Tíminn - 31.05.1961, Blaðsíða 14

Tíminn - 31.05.1961, Blaðsíða 14
14 TtMINN, migvikudaginn 31. mai 1961. kæmi upp um hann, skyldi hann koma allri sökinni á hana . . . og ljóstra upp öllu um fortíð hennar og þá myndu allir trúa honum frek ar en henni. — Og hún hefur þá vitað að það var Tom sem myrti Roy, stundi Lora. — Ekki fyrr en nú um helg ina. Hana hafði farið að gruna það um það leyti sem frú Charles, hr. Fenton og hr. Clare hófu að fara yfir allt sem gerzt hafð'i og sýni- legt var að þér voruð saklaus ar. Og hún hefur sjálfsagt látlð sannfærast niðri í Skóg argöngunum í gær .... hún .... henni virtist mjög brugð ið. Eg býst við að henni hafi orðið Ijóst að líkin hafi verið flutt og hún farið nærri um ástæðuna. — Vissi Noll að Tom drap frú Charles, spurði Antonia, og Drake hristi höfuðið. — Nei, sagði hann. Hann segist ekki hafa vitað það og ég trúi honum. Hann var heill aður af Sonju og þegar hún sagði honum að hún gæti ekki snúið hingað aftur af því að hún væri hrædd og grátbað hann að koma með sér á ör- uggan stað þá gerði hann það. Hún virðist hafa haft undarlegt vald yfir karlmönn um .... konur af hennar sauðahúsi eru oft svona. — Og hvað verður gert við þau? spurði Mark. Drake yppti öxlum og teygði þreytulega úr sér. — Hún. verður eflaust rek in úr landi og send aftur til Þýzkalands, en .... Hann brosti. — Eg býst ekki við að vinur hennar fylgi henni. Þeg ar hann heyrði um lifnaðar- háttu hennar meðan á styrj- öldinni stóð, ,breyttist hugur hans til hennar. — Guði sé lof, sagði Anton ia lágt. — Noll er góður vin- ur og mér þykir vænt um hann. Tom var það líka áður en Sonja náði honum á sitt vald. Það er í rauninni hún, lega sem gerzt hefur . . . Hún sem á sök á öllu því hræði- ætti ekki að sleppa svona auð veldlega. Það eina sem Tom gerði var að vernda hana. — Ó, neinei, sagði Drake einbeittur. — Það var ekki einskær ást sem fékk hann til að fremja morð. Það var ótti .... ótti við að verða afhjúp aður. Ef þáð hefði komizt upp að hann var kvæntur ill ræmdum kvenmanni, hefði hann verlð búinn að vera sem leikari .... og þetta vissi hann. Hann myrti til að bjarga sjálfum sér, ekkert síð ur en að bjarga henni. Þér skuluð ekki eyða meðaumk- un yðar á hann. — Jæja, bætti hann við og leit á þreytuleg andlitin umhverfis sig. — Eg held ég hafi sagt ykkur allt sem máli skiptir og ég ber fram þá tillögu að þið farið öll í rúmið ........ ykkur virðist ekki vanþörf á hvíld. Og að svo búnu gekk hann út úr herberginu. Nokkra stund ríkti þögn i stofunni, svo reis Garvin á fætur og gekk að borðinu, þar sem Rogers hafði skilið horfði aðeins á konuna, sem hjá honum var. — Antonia, sagði hann hrað mæltur. — Þegar leikritið verður fullæft, langar mig til að sjá það. Hún sneri sér að honum og hann sá að hún brosti í tunglsljósinu. — Eg skal senda þér aðgöngumiða. svar aði hún. — Kannski við gætum far ið út og borðað saman á eftir, hélt Mark áfram. Það var svo langt síð'an hann hafði gert hosur sínar grænar fyrir konu að honum leið eins og feimnum skóladreng, sem býð ur vinkonu sinni í fyrsta sinn í kvikmyndahús. — Eg veit um stað .... hjá á drykkjumannahæli fyrir hálfu ári. Mark leit vandræðalega á hana. — Og hinir .... eru þeir á lífi? Hann roðnaði af skelf- ingu þegar hann hafði sleppt orðinu. Hún leit á hann furðu lost in. — HINIR? — Fyrirgefðu, flýtti hann sér að segja. — Fyrirgefðu, þetta var ófyrirgefanlegt af mér. Hún virtist skemmta sér hið bezta. — Elsku bezti, hvað held- urðu eiginlega að ég hafi átt marga eiginmenn? —Lora hélt þeir væru þrír, stjamaði hann. KATE WADE: LEYNDARDÓMUR 51 ítaiska kússins 7fS* eftir flöskur og glös. Hann drakk í einum teyg og án þess að líta á hin gekk hann út. Antonia varp öndinni: — Hann saknar frænku sinnar, sagði hún. — Eg hugsa að honum hafi í raun og veru þótt afar vænt um hana. Hún reis úr sæti og gekk út að glugganum og sneri sér að Mark. — Kemur þú út? Það er svo fagurt úti og hressandi að fá sér frískt loft. Hann flýtti sér út til henn ar og um leið og hann