Tíminn - 24.06.1961, Qupperneq 1
l 130. tbl. — 45. árgangur.
Föstudagur 23. júní 1961ir
ARABI SELUR ISLENZKAR Góðan daginn, frú
STÚLKUR TIL GLEÐIHÚSA
^ Ungfrú af TIMANUM heimsóttl frú eina i Bessastaðanesi núna í ■
^ vikunni. Ljósmyndari var með í förinni, eins og títt er við meiri •
^ háttar heimsóknir, og þessa mynd tók hann, þegar þœr heiisuðust, •
) frúin og ungfrúin. Sjá frásögn og myndir úr ferð í varplönd æðar- p
) fuglsins á Bessastöðum á blaðsíðu 9 í dag (Ljósm.: TÍMINN — GE). ^
Enginn veit, hvar tvær íslenzkar
stúlkur eru niður komnar
Arabi nokkur var á þriðjudaginn dæmdur í átta mánaða
hegningarvinnu af dómstóli í Stokkhólmi fyrir að hafa stofnað
fyrirtæki til útflutnings á ungum og fallegum stúlkum í miður
heiðarlegum tilgangi. Hann auglýsti í sænskum blöðum eftir
stúlkum, sem vildu starfa í útlöndum, og yfir 100 gáfu sig
fram. Þegar sænska lögreglan skakkaði leikinn, hafði honum
aðeins tekizt að senda tvær bær bráðlátustu af stað. Að sjálf-
sögðu voru þær ekki sænskar heldur íslenzkar ungpíur, ef-
laust af þeim toga, sem sendar eru af foreldrum sínum á
fína skóla erlendis til málanáms.
Ekstrabladet skýrir þannig frá
þessu á nnðvikudaginn:
„Stokkhólmur (Ekstrabladet). —
Arabi frá Aden var í gær dæmdur
í Stokkhólmi til átta mánaða hegn-
ingarvinnu. Arabinn hafði stofn-
sett í Stokkhólmi fyrirtæki, sem
nefndist X-útflutningur — til stór-
útflutnings á sænskum stúlkum.
Á yfirborðinu leit svo út sem
stúlkurnar ættu að vinna sem
stofustúlkur, en lögreglan lagði allt
annan skilning í eðli vinnunnar.
Arabinn auglýsti í sænskum
blöðum eftir „fallegum stúlkum á
aldrinum 16—55 ára“, sem hefðu
áhuga á að vinna í útlöndum. Ar-
abanum heppnaðist meira að segja
að fá sænsku ríkisjárnbrautirnar
til að flytja þær til Kaupmanna-
hafnar upp á krít, þaðan sem senda
átti stúlkurnar áfram út í heim.
Yfir hundrað gáfu sig fram, en
lögreglan greip inn í, áður en þær
færa af stað. Honum tókst aðeins
að koma tveimur íslenzkum stúlk-
um af stað. Þær hafa farið brott
frá Evrópu frá Hamborg — eng-
inn veit, hvar þær eru niður
komnar nú“ (Leturbr. Tímans).
Utanríkisráðuneytið afneitaði
allri vitneskju um þetta, þegar haft
var samband við það í gær. V
Að íslenzkar stúlkur láti gabba
sig svona frekar en aðrar, kemur
(Framhald á 2. síðu).
Sæsími í ágúst og
rafmagn að sumri
Frá fréttaritara Tímans
í Vestmannaeyjum.
Vonir standa til, a8 í sumar
verSi lögð til Vestmannaeyja
sæsímalína frá meginlandinu.
Er nú hafinn undirbúningur í
Vestmannaeyjum til þess að
taka á móti strengnum, en
hann mun tekinn á land upp í
svonefndri Klauf úti við Stór-
höfða.
Unnið er að því þessa dagana,
að grafa skurð fyrir strenginn
gegnum bæinn og niður að sím-
stöðinni.
Reist mun verða fjarskiptistöð á
Sæfelli, og er hún fyrir símasam-
bandið við Reykjavík. Er líklegt,
að búið verði að leggja strenginn í
ágús-t í sumar.
Auk þessa strengs frá megin-
landinu hefur Vestmannaeyingum
verið lofað, að þangað verði lagður
rafmagnsstrengur næsta sumar, en
hingað til liafa Vestmannaeyingar
' orðið að notast við rafmagn frá
olíustöðvum, en það er mjög dýrt.
Hefur mælingaskipið Týr unnið
að mælingum við Eyjar og reynt
að finna hentugan stað til þess að
fara á land með strenginn. Áður
var búið að ákveða að fara með'
strenginn á land í svonefndri j
Kópavík, en sá staður þótti ekki
heppilegur, þegar betur var at-
hugaö.
Samningar um fiskveiði
réttindi Færeyinga
Frá þessu er skýrt í Berlingi í
dag.
Danska stjórnin hefur óskaó þess viS Íslendinga,
aí5 þeir hefjist hií bráÓasta
Kaupmannahöfn, 23. júní
— einkaskeyti.
Danska ríkisstjórnin hefur
farið þess á leit við íslenzku
ríkisstjórnina, að samningar
um fiskveiðiréttindi Færey-
inga við ísland verði hafnir
hið bráðasta. Þess er farið á
leit, að fulltrúar frá Færeyjum sök.
I þessum tilmælum er skírskot-
að til þess, að vafi ku-nni að leika
á grunnlmum þeim, sem útfærsla
fiskveiðitakmarkanna við ísland
miðast við, og á þeim hafi aftur
verið byggðar ákærur á hendur
færeyskum fiskimönnum, sem gef
in hafa verið landhelgisbrot að
eigi aðild að þeim samningum1 ,tÞesss er 8®«®* að döilsk
, _ utgei'ðarsamtok mum í sumar bera
imeð Islendingum og Dönum.:fram þá kröfu við stjómarvöld íi
Danmörku, að Danir taki upp tólf
sjómílna landhelgi. Er hafinn und
irbúningur að því, að þessi krafa
verði formlega borin fram.
AÐILS.
Malinovski
i Helsinki
NTB—Helsinki, 23. júní.
Malinovski landvarnaráð-
herra Sovétríkjanna kom í dag
í 10 daga opinbera heimsókn
til Finnlands ásamt konu sinni
(Framhald á 2. síðu).
Fyrst varö
aö fangelsa
áhöfnina
— svo a<S hægt væri aft
slökkva í bátnum
ísafirði, 23. júní. — í nótt
kviknaði í hásetaklefa vélbáts-
ins Höfru'mgs frá Reykjavík við
bryggju á ísafirði. Voru báts-
verjar fjórir svo ölóðir, að
liandtaka varð þá og setja í
fangelsi, svo að slökkviliðið
fengi sinnt slökkvistörfunum
eins og vera bar.
Ekki sakaði bátsverja, og
slökkviliðinu tókst að kæfa eld
inn. Höfrungur er tíu lesta
bátur. Guðm.