Tíminn - 24.06.1961, Qupperneq 12

Tíminn - 24.06.1961, Qupperneq 12
12 TÍMINN, laugardaginn 24. júní 1961. RITSTJORI HALLUR SIMONARSON Hollenzka landsliðið gjör- Danskir knattspyrnu- sigraði Akurnesinga, 11:1 — Helgi markmaöur Daníelsson bauö knatt- spyrnuskó sína til sölu eftir leikinn Hollenzka landsliðið í knattspyrnu lauk heimsókn sinni með því að setja nýtt markamet á Lauqardalsvellin- um í gærkvöldi. Ellefu sinnum varð Helgi Daníelsson að hirða knöttinn úr marki sínu, og eftir leikinn fór hann úr knatt- spyrnuskóm sínum, veifaði þeim til áhorfenda og bauð þá til sölu, og gaf þar með til kynna — í gríni auðvitað — að hann ætlaði að hætta knatt- spyrnunni. En vonandi lætur hann ekki hugfallast við þessi ósköp. Það var djarft teflt hjá Akurnes- ingum að styrkja ekki lið sitt í gær- kvöldi, einkum og sér í lagi, þar sem bezti maður liðsins, Sveinn Teitsson gat ekki leikið vegna meiðsla. Og útkoman varð líka mjög slæm. Knattspyrnusamband- ið bað Akurnesinga mjög um að styrkja lið sitt, en þeir vildu það ekki. Líklegt er þó, að leikmenn úr öðrum liðum hefðu eitthvað getað styrkt liðið — og áhorfendur hefðu eitthvað fengið fyiir pen- inaa sína Það er ekkert gaman að horfa á algeran einstefnu akstur. 8—1 í fyrri hálfleik. Akurnesingar fengu fyrsta tæki- færið í leiknum. Á 2. mín lék Þórð ur Jónsson upp kantinn og gaf vel fyrir Ingvar Elíasson skallaði á markið. en hollenzki markmaður- inn varði vel. En síðan fór leikuiinn að mestu fram á vallarhelmingi Akurnes- inga og mörkin létu ekki á sér standa. Alls urðu þau átta, sem Hollendingar skoruðu í hálfleikn- um, en Akurnesingar eitt. Á 10. mín skoraði miðherjinn með frekar lausnm skallknetti, eft- ir góða fyrirgjöf frá vinstri, og smaug knötturinn rétt hjá Helga. Fimm mín síðar náðu Hollend- ingar mjög fallegu upphlaupi, og litherjínn Weber skoraði fallega. Og ekki leið nema mínúta þar til þriðja mark var skorað. og var hægri útherjinn þar að verki. Fjór- um mín. síðar urðu mistök í vörn Akurnesinga. Helgi Hannesson ætlaði að gefa til nafna síns í markinu, en miðherjinn komst á milli og náði knettinum af Helga markverði og skoraði örugglega. j Á 21. mínútu komst Ingvar einn innfyrir hollenzku vömina 1 eftir mikÚ mistök hjá vörninni. Markmað'urinn hljóp gegn hon- um og spymti Itigvar knettinuni í hann. Ingvar náði knettinum aftur en tókst þá svo illa til, að hann rcnndi honum framlijá opnu markinu. Þarna var farið illa með gott tækifæri. En Hollendingar voru stöðugt ágengir. Á 25. mín. skoraði mið- herjinn þriðja mark sitt í leiknum , og fimmta mark Hollands. Rétt á | eftir komst innherjinn hægri inn fyrir eftir langa sendingu og skor aði öiugglega. 6—0 og áhorfend- um var hætt að standa á sama. Leikur Akurnesinga var algerlega í molum, og Hollendingar gátu leikið á varnarleikmennina að vild sinni. Eftir hálftíma leik skoraði vinstri innherjinn sjöunda mark- ið, en á 35. mín. tókst Akurnes: ingum aðeins að rétta sinn hlut. Þórður Jónsson fékk knöttinn um miðjrlna ”óg lék einn með hann upp að vítateig og spyrnti á markið. Öllum til undrunar fór knötturinn gegnum klofið á liinum ágæta markverði Hollands og í markið 7—1. Hollendingar skoruðu áttunda mark sitt í hálfleiknum á 41. mín. og var það miðvörðurinn, sem skoraði beint úr aukaspyrnu a£ um 35 metra færi. Mjög klaufa- legt hjá Helga í markýnu. 