Tíminn - 30.04.1961, Page 3
[(I N N, gU£iiudaginn 30. aprfl 1961
Ætlar aft flytjast af gó'ðri jör’ð undir Eyja-
fjöllum á Skógasand.
Bóndi einn í Austur-Eyja-
fjallasveit hefur tekið þá á-
kvörðun að stofna nýbýli úti
á Skógasandi. Verður hann án
efa fyrstur íslenzkra bænda
til þess að flytja sig af jörð,
sem talin er vildisgóð, til þess
að reisa bú á svörtura eyði-
sandi.
Þessi bóndi er Kristján Magnús-
son í Drangshlíð undir Eyjafjöll-
um. Hann ætlar í vor að byrja að
byggja úti á sandinum. Hlaðan
verður fyrsta húsið, og ef til vill
verður eitthvað hafizt handa um
ræktun um leið. Kristján Magnús-
son er nær hálffimmtugur að
aldri, ókvæntur, en hefur búið
með systur sinni um skeið. Tím-
inn hafði tal af honum til að
spyrjast nánar fyrir um þetta ein-
stæða ráðabragg.
Kristján sagðist nú hafa fengið
munnleg loforð allra yfirvalda,
sem hlut eiga að máli, fyrir nægi-
legt landssvæði undir bújörð
frammi á Skógasandi. Myndi hann
fá þar 100 hektara flæmi. Eftir
Tshombe
er iaus
Saettir virSast nú aftur hafa
tekizt með stiórnmálaleiðtogum (
Kongó. Tshombe, siáifskipuSum
forsætisráðherra í KatangahéraSi
hefur verið sleppt úr þriggja sói-
arhrlnga stofufangelsl og hannj
beðinn afsökunar á handtökunni.
Tshombe mun í þess stað hafa
lýst yfir, að ahnn skyldi halda
áfram þátttöku í ráðstefnunni í
Coquilhatville í Miðbaugsfylki,
þar sem fjallað er um framtíð
Kongó.
Samkomulag um framtíð Kongój
hefur ekki náðst endanlega. I
Tshombe hugðist fara af ráðstefn
unni f Coquilhatville s.l. þriðju-j
dag, en var þá tekin höndum. Á-1
greiningurinn er um stofnun sam
bandsríkis í Kongó, sem Tshombe
styður, svo og afstöðuna til S.Þ.J
en Tsohmbe þykir stjórnin í Leo-1
poldville of eftirgefanleg við sam|
tökln.
væri aðeins að ganga formlega
frá þessu og ákveða, hvar fram-
tíðarjörðin skyldi vera, því að
Skógasandur er stórt svæði. Víst
væri þó, að hún myndi verða
skammt austan við Skógaá, nokk
uð frammi á sandinum.
Auðveld framtíðarbújörð
Bændur í Á-Eyjaf jallahreppi
hafa um 200 hektara sandgræðslu
á Skógasandi, og sinn hlut af því
hefur Kristján til að byrja með.
— Er þetta ekki bjartsýni, að
ætla að fara að reisa bú á eyði-
sandi?, spurði fréttamaður.
— Það er nú víst kallað það,
svaraði Kristján og hló við. En ég
ætla að fá mér þama auðvelda
bújörð og ekki eins vinnufreka og
þá, sem ég bý á núna, þótt hún
sé reyndar ágæt. En maður má
ekki ofbjóða sér með þrældómi
til þess að hafa stórt bú. Eg ætla
að fá þarna 100 hektara.
— Og sandurinn er auðveldur
til ræktunar. Það þarf varla ann-
að en sá í hann og tína úr honum
einn og einn stein. Þetta er allt
ircnnislétt. Auðvitað yrði þarna
fyrst og fremst kúabú, en ætli
maður verði ekki að reyna að
hafa fáeinar kindur líka til þess
að hafa kjöt í sjálfan sig.
Byrjunin það erfiðasta
— Margt er óljóst enn í þessum
áætlunum. Ég er' enn ekkert far-
inn að ákveða, hversu margar
kýrnar verða. En ég er farinn að
undirbúa þetta með því að koma
mér upp góðum kúastofni til að
byrja búskapinn með. Sandurinn
er að vísu ekki frjósamlegur yfir
að líta meðan ekkert hefur verið
gert fyrir hann, en það er býsna
mikil mold í honum á köflum, og
ég er viss um, að þetta verður hæg
ur búskagpr, þegar allt verður kom
ið í kringo-iByrjunin verður auð-
vitað það erfiðasta, en maður má
ekki láta hana vaxa sér í augum.
