Tíminn - 29.06.1961, Blaðsíða 9

Tíminn - 29.06.1961, Blaðsíða 9
TÍMINN, fimmtudaginn 29. júní 1961. 9 Hér er á ferð Richard H. Pough, forseti amerísku náttúruverndarsamtakanna. Hefur hann dvalið hér nokkrar vikur, ferðazt um landið og kynnt sér náttúruvernd og lands- hiætti. Hann flytur tvo fyrirlestra, í kvöld og annað kvöld í háskólanum. í við- tali við blaðamann Tímans skýrði Richard H. Pough frá náttúruvernd í Bandaríkj- unum og starfi sínu þar. Hann ræddi einnig um nátt- úruvernd á íslandi, lýsti þeirri skoðun sinni, að skóg- rækt á íslandi væri hrapa- legur misskilningur og mundi eyða sérkennum landsins ef hún heppnaðist, án þess þó að efnahags- ávinningur væri nokkur. Richard Pough er verkfræð- ingur að menntun, lauk prófi frá Harvard í *þeim fræðum ár- ið 1926. Hann nam efnaverkfræði og lagði mikla stund á að rannsaka hvei'nig náttúran fór að því að leysa sín efnafræðilegu „vandamál“. Þjóðgarðar og friðuð svæði — Þetta leiddi mig á sporið og ég fór að gefa meiri gaum að náttúrunni, sagði hr Pough, lagði stund á svonefnda eco- logy, en sú fræðigrein fjallar um starfsemi náttúrunnar í heild, hvernig dýr og jurtir hafa áhrif hvort á annað o. þ. h. — Ég gerðist fljótlega áhuga- maður um náttúruvernd en í Bandarikjunum vinna einstakl- ingar og náttúruverndarfélög við hlið hins opinbera. Hlutverk okkar er að varðveita þjóðgarða og friða landsvæði, þar sem er að finna dæmigert landslag, jurtalif og dýralíf eins óg það var, áður en manns- höndin fór að bylta öllu við. Náttúran hafði þróazt í tvær billjónir ára áður en maðurinn kom til sögunnar með tæki sín og innleiddi nýjar tegundir af dýrum og jurtum, en eyddi öðr um. Þessi svæði viljum við fyr- ir alla muni varðveita óbreytt og skila í hendur framtíðinni. Það er mikilsvert fyrir allar rannsóknir eftir okkar dag að hafa lifandi dæmi af náttúr- unni eins og hún var. Tilraun með barrtré — Þetta er síður en svo til fróðleiks og yndisauka ein- göngu, hélt hr. Pough áfram, heldur er vísindamönnum það ómetanlegt gagn að hafa hlið- sjón af náttúrufari á þessum svæðum, þegar ráðizt er í at- hafnir á þeim slóðum, þar sem staðhættir og veðurfar er svip- að. f stað þess að sóa tíma og peningum i umfangsmiklar rannsóknir, geta þeir séð með eigin augum hvernig jurta og dýralíf þrífst. — Hingað kom ég frá Englandi, þar sem ég var í boði brezka náttúruvernd- arráðsins. Þar gafst mér kost- ur að sjá gott dæmi um mikil- vægi þessara þjóðgarða. Á stóru svæði höfðu Bretarnir ræktað barrtré og tilraunin virtist ganga að óskum. Þá gerði frost í maímánuði og að- komnu barrtrén kól svo, að þau drápust öll. Aftur á móti virt- ist frostið engin áhrif hafa á þau tré, sem fyrir voru. Þau höfðu á löngum tíma aðlagazt staðháttum og voru því viðbú- in, og lifðu af. Svona vorhret verða ef til vill ekki nema á 50 ára fresti, en það nægir til að gera mannanna verk að engu. Lifandi rannsóknarstofa í þjóðgörðunum gefst vís- indamönnum kostur á að rann- saka hver áhrif veðurfarið hef- ur haft á jarðveg, gróður og jurtir undanfarna áratugi og jafnvel aldir og því ættu mis- tök sem þessi að fyrirbyggjast. Þjóðgarðarnir eru því nokkurs konar lifandi rannsóknarstofa í þessum efnum. Ýtarlegar skýrslur eru haldnar um það hvernig gróðurinn bregzt við loftslagsbreytingum og með sérstökum rannsóknum á jarð- veginum má fá