Tíminn - 31.05.1961, Blaðsíða 13

Tíminn - 31.05.1961, Blaðsíða 13
fSÍjjftrN'N, miðvikudagimi 31. maí 1961. 13 Valur sigraði Fram með 1 - 0 í þriðja leik íslandsmótsins — Matthías Hjartarson skorafti eina markiS í leiknum í byrjun sííiari hálfleiks Þriðji leikur íslandsmótsins í knattspyrnu fór fram í fyrra- kvöld á laugardalsvellinum og léku Reykjavíkurmeistarar Fram gegn Val. Leikurinn var mjög fjörugur og skemmtileg- ur fyrir áhorfendur, þótt að- eins eitt mark væri skorað. Liðin skiptust á áhlaupum og voru jöfn og skapaðist oft tals- verð hætta við mörkin. Matthí- as Hjartarson skoraði eina markið í leiknum á 12 mín. í síðari hálfleik. Fram sótti meir til að byrja með í leiknum en sköpuðu sér ekki op- in tækifæii, og fyrsta marktæki- færið í leiknum átti Valur á 8. mín., þegar Björgvin Daníelsson spyrnti rétt yfir markið. Fram hafði þó heldur frumkvæðið í leiknum, og fyrsta góða tækifæri liðsins kom eftir 15. mín., þegar Grétar Sigurðsson átti gott skot, sem Björgvin Hermannsson, mark vörður Vals, varði mjög vel. ' Rétt á eftir fékk Valur eitt bezta tækifærið í leiknum. Björg vin Daníelsson gaf vel fyrir mark ið til Matthíasar, sem var á mik- illi ferð, cn hann hitti ekki knött inn fyrir opnu marki og skömmu síðar er Matthías enn í góðu færi og spyrnir á mark, en Hinrik v. bakvörður, bjargaði á línu. 1 Þegar líða tók á hálfleikinn for Valur að ná betri leik og voru meira í sókn, en mörk fengu þeir | ekki skoruð. Á 35. mín. lék Skúli i Skúlason upp kantinn, gaf fyrir til '■ Matthíasar, sem var frír í góðu ! færi, en Geir Kristjánsson, mark- | vörður Fram, hljóp gegn honum og iokaði vel. Fyrri hálfleikurinn var oft mjög hraður og vel leikinn á köflum, og i talsvert um sæmileg tækifæri. Þeg | ar iiða tók á hálfleikinn náðu Vals 1 menn tökum á miðjunni og sýndu J þá sæmilegan leik. MATTHÍAS SKORAR Fyrstu 10 mín í síðari liálfleik var leikurinn enn mjög jafn. Á I 12. mín. átti Ormar Skeggjason, framvörður Vals, skot á mark ! Fram af nokkuð löngu færi. Geir stökk upp og ætlaði að grípa knöttinn, en Rúnar Guðmundss. truflaði Geir og hrökk knöttur- j inn af Rúnari út í vítateiginn til I Matthíasar, sem tókst að finna i leið að markinu gegn um varn- armenn Fram og skoraði með föstu skoti. Þetta mark Matthí- asar var fallegt, þótt mistök hafi orðið hjá Rúnari og Geir í mark- ! inu. i Eftir markið náði Valur yfir- | íökunum í leiknum og hélt því að I mestu alveg til leiksloka. Mark j Fram komst þó aldrei í verulega í hættu, utan einu sinni, er Sigurð- ur Einarsson, bakvörður Fram, bjargaði á marklínu. VERÐSKULDAÐUR SIGUR Valur vann verðskuldaðan sigur í leiknum, og er liðið í greinílegri framför. Halldór Halldórsson lék nú í framlínunni og setti það auk- inn kraft í liðið. Valsliðið er mjög jafnt og vart hægt að telja einn leikmann öðrum fremri. Björgvin Hermannsson varði vel í markinu, og vörn liðsins var yfirleitt góð, en galli á leik hennar hvað varn- arleikmennirnir reyna lítið _ að finna samherja, nema helzt Árni Njálsson. Ormar Skeggjason vann mjög vel á miðjunni og var senni- lega bezti maður liðsins. í fram- línunni var Björgvin Daníelsson virkastur og skiptingar hans ágæt ar. Framliðið náði sér aldrei veru- lega á strik í leiknum, alltof mik- ið um langar sendingar fram völl- ínn, og leikmenn réðu ekki við þann mikla hraða sem þeir hleyptu á köflum í leikinn. Liðið lék sæmi lega fyrstu 25 mín. og hefði leik- ur þess getað orðið árangursríkari með meiri nákvæmni, en svo dal- aði það mjög. Rúnar var txaustur í vörninni að venju — en varla kemuT fyrir að hann sendi sam- herja knöttinn og er það mikill galli á jafnjsterkum leikmanni og Rúnar ér. Áhorfendur