Tíminn - 29.06.1961, Blaðsíða 3
TÍMINN, fimmtudaginn 29. júní 1961.
Fjármálaráðherra boðar
álögur og gengisfall
Gunnar Thoroddsen, fjár-
málaráðherra, ritaði grein í
Vísi í gaer. Gefur hann þar ó-
tvírætt í skyn, að ríkisstjórn-
in hafi ákveðið að gera kaup-
hækkanir þær, sem samið hef-
ur verið um, að engu með
nýjum efnahagsráðstöfunum,
álögum og nýrri gengisfeil-
ingu. Ekki verður annað á
Gunnari skilið en rkisstjórnin
sé þegar að undirbúa þessar
aðgerðir og hún muni láta til
skarar skríða innan skamms
og þá að líkindum með bráða-
birgðalögum, þótt sá mögu-
leiki sé einnig fyrir hendi, að
þing verði kallað saman.
Gunnar Thoroddsen gefur í skyn í grein í Vísi, a$
ríkisstjórnin hafi á prjónunum nýjar ráðstafanir
og ver'ði jafnvel gripi^ til bráÓabirgíalaga
Herútboð
í Kuwait
Við skulum lifa í friði eða deyja fyrir frelsið,
sagði sheikinn í Kúwait, er hann ávarpaði kon-
ur í mótmælagöngu
NTB—Amman, 28. júní. —
Herinn í furstadæminu Kú-
wait við Persaflóa hefur verið
kallaður saman, og er nú í
vígstöðu, eins og það er orðað
í fréttaservdingu NTB í gær-
kveldi. Kúwait hefur ekki f jöl
mennum her á að skipa, um
það bil 6000 hermanna stór-
fylki, sem svo er nefnt. Hefur
herstjórnin kallað heim alla
liðsforingja af dórdönsku og
palestínsku bergi brotna, sem
verið hafa í orlofi í Amman,
en um það bil 30 þúsund
Jórdaníumenn og Palestínu-
búar munu eiga heimili í Kú-
wait.
Frá London berast þær fréttir,
að Hocne lávarður hafi ítrekað
loforð um stuðning Bretlands við
Kúwait í ræðu, sem hann hélt í
efri deild brezka þingsins í dag.
Sagði lávarðurinn, að fyrir
nokkrum tíma hefði Kúwait ver-
ið viðurkennt sem fullvelda ríki á
alþjóðlegum _ vettvangi, og því
væru kröfur íraksstjórnar í hæsta
máta ósvífnar.
Edward Heath, varautanríkis-
ráðherra, lýsti því samtímis yfir
í neðri deild þingsins, að Bretar
hefðu lýst yfir stuðningi við Kú-
wait og væru hvenær siem er reiðu
búnir að uppfylla þær skyldur,
sem slíkri yfirlýsingu væru sam-
fara og miðuðu að því að vernda
hið litla furstadæmi.
Þá er haft eftir öruggum heim-
ildum í Amman, að fulltrúar
Arabaríkja í Arababandalaginiu
hafi átt marga viðræðufundi síð-
ustu dagana, þar sem rætt er um
hugsanlega inntöku Kúwait í Ar-
ababandalagið.
Jórdaníublaðið Felistin segir í
dag, að það sé nú í fyrsta sinn,
sem konur í Kúwait hafi farið í
mótmælagöngur til stuðnings við
sheikinn í Kúwait. Sheikinn á að
hafa ávarpað konurnar og sagt:
Við skulum lifa í friði eða deyja
fyrir frelsið.
K.R.-Randers í kvöld
í kvöld leikur danska knatt-
spyrnuliðið Freija frá Rand-
ers, sem verið hefur hér í boði
Óttazt
um bát
Óttazt er um lítinn fiskibát
með þriggja manna áhöfn,
sem fór í róður frá Sandgerði
á sunnudaginn, en síðan hef-
ur ekkert til hans spurzt. Bát-
ur þessi er Hringur, skráður
i Reykjavík, en eigandinn er
Gísli Þorvaldsson, Faxabraut
27, Keflavík. Báturinn er 8
eða 9 lestir að stærð og kom-
inn nokkuð til ára sinna.
Akureyringa, síðasta leik sinn.
Leikur liðið gegn KR á Laug-
ardalsvellinum og hefst leik-
urinn kl. 20,30.
