Tíminn - 16.08.1961, Side 2
m
4te'V>V*V^.<Vi‘\.*V*X.>W>W-V-VVVV-X'V>VV%.->.'VVV
Kostar fiskur-
inn ekkert?
Morgunblaðið hefur deilt um það við Eystein Jónsson, hve
mikill prósentuhluti vinnulaunin séu af heildarútgjöldum frysti-
húsanna.
Morgunblaðið sagði orðrétt í leiðara 6. ágúst s.I.:
„Staðreyndirnar eru þær, að vinnuaflskostnaður frystihúsa
er yfirleitt að minnsta kosti 50% heildarútgjalda.“
Eysteinn Jónsson sagði hins vegar, að prósentuhlutinn væri
ekki yfir 20% að meðaltali. Um þetta er dcilt.
Svona reiknar Morgunblaðið dæmið i gær:
Bein vinnulaun .................................. 42,8%
Skrifstofukostnaður, flutningsgjöld, akstur, útskipun
viðhald o. fl................................ 33,0%
Rekstrarvörur, ýmiss konar .................... 14,9%
Afskriftir og vextir ............................. 9,3%
100,0%
Niðurstaða Morgunblaðsins í gær er þvi sú