urðu fyrir nokkrum vonbrigðum m_eð fram- línu Fram. Guðmundur Óskarsspn náði sér aldrei á strik og Björgvin Árnason var einkar óheppinn í flestum aðgerðum sínum. Dómari í leiknum var Magnús Pétursson, Þrótti, Staðan í mótinu ferðina er þannig: 1. Akranes 2. Valur 3. K. R. 4. Akureyri 5. Fram 6. Hafnarfj. og dæmdi vel. eftir fyrstu um- 0 0 2—0 2 0 0 1—0 2 0 0 6—3 2 0 1 3—6 0 0 1 0—1 0 0 1 0—2 0 sá. Heimsmet í langstökki Ólympíumeistarinn í lang- stökki, Ralph Boston, Banda- ríkjunum, setti á sunnudaginn nýtt heimsmet í langstökki, stökk 8.24 metra. Boston átti sjálfur eldra metið, 8.21 metra sett í fyrra, og bætti þá elzta frjálsíþróttametið, en sprett- hlauparinn Jesse Owens stökk árið 1935 8.13 m. og þann á- rangur tókst engum að bæta fyrr en Boston í fyrra. Landsleikir í knattspyrnu ★ Danir léku landsleik í knatt- spyrnu við Austur-Þjóðverja í Kaupmannahöfn á sunnudag- inn. Jafntefli varð 1—1, og voru Danir óánægðir með þau úrslit. Austur-Þjóðverjar skor- uðu strax á þriðju mínútu, en Ole Madsen jafnaði fyrir Dani. ic Svíar unnu Svisslendinga í Stokkhólmi á sunnudaginn með 4—0 í undankeppni heims- meistarakeppninnar. Sænska liðið hafði mjög mikla yfir- burði og sýndi ágætan leik. — Miðvörður Sviss var rekinn af leikvellinum síðast í fyrri hálf leik vegna grófs brots. Staðan í riðlinum er nú þannig: Svíþjóg 2 2 0 0 6—0 4 Sviss 3 2 0 1 6—7 4 Belgía 3 0 0 3 3—8 0 ★ Ungverjaland sigraði Wales i landsleik í knattspyrnu á sunnu daginn með 3—2. Bæði liðin sýndu ágætan leik. LIÐINIKVÖLD Lið St. Mirren og Vals í leiknum á Laugardalsvellinum í kvöld verða þannig skipuð: ST. MIRREN James Brown (1) Robert Campell John Wilson (2) (3) Robert Stewart James Clunie John IJAcTavish (4) (5) (6) Tommy Bryceland Tommy Gemmell (8) (10) Albert Henderson Donald Kerrigan Alister Miller (7) (9) (11) O Matth. Hjartars. Albert Guðm.s. Bergst. Magnúss. (11) (9) (7) Halldór Halldórsson Björgvin Daníelsson (10) ^ (8) Hans Guðm.s. Magnús Snæbj.s. Ormar Skeggjas. (6) (5) (4) Þorsteinn Friðþjófsson Árni Njálsson (3) (2) Björgvin Hermannsson (1) Dómari í leiknum verður Guðbjörn Jónsson, KR, en línuverðir Magnús Pétursson og Baldur Þórðarson, Þrótti. Á undan leiknum leika Valur og KR í 3. flokki og hefst sá leikur kl. 7.30. Utvarpsstarfsmenn mótmæla árásum Eftirfarandi, einróma samþykkt i var gerð á fundi Starfsmannafé- ! lags Ríkisútvarpsins hinn 24. maí 1 síðastl.: ,,Að undanförnu hefur iðulega verið veitzt í blöðum að starfsfólki látir um of að svara þessu aðkasti. Hinn 19. maí s. 1. birtir eitt af blöðum stjórnmálaflokkanna, Al- þýðublaðið, forsiðugrein, og segir þar meðal annars: ,Innan Ríkisútvarpsins og utan Fáir leikmenn eru liprari en Rúnar Guðmannsson, Fram, og hann fékk miklð klapp hjá áhorfendum, þegar hann kastaði sér á bakið og spyrnti knettinum aftur fyrir sig og langt fram völlinn. Mvndin svnir atvih.ið, og þyW'gvin Daníelsson, Val, virðist hálf hissa á svipinn. Ljósmynd: Tíminn, G.E. Ríkisútvarpsins og stofnuninni þess sitja kommúnistar á svikráð- sjálfri með órökstuddum dylgjum, ,um við þá stofnun til að misnota aðallega um kommúnisma. Að vísu hana í þágu flokksins.“ hafa þar verið fremst í flokki alls Þetta verður naumast s-kilið a ómerk blöð, sem ekki eru svara annan veg en þann að sveigt sé verð, en þessum aðdróttunum hef- að starfsliði útvarpsins. Og þar ur einnig skotið upp í dagblöðum J sem ekki er tekið fram, hverjir Reykjavíkur. Gagnrýni er góð, en þeir menn séu, eða á hvern hátt dylgjur rætnar. Útvarpsstarfs-1 þessir ónefndu menn stundi svik- menn hafa ef til vill verið tóm-1 (Framhald á 15. síðu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.