Tíminn - 26.04.1961, Qupperneq 16
93. Ma».
Miðvikudaginn 26. aprfl 1961.
Blökkumenn ! Angóla eiga ekki sjö dagana sæla. Portúgalska stjórnin
hefur tæplega látiö sig miklu skipta hingaö til, hvernig landsmenn þar
komust af. En nú hefur keyrt um þverbak síðan ókyrrö hófst f nýlend-
unni fyrir skömmu. Margt blökkumanna hefur flúið frá Angóla Inn yfir
kongósku landamærin undan herhlaupum og haröstjórn Portúgala. Hér
er faðir með son sinn. Þeir flúðu um regntímann, og faðiriiin hefur lánað
syninum hatt sinn til skjóls í rigningunni.
Til viðtals við eigendur
bíla frá General Motors
Fulltrúi fyrirtækisins staddur hér og vill kynna
sér óskir íslenzkra bifrei'Öanotenda
Þessa dagana er staddur hjá
bíladeild Sambands íslenzkra
samvinnufélaga bandaríkja-
maður frá General Motors
verksmiðjunum, Stanley
Schneider.
Schneider hefur starfað hjá Gen-
earl Motors í f jórtán ár, og er starf
hans að mestu leyti fólgið í því að
ferðast á milli umboðsmannanna
og kynna sér aðstæður þeirra og
hvaða breytingar væru æskilegar
á bílaframleiðslunni með tilliti til
aðstæðna í hver'ju landi fyrir sig.
í þessu skyni hefur hann ferðazt
um mest alla veröldina, en mest í
Mið- og Suður-Ameríku og Evrópu.
Schneider verður til viðtals á
bílaverkstæði SÍS, að Hringbraut
119, fimmtudaginn 27. apríl og ósk-
ar hann eftir því að þeir eigendur
General Motorsbíla, þ. e. a. s.
Chevrolet, Buick, Bedford, Vaux-
hall, GMC og Opel, sem kynnu að j
óska einhverra upplýsinga eða að-
stoðar, snúi sér til hans þar.
General Motors leggur mikla
áherzlu á þann lið starfsemi sinn-
ar að senda menn víðs vegar til
tryggingar því að viðskiptavinir
þeirra njóti sem beztrar þjónustu
í hvívetna. Schneider mun fara til
Bandaríkjanna á föstudag.
Skyldi það hafa dansað svona á Jörfagleðinni eða á vikivökunum á Flankastöðum forðum daga? Það er ekki
gott að segja. Myndin var að minnsta kostí tekin ! Þjóðleikhúsinu á afmælissýningu Þjóðdansafélags Reykjavik-
ur á laugardaginn var. Á hennl sést atriði úr Rúnaslag, vlkivaka með brotum ! lokuðum hring. Frá afmælissýn-
ingunnl seglr nánar á elleftu síðu blaðslns í dag.
Mormónatrú í miklum
uppgangi í Englandi
STANLEY SCHNEIDER
Framfarir í Kalabríu
Lanbúnaðaráætlanirnar heppnast misjafnlega hjá stjórnmálafor-
ingjunum. ítalska stjórnin hefur á prjónunum áætlanir um fram-
farir í Kalabríu á Suður-Ítalíu, og forsætisráðherrann, Fanfani, tók
sér ferð á hendur til þess að kynna sér, hvernig gengi að fram-
kvæma þær. Hann kom í þorp, þar sem honum var sýnt fyrirmyndar
býli með tuttugu kúm. Daginn eftir kom hann í annað þorp, þar
esm honum var sýnt annað býli með tuttugu kúm. Einum förunauta
ráðherrans virtist hann kannast við kýrnar, enda reyndust þær
vera hinar sömu og skoðaðar voru daginn áður. Og nú hefur fram-
kvæmdastjóri landbúnaðaráætlananna, Paolo Buri prófessor, verið
sviptur embætti.
„Við trúum því, að ísrael
verði samansafnað og hinar
tíu ættkvíslir endurvaktar —
að Síon verði reist í þessari
heimsálfu ..."
Svo segir í elleftu grein trúar-
játningar Mormóna. Hélmsálfan,
sem þeir hafa í huga, er Ameríka,
og Síonsborg trúa þeir, að muni
rísa á nákvæmlega afmörkuðu
svæði í Independence í Missouri.