Randers Freja hefur um undan-
farin ár verið meðal beztu liða 2.
deildarinnar dönsku, en alltaf vant
að herzlumuninn til þess að kom-
ast upþ í 1. deild. Það sigraði lið
Akureyringa tvívegis um helgina.
Lið K.R. hefur orðið fyrir
nokkru mannfalli undanfarið
vegna tíðra leikja og munu Helgi
Jónsson og Hörður Felixson ekki
geta verið með. Hefur Rúnar Guð-
mannsson, Fram, verið fenginn að
láni sem miðframvörður. Liðin
verður þannig:
Heimir Guðjónsson, Hreiðar Ár-
sælsson, Bjarni Felixson^ Rúnar
Guðmannsson, Garðar Árnason,
Sveinn Jónsson, Gunnar Felixson,
Ellert Schram, Leifur Gíslason,
Þórólfur Beck, Gunnar Guðmanns
son.
Dómari verður Magnús V. Pét-
ursson.
Þá boðar fjármálaráðherrann
einnig breytingar á vinnulöggjöf-
inni í þessari grein. Telur ráð-
herrann, að allshprjarverkföllin í
landinu séu verk fámennra hópa
í þjóðfélaginu og í andstöðu við
vilja þorra landsmanna.
Niðurlag greinar fjármálaráð-
herra er á þessa leið:
„En hér hefur fámennum hóp-
um tekizt, m.a. í skjóli úreltrar
vinnulöggjafar, sem alls ekki
svarar kröfum og þörfum nútíma
þjóðfélags, að hleypa af stað
kauphækkunaröldu, sem er langt
umfram það, sem atvinnuvegirn-
ir geta þolað.
Við megum ekki láta söguna
frá 1955 endurtaka sig og láta
marga mánuði líða svo, að verð-
bólgan sé látin gagnsýra og sýkja
allt þjóðfélagið. Við verðum að
læra af reynslunni og gera nú
á næstu vikum þær róttæku ráð-
stafanir, sem nauðsynlegar eru
til að forða þjóðinni frá voða
nýrrar verðbólgu.“
Menn sjá, að það er ekki að ó-
fyrirsynju, að Framsóknarflokkur-
inn hefur varað við þessum mönn-
um. Þeim er trúandi til alls. Krafa
Framsóknarflokksins um þingrof
og nýjar kosningar er því raun-
hæf. — Nánar er lætt um það í
ritstjórnargrein blaðsins.
Póstverzlun
- nýr verzl-
unarháttur
Póstverzlun má heita alger
nýjung hérlendis, en erlendis
er mikið um slíkar verzlanir
og sumar risastórar. Þær gefa
út hina alþekktu vörulista,
sem hægt er að panta eftir.
Frakkar fækka her-
liði sínu í Alsír
Haft eftir de Gaulle, að hann muni kalla heim
hluta herliðsins innan tíðar
v i twmiai iMtt
NTB—París, 28. júní. —
Haft var eftir de Gaulle, Frakk
landsforseta í gærkveldi, að
Frakkar hyggðust fækka her-
liði sínu í Alsír. Þegar hefði
verið gefin út skipun um að
kalla heim eitt herfylki, en
síðan myndu fleiri koma. í
ræðu, sem Debré, forsætisráð-
herra Frakklands hélt í dag,
er því hins vegar haldið fram,
að franskar herdeildir haldi
áfram dvöl sinni í Alsír, og
ekki veiti af veru þeirra þar.
Sagði Debre í ræðu sinni, að'
frönsku hersveitirnar ættu að
Jón sigraði Dahl
Á frjálsíþróttamóti ÍR í gær-
kvöldi sigraði Jón Þ. Ólafsson
ýEvrópumeistarann Dahl í há-
stökki. Veður var mjög slæmt
til keppni og árangur þv, slakur.
Jón stökk 1,90, en Dahl 1,85.
tryggja friðinn í Alsír og vaka
yfir öllu því, er Frakklandi við
kæmi.
Þá vék Debre að viðræðum í
Evian, og fletti nokkuð af dular-
hulunni, sem yfir þeirri ráðstefnu
hefur hvílt. Sagði hann, að hug-
myndir og tillögur Frakka uim
lausn Alsírvandamálsins, hefðu
ekki fengið hljómgrunn og tillögu
frönsku sendinefndarinnar um
samvinnu Evrópubúa og Múha-
meðstrúarmanna í Alsír, hefði
verið hafnað, en slika samvinnu
teldi franska stjórnin undirstöðu
fyrir varanlegum frið í Alsír.