Ákvörðunin er tekin, og ég vona
að ekki líði alltof langur tími áð-
ur en ég get setfc! ið á nýja bæn-
um.
Fögur fjallasýn, en
enginn bæjarlækur
— Eitt er það, sam vantar á
sandinum, en það er vatnið. Eg
ætla að bora eftir jarðvatni og
dæla því upp, en ef það gefst
ekki vel, verður varla um annað
að ræða en að safna af húsum,
að minnsta kosti fyrst í stað. En
annað kemur á móti. Útsýnið af
sandinum er frábærlega fagurt,
bæði til sjós og lands, sérstaklega
f jallasýnin, sem varla er til að tala
um hér uppi undir hlíðunum.
Rannsóknarleiðangur
á Grænlandshaf
SEATO til bar
daga í Laos?
Vopnahlé dregst á langinn
Vorlð er komið með sól og yl, en þó er tæplega orðið sólbaðsfært ennþá. Jörðin er líka blaut, og þess vegna leggj
ast þeir, sem farnir eru að vitja Arnarhóls, endilangir á bekkina, þegar sóiin skín. Það er líka sólbað.
Nýbýli á svörtum sandi
Phoumi Nosavan, land-
varnaráðherra stjórnarinnar í
Vientiane í Laos, befur skipað
her stjórnarinnar að beita því
aðeins vopnum að á herinn sé
ráðist að fyrra bragði. Jafn-
framt hefur Nosavan skorað
á Kong Le, herforingja Path-
et Lao, að koma til fundar við
sig hið fyrsta til þess að ræða
um vopnahlé í landinu.
Forsætisráðhcrra hægri stjórn
arinnar í Vientiane, Boum Oum,
hefur sent foringjum vinstri
manna orðsendingu, þar sem
hann leggiu: til, að þeir hittist
imdir vopnahlésfána á svæði mitt
á milli yfirráðasvæða hvors um
sig. Ekki er vitað til þess að nokk
uð svar hafi borizt við þessu, en
áður hafði verið ágreiningur um,
hvar leiðtogarnir skyldu hittast.
Vinstri menn sækja fram á öll-
um vigstöðvum í Laos og hafa
mestan hluta landsins á sínu
valdi. Eru vinstri hersveitirnar nú
skammt frá stjórnarborginni,
Vientiane.
Stjórnin í Vientiane fullyrðir að
Rússar haldi áfram vopnasending
um til Laos, þótt ekki sé í jafn
ríkum mæli og fyrr. Bandarískar
herflugvélar eru hins vegar í flutn
ingum fyrir Vientiane-stjórnina,
og Bandaríkjastjórn segist ekki
munu breyta afstöðu sinni til La
os nema tryggt sé, að raunveru-
legt vopnahlé sé á komið.
Voði, ef vopnahlé ekki næst
Laos-nefndin, er sett var á
stofn 1954 og starfaði fram til árs
ins 1958, hefur aflur komið sam
an í Nýju Dehli. Formaður nefnd
arinnar er Indverji, en auk hans
eru í nefndinni Pólverji og Kan-
adamaður. Nefndin hélt fyrsta
fund sinn í gær og náðist þar al-
gert samkomulag um, hversu hag
að skuli eftirliti með vopnahléi
í Laos. Greinargerð um þetta verð
ur send stjórnum Bretlands og
Sovétríkjanna, sem svo taka á-
kvörðun um, hvenær nefndin held
ur til Laos.
Brezka stjórnin segist styðja þá
tillögu Vientiane-stjórnarinnar, að
deiluaðilar hittist á hlutlausu
belti mili víglínanna. Hins vegar
hefur brezka stjórnin verulegar
áhyggjur vegna hernaðaraðgerða
vinstri manna í Laos og óttast að
Suðaustur-Asíu-bandalagið SEATO
grípi í leikinn í landinu, én það
gæti aftur þýtt aðild Kína að á-
tökunum þar með ófyrirsjáanleg-
um afleiðingum.
