Tíminn - 27.04.1961, Blaðsíða 1

Tíminn - 27.04.1961, Blaðsíða 1
ffi? fbl.—45. árgangar. Lippmann ræSir við Krútsjoff bls. 5. Finuntnðagor 27. aprfl<1961. Þingeysk ær átti 5 lömb ' Frá fréttaritara Tímans. — Fosshóli í gær. Hér eru ær aS byrja að. bera, en þó ekki nema á ein- staka bæ ennþá. Um daginn bar ær að Fellsenda í Ljósa- vatnshreppi og átti fimm lömb. Lifa fjögur þeirra, en eitt fæddist dautt. Eigandi þessarar frjósömu skepnu er Haraldur Sigurðsson bóndi að Fellsenda. Rétt er að geta þess, að ánni höfðu ekki verið gefin nein hormónalyf, en það er ekki sérlega sjaldgæft, að ær beri þremur eða jafnvel fjórum lömb- um við slíkar kringumstæður. Skömmu áður en ærin bar, var liún vegin og var þá 90 kíló. Lömbin nýborin vógu 9 kíló. Sjálf- sagt verða tvö lambanna vanin undan móðurinni og hún aðeins látin ganga með tvö. — Tíðarfarið er nú orðið ágætt, og er þíðviðri bæði dag og nótt, en snjór er enn talsverður eftir stórhríðarnar um daginn. Farfuglarnir eiu komnir, og það kveður allt við af fuglasöng í veðurblíðunni. Mikil bleyta er á akvegum, enda hefur rignt tölu- vert ofan í snjóinn, sem nú er þó búið að ryðja af flestum vegum. Sumar leiðir, t. d. milli Akureyrar og Húsavíkur, eru að verða ófærar af aurbleytu; og er öllum þyngri farartækjum þar meinuð umferð. F. S. Þess sjást alls staSar merki, aS vorið er komiS. í kaupstöSunum má iafnvel sjá unglömb á túnum og grasblettum, því aS þar er sauSburSurinn byrjaSur. Hjá Þórshamrl viS Lindarbraut á Sel- tjarnarnesi sá Ijósmyndari Tím- ans fallega tvflembu, sem hann hafSi gaman af aS horfa á, og hann bjóst þá lika viS, aS lesend- ur Tfmans hefSu gaman af aS sjá þetta meS sér. ÞriSja lambið á myndinni á aSra móSur en svörtu ána. Minkur í fjár- húsunum Nú fyrir skömmu gerðist það á Eystra-MiðfeUi á Hvalfjarðar- strönd, að bóndinn þar, Valgarð- ur .Jónsson, varð var við óboðinn gest í fjárhúsum sfnum. Var það minkur, og var ekki að sökum að spyrja: Bóndi lagði hann um- svifalaust að velli. Brúin yfir Víðidalsá sködduð af jakaburði í bráðaleysingu um daginn hljóp mikill vöxtur í VíÖidalsá í Húnaþingi, og skaddaðist brúin, líklega af jakaruðningi, svo að nú er talin hætta á að hún brotni undir þungum far- artækjum. Hefur vegamála- stjórnin gefið út bann við, að farartæki, sem þyngri eru en 5 smálestir, fari yfir brúna. Þetta er að sjáfsögðu til hins mesta baga fyrir vöruflutn- inga með stórum bifreiðum, því að þetta er í aðalþjóðbraut landsins, milli Reykjavíkur og Akureyrar. Einnig hefur þetta þær afleiðing- ar, að farþegar í áætlunarbifreið- um verða að gjöra svo vel að stíga út úr tækjunum og ganga yfir ána. Víðidalsárbrúin cr nokkuð löngi verður sjálfsagt bið á, að þunga- Uppreisn vís- indamannanna gegn afhendingu handritanna, segir Ekstra- bla'ði'ð, einkum Sæmundareddu og jafnvel Flateyjarbókar einnig og Iivílir á þremur stöplum 1 ánni ank landstöpla. Það er stöp- ullinn næst landi öðrum megin, sem brotnaði, líklega af jaka eða jakaruðningi. Brúin var smíðuð árið 1927. Langt að bíða viðgerðar Eftir stórhríðarnar um daginn gerði bráðan þey, og lUddi þá áin sig, og hljóp í hana geysilegur vöxtúr. Brotið er úr stöplinum undan öðrum bita brúarinnar, og er viðbúið, að hún brotni, ef mik- ill þungi fer yfir. Enn er mikill vöxtur í ánni, þótt nokkuð hafi