upplýsingar um veðurfarsbreytingar fyrr á öld- um. i Jafnvægi náttúrunnar Þjóðgarðar og friðlýst svæði, þar sem allt fær að lifa og gróa óáreitt, eru einkum mikilvæg eftir að maðurinn fór að raska öllu jafnvægi náttúrunnar. Það hefur tekið náttúruna margar aldir að ná þessu jafnvægi, en með tilkomu nýrrar jurtar eða dýrategundar fer allt úr skorð- um og enginn getur með vissu sagt um þróunina eftir það. En reynslan sýnir, að allar þær tegundir, sem fyrir eru, verða að lúta tilkomu hinnar nýju jurta- eða dýrategundar. Þær vei'ða háðar þessum aðskotadýr um og breytast eftir því. Oftast dregur úr vexti og viðgangi þeirra lifvera, sem fyrir voru, unz samlögun hefur orðið á ný og jafnvægi náðst eftir þúsund ár eða meira. Strik í reikninginn Við höfum þess mörg dæmi í Ameríku, hvernig dýra- og jurta tegundir hafa hrörnað og dáið út á stórum svæðum með til- komu nýrrar tegundar. Til dæmis fluttu Bandaríkjamenn inn frá Asíu sérstaka tegund af kastaníutrjám og hugðust þar hafa gert góðan leik. Árang urinn varð þó sá, að innbornu kastaníutrén dóu út, eyddust með öllu af völdum sjúkdóms, sem barst með Asíutrjánum. Bakteríurnar, sem ollu þessum sjúkdómi, höfðu ekki skaðleg áhrif á trén í Asíu, en drápu skammri stundu öll amerísku kastaníutrén. Ýmsar dýrateg- undir höfðu lifað á hnetum af kastaníutrjánum og þessum dýrum fækkaði mjög. — Banda ríkjamenn fluttu einnig inn frá Suður-Ameríku dýrategund eina, sem coipu nefnist, þessi dýr höfðu geigvænleg áhrif á jurtagróðurinn og þannig mætti lengi telja. Náttúran er lengi að ná sér, þegar svona strik koma í reikninginn. Nytjaskógur verður aldrei Þá víkur talinu að náttúru- vernd á íslandi, en Robert H. Pough hefur’ ferðazt um landið og kynnt sér þau mál eftir föngum. — Ég er hrifinn af íslenzka birkikjarrinu og tel sjálfsagt að hlú að því á allan hátt, sagði Richard Pough, en ég fæ ekki betur séð en ræktun barrtrjáa muni svipta ýmsa fegurstu staði landsins sérkennum sínum. Ég fæ ekki heldur séð neinn skyn- samlegan tilgang með slíkri skógrækt á íslandi, það verður aldrei hægt að framleiða hér nytjaskóg. Ég kom að Mývatni og hreifst af fegurð staðarins, auð- legð lita og lína. Það hefur að vísu verið atvinna mín að ferð- ast um meðal fagurra og sér- kennilegra staða, en engan stað hef ég séð líkan Mývatni. Nú er viðbúið að náttúrufeg- urðin við Mývatn verði ekki annað en gömul þjóðsaga, þarna í hrauninu (Dimmuborg- um) hefur verið plantað barr- trjám, sem verða til lýta fyrir allt umhverfið, ef þau ná þroska. Sérkenni Mývatns munu hverfa í skuggann fyrir trjánum. Svipaða raunasögu er að segja um aðra sérkennileg- ustu og fegurstu staði á land- inu, Þingvelli, Ásbyrgi og víð- ar. Það er hörmulegt að sjá, hvernig maðurinn gengur í berhögg við náttúruna og svipt- ir hana þeim einkennum, sem hún sjálf hefur kosið sér, raunalegt að sjá hvernig fegurð jarðar er vísvitandi þun’kuð út. Hver er tilgangurinn með þessu? Borgar sig ekki að gróðursetja — Mér er sagt, áð íslending- ætli sér með þessu móti að koma sér upp nytjaskógi, svo að þeir þurfi ekki að flytja inn timbur í framtíðinni, segir hr. Pough. Þetta er hrein rök- leysa, ef það er ástæðan. Reynsl an hefur sýnt, að nytjaskógur vex ekki í löndum, þar sem loftslag og jarðvegur er svipað og á íslandi. Það er barnaleg hégilja að sóa tugmilljónum króna til