smeygði sér út sá hann að Clive tók Loru í fað'm sinn. — Nú verður ayt gott, hugs aði hann ánægður. Nú geta þau farið að skipuleggja brúð kaupið. Hann dæsti og Antonia stakk hönd sinni undir arm- legg hans og þau gengu ró- lega niður grasblettinn. Hún sagði ekkert og í þögn gengu þau þangað sem garðstólamir voru. — Allt er svo fagurt, sagði Antonia rólega, en Mark Vereni í Compton Street. — Ágætt, sagði hún glað- lega. — Eg hef ekki komið þar í mörg ár, en það var uppáhaldsveitingastaður mánnsins míns. — Ó, sagði Mark lágt og mundi allt í einu eftir orðum Loru um eiginmennina þrjá, sem hún hefði skilið J/ið. — Hann hikaði ofurlítið og vissi ekki hvað hann átti að segja. — Eg býst við þú vitir að ég hef verið gift? spuröi hún. Hann kinkaði kolli. — Já, Lora sagði mér það. Rödd hans var hrjúf og óeðlileg og hún leit hissa á hann. — Viðurkennir þú ekki skilnað? Hann yppti öxlum. — Það er sjálfsagt óhjá- kvæmilegt í einstaka tilfell- um, svaraði hann stuttur 1 spuna. En ekki ÞRISVAR sinnum hugsaði hann með sjálfum sér. — Eg skil, sagði hún hljóð lega og sneri sér frá honum. — Sam var ágætur, þegar hann var ódrukkinn, en það kom sjaldan fyrir. Hún hik- aði og bætti við: — Hann dó Hún hló svo hjartanlega, að hann varð einnig að brosa. Svo hristi hún höfuðið og engdist sundur og saman af hlátri. — Eg var trúlofuð tvisvar — fyrir utan Roy og Sam — Það var aðeins blöð- um og aðdáendum mínum til heiðurs. Er er hrædd um að það hafi aðeins verið útbúið til að minna fólk á mig .... auglýsingabrella .... Hún leit alvörugefin á hann. Og skyndilega varð honum svo létt um hjartað Hann leit í blikandi augu Antoniu, og í brúnum stórum augum hennar las hann svarið við þögulli spurningu sinnl .... SÖGULOK. UTVARPID Miðvikudagur 31. maí: 8,00 Morgunútvarp. 10,45 Útvarp frá Reykjavíkurhöfn: Lýst komu Noregskonungs í opinbera heimsókn til fslands. Leiknir þjóðsöngvar No>regs og íslands. 12,00 Útvarp frá Alþingishúsi: Lýst athöfn á Austurvelli, er Nor- egskonungur leggur blómsveig að varða Jóns Sigurðssonar. 12,15 Hádegisútvarp. 12.55 „Við vinnuna": Tónleikar. 15,00 Miðdegisútvarp. 18.30 Tónleikar: Óperettulög. 18.55 Tilkynningar. 19.20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir. 20.20 NorSk tóniist. Útvarp frá veizlusal að Hótel Borg: Forseti fslands og kon- ungur Noregs flytja ræður. 21.30 Erindi: Noregur nútímans. (Haraldur Guðmundsson am- bassador). 22,00 Fréttir og veðurf.regnir. 22.10 „Fjplskylda Orra“, framhalds- þættir eftir Jónas Jónasson. Sjötti þáttur: „Megrun". — Leikendur: Ævar R. Kvaran, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, KTÍstín Anna Þórarinsdóttir, Steindór Hjörl'eifsson, Nína Sveinsdóttir, Valdimar Lárus- son og Ríkarður Sigurbaldurs- son. Höfundurinn stjórnar flutningi. 22,35 Norsk lög af léttara tagi. 28.10 Dagskrárlok. Bifreið óskast Vil kaupa Chevrolet eða Ford fólksbifreið, smíðaái 1955—57, gegn staðgreiðslu. Tilboð sendist blaðinu fyrir fimmtudagskvöld auð- eknnt „Staðgreiðsla“. V*V»‘V*V*V*X»V*,V«V*V*V»V«X»X*X,*V*V»X«X»%»V EIRÍKUR VÍÐFÖRLI Hviti hrafnÍDD ÍOO Án þess að kveðja dyra þustu þrír hermenn inn í herbergi Elín- ar, og Eiríkur beið í ofvæni með- an hermennirnir leituðu hans, þrátt fyrir mótmæli Elínar. Að lokum virtust þeir hafa leitað af sér allan grun og yfirgáfu her- bergið, tautandi einhverjar afsak- anir. — En hann hlýtur að vera hér, ég sá hann sjálfur, sagði einn þeirra. — Hvar er hann þá, sagði annar hæðnislega. — Hann hlýtur að hafa farið út að brjóstvörninni, við skulum flýta okkur á eftir honum. Þegar þeir þustu af stað, laumaðist Eiríkur inn til Elínar. Hún starði skelfd á hann, en hann brosti vingjarnlega og hvíslaði. — Fljót, við megum engan tima missa. — Rryan, segðu mér.... byrjaði hún, en í sama bili kom andlit í Ijós í dyrunum. — Hí, hí, hí, hló kerlingin illskulega um leið og Eiríkur stökk til dyra. En hann var of seinn. Slánni var skellt fyrir með smelli, og hann var fangi ásamt Elínu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.