Þá vék forsætisráðherrann að
Sahara og sagði, að hvemig, sem
á málin væri litið, þá yrði ekki
komizt hjá því að telja Sahara
hluta af Alsír.
Að lokum er þess getið í frétt-
inni, að De Gaulle forseti hefði
látið svo um tnælt, að hann hefði
ekkert á móti því að eiga viðræð-
ur við Ferhat Abbas, forsætisráð-
jjprra útlagastjórnar Serkja í AI-
sír, en slíkar viðræður gætu ekki
átt sér stað, á meðan hryðjuverk
héldu áfram í Alsír.
Aður fyrr munu margir hérlend
is hafa haft nokkur viðskipti við
erlendar póstverzlanir, en það
lagðist niður með innflutnings-
hömlunum. Nú hefur verið stofn
að slíkt fyrirtæki hér á landi,
póstverzlunin „HAGKAUP“. Fyr-
irtæki þetta hefur sinn eigin vöru
, lager og hyggst hafa flestar al-
I gengustu vörutegundir á boðstól
1 um við lægra verði en almennt
I tíðkast. Fyrirtækið hefur gefið út
1 vörulista, sem fæst í öllum bóka
búðum.
Vörurnar, seim í verðlistanum
eru, sendir fyrirtækið væntanleg-
um viðskiptavinu'm sínum svo
hvert á land sem er burðargjalds
frítt, sé pantað fyrir meira en
þúsund krónur í einu, en aðeins
gega staðgreiðslu.
Með þessu móti losnar fyrir-
tækið við að þurfa að leggja á
vöruverðið fyrir vanskilum og
innheimtukostnaði, en það er
verulegur liður í umsetningar-
kostnaði venjulegra fyrirtækja.
Þar sem fyrirtækið þarf eingöngu
að búa vörumar til sendingar í
geymsluhúsnæði sínu, lostoar það
einnig við að standa straum af
dýru verzlunarhúsnæði og af-
greiðslufólki. Lækkar því milli-
liðakostnaður.
Þessi þjónusta er nýnæmi hér-
lendis, en erlendis eru slíkar póst
verzlanir mjög vinsælar.
Strákar stela
benzíni af bíl
Fjórir strákar í Keflavík á aldr
inum 13 til 19 ára, urðu í fyrri-
nótt benzínlausir á bfl, sem einn
þeirra, 15 ára, átti. Gerðu þeir
sér lítið fyrir og fengu sér benz-
ínábót af þremur nærstöddum
bflum í Iíeflavík. Hjólkoppa
hirtu þeir í leið'inni.
Lögreglan varð vör við strák-
ana og gómaði þá. Tveir þeirra
hafa áður komið við sögu lög-
reglunnar.
Kartöflur seldar frá
Akureyri til Grænlands
Akureyri í gær. — Héðan j
voru nýlega fluttar tvær smá-
lestir af kartöflum til Græn-|
lands, en einnig dálítið af,
nautakjöti. Það var Ludvig |
Storr, sem annaðist kaup á'
þessum vörum hér fyrir,
dönsku Grænlandsverzlunina.
Þetta er í fyrsta skipti, sem
kartöflur eru útflutningsvara
héðan ti! Grænlands, a. m. k.I
beina leið. !
Á Akureyri er nú kartöfluforðabúr Islendinga
Annars eru kartöflur geysimik-
ið á ferðinni um þessar mundir.
Þær hafa verið fluttar héðan í
stórum stíl með vöruflutningabíl
um til Vestfjarða, Snæfellsness,
í Húnavatnssýslur og Stranda-
sýslu, einnig til Austfjarða Stöð
ugt standa yfir flutningar á kart
öflum héðan til Reykjavíkur.
Fara vörubifxeiðir héðan sífellt
hlaðnar þessari nauðsynjavöru.
Mikil uppskera kom sér
óvenju vel
Kartöflubirgðirnar hér fara nú
brátt. að ganga til þurrðar, en von
er á belgískum kartöfíum til
Reykjavíkur í næstu viku, og þang
að til á Kaupfélag Eyfirðinga
nægan forða. Kartöfluuppskeran
hér um slóðir var óvenjumikil í
haust sem leið, og kemur það sér
sérstaklega vel, eins os nú er á-
statt í landinu E.D.