skógræktar í þeirri von að eftir hálfa eða heila öld verði landið þakið nytjaskógi. — í Bandaríkjunum vex skóg- urinn margfalt hraðar en hér yrði nokkurn tíma, og þó hefur verið reiknað út, að ekki borg- ar sig fjárhagslega að gróður- setja tré. Vinnukostnaðurinn yrði svo gífurlegur. Það borgar sig betur að láta þau sjálf um að festa rætur og það gera þau þar sem skilyrði eru fyrir hendi. Grasið betra en skógur íslendingar geta aldrei gert sér vonir um að hagnast á skóg- rækt, þeir geta í mesta lagi vonazt eftir að fá efni í nokkr'a girðingarstaura eftir hálfa öld. •Hér vex aldrei skógur, sem nægir til stórfelldrar timbur- framleiðslu, í mesta lagi verður hægt að framleiða lítils háttar trjákvoðu úr þeim skógi, sem nú er sáð til. __ — Og hvers vegna þurfa fslendingar ein- mitt að velja fegurstu staði sína til að peðra þar niður hjá- rænulegum barrtrjám? Hér eru þúsundir ferkílómetra eintóm auðn og móar og það væri þó hótinu nær að gróðursetja trén á þeim slóðum. En umfram allt, reynið að bjarga Þingvöll- um, Mývatni og Ásbyrgi áður en það er um seinan. Þetta eru helgireitir, sem ykkur ber skylda til að varðveita og friða. í Bandaríkjunum mundi varða við lög að planta trjám á slík- um stöðum. Skógur hentar ekki íslenzk- um staðháttum, að öðrum kosti væri hann hér sjálfkrafa. Mér finnst liggja fslendingum nær að verja fé sínu til að breyta móum og mýrum í grösu.g tún, það hefur sýnt sig, að hér sprettur gott gras. Afkoma bjóðarinnar byggist að miklu leyti á sauðfénu og íslenzka sauðkindin hefur í þúsund ár samlagazt þessu landi. Ræktið móa og mýrar, þar liggur ör- ugg fjárfesting, en ekki skýja- borgir. Fer8amenn vilja ekki tré Ef til vill halda íslendingar, að þeir laði að sér útlenda ferðamenn með því að bjóða þeim upp á skuggsæla skógar- lunda og ilmandi björk. Það er misskilningur. Útlendingar sækja hingað einmitt vegna víðerna landsins, þar sem ekk- ert byrgir útsýnið og landslag- ið fær að njóta sín. f flestum öðrum löndum heimsins er hægt að skoða ótölulegar trjá- tegundir. Atvinnubótavinna f fyrstu hélt ég í sakleysi mínu, að skógræktarstarfið hér væri atvinnubótavinna. Þess vegna varð ég hissa, þegar ég frétti, að fremur væri skortur á vinnuafli hér á landi. Ég held að þeim fjármunum öllum og vinnu, sem fer í skógrækt hér, sé kastað á glæ. Hér eru engin skilyrði, jafnvel þótt fluttar séu inn plöntur frá svipuðum breiddargráðum og bent á að meðalhiti sé svipaður á báðum slóðum. — Nýjustu rannsóknir hafa leitt í ljós, að það er mjög villandi að reikna með meðal- hita í þessum tilfellum. Þó að meðalhitinn sé sami, getur veð- urfarið verið gerólíkt. Nokkrir ofsaheitir dagar í Alaska hafa úrslitaþýðingu fyrir vöxt trjánna þar. Hér þekkjast ekki slíkar hitabylgjur og er þó meðalhitinn svipaður. Óháð mat og almannafé — Það þarf að fá hæfustu sérfræðinga til að ganga úr skugga um, hvort mögulegt sé að rækta skóg áður en rokið er til og sóað milljónum króna í því skyni, sagði Richard H. Pough. Ég hef sáð þess alltof mörg dæmi í ýmsum löndum að skógræktarfélögin sjálf bjóði til sín skógræktarfólki úr öðrum löndum, haldi þeim dýr legar veizlur og bjóði þeim í fFramhaid á 13 si^u Barrtré eyða sérkennum fslands — rabbað við formann bandarísku náttúru- verndarsamtakanna, hr. Richard Pough

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.