Tíminn - 27.04.1961, Side 16
M. Hatf.
Fhnmtudaginn 27. apríl 1961.
Norskur skuttogari
hlaupinn af stokkum
í byrjun þessa árs hljóp af
stokkunum við Bergens Mek-
aniske Verksteder í Björgvin
fyrsti skuttogarinn, sem smíð-
aður er í Noregi. Hlaut hann
nafnið Hekktind, og er úr stáli
og af 1. gæðaflokki. Innrétting
og útbúnaður allur er sam-
kvæmt ströngustu kröfum
norska skipaeftirlitsins.
Togarinn er með tveimur gegn-
umgangandi þilförum og er hið
efra botnvörpuþilfar. í skut er
slippur fyrir setningu og inndrátt
togvörpu og er hann af sérstakri
gerð, sem B.M.V. hefur einkaleyfi
á. Bústaðir skipverja og vélarrúm
eru í framhluta, en vinnuþilfar og
lestarrými í afturhluta. Lestar eru
með frystiútbúnaði. Brennsluolía,
vatn og kjölfesta er í botngeym
um í „tunnel-hæð“. Á milliþilfaii
er vinnslurúm, fiskgeymsla, slóg-
borð, þvottaker og flutningatæki
til kælirúms. Fyrir aftan vinnurúm
á stjómborð og hléborð er rúm
fyrir veiðarfæri. Fyrir aftan kæli-
lestar, undir aðalþilfari, er komið
fyrir „gúanó“-geymi, en auk þess
Höfðingleg gjöf
á Húsavík
Lifrarsamlag Húsavíkur er nú
að hætta störfum vegna breyttra
hátta, og í gær bauð stjórn þess
stjóm sjúkrahússins á Húsavík
til kaffidrykkju í Hótel Húsaví'k
og gerði henni kunnugt, að það
ætlaði að gefa söluverð eigna
sinna ,tvö hundruð og fimmtíu
þúsund krónur, til sjúkrahúss-
bygginga'r í kaupstaðnum.
Jóhannes Hermannsson hafði
orð fyrir stjórn Lifrarsamlagsins,
er skýrt var frá þessari stórhöfð
inglegu gjöf. Margir úr stjórn
sjúkrahússins tóku til máls og
þökkuðu Lifrarsamlaginu.
Þormóður.
ieru geymar á stjórn- og hléborð
1 fyrir frárennslisvatn frá vinnu-
irúmi. Aftan við gúanógeyminn er
rúm fyrir kvörn, safnker og gúanó-
dælu. Allt hráefni frá vinnurúmi
1 er leitt í ræsi að kvörn til mölunar
og síðan dælt í gúanógeymana.
Aðalvél er 4-gengis Werkspoor-
dísilvél, 1200 hestafla. Hjálparvél
ar eru tvær. Aðalvél og önnur
hjálparvél eru með dælu sem afl-
gjafa fyrir hydrálískar vindur á
þilfari, svo og fyrir lestarlúgur.
Þilfarsvélar, svo sem akkerisvinda,
togvörpuvinda, hjálpartogvinda og
festarvinda eru af hinni fullkomn-
ustu gerð.
Togarinn er búinn fiskileitar- og
fisksjártækjum af Asdic Elac gerð,
með lárétt-lóðrétt geislasvið, Disa-
miðunarstöð, Arma Brown stýris-
tæki og Frydenbö-stýrisvél.
Fullbúinn til veiða mun togarinn
kosta 4.500.000 krónur.
Vélaverkstæði Sigurðar Svein-
bjömssonar h.f. fer með Umboð
fyrif Bergens Mekaniske Verk-
steder hérlendis.
Helztu kostirnir við togvörpu-
veiðar skuttogara með yfirbyggt
þilfar, samanborið við venjuleg
togvörpuskip með hliðartogi eru:
1. Lengri veiðitími. Óþarft að
breyta um stefnu, hvort heldur
vaipa er sett eða innbyrt. Skipið
þarf ekki að liggja með toghliðina
í hlé fyrir vindi og veðri. Frjáls-
ræði við tog, óháð straumi og
veðri.
2. Auknir aflamöguleikar. Betri
stjörn á toginu og því meiri veiði-
hæfni vörpunnar. Ekkert slit á
vörpu við útbyrðun. Engin ójöfn
áhrif og slit á togvörpunni.
3. Betri meðhöndlun á aflanum.
Fiskurinn nýrri í vörpupokunum,
þar sem stórir pokar eru teknir
upp á þilfarið í einu „hífi“. Ein-
faldari og auðveldari tæming afl-
ans úr vörpunni, betri skilyrði til
þess að verja aflann fyrir hita,
birtu og veðri.
4. Minna slit á veiðarfærum, og
er áður nokkuð að því vikið.
5. Betri vinnuskilyrði fyrir
Nú er veðrið fyrir börnin til þess að vera úti. Víða er búið að dytta að rólunum, og þó að sumar séu lágar, þá
eru þær óspart notaðar. Hér sjáum við tvær ungmeyjar í Höfðaborg, er una sér vel í rólunum sinum á góð-
viðrisdegi. (Ljósmynd: TÍMINN — G€).
