Tíminn - 27.04.1961, Síða 3
T í MIN N, fimmtudaginii 27. aprfl 196L
Uppreisn hershöfðingj-
anna brotin á bak aftur
París 24/4 (NTB).
Það er nú fullljóst, að her-
foringjauppreisnin í Alsír hef-
ur farið út um þúfur. Maurice
Challe, einn af aðalleiðtogum
uppreisnarmanna og fyrrum
yfirhershöfðingi flughersins í
Alsír, hefur verið tekinn hönd-
um og fluttur til Parísar, þar
sem honum verður stefnt fyrir
rétt og látinn svara til saka
fyrir tiltæki sitt. Á Challe
munu verða bornar sakargfit-
ir, er þýtt geta dauðadóm yfir
honum. Challe er hinn fyrsti
af uppreisnarforingjunum,
sem fallið hefur í hendur
frönsku stjórninni, er jafn-
framt hefur gefið út fyrirskip-
un um að víðtæk leit skuli
gerð að öðrum leiðtogum upp-
reisnarinnar, þeim Salan,
Zeller og Jouhaud. Yfirvöld-
um í öllum hafnarborgum
Alsír hefur verið skipað að
neita að flytja menn þessa úr
landi og gæta þess að þeim
takist ekki að komast brott
undir fölsku flaggi. Sama skip-
un hefur verið send til allra
flugvalla í Alsír.
Það er skoSað sem öruggt tákn
þess, að uppreisnin er farin út um
þúfur, að Challe skuli hafa verið
tekinn íhöndum og fluttur til París
ar. Þessu fjögurra daga uppreisn-
arævintýri er því lokið. Franska
stjórnin hélt fund síðdegis í dag
með de Gaulle forseta. Það, sem
rætt var á þessum fundi, var,
hvaða refsingu uppreisnarforingj-
arnir skulu hljóta og jafnframt
var rætt um leiðir til þess að koma
í veg fyrir, að aðrir hægri menn
yrðu til þess að reyna að leika
sama leikinn og herforingjarnir í
Alsír. Franska stjórnin segist vera
þess fullviss, að hópar manna séu
til í Frakklandi, sem stutt hafi
þessa uppreisn, en ekki náð að
framkvæma áform sín vegna þess,
hve skjótan endi uppreisnin fékk.
Með tiliiti til þessa mun de Gaulle
enn um sinn hafa alræðisvald.
Áreksturinn á
Selvogsbanka
í blaðinu í gær var birt frásögn
um árekstur tveggja báta á Sel-
vogsgrunni. Þetta voru Hásteinn
II frá Stokkseyri og Þorlákur II
frá Þorlákshöfn. Þar sem áhöfn
Þorlákshafnarbátsins þótti á sig
hallað í fréttinni, sem fengin var
frá Stokkseyri, vilja þeir taka
fram eftirfarandi:
Hásteinn II var á bakborða og
bar því að víkja samkvæmt sigl-
ingarreglum, en það gerði hann
ekki. Þegar allt var orðið of seint,
beygði Þorlákur II é stjórn til
þess að reyna að komast hjá slysi.
Hann hefði getað komizt hjá á-
rekstri með því að beygja á bak-
borða, en það mátti hann ekki
gera, því að ef Hásteinn hefði
beygt á síðustu stundu, eins og
hann átti að gera, hefði orðið al-
'varlegri árekstur, í trausti þess,
að Hásteinn beygði rétt samkv.
reglum á síðustu stundu, beygði
Þorlákur rétt, en tókst ekki að
komast hjá árekstri.
j Þungar refsingar —
(aukið vald forsetans
Franska þjóðin hefur yfirleitt
I fagnað uppgjöf uppreisnarforingj-
I anna og telur miklu fargi af sér
! létt. Flest frönsku blaðanna taka
j í sama streng og telja, að de
' Gaulle hafi enn einu sinni unnið
frækilegan sigur. Nokkur blaðanna
láta þó í ljósi samúð með uppreisn
armönnum, draga fjöður yfir of-
beldisverk þeirra, en benda í þess
stað á það, að hér hafi verið á
ferðinni þjóðhollir menn og stefna
þeirr'a hafi verið misskilin. Flest
blaðanna krefjast þungra refsinga
yfir Challe og hinum uppreisnar-
foringjunum, ef þeir nást.