Stjórn B.S.R.B. hefur eínróma sam-
þykkt aðild að 1. mai-hátíðahöldum
— Undarleg yfirlýsing einstakra stjórnar-
meðlima utan fundar
f dag, sunnudag 30. apríl,!
leggur Ægir af stað í umfangsl
mikinn leiðangur í Grænlands
hafi á vegum fiskideildar At-|
vinnudeildar háskólans. Meg-|
intilgangur þessa leiðangurs
er að rannsaka útbreiðslu og
magn á karfaseiðum, með sér-j
stöku tilliti til staðsetninga á
megin gotsvæðum karfans. I
I
Leiðangurinn er farinn í sam-j
vinnu við Þjóðverja, sem þegar
eru lagðir af stað á rannsóknar-j
skipi sínu Anton Dohm. Verka-'
skiptingu er þannig hagað, að1
Ægir á að annast rannsóknirnar á ]
öll-a Grænlandshafi, nánar tiltekið1
norðan frá Kögri suður undir
Hvarf á Grænlandi og þaðan aust-
ur undir Reykjanes. Anton Dohrn
annast rannsóknir á svæðinu þar
fyrir sunnan og austan, allt suður
á 50. breiddarbaug og austur undir
Færeyjar.
Um borð í báðum skipunum
verða notuð sams konar rannsókn-
artæki, svo gögnin verða sam-
bærileg.
Jafnhliða karfarannsóknunum
verða gerðar dýrasvifsrannsóknir,
sjórannsóknir, síldar leitað og
plöntusvifsrannsóknir framkvæmd
ar á hluta leiðangursins o. fl.
Leiðangurinn allur mun taka
um 4 vikur, en ætlunin er að
bæði skipin hittist í Reykjavík
(Framhald á 2. síðu).
Blaðinu barst í gær tilkynníng
frá sex stjórnarmeðlimum í
stjóm B.S.R.B. um að bandalagið
taki ekki þátt í hátíðahöldum í
Reykjavík 1. maí. f tilefni af
þessu sneri blaðið sér til Krist-
jáns Thorlacius, formanns B.S.
R.B. og ynnti hann eftir, hverju
þetta sætti.
Kristján tjáði blaðinu, að á
fundi í stjórn bandalagsins föstu-
daginn 21. apríl 1961 hafi stjórn-
in einróma samþykkt að taka
boði 1. maí-nefndar fulltrúaráðs
verkaiýðsfélaganna í Reykjavík
um aðild að hátiðahöldunum 1.
maí. Jafnframt var Einar Óiafs-
son, verziunarstjóri, einróma
kjörinn fulltrúi bandalagsins í 1.
maí-nefnd. Síðan hefur enginn
fundur verið haldinn í stjórn
bandalagsins, en hins vcgar töl-
uðu 2 stjórnarmeðlimir við for-
mann bandalagsins í gærmorg-
un og létu í ljós óánægju yfir
því að fulltrúi bandalagsins í 1.
maí-nefnd skyldi hafa undirritað
ávarp dagsins, þótt þeim væri
Hlaut 172 þúsund
króna sekt
í gær kvað bæjarfógetinn í Vest
mannaeyjum upp dóm í máli skip
stjórans á brezka togaranum Star-
ella. Var skipstjórinn dæmdur í
172 þús. kr. sekt og afli og veiðar-
færi gerð upptæk, en þau voru
metin á 200 þús. kr. — Skipstjór-
inn áfrýjaði dómnum, setti 500
þús. kr. tryggingu og fór frá Vest-
mannaeyjum kl. 2,30 í gær. S.K.
Xuglýsið í Tímanum
kunnugt um að hann hefði undir
ritað ávarpið með fyrirvara og
í fyllsta samræmi við fyrri sam-
þykktir bandalagsþings og banda
lagsstjórnar. Formaður tjáði
þeim, að hann myndi halda fund
í stjórninni um þetta mál, strax
og þess væri óskað. Slík ósk
hafði engin borizt, er blaðið fór
til prentunar.
Undirritaði
L maí-ávarpið
með fyrirvara
Einar Ólafsson, fulltrúi
B.S.R.B. í 1. maí-nefnd
verkalýðsfélaganna í Rvík,
hefur beðið blaðið að geta
þess, að hann undirritaði
1. maí-ávarp meirihluta
kröfugöngunefndar með
fyrirvara. Að áliti Einars
átti ávarpið eingöngu að
vera um launamál og kjara
baráttu verkalýðsins. Fyrir
vari Einars var um það, að
hann væri aðeins samþykk-
ur þeim hluta ávarpsins, er
fjallaði um launamál. Hins
vegar tæki hann enga af-
stöðu til hermála. Einnig
var Einar mótfallinn því að
deilum um landhelgismálið
væri blandað saman við
kjarakröfur launþegasam-
takanna á hátiðis- og bar-
áttudegi þeirra, 1. maf.