Tíminn - 28.06.1961, Blaðsíða 7

Tíminn - 28.06.1961, Blaðsíða 7
I TfMINN, niiSvítudaginn ZZ. júní 1961. Sigurður Einarsson í Holti: Jónsmessu- Ijóð 1961 (Þeir, sem hlýddu á hið snjalla fjallkonuljóS séra Sig- urðar Einarssonar í Holti, fundu gerla, að þar er frjór skáldhugur og orð'kyngi enn í góðum fórum. Og þetta fallega sumarljóð, sem Tíminn fékk hjá séra Sigurði í gær, er góð- ur kvistur af sama meiði.) Enn koma dagarnir bjartir á brá, bláir í augum og léttir í spori. Nú skal ég leggja lag mitt við þá, leika mér ungur á vori. Hlæja með fossum, hjala með lindum, hlaupa á skýjum, bruna með vindum og setjast með sálinni á tindum. Teiga þar glaður úr guðs eigin skál glitrandi veigar af daganna ljósi, finna þar jökulsins bláhvíta bál og blikin af flæðum og ósi loga og verða í sál mér og sinni svellandi músík, sem ljómar þar inni og brennir mér vesöld og vetur úr minni. Máttuga vorsól, legg þú oss lið langdægra þinna gegn vetrarins meinum. Gef þú ei vofunum værð eða grið, sem vafra í sálnanna leynum. Þú þarft að brenna hér búrans ótta, baslarans kergju og heimalnings þótta. Slá amlóðans öfund á flótta. Komdu út í birtuna, bróðir minn kær, bláhiminn guðs sé þar tjaldið vort fríða. Systir mín góða, sittu mér nær. Sjáum hve vordægrin líða. Svo leysum vér huga vorn tjóðurtaman og taktu svo eftir, hve Ijúft er og gaman að fagna sólinni saman. Hvernig á fjölskyldan aö lifa á laununum? í sambandi við verkföllin undan farið, er ekki úr vegi að gera sér nokkra grein fyrir, hvernig kaup- mætti launa er háttað hér hjá okk- ur nú. Kaupmáttur launanna hlýt- ur óhjákvæmilega að vera aðal- atriðið í öllum kjaradeilum. Eitt af dagblöðunum í Reykja- vík greindi nýverið frá því, að út- tak úr skattaskýrslum hefði leitt í ljós, að meðaltekjur verkamanna s.l. ár hefðu verið röskar 75 þús- undir króna, eða nálægt 6,250, — kr. á mánuði eð meðaltali. Hingað til hafa laun verkamanns ins yfirleitt verið talin lægstu launin, — laun opinberra starfs-| rnanna hins vegar meðal hinna öf- undsverðu. En athugum nú, I hversu öfundsverð þau eru hin lægri laun opinberra starfsmanna. Undirritaður er einn hinna op- inberu starfsmanna (hjá rikis- sjóði) og í 10. launaflokki. Mán- aðarlaunin eru kr. 5.015,50. Fjöl- skyldan er: maður, kona og 2 börn. Fjölskyldubætur kr. 433,33. Tekj- ursamtals á mánuði verða því kr. 5.448,83 eða 65.385,96 kr. yfir árið, og eru þetta 10 þúsundum króna lægri laun, en meðal verkamanns- laun samkvæmt framanskráðu. Eftirtaldir útgjaldaliðir munu teljast í mesta máta hóflegir, ef ætlazt er til, að fjölskyldan geti lifað nokkurn veginn sómasam- legu lífi. (Tekið er meðaltal í einn mánuð): Efni í fæði handa hjónum og 2 börnum kr. 2.200,— Húsaleiga fyrir viðunandi húsnæði .... — 2.200,— Fatnaður ýmis konar handa fjölskyldunni — 1.000,— Húsgögn, innanstokksmunir og áhöld .... — 500,— Ljós og hiti ............................... — 550,— Lífeyrissjóðsgjald ........................ — 200,60 Útsvar og önnur oipnber gjöld............... — 400,— Sjúkrasamlagsgjöld, læknishjálp og Iyf .. — 150,— Strætisvagna- og önnur fargjöld ............ — 425,— Síminn (ásamt uppsetn. eða flutningsgj.) — 220,— Útvarpið (afnot og afborgun) ............... — 80,— Dagblaðið (t.d. Morgunblaðið) .............. — 45,— Til dægrastyttingar handa öllum (bíó o.fl.) — 300,— Annað, ýmislegt, til hreinlætis, snytring- ar, lesefni o. fl. o. fl.................... — 200,— Þetta verða samtals á mánuði kr. 8,475,60 eða 101,707,20 kr. yfir árið. Allir sjá, að hér er svo að segja öllum óþarfa sleppt, tóbaki og á- fengi alveg, bílnum að mestu leyti, bókunum sömuleiðis, veizlunum og tækifærisgjöfunum; — gest- komum stillt í hóf og skemmtanir skornar mjög við nögl o.s.frv., o.s. frv. Þó vantar sem svarar, mánað- arlega, kr. 3.026,77 svo að tekjurn- ar nægi fyrir útkjöldunum, eða rúmlega 36 þúsund krónur yfir árið. Hvar ætlast ríkissjóður til, að launþegar hans taki það sem á vantar? — Með eftirvinnu, sem sums staðar er engin? — Með vinnu annars staðar? Er furða, þótt hinir lægst laun- uðu kvarti? Reykvíkingur. Bandalag starfsmanna ríkisog bæja styrkir verkfailsmenn Á fundi stjórnar B.S.R.B. 26. þ.m. var einróma samþykkt eftir- farandi ályktun: Með bréfi, dags. 5. þ.m. leitaði Alþýðusamband íslands eftir fjár- hagslegum stuðningi B.S.R.B. vegna verkfalla ýmissa verkalýðs- félaga, sem þá stóðu yfir. Fyrst eftir að stjórn B.S.R.B. barst þetta bréf, virtist nokkurt útlit fyrir, að vinnudeilur þessar myndu bráðlega leysast, og var því dregið að taka ákvarðanir um málið. Á stjórnarfundi hinn 16. þ. m. var ákveðið að skýra stjórnum bandalagsfélaganna þegar í stað frá beiðni Alþýðusambandsins og biðja þær að vera viðbúnar að taka afstöðu til málsins, og hefja aðgerðir í samræmi við það, þegar eftir 26. þ. m., ef verkföllin yrðu þá ekki leyst. Vegna þeirrar stefnu í launabar- áttunni, sem hefur orðið ráðandi i vinnudeilum þessa árs, telur stjórn B.S.R.B. ríka ástæðu til að minna á samþykktir síðasta banda lagsþings, er í samræmi við skoð- anir þess undanfarið árabil, marka ákveðna stefnu í launa- og kjara- málum, er stjórnin ítrekaði með samþykkt á fundi sínum hinn 24. febr. s.I. Jafnframt lýsir stjórnin þeirri skoðun sinni, að hún telur til- gangslaust, eins og málum er komið, að eyða tíma í deilur um, hvort umsamið kaupgjald verka- lýðsfélaganna muni leiða til kjara- bóta í réttu hlutfalli við launa- hækkanir. f þessu sambandi lýsir banda- lagsstjórnin yfir eindregið og á- kveðið þeirri skoðun að á undanförnum árum hafi verið of langt gengið í launajöfnuði við lausn kjaradeilna og bendir á þá þjóðfélagslegu nauðsyn, að auk þess að tryggja lífvæn- leg lágmarkslaun sé tekið tillit i til náms, ábyrgðar og sérhæfni! í starfi. j að áframhaldandi verkföll rýra i mjög þjóðaiframleiðsluna og skerða því möguleika launþega til að bæta kjör sín í nánustu framtíð, og er því miður farið að lausn vinnudeilna sé hindr- uð vegna ágreinings um forms- atriði. að rétt sé, að opinberir starfsmenn geri sitt.til að bæta úr þreng-1 ingum þeirra, sem nú líða skort (Framhald á 13. síðu). 