sjatnað, og það er mikill snjór til fjalla, svo að líklega helzt áin mikil fyrst um sinn. En augljóst er, að viðgerð getur ekki farið fram meðan vöxtur er í ánni, og flutningar geti farið fram með eðlilegum hætti. Kaupmannahöfn, 26. apríl. — Einkaskeyti til Tímans. Ekstrablaðið skýrir frá því í dag, að upp sé komin í Kaup- mannahöfn hreyfing gegn af- hendingu handritanna. Stjórn Kaupmannahafnarháskóla var kölluð saman til fundar í dag, og var formanni Árna Magnús- sonar nefndarinnar, Jóhann- esi Bröndum-Nielsen prófess- or, boðið á fundinn. Nefnir blaðið þetta uppreisn vísinda- mannanna gegn fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar. Einkum er búizt við því, að mótmælt verði harðlega afhend- ingu Sæmundareddu á þeim grundvelli, að hún sé frekar sam- norrænn arfur en séríslenzk, þar eð efni hennar megi álítast frá eldri tímum en landnám fslands. Hefur Bröndum-Nielsen lýst yfir því í blaðaviðtali, að hann muni beita sér gegn því á fundinum, að íslendingar fái þetta Eddu- handrit. Palle Birklimd, ríkisbókavörð- ur, hefur einnig lýst yfir and- stöðu sinni við afhendingu Sæm- undareddu og Flateyjarbókar, og telur hann, að íslendingar eigi ekki rökstudda heimtingu á þess- um bókum. Ekstrablaðið skýrir loks frá því, að í hópi menntamanna í Verkamannaflokknum sé uppi andóf gegn afhendingu Edduhand ritsins. Rektor Kaupmannahafnarhá- skóla, Carl Iversen, hefur neitað að láta uppi álit sitt á þessu máli. AðRs. Tók Breta Síðdegis í dag var varðskipið Óðinn væntanlegt til Vestmanna- eyja með brezka togarann Starella frá Hull, H-219, sem tekinn hafði verið að ólöglegum veiðum vestur af Geirfuglaskeri, sem er syðst af Vestmannaeyjum. Varð nokkurt þref út af mælingum við töku skipsins, og kom enskt herskip á vettvang. Rannsókn í málinu hefst vænt- anlega í kvöld hjá bæjarfógetanum í Vestmannaeyjum. Var skipið að veiðum um 1,7 sjómflur fyrir inn- an hin leyfðu takmörk. íslenzkir nazist- ar hóta hefndum Mynd þessi, sem fylgir hér með, var tekin að morgni sum ardagsins fyrsta í Fossvogs- kirkjugarði, en þá tóku nokkr- ir nýnazistar íslenzkir upp á því að ganga gæsagangi að að leiði þýzkra flugmanna og leggja þar blómsveig til minn- ingar um Hitler. Meðlimir foringjaráðs Hltlerskveðja í Fossvogi. istanna komu í gær að máli við fréttaritara blaðsins og afhentu honum ávarp, sem B. Haarde flutti við athöfnina. Þar er lýst mannkostum Hitlers, Roosewelt og Churchill kallaðir böðlar Evr- ópu og nazistaforingjarnir gömlu nefndir píslarvottar. Endar ávarp- ið þannig: „Við national-socialist- ar strengjum þess heit að hefna níðingsverkanna. Við munum berjast, hvar sem við stöndum, fyrir hugsjónum Adolfs Hitlers. Heil Hitler.“ Höfðu hinir skuggalegu for- ingjaráðslimir tneðferðis stóran bunka af nýútkomnum nazistarit- um, erlendum, og kváðust sjálfir vera að stofna tímarit á íslenzku. Hefðu þeir norskan nazista til þess að hjálpa til vig skipulagn- inguna hérlendis, auk þess sem þeir hefðu á að skipa bæði út- breiðslustjóra og öryggismála- stjóra. Kváðu þeir góðan jarðveg vera fyrir starfsemina hér í þæn- um og þeir byggjust brátt við að fá fótfestu úti á landi. Af mynd- inni að dæma munu íslenzku naz istarnir þó ekki vera mikið fleiri en ein tylft unglinga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.