Tíminn - 31.05.1961, Síða 9

Tíminn - 31.05.1961, Síða 9
Og nú á 20. öldinni 'hafa sam- skipti íslendinga og Norðmanna aftur orðið jafn mikil og forðum. Milli þjóðanna hefur tekizt giftu- drjúg saimvinna í menningar- og atvinnumálum. — Norðmenn lögðu fyrstu landsímalínurnar Eiðsvellir, 65 km. fyrir norðan Osló. 1814 setti „Riksforsamlingen" Norgei 1906. Norðmenn áttu verulegan stjórnarskrá að Eiðsvöllum. | þátt í uppgangi íslenzkra atvinnu vega og veittu fslendingum marg- háttaða aðstoð við að hefja hval- veiðar, síldveiðar og síldariðnað. Á sviði menningarmála hafa áhrif Normanna verið mjög mikil. Hvaða íslendingur hefur ekki orðið fyrir áhrifum frá norsku skáldunum Hamsum, Ibsen, Björn- son, Bojer, Lie, Kielland, Undset, Falkberget, Hoel og Christiansen, svo einhverjir séu nefndir. aáfc Gott dæmi um menningarsam- skipti þjóðanna er heimsókn Norð manna 1947, en með í þeirri för var Ólafur konungur, þá ríkisarfi Noregs. Norðmenn komu þá fær-i Frá fiskimiðunum við Lófót. og íslendinga eru þessi samskipti e. t. v. meiri en dæmi eru til um. með no'kkrum öðrum þjóðum. ís-' lenzkir landnámsmenn flestir eru eins og kunnugt er komnir frá' Noregi. Og þangað var aftur hald- ið, er framgjörn ungmenni fóru utan til að leita sér fjár og frama. Sumir fluttu konungum kvæði sín, aðbrir gerðust hirðmenn og for- frömuðust í hinum norska skóla. Þormóður Kolbrúnarskáld, Egill Skallagrímsson, Sighvatur Þórðar- son og Einar Skúlason dvöldust allir langdvölum í Noregi og mót- uðust þar að verulegu leyti. Þann- ig voru íslendingar bæði gefend- ur og þiggjendur. andi Ihendi og höfðu meðferðis Snorrastyttu Vigelands, sem gefin var í tilefni af 700 ára dánaraf- mæli skáldsins. Norðmenn sýndu með þessari heimsókn, að __ þeir kunnu vel að meta framlag íslend inga til norskrar menningar og sameiginlega hylltu Norðmenn og Íslendingar höfund Heimskringlu. Það er einlæg ósk okkar ís- lendinga, að þessi hlýhugur ráði samskiþtum okkar við Norðmenn og vináttubönd þessara tveggja þjóða megi verða þeim mun sterk- ari sem lengra líður. Gunnar Dal. Og hingað barst kristni frá Nor- egi, sem varð til að binda þessar tvær þjoðir éhn nýjum böndum. íslenzkir prestar dvöldust lang-! dvölum hjá Kórsbræðrum í Niðar-j : ósi og meðal þeirra var munkur-1 inn Eysteinn Ásgrímsson, sá erj orti Lilju. Og íslendingum var saga Noregs jafn hugleikin og þeirra eigin saga: Snorri Sturlu- son reit Heimskringlu. Sturla Þórð arson skráði Hákonarsögu Hákon-; arsonar og Magnúsarsögu laga-| bætis. Karl Jónsson ábóti skrifaði Sverrissögu og þannig mætti leng- ur telja. aiHiBiziaiBizraiaiaraiaiajErafgfBigjHJBiarararajaraiEiaigiafBraigfgÆrejaiaramamafargjgjHraiafajziararaiaiafgfgiamaaraiBiHfaiajaiaiaiHiHiHraraigmaiaiHiHiHiHfaiHigrarajHraraii ar hendur og stutt til stranda. Fagurt var í land að líta, og ég þóttist kenna gróður álfheima. Að vísu myndu Norðmenn kalla sprettu fátæklega á eyjum þeim, en í mínum augum voru þær eins og aldingarðar. Svo þrengdist leið- in, á hægri hönd var fagur hólmi með trjám og runnum, síðan fór- um við inn mjótt sund, og er gegn um það var komið, blasti borgin við. Til vlnstri handar var all- breiður fjörður, en framundan há- ir, skógivaxnir hálsar, og undir þeim í Htnii vík var Bergen. Ég hafði’búizt við henni stærri, vissi, að þar var eins maigt fólk eða fleira en á öllu íslandi. En um- hverfið var dásamlegt. Við skriðum inn að