7 r* A víðavangi Erfitt aS finna samhljóminn Alþbl. helgar Framsóknar- mönnum og SÍS leiðara sinn í gær. Segir þar, að samvinnu- félögin hafi samið við verka- menn um 10% kauphækkun til að koma á „nýrri verðbólguþró- un“ og gengislækkun til að geta grynnt á skuldasúpu samvinnu- félaganna. Alþbl. er svo greini- Iega búið að skipa sér til hægri við málgögn íhaldsins, að Mbl. og Vísir eru hætt að geta fylgzt með, og þessum blöðum virðist nú erfiðara með hverjum deel að samræma „stefnuna“. Leiðari Visis í gær fjallar um ótta Framsóknarmanna. Vísir segir að „loks sé farið að brydda á því, að Framsóknarmenn skilji, hvert þeir eru að leiða þjóðina“ „ Framsóknarmenn eru tekn ir að svitna undir skyrtunni af ótta við verðbólguna og géngis- fallið.“ (Leturba Tíminn). Þannig er tvisöngurinn úr.her búðum stjórnarflokkanna. Alþbl. segir, að Framsóknarmenn vilji ekkert fremur en verðbólgu og gengisfall og markmið samning anna við verkalýðsfélögin hafi verið það. Vísir segir að Fram- sóknarmenn óttist ekkert meira en verðbólgu oig gengisfall og séu haldnir ofboðslegum ótta og svitni heilmjkið undir skyrtunni. Mbl. rekur svo lestina og segir, að Rússar hafi staðið að baki samningum sanwinnufélaganna og verkalýðsfélaganna um 10% kauphækkun. Rússar hafi mútað Sambandinu og borgi því millj- ónir fyrir olíuflutningana, fyrir að semja við verkamenn um svo há laun að það kollvarpi lýð- ræðisþjóðfélagi á íslandi. Hvaö getur verið hættulegra og grafið meira undan lýðræðis- skipulaginu, en einmitt svona skrif málgagna stjórnarflokka, sem telja sig lýðræðisflokka. Farinn aí hrörna? í síðasta tölubl. Frjálsrar þjóð ar segir meðal annars: „Það kemur vissulega ekki oft fyrir, að Ólafur Thors forsætis- ráðherra verði orðlaus, og kann hann jafnan svör við flestum þeim spurningum, sem fyrir hann eru lagðar í kappræðum. — Þó er sagt að það hafi komiö fyrir um daginn, þegar hann spjallaði við Fúrtsévu hina rúss- nesku. Þau voru eitthvað að spjalla saman og fór hið bezta á með þeim. Þar kom að Fúrt- séva sagði: „Þér ættuð nú bara að koma austur til okkar og kynnast ástandinu þar af eigin raun og sjá, hvað við höfum gert.“ — „Nei, ég er orðinn allt of gamall til þess“, sagði Ólafur. „En herra forsætisráðherra, ef þér eruð orðnir of gamlir til þess, eruð þér þá ekki of gamlir til þess að vera forsætisráð- herra?“. Og — þá, sem sagt, þagði Ólafur. Hver er afstatSa „vand- ræÖastjórnarinnar“ til vinnudeilna? f Iciðara Mbl. í gær segir: „Viðreisnarstjórnin lýsti því strax yfir, að hún hyggðist ekki hafa pólitísk afskipti af verk- föllum og vinnudeilum. Hún myndi leitast við að styrkja samningafrelsi vinnuveitenda og launþega fremur en veikjá það." Það er rétt hjá Mhl., að ,,vand ræðastjórnin" Iýsti þessu yfir við valdatöku sína, cn þá yfir- lýsingu hefur hún marg þverbrot ið — eins og allar hinar. f stað (Framhald á 6. siðu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.