga á ég nú ekki; en ef þú nærð mér á þitt vald, þá getur þú selt fallega, svarta skinn- ið mitt.“ „Það er gott. Leggðu strax drög fyrir að fá þér nýja yfirhöfn. Því að svarti feldurinn er nú minn." Og eins og hún

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.