hafnarbakk- anum. Skammt þaðan sá ég röð af mjög fornum byggingum, sem Norðmaðurinn sagði vera frá tím um Hansakaupmanna, uncjarleg hús, eins og straumur tímans hefði gleymt að sópa þeim með sér. Ég var búinn að ákveða, hvað gera skyldi,,þegar ég kæmi í land. Auðvitað átti ég ekki neinn stað vísan, og peningar mínir voru þrotnir að rnestu. Er ég steig á norska grund, átti ég tvær krón- ur og tíu aura í vasanum. — Með mér á ferðalaginu hafði verið frændi minn, Guðmundur Gamal- íusson, bóksali, og rædduim við lítils háttar saman. Sagði hann mér mörgum árum seinna, að hann hefði verið ákveðinn í að gefa mér nokkrar krónur. En það fórst fyrir, og þykir mér vænt um. Af farangri hafði ég trékassa einn, útbúinn sem ferðatösku, fullan af handritum og bókum. En föt mín og aðrar eigur hafði ég látið í strigapoka. Kassinn var dálítið þungur, en halda hafðit verið sett á hann. Gat ég því borið þetta sitt í hvorri hendi og vagað með þetta niður landganginn, eftir að ég var búinn að kveðja þernuna, sem hafði verið mér góð í vesaldómi mínum. Ég hafði ákveðið að fara sama dag til Games, því að ég var með leiðarbréf frá Helga Valtýssyni til forstöðumanns drengj aheimilisins þar. Hét sá Gudtorm Vatndal, og ég vonaði, að hann myndi skjóta skjólshúsi yfir mig nokkra daga. Mér var kunnugt um, að stutt var að fara til Garnes og ódýrt með eimlestinni. Ákvað ég að koma fyrst dótinu mínu á járnbrautar- stöðina og fá það geymt þar, en skoða mig síðan um í bænum og hitta hinn' manninn, sem ég hafði leiðarbréf til, Olav Gullvág, rit- stjóra. Gerði ég mér vonir um, að hann myjidi reynast mér hjálp- íegur og utvega mér einhverja vinnu í Bergen, svo að ég gæti komið þangað aftur innan skamms. Labbaði ég nú gegnum bæinn til járnbrautarstöðvarinnar með pokann minn í vinstri hendi og kassann í hægri. Þóttist ég sjá, að mér væri veitt nokkur athygli, enda kom síðar á daginn, að Beig- ensbúar eru allra manna forvitn- astir um annarra hagi. Mikið var af skrautbunu fólki á götunum og flögg alls staðar dregin að húni. Tók ég það, sem heillaríkt teikn, auðvitað var borgin að fagna hin- um nýkomna íslendingi, er ætlaði að leggja undir sig Noreg. Mér tókst brátt að finna jámbrautar- stöðina, spurði þó til vegar nokkr- um sinnum, og tóku allir undir það með mikilli kurteisi. Ég komst að því þá, sem ég fékk raunar betur staðfest seinna, að þarna var fólk viðmótsþýtt og þægilegt ókunnugum mönnum. Mig minnir, að það hafi kostað tuttugu og fimm aura að geyma dótið á stöðinni. Ég spprðist fyrir um verð farmiða til Garnes, og mun það hafa veiið ein króna og tíu aurar, og voru þá eftir sjötíu og fimm aurar, er ég hafði til eyðslu og framdráttar mér, þar til úr rættist. Gekk ég' nú aftur út í bæinn og var hinn glaðasti, reyndar svolítið' laraður eftir bannsetta sjóveikina og ekki laus við kvef. En daguririn var fagur, glaðasólskin og hitinn eins og hann verður mestur á fögr um júnídegi heima á íslandi. Utan frá firðinum hafði ég séð Flöyen, hæðina, sem gnæfði yfir Bergen, og veitingahúsið á toppi hennar. Þangað langaði mig að komast og horfa þaðan yfir hið fyrirheitna land. Eins konar jám- braut liggur upp á fjallið og nefn- ist „Flöybanen". Fann ég neðri endastöð hennar og spurði, hvað farið kostaði, en það reyndist helzt til mikið fyrir pyngju mína, svo að ég tók það ráð að fara gang- andi.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.