Tíminn - 27.07.1961, Side 16

Tíminn - 27.07.1961, Side 16
Fimmtudaginn 27. júlí 1961. 168. blað. Minni útflutningur og innflutningur Útflutningur fyrri hluta árs var nú 1.152 milljónir króna, en innflutning- ur 1.217 milljónir króiia. Framfærslu- kostnaður upp um stig i juni Hagstofa íslands hefur reiknað' út vísitölu framfærslukostTiaðar í júlímánuði þessa árs. Nemur hún 105 stigum og hefur hún hækkað um eitt stig frá því í júníbyrjun, er hún var 104 stig. Mest eru það matvörur, fatnaður og álnavara, sem hækkað hafa í júnímánuði. Rithöfundar fá styrki Rithöfundasaimbandi íslands hefur úthlutað þremur starfs- styrkjum, er menntamálaráð veit ir sambandinu, að fjárhæð fimm þúsund krónur hver. — Þrettán umsóknir bárust, en styrkina hlutu: Elías Mar, Ingólfur Krist- jánsson og Sigurður Róbertsson. Hagstofa íslands hefur reiknað út bráðabirgðatölur um verðmæti útflutnings og innflutnings í júní þessa árs. í júní - var flutt út fyrir 124.883.000 krónur, en á sama tíma í fyrra fyrir 177.647.000 krónur. Inn var í júní flutt fyrir 181.498.000 krónur en á sama tíma í fyrra fyrir 384.346.000 krónur. Þar af voru í júní í ár flutt inn skip og flugvélar fyrir 80.252.000 krónur, en í fyrra fyrir 175.582.000 krónur. Fyrra helmjng þessa árs nam Útflutningurinn 1.152.602.000 krón- um, en á sama tíma í fyrra 1.210.789.000 krónum. Innflutning- urinn nam 1.217.539.000 krónum, en á sama tíma í fyrra 1.653.538.000 krónum. Þar af voru í ár flutt inn skip og flugvélar fyrir 80.252.000 krónur, en í fyrra fyrir 276.965.000 : krónur. I Vöiuskiptajöfnuðurinn var í júní óhagstæður um 56.615.000 krónur, en á sama tíma í fyrra var hann óhagstæður um 206.699.000 krónur. Fyrra helming þessa árs var vöruskiptajöfnuðurinn óhag- I stæður um 64.937.000 krónur, en á sama tíma í fyrra var hann óhag- stæður um 442.749.000 krónur. Bæði útflutningur og innflutn- ingur hafa þannig dregizt saman á árinu, sérstaklega innflutningur skipa og flugvéla. ■■ ■ - Björgunarbáturinn Gísli Johnsen, sem er eign Slysavarnafélagsins, kom til CseISIB Ja John- Aðalvíkur á Ströndum frá ísafirði síðastliðinn sunnudag. Gísli J. Johnscn fór vestur á firði vegna eftiriits við skipbrotsmannaskýli Slysavarnafélagsins á díi Ó Vestfjörðum, en báturinn varð fyrir smávægilegri vélarbiiun, og hefur legið acia d nudivm . ísaflr8i t|l þessa Nú mun Gísli J. Johnsen halda áfram þessu starfi, og er báturinn væntanlegur suður til Reykjavíkur aft- ur um^næstu mánaðamót. Skipstjóri í þessari ferð er Lárus Þorsteinsson, skipherra hjá landhelgisgæzlunni, og hefur um sig harð- snúið lið frá Slysavarnáfélaginu. Myndirnar eru teknar á Aðalvik. Aðalvík er nú, eins og Hornstrandir allar, í eyði. Eru því skípbrotsmanna skýli Slysavarnafélagsins bráðnauðsynleg á þessum slóðum, því oft er engum nema fuglinum fljúgandi fært til og frá víkum og fjörðum dögum saman. (Ljósmynd: J. G.) Hjartahnoö-aöferð við lífgun úr dauöadái Það er nú orðin all þekkt staðreynd, að mögulegt er að vekja menn til lífsins á ný, þótt hjarta þeirra sé hætt að slá. Skurðlæknar hafa gert þetta með því að opna brjóst- hol sjúklingsins og nudda hjartað. Fyrir tæpu ári sannreyndi bandarískur læknir, dr. Kouwen- , hoven í Baltimore, að einnig er | hægt afs koma hjartanu af stað, eftir að það er hætt að slá. með reglubu'ndnum þrýstingi utan á brjóstholið, þar sem hjartað liggur undir. Beitti hann aðferff þessari með góðum árangri, og hefur hún síðan breiðzt talsvert út. Lífgunaraðferð þessi, sem á ís- lenzku nefnist hjartahnoð, er þannig framkvæmd, að hjartanu er þrýst saman með því að styðja báðum höndum á brjósthol sjúk- Þessl mynd er úr dýragarSinum í Amsterdam. Ljónin fjögur standa vlS ll'ag1fJ,ns’ sem liggur a bakinu. Hef- sfkl og horfa yfir á hinn bakkann. VatniS í síkinu er spegilslétt, og Ijónin Un V,er,1. n° U me aran°rl’ 3 K 3 ^ ' vifs um tuttugu manns, og voru speglast í vatnsfletinum. En þau láta þaS ekki trufla hátingarlega ró sína, a m k 7 þeirra raunverulega úr enda sæmdi þaS konungi dýranna aS hirSa ekki um þvíiikt fyrirbæri. lifenda tölu, hjarta þeirra var hætt að slá' og blóðrásin hafð’i MMHMMBMMMBHHHMMMMWa stöðvast. Þar sém þessi nýja aðferð til þess að núdda hjartað, þarfnast engrar aðgerðar, og er talin auð- lærð, hefur sú spurning vaknað, hvort ekki ætti að kenna hana almenningi, eins og aðrar lífgunar aðferðir. f Baltimore var hún kennd slökkviliðsmönnum og hef- ur þeim síðan tekizt að lífga þó nokkra menn með aðstoð hennar. Norrænt læknatímarit, „Nordisk Medicin", hefur nú hvatt lækna á Norðurlöndum til þess að segja álit sitt á þessu máli. Meðal þeirra, sem orðið hafa við þeim tilmælum, er dr. Henning Ruben, yfirlæknir við Finsensstofnunina. Dr. Ruben telur ekki rétt að kenna öllum almenningi hjarta- hnoð, þar sem margt fólk kunni ekki að finna púls sjúklingsins, og geti því ekki vitað með vissu hvort hjartaslögin séu hætt eða ekki. Ilins vegar geti allir fundið, hvort sjúklingurinn sé hættur að anda, og notað þá blástursaðferð- ina. Hún getur aldrei skaðað neinn, segir hann, en hjartahnoð getur verið skaðlegt, þegar þess gerist ekki þörf. Þó telur dr. Ruben rétt að kenna þeim leikmönnum aðferð- ina, sem oft kunna að þurfa á lifgunaraðferðum að halda, s.s. fólki við rafmagnsstörf. slökkvi- (Framhald á 2. síðu.) Skemmtiferð Fram- sóknarfélaganna Framsóknarfélögin í Reykjavík efna til skemmtiferðar sunnudag- inn 13. ágúst. Verður ekið til Þingvalla og þaðan um Kaldadal í Húsa- fellsskóg og síðan um Borgarfjörð til Reykjavíkur. Tilhögun bessarar ferðar verður auglýst nánar síðar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.