3—0 í síðari bálfleik Hollendingar voru ekki nálægt því eins ágengir í síðari hálfleikn- um, hefur sennilega þótt nóg af svo góðu komið. Þó tókst þeim að skora þrjú mörk til viðbótar og bæta þar með vallarmet þýzka landsliðsinS gegn KR í fyrra — 10—0. Á 7. mín. dæmdi dómarinn, Haukur Óskarsson, vítaspyrnu á Kristin Gunnlaugssctn og skoraði vinstri jnnherjinn örugglega úr henni. Á 36. mín. var einnig önnur vítaspyrna dæmd á Akurnesinga fyrir grófan leik, en Helgi Daníels menn keppa á Akureyri son varði þá • vel, frekar lausa spyrnu, en hnitmiðaða. Sýndi hann þar, að hann getur enn var- ið vel. Vinslri útherjinn Wéber skor- aði tvö síðustu mörk Hollands eft ir að vörn Akurnesinga hafði ver- ið leikim illa sundur. Tætingslegt lið Lið Akurnesinga var mjög tæt- ingslegt í leiknum, og áttu flestir leikmennirnir slæman leik. Einna skárstir vom Helgi Hannesson og Jón Leósson, og Þórður Jónsson sýndi smáspretti á köflum, þótt ár-1 angurinn væri ekki nema þetta* 1 2 3 * * * eina mark. Akurnesingar gerðu sig seka um mikla yfirsjón að styrkja ekki liðið — og það var mjög klaufalegt hjá þeim, ekki aðeins gagnvart hinum ágætu gestum okkar, heldur einnig og fyrst og fremst áhoríendum, sem keyptu sig inn á völlinn til þess að sjá knatt- spyrnu, en hana sýndi aðeins hol- lenzka liðið. Hollendingar voru í essinu sínu í leiknum — enda mótstaðan sára- lítil — og var oft mjög ánægjulegt að sjá leik þeirra. Allir eru leik- fn'ennirnir góðir og jafnir. bömári í’leiknum 'var Haukur Óskarsson, Víkingi, og dæmdi á- gætlega að venju. Nýlega var háð heimsmeist- arakeppni í borðtennis i Pek- ing f Kína, og var þátttaka í mótinu mjög mikil, t.d. sóttu það margar Evrópuþjóðir, með- al annars Danir og Svíar. Ekki sóttu þessar þjóðir þó gull í greipar heimamanna, því Kín- verjar hlutu þrjá meistaratitla af sjö, sem keppt var um. Jap- anir, sem verið hafa fremstir í þes^ari íþróttagrein mörg und anfarin ár, lilutu einnig þrjá titla og Rúmenar einn — í tví- menningskeppni kveivna. — Slík heimsmeistarakeppni í borðtennis e rháð á tveggja ára fresti. í Dortmund fyrir tveim- ur árum hlutu Japanir sex titla af sjö, en þessi íþróttagrein virðist liggja mjög vel fyrir hina litlu lipru Austurlanda- búa. Næsta heimsmeistaramót verður í Tékkóslóvakíu. Mynd in hér að ofan sýnir keppnis- salinn, sem meðan undankeppn in fór fram, var oft keppt á 10 bór'ðuin samtímis. í gær komu til Akureyrar knattspyrnumenn frá danska A-liSinu Freja í Randers, sem er vinabær Akureyrar. Komu knattspyrnumennirnir meS flugvél til Reykjavíkur í fyrra kvöld, og ætluÖu samkvæmt áætlun að fljúga strax norður, en vegna verkfallsins urðu þeir að taka sér bíl og komu því ekki til Akureyrar fyrr en í morgun. Liðsmenn eru fast að tuttugu talsins og eru farastjórar þeirra Kurt Möller og Herluf Sörensen. Verður fyrsti leikur dönsku knattspyrnumannanna á Akureyri í dag, en annar leikur á mánudaa Þann 29. júní leika þeir svo við KR á Laugardalsvelli, en halda að því búnu heimleiðis. Það er íþróttabandalag Akureyr- ar og Akureyrarbær, sem stendur að móttöku knattspyrnuflokksins, en Hörður Svanbergsson er for- maður móttökunefndar. Er hér um gágnkvæmar heimsóknir knatt- spyrnumanna að ræða, því að í fyrra fóru Akureyringar í mjög vel heppnaða ferð til Randers. Um hundrað keppendur á Héraðsmóti Skarphéðins Breytingar á leikjum i 1. deild Islandsmótsins Vegna heimsóknar Randers Freja til Akureyringa 22.6. hafa verið gerðar svofelldar breytingar á niðurröðun leikja í 1. deild: Akureyri—Akranes fer fram 13. ágúst kl. 