Það er ljóst eftir þessa síðustu
atburði, að de Gaulle faefur í
hyggju að styrkja svo stjórnvöld
landsins, að þau geti hiklaust
hrundið uppreisnartilraunum.
Jafnframt mun forsetinn vilja gefa
stjórnvöldunum heimild til víð-
tækra ráða til þess að fyrirbyggja,
að hópar manna hyggist í framtíð
inni leggja út í slik ævintýri.
Allt að komast í eðlilegt horf
Allt hefur verið með kyrrum
kjörum bæði í Alsír og Frakklandi
í dag. í París vörpuðu menn önd-
inni léttar. Hættan á innrás er nú
liðin hjá og dregið hefur verið úr
ströngum öryggisreglum, sem sett
ar voru fyrir fjórum dögum, er
uppreisnin brauzt út. í París eru
menn þeirrar skoðunar, að atburð
irnir síðustu daga hafi orðið til
þess að sannfæra serknesku út-
lagastjórnina í Alsír, að de Gaulle
vilji einlæglega finna lausn á
vandamálinu í Alsír 02 muni misk-
unnarlaust brjóta alla öfgasinna á
bak aftur.
Öll viðskipti og samgöngur við
Alsír eru nú komin í samt lag aft-
ur. Hersveitir þær, sem kallaðar
voru heim frá Vestur-Þýzkalandi^
eru nú á leið þangað aftur.
Landnemar vonsviknir
Hver einasti embættismaður í
Alsír var yfirheyrður í morgun,
áður en vinna hófst. Tilkynnt hef-
ur verið, að fjölmargir hafi verið
handteknir fyrir að hafa tekið við
skipunum af iippreisnarmönnum.
Utvarpið í Alsír skoraði á fólk að
afhenda vopn, er það kynni að
hafa undir höndum fyrir miðnætti
komandi. Eftir þann tíma yrði haf
in leit í hverjum einasta kima.
Ailt var friðsamt í Alsír í dag.
Hið einasta, sem rauf þögnina, var
sprengja ein, sem sprakk á einu
torgi borgar'innar, án þess þó að
gera nokkrum mein.
Evrópumenn í Alsír tóku upp
vinnu sína í morgun. Meðal þeirra
ríkir mikill ótti og sár vonbrigði.
Þeir undrast það, að mikilsvirtir
og margreyndir herforingjar skuli
háfa stofnað til þessarar uppreisn-
ar, án þess að tryggja sér stuðning
fólksins við hana. Franskir land-
nemar óttast nú, að franska stjórn
in muni grípa til enn hastarlegri
ráða en eftir janúaruppr'cisnina í
fyrra.
DE GAULLE forseti
Enn einu sinni hefur hann unnið stóran sigur og skipað þjóðinni að balki
sér. Hann hyggst nú enn styrkja völd stjórnenda landsins.
Sennilegt er talið, að herforingj-
arnir Salan, Zeller og Jouhaud hafi
komizt undan frá Alsír.
Alsírbúar afhenda nú vopn sín 'hálfu hersins í Alsírborg.
unnvörpum, og hefur lögreglan
þegar allmikið safn undir* höndum.
Mikill viðbúnaður er enn af
Leopoldville 26/4 (NTB).
Dregur enn til tíÖinda í Kongó:
Challe.
Challe í
fangelsi
Siðdegis í dag kom Challe,
hershöfðingi, meg herflugvél
til Parísar. Mikill fjöldi lög-
reglumanna var á flugvellin-
um við komu hans til borgar-
innar. Challe var klæddur borg
arafötum, er hann sté út úr
flugvélinni. Hann féll á kné,
er hann kom á franska grund
en var hjálpað upp í lögreglu-
bifreið samstundis. Síðan var
Challe ekið til La Sante fang-
elsisins í miðhluta Parísarborg
ar undir strangri lögreglu-
vernd. Challe mun koma fyrir
herrétt innan skamms.