*
„Eg flyt yður heitar osk-
ir ákærðs einstaklings“
Bramboltinu í hinu svo-
nefnda morðbréfamáli er ekki
enn lokiS. í gær var boSaS tii
blaSamannafundar í skrifstofu
Guðlaugs Einarssonar, verj-
anda Magnúsar GuSmundsson-
ar í máli þessu hingaS til, og
afhenti Magnús þar tvö bréf,
er hann hefur ritað, annaS til
hæstaréttar, en hitt til verj-
anda þess, sem honum var
skipaður, Ragnars Ólafssonar.
Vill Magnús, sem kunnugt er,
ekki þekkjast nýjan verjanda.
í bréfinu til hæstaréttar segir
Magnús meðal annars:
„Lýsi ég því yfir, að með á-
lyktun virðulegs hæstaréttar um
að leysa Guðlaug Einarsson frá
t- segir Magnús GuSmundsson
hæstaréttar
bréfi tii
skipshöfnina. Hið háa fríborð skut-
togarans eykur öryggi áhafnar við
öll störf, einkum í vondum veðr-
um. Á skuttoguiunum fer öll að-
gerð og verkun aflans fram á j
neðra þilfari, en þar er áhöfn ör-
ugg gegn sjó og veðri. Einungisj
athafnir við togvörpuna fara fram:
á hinu efra þilfari.
þessu starfi, hefur dómurinn ó-
vart orðið þess valdur, að vonir
mínar um sýknudóm í samræmi
við sakleysi mitt dvínuðu og eigin-
kona mín, sem er veikluð, lét
hugfallast við -sregnina. Þessi sann
leikur er ekki neinum til áfellis
sagður, heldur hreinskilnisleg
játning sakbomings um staðreynd
ir.
Eg skírskota til samvizku yðar,
virðulegi hæstiréttur, þegar ég
bið yður í einlægni að endurskoða
afstöðu yðar í ályktun um lausn
verjanda míns, Guðlaugs Einars-
sonar, og óska þess, að hann fái
aftur í hendur vörn fyrir mig í
þessu máli með nýrri ályktun
hæstaréttar.
Á þessu stigi geri ég ekki kröf-
ur til yðar, virðulegi hæstiréttur,
heldur flyt yður heitar óskir á-
kærðs einstaklings, sem með at-
beina kjörins verjanda síns fyrir
dómi leitar sannleikans, í skjóli
æðsta réttar landsins. Virðið mér
þetta á mannsæmandi hátt. Eg
treysti yður að óreyndu."
! Oddsskarð opnað
iReyðarfirði 26. apríl. 1
í dag átti loks að byrja að
, ryðja snjónum af veginum í
I Oddsskarði til Neskaupstaðar.
; Þótti það þó óálitlegt í að
! leggja, því að mjög mikill
snjór er enn á skarðinu, og er
því óvíst, hvenær verkinu
verður lokið.
Annars er hér allt að auðnast
í byggð, því að hlýindi eru dag
hvern. Einn smábátur hefur róið
undanfarið og fiskað vel, en stóru
bátarnir, Gunnar og Katrín, afla
frekar illa. M.S.
í bréfinu til Ragnars Ólafsson-
ar ítrekar Magnús, að hann viður-
kenni hann ekki sem verjanda
sinn, og segir enda, að sér virðist,
að ákvæði í stofnskrá Evrópuráðs-
samnings og fullgildingarskjal af
íslands hálfu um vemdun mann-
réttinda ómerki ákvæði landslaga
um þetta efni.
■iö er byrjaö að skola óhreinind-
i eftir veturinn af götunum í
'eykjavík. Vatnsbíll er á ferð
neð slöngur, og vatnsboginn sóp-
- sandi og leir niður í niðurföll-
n. - (Ljósmynd: TÍMINN — GE).
Félag barna-
kennara 30 ára
Stéttarfélag bamakennara í
Reykjavík minntist nýlega 30 ára
afmælis síns með hófi í Fram-
sóknarhúsinu.
Þegar félagig var stofnað, hafði
verið starfandi kennarafélag við
Barnaskóla Reykjavíkur (Miðbæj-
arskólann), en eftir að Austur-
bæjarskólinn tók til starfa, á-
kváðu bamakennarar að stofna
sameiginlegt stéttarfélag. í fyrstu
stjórn félagsins vom: Gunnar M.
Magnúss, formaður, Guðmundur
í. Guðjónsson, Halgrímur Jóns-
| son, Hannes M. Þórðarson og Kon
( ráð Kristjánsson.
I Frá fyrstu tíð hefur hlutverk
! félagsins verið tvíþætt. í fyrsta
! lagi hefur það unnig að bættum
í kjömm barnakennara, og hefur
1 það löngum verið forustuaðili í
Sambandi íslenzkra barnakennara,
enda langfjölmennasta kennarafé-
; lag landsins, félagatala nú um 300.
| í öðru lagi hefur það unnið að
menntun kennara og bættum
starfsháttum, samstarfi foreldra
og kennara ,og haldið uppi ýmis
j konar félagsstarfsemi fyrir með-
limi sína. í þessu sambandi hef-
; ur félagið beitt sér fyrir fjölmörg
um námskeiðum, fræðslufundum
og skemmtifundum, og gefið út
Foreldrablaðið um margra ára
skeið.
Núverandi stjóm félagsins
skipa: Þráinn Guðmundsson, Jó-
hannes Pétursson, Jón Árnason.
Sigurður Marelsson og Steinar
Þorfinnsson. .