17.0C, en ekki 25.6. KR— Hafnarfjörður fer fram 26. júlí kl 20.30, en ekki 29.6. Akranes—Ak- ureyri fer fram 28. júlí kl. 20,30. en ekki 20.8. Vegna utanfarar Fram hinn 17. ágúst og þátttöku lánsmanna frá KR og Akranesi í þeirri för, hafa verið gerðar svofelldar breytinga.r a niðurröðun 1. deildar: Fram—Akranes fer fram 19. júli kl. 20,30 (í stað 13.8.). KR— Valur fer fram 2. ágúst kl. 20,30 (en ekki 20 8.) Akureyri—Valur fer fram 20 ágúst kl 17,00 (en ekki 13.8.) KR—Akranes fer fram 10 september kl. 16,00 (en ekki 27.3.). Héraðsmót Ungmennafélags sambandsins Skarphéðins var háð að Þjórsártúni dagana 10. og 11: júní s. I. Keppendur voru mjög margir eða um 100, sem er óvenjulegt á frjáls- íþróttamóti hér á landi. Mjög athyglisverður árangur náðist í mörgum greinum, einkum þó hjá stúlkunum. Helztu úrslit urðu þessi: Þrístökk: 1. Ólafur Unnst.son, Ölf. 14.04 2. Árni Erlingsson, Self. 13.67 3. Bjami Einarsson, Gnv. 13 29 4. Reynir Unnsteinsson Ölf. 12.58 Langstökk: 1. Ólafur Unnsteinsson, Ölf. 6.71 2. Matthías Ásgeirsson, Ölf. 6.51 3. Árni erlingsson, Self., 6,14 4. Sigurður Sveinsson, Self. 6.09 Hástökk: 1. Ingólíur Bárðarson, Self. 1.75 2. Bjami Einarsson, Gnúpv. 1.65 3. Jóhannes Gunnarsson, Gnúpv (15 ára) 1.65 4. Gunnar Marmundss. Dagsb. 1.60 Stangarstökk: 1 Jóhannes Sigm.son, I-Irun 3.00 2. Ingólfur Bárðarson, Self. 2.90 3 Reyr.ir Unnsteinss."n Ö!f 2 50 2. Gunnar Karlsson, Ölf. 57.6 3. Hreinn Erlendsson, BLsk. 61.4 Aðalst. Steinþórsson, Gnúp. 61.4 5000 metra hlaup: Hafsteinn Sveinsson, Seif. 17:35,4 Jón Guðlaugsson, Bisk. 17:36.4 Sigurgeir Gum.son Gnúpv. 18:26.6 Jón Sogurðsson, Bisk. 18:33.8 Kringlukast: 1. Sveinn Sveinsson, Self. 39.10 2. Matthías Ásgeirsson, Ölf 36.49 3. Sigfús Sigurðsson, Self. 36.27 Ægir Þorgilsson, Hr Hængs. 34.49 Spjótkast: Ægir Þorgilsson, Hr. Hængs 46.22 Matthías Ásgeirsson, Ölf. 43.66 Sveinn Sigurðsson, Samh. . 40.92 Guðmundur Axelsson, Hvöt, 39.52 Kúluvarp: Hafsteinn Kristinsson, Self. 12.87 Sveinn Sveinsson, Self. 12.75 Viðar Marmundsson, Dagsbr 12.66 Sigfús Sigurðsson, Self. 12.56 4x100 m. boðhlaup karla: A-sveit Ölfus, 43 2 A-sveit Self. 49 5 A-sveit Hrunam. 53 0 A-sveit Bisk. 53 5 100 m. hlaup kvenna: 1. Helga ívarsdóttir, Samh 13 4 2. Guðrún Ólafsdóttir, Ölf. 13.6 3. Ragnh. Stefánsd., Samh. 14.0 4. Ingibjörg Sveinsd. Self. 14.2 Kinglukast kvenna: 1. Ragnh. Pálsdóttir, Hvöt, 32.40 2. Sigríður Jónasdóttir, Self. 23.62 3. Sigríður Sæland, Bisk. 22.55 4. Ólafía Jónsdóttir, Self.. 22.30 Kúluvarp kvenna: Ragnheiður Pálsdóttir, Hvöt, 9.29 2. Móheiður Sigurðard. Hrun. 8.96 3. Sigríður Sæland, Bisk. 8.41 4. Krislín Guðmundsd. Hvöt, 8.39 Hástökk kvenna: 1. Kristín Guðmundsd. Hv.öt, 1.35 2. Móheiður Sigurðard. Hrun. 1.30 3. Helga ívarsdóttir, Samh 1.30 4. Katrín Helgadóttir, Samh 1.25 100. metra hlaup: Ólafur Unnsteinsson, Ölf Gunnar Karlsson, Ölf. Árni Erlingsson, Self. Langstökk kvenna: H-1 ]. Helga fvarsdóttir, Samh. 2. Guðrún Ólafsdóttir, Ölf ll-7 3. Ingibjörg Sveinsd, Self. 4.75 4.56 4.54 Hörður Bergsteinsson. Laug. 12.0 4 Ragnheiður Pálsd. Hvöt, 4.28 400 mctra lilaup: Ólafur Unnst.son, Ölf 57.2 3000 m. víðavangshlaup:) Hafsteinn Sveinsson, Self. 10:05.0 Jón Guðlaugsson, Bisk. 10:13.8 Guðjón Gestsson, Vöku, 10:28.5 Jón Sigurðsson, Bisk. 10:34.4 4x100 m. boðhlaup kvenna: 1. A-sveit Samh. 61.4 2. A-sveit Hrunam. 62.4 3. Sveit Ölfus, 63.9 4. Sveit Selfoss, 65.8

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.