Tíminn - 04.06.1961, Page 6
€
TlMINN, sunnndagiim 4. Jflní 1961.
þ'áttur kirkjunnar
„Eg trúi á heilaga, al-
menna, kristilega kirkju",
lærum við í trúarjátning-
unni. En seinna á ævinni
berst ýmislegt að eyrum,
sem virðist bæði sögulega
og siðferðilega vera í mót-
sögn við þessa trú. Og
stundum heyrum við með
nokkrum rökum, að kirkj-
an og foringjar hennar á
ýmsum tímum hafi stuðlað
að þröngsýni og grimmd og
eflt ranglæti og yfirgang
einkum gagnvart frjálsri
hugsun og lítilmagna, hvort
sem það voru umkomulitlir
einstaklingar í sveit á ís-
landi eða heilar frumstæð-
ar þjóðir suður í Afríku.
dyr“ og lyfti augum þínum
til stjarna, sem geisluðu
ofar öllum skuggum. Þegar
hjarta þitt var gripið vakn-
andi ástarþrá dularfullri
og undursamlegri í senn,
göfguðu áhrif kirkjunnar
ást þína og lyftu henni í
æðra veldi ofar viðhorfum
dýrsins og veitti þér vald
yfir hinu óæðra og jarð-
bundna í eðli þínu. Hún
helgaði hjónaband þitt og
blessaði heimili þitt á
grundvelli hins eilífa kær-
leika.
Og þegar hjarta þitt var
barmafullt af harmi og
áhyggjum, svo að þar virt-
ist enginn geisli eiga fram-
Kirkjan og þú
t
Vissulega er nokkuð til í
þessum ásökunum, en jafn-
víst er hitt, að hér var ekki
kristileg kirkja að verki,
heldur skortur á kristin-
dómi i sjálfri kirkjunni,
sem þó á að vera sam-
kvæmt trúarjátningu sinni
hin heilaga stofnun og
helgidómur Kristsandans
meðal mannkynsins.
Lítum nú á kirkjuna sem
slíka stofnun og þá kemur
ýmíslegt í Ijós, sem sannar
að þrátt fyrir öll mistök
fylgjenda hennar og stjórn
enda, er hún gjafari hinnar
mestu gæfu á braut hverr-
ar manneskju, sem veitir
henni trúnað og trú-
mennsku samkvæmt trú
sinni á helgidóm hennar.
Áður en þú fæddlst
veitti kirkjan foreldrum
þínum heilagar hugsjónir
siðgæðis -og kærleika, sem
gjörði heimili þitt friðsælt
skjól fegurðar og öryggis
þér til handa meðan þú
varst enn ósjálfbjarga og
gazt enga vöm þér veitt.
í fyrstu bernsku tengdi
Jiirkjan foreldra þína kristi
legum siðum og hugsunar-
hætti, svo að þú varst helg-
aður þvi göfgasta, sem sam
félagið veitir og skírður í
trú á kraft Kristsandans,
sem skyldi veita nafni þínu
helgun og sjálfum þér per-
sónuleg réttindi ævilangt.
f æsku þinni auðgaði
kirkj an hug þinn og hj arta
að helgum sögnum, ljóðum
og lögum, bænum og til-
beiðslu, trúrækni og hug-
hrifum, sem ófust nær ó-
sjálfrátt skapgerð þinni og
persónuleika og gáfu þér
markmið í lífi þínu og mót-
uðu lífsskoðun og skapgerð
þína á allan hátt.
