Tíminn - 31.05.1961, Qupperneq 1
Áskriffarsímmn
1
120. tbl. — 45. árgangur.
Héimsókn
Noregskonungs
bls. 8—9.
Miðvikudagur 31. maí 1961.
Olafur V stígur
á land klukkanll
Ólafur V Noregskonungur
stígur á land í Reykjavík
klukkan 11 í dag ásamt fylgd-
arliði sínu. Konungurinn kem-
ur hingað í opinbera heimsókn
og kemur yfir hafið á kon-
ungsskipinu Norge. Varðskip-
ið Óðinn sigldi í morgun til
móts við konungsskipið, og
þau sigla saman til hafnar í
Reykjavík.
Halvard Lange utanríkisráðherra
kom til Reykjavíkur á sunnudags-
kvöldið í flugvél frá SAS-félaginu,
sem nú er leiguflugvél Flugfélags
íslands. Einnig flutti flugvélin
hingað um tug- sendimanna er-
lendra ríkja á íslandi, sem aðsetur
hafa í Osló. Koma þeir hingað í
sambandi við konungsheimsóknina.
Báturinn að Loftsbryggju
Báturinn, er flytur konung og
fylgdarlið hans í land úr skipinu,
leggur að Loftsbryggju klukkan 11,
[ og verður þar þá fyrir forseti ís-
! lands og forsetafrú, ráðherrar og
1 annað stórmenni að taka á móti
i honum. Síðan mun fylking bifreiða
1 aka með gestina um fánum prýdd-
ar götur að ráðherrabústaðnum við
í Tjainargötu. Fer sú fylking hægt,
! og má búast við fjölmenni á götun-
um að fylgjast með konungskom-
(Framhald á 2. síðu)
Akureyri, 30. maí.
í dag tókust samningar
netagerðarmanna og Odda h.f.
á Akureyri.
í Verkamannafélagi Akureyrar
er sérstök deild netagerðarmanna,
seim hafa haft svipaða samninga
og Nót, sveinafélag netagerðar-
manna í Reykjavík.
Helztu atriði samningsins eru
þessi: Lágmarkskaup þeirr'a, sem
unnið hafa í þrjú ár eða lengur
í starfsgreininni, verður 1365
krónur á viku, en 29,38, á tímann,
ef unnið er í tímavinnu. Þeir,
sem styttra hafa unnið en þrjú
ár, fá á viku 1197 krónur, en 25,85
ef unnið er í tímavinnu.
Öllum ver’kamönnum skal greitt
vikukaup, nema fyrirsjáanlegt sé,
að sú vinna, sem þeir eru ráðnir
til, standi skemur en einn mánuð.
Sé unnið utan Akureyrar, hafa
verkamenn frítt fæði og húsnæði
og laun greidd meðan á ferðinni
stendur.
Eftirvinna greiðist með 60%
álagi á dagvinnu, en var áður
50%. Orlofsfé verður 6% af út-
borguðu kaupi. Atvinnurekendur
(Framhald á 2. síðu).
Stúikurnar eru alvarlegar á svipinn, en ekki skulum við álykta af því, a8 einkunnirnar hafi verlð lélegar, báð-
ar þessar stúlkur fengu ágæta einkunn í nýafstöðnu prófl i stúdentsdeild Kennaraskólans i Reykjavík. Sjá
frétt á 2. síðu. (Ljósm.: Tíminn, G.E.).
Tillaga frá
sáttasemjara
í gærkvöldi klukkan níu hélt sáttasemjari ríkisins fufti með
deiluaft'ilum og var þar lögð fram málamiðlunartiilaga sátta-
semjara.
f tillögunni er gert ráð fyrir 6% hækkun á kaupi þegar í stað
en síðan 4% viðbótarhækkun eftir eitt ár. Samningar verði fastir
til 1. júní 1963, en framlengist þá í eitt ár enn, verði þeim ekki
sagt upp. En jafnframt hækkar kaupiö þá enn um 3%. Eftir 1.
júní 1964 framlengjast samningar í sex mánuði í senn meö eius
mánað'ar uppsagnarfresti.
f samningsuppkasti sáttasemjara er einnig ákvæði um hækkun
vísitölu. Ef framfærsluvísitala hækkar um 3% eða meira, má
segja kaupgjaldsákvæði samningsins upp með mánaðarfyrirvara
á tímabilinu frá gildistöku samningsins til 1. júní 1962.
Þá má einnig segja upp samningnum með eins mánaðar fyrrr-
vara, verði gengisbreyting.
Þá er gert ráð fyrir að' þetta tilboð atvinnurekcnda verði lagt
fram og kynnt á félagsfundum í viðkomandi félögum og síðan
fari fram um það allsherjaratkvæðagreiðsla. Atkvæ'ðakössum
verði skilað til sáttasemjara ríkisins eigi síðar en á laugardag, en
hann hafi umsjón með talningu.
Til skýringar skal þess getið, að tillaga sáttasemjara felur
í sér helmingi minni kauphækkun strax en atvinnurekendur hafa
boðið á Húsavík og verkamenn þar féllust á fyrir sitt leyti, en
verkakonur höfnuðu, og varð því ekki að samkomulagi. Tillaga
sáttasemjara felur og í sér rösklega helmingi minni hækkun á
verkamannakaupi, en samið var um í Vestmanr.aeyjum í vetur.