í dag var Moise Tshombe,
sjálfskipaður forsætisráðherra
Katangafylkis í Kongó, tekinn
höndum af hersveitum Mo-
butu ofursta og valdsmanns í
Leopoldville. Auk Tshombe
voru einnig teknir höndum ut-
anríkisráðherra hans Kimba
og aðrir meðlimir sendinefnd-
ar Katangafylkis á ráðstefnu,
sem haldin var í Coquhlatville,
höfuðstað Miðbaugsfylkis, um
framtið Kongó. Þeir félagar
frá Katanga ætluðu að fara að
stíga upp í flugvél og halda
heimleiðis, er þeir voru teknir an
höndum.
Móbútó hand-
tekur Tshombe
Ekkert samkomulag um framtíð Kongó og af-
stö($u til SÞ
Þessum fregnum hefur ekki
verig tekið þegjandi og hljóða-
laust í Elísabetville, höfuðborg
Katanga. í fréttum þaðan segir,
að innanríkismálaráðherra Kongó,
Munungó, muni mynda nýja stjórn
og segja stjórninni í Leopoldville
stríð á hendur, ef hún sleppi ekki
Tshombe og félögum hans tafar-
laust. Talið er, að nýr forseti
muni skipaður í Katanga þegar í
kvöld, ný.stjórn sett á laggirnar
að reyna að eyðileggja samkomu-1 in né sjá. Hann hefur ekki viijað
lagið á Madagaskar. Tshombe1 viðurkenna samkomulag Kasavú-
sagðist gjarna vilja hjálpa fátæk-: bús forseta við SÞ, þar sem forset-
héruðum í Kongó s.s. Mið- j inii segist ekkert amast við vald-
bagshéraði. Katangahérað munaði j beitingu SÞ til þess að hindra
ekki' um það, að bera nokkru meiri j borgarastyrjöld í Kongó.
skatta en hin fátækari héruð.
Tshombe sagði, að stjórnin í Leo-
poldville vildi ekkert á sig
hlusta, en þjóðin stæði uggláust
með sér, þótt höfðingjarnir hunds
uðu sig.
Vildi enga samvinnu vi3 SÞ
Þá hafa stjórnarvöldin í Leo-
poldville tilkynnt, að SÞ fái aftur
afnot af hafnarbænum Matadi.
Þetta þótti Tshombe og einum of
langt gengið.
Ekki er vitað hvert farið var
með Tshombe og félaga hans eftir
handtökuna, og ekki er heldur vit
að, hvort stjórnin í Leopoldville
Annað deiluatriði Kongóleiðtog-
anna hefur verið afstaðan til SÞ.
Kasavúbú forseti og stjórnin í gaf út skipun um handtöku hans
,. , . ... . , Leopoldville hafa reynt að taka j Hitt er ljóst, að enginn vinskapur
og undirbuningur hafinn að aras 1 Upp vinsamleg skipti við SÞ, en er lengur með stjórnunum í Elísa
gegn Leopoldvillestjorninni. Jafn-. Xshombe vill ekki heyra samtök- betville og Leopoldville.
framt er talið, að stjornm 1 Elisa-1
betville fari þess á leit við SÞ, að,
þær sjái um, að Tshombe verði
sleppt úr haldi.
Allir á móti Tshombe
Kongóleiðtogar að undanskild- j
um Lúmúmbasinnum héldu ráð-
stefnu á Tananrive á Madagaskar,
í janúar sl. og ákváðu þá að stofna
sambandsríki í Kongó. Síðan hef-
ur verið stofnað til annarra funda
til þess að ræða þetta nánar. Hins
vegar hefur ekkert samkomulag
náðst, heldur hver höndin verið
upp á móti annarri.
Þannig fór, að Tshombe gekk
af fundum ráðstefnunnar í Coqu-
hlatville og sagði þá ástæðu vera, Tshombe
til þess, að þessi ráðstefna væril — sér grefur gröf