Stundum gleymdir þú
þessum fræðum og „eltir
skugga“ og spurðir, „hvað
hjálpar heilög trú og henn-
ar ljós“. En strax þegar þú
áttaðir þig fannstu, að sá
sannleikur, sem kirkjan
hafði kennt þér var skín-
andi, traustur og ósigrandi.
f stormum harms og efa-
semda, og tímum breytinga
og byltinga á gelgjuskeið-
inu heyrði kirkjan brimgný
af sólaröldum þínum,
studdi fætur þína, þótt fet-
in næðu skammt og opnaði
vitund þinni „andans fögru
ar heima, þá kallaði kirkj-
an þig að uppsprettum
svölunar og kraftar, til
hans sem er svo gott að eiga
að „einkavini í hverri
þraut“. Og hann hvíslar til
þín himneskum vonum um
náð sem er ný á hverjum
morgni og hönd, sem muni
þerra hvert tár. í
Og þegar þú hefur hras-
að og spor þín eru lituð
sora og synd, beiskju og
iðrun, hefur kirkan kallað
þig til nýrrar gleði og nýs
Iifs í trú á sigur hins góða
í sjálfum þér, og þannig
veitt hinu göfuga í eðli
þínu yfirhönd hverju sinni.
Og á fullorðinsárunum,
þegar börnin þín komu til
sögunnar, og þú fannst þau
dýrmætarl þér en þitt eigið
líf, þá kemur kirkjan með
framréttar hendur til
hjálpar, svo að þú getir leitt
þau á vegum hins sanna,
fagra og góða að takmarki
gleði og gæfu.
Og þegar kraftar þínir
þverra, og ævidegi hallar,
þá mætir kirkjan þér í um-
hyggju og þakklæti barna
þinna, brosi ástvina og
hlýjum handtökum vína
þinna, þá veitir hún þér
friðsælar stundir í helgi-
dóminum og lyftir huga
þínum út yfir hrörnun og
dauða til draumalandsins
eilífa þar sem Guð er allt í
öllu. Og þannig nemur hún
brott brodda dauðans og
kveikir lífsins Jjósið bjarta
í hjarta þínu, svo að morg-
unroði eilífðar sameinast
kvöldbjarma þessa heims
yfir brám þínum.
Heilög, kristileg kirkja
kallar þig að hjarta sér.
Hún óskar þjónustu þinnar
og lotningar. Þar er hún í
sínum fulla rétti. Vilt þú
ekki hjálpa henni til að
veita öðrum það, sem hún
hefur miðlað þér? Mundi
vera æðra hlutverk hér á
jörðu en það, að halda
merki hennar hátt og láta
ljós hinnar lifandi trúar á
sigur kristilegrar kirkju í
Ijósastiku hjarta og helgi-
dóms? Þá lýsir það öllum,
sem í húsinu eru, svo að
þeir vegsami föðurinn á
himnum og anda Krists í
kirkju sinni ár og eindaga?
Árelíus Níelsson.
BETT er nýtt þvottaefni. Það er búið til úr
góðri sápu, en auk þess eru í því m. a. CMC
og ÚTFJÓLUBLÁMI, sem endurvarpar geislum
ljóssins og lýsir þannig hvítan þvott og skýrir
alla liti. BETT er bæði drjúgt og ódýrt og jafn-
gott, hvort sem ' þvegið er í höndunum eða í
þvottavél. — BETT er nýtt þvottaefni.
BETT ER BETRA. H.F. HREINN. Sími 24144.
STUART
SILUNGANET
LAXANET
KOLANET
ÞORSKANET
HUMARTROLL
DRAGNÆTUR
STUART-net eru afburtJa veiíin og endingargó'S
UmboÖsmenn:
Kristján Ó. Skagfjörð h.f.
Sími 24120, Reykjavík.
Laxveiði
Tvær mjög góðar netjalagnir í Ölfusá, undan jörð-
inni Öndverðarnes í Grímsnesi eru til leigu í sum-
ar. Ekki svarað í síma.
Fyrir hönd ábúanda Halldórs Guðlaugssonar.
GUÐLAUGUR EINARSSON ^
Málflutningsskrifstofa
Freyjugötu 37.
Bifreiðasalan
Frakkastíg 6
Símar 19092 — 18966 og
19168. Höfum ávallt á boð-
stólum mikið úrval hvers
konar bifreiða.
Kynnið yður verðlistana hjá
okkur áður en þér kaupið
bifreið.