Mormónar eru einkennilegur
trúflokkur. Þeir hafa verið mjög
affluttir, og margir vita ekki ann-
að um þá en það, að þeir aðhyllt-
ust fjölkvæni á nítjándu öld og
voru þá ofsóttir um allar jarðir.
Við fslendingar mættum þó vita,
að þeir eru einhverjir mestu ætt-
fræðingar veraldar, því að þeir
hafa starfað mjög í þjóðskjalasafn-
inu hér og látið ljósmynda þar
mikinn fjölda bóka og gagna, sem
að haldi koma við ættfræðirann-
sóknir. Þetta stafar af því, að
meðal Mormóna í Utah er allmargt
fólk af íslenzkum ættum, en það er
eitt trúaratriði Mormóna, að þeir
geti gert forfeður sína aðnjótandi
dýrðarinnar með því að skír'a þáj
látna. |
Strangar reglur —
farsælt samlíf
Margar kenningar Mormóna
koma öðrum einkennilega fyrir
sjónir og þykja fjarri heilbrigðri
skynsemi. En fyrir trú sína leggja
þeir á sig þungar kvaðir. Sam-
heldni þeirra er mikil. Trúin hefur
meiri áhrif á líferni þeirra en al-
mennt á sér stað, og sannur Mor-
móni drekkur hvorki né reykir og
hafnar meira að segja kaffi og tei
og öllum þeim drykkjum og með-
ulum, sem hafa æsandi áhrif. Og
þeim hefur tekizt að stofna og við-
halda farsælla mannfélagi í byggð-
um sínum í Utah, en tekizt hefur
víðast hvar annars staðar.
MormónamiðstöS
í Englandi
Mormónar reka trúboð víða um
lönd, og sums staðar hefur þeim
orðið^ mjög vel ágengt á seinni ár-
um. í Englandi einu eru til dæmis
sex hundruð trúboðar Mormóna að
störfum. Þar eru Mormónar orðnir
tuttugu þúsund, og hefur tala
þeirra tvöfaldazt á tveimur árum.
Fyrr á árum fluttu enskir Mormón-
ar mjög úr landi til Utah, og alls
er talið, að hundrað þúsund Eng-
lendingar, sem tekið hafa Mor-
mónatrú, hafi flutzt til fyrirheitna
landsins.
En nú er þetta breytt. Samkomu-
hús Mormóna þjóta nú upp í Eng-
landi, og í Lingfield í Surrey hef-
ur verið reist musteri með heilög-
um stað fyrir giftingarathafnir og
endurskírn forfeðra Mormónanna,
er fram til ársins 1958 gat aðeins
farið fram í musterum Mormóna
vestan hafs, einkum í Saltvatns-
borginni og nágrenni hennar.
Mormónamir ensku þurfa því ekki
lengur að J^lýja land til þess að
njóta allra náðarmeðala trúar
sinnar.
Samhjálp Mormóna
Eitt af einkennum Mormónatrú-
ar er mjög öflug samhjálp, sem
mótaðist þegar í öndverðu á dög-
um ofsóknanna. Þeir gjalda tíunda
hluta allra tekna sinna til kirkj-
unnar, og því er jöfnum höndum
varið til kii'kjubygginga, trúboðs
og samhjálpar.
En þrátt fyrir hinar miklu kröf-
ur, sem Mormónar gera til sjálfra
sín, afneita þeir ekki gleðinni.
Samkomur þeirra eru jöfnum
höndum helgaðar fræðslu og gleð-
skap, bænageið og dansi, sálmum
og nýtízku söngvum úr heimi dæg-
urlaga. Þannig blandast saman hið
(Framhald á 15. síðu).
Hið nýja Mormónamusteri við
Lingfield i Surrey í Englandi, er
opnað var fyrir meira en tveim-
ur árum. Það var öllum til sýnis
í viku, en siðan hafa aðeins
Mormónar fengið að koma þang-
að til bænagerðar og helgiat-
hafna. (
Munib
skyndisöfnunLiia
Framsóknarmenn í Reykjavík eru mynntir á
vertSlaunasöfnun FulltrúaráÖs Framsóknarfé ■
laganna, sem lýkur 31. maí n. k.
MeÖ því aí tíminn styttist ótlum, eru menn
eindregiÖ hvattir til aÖ gefa sig fram sem allra
fyrst viÖ skrifstofu FulltrúaráÖsins í Framsókn-
arhúsinu, símar 15564 og 12942.
Hver vill ekki hljóta aÖ verÖlaunum vikudvöl
fyrir tvo að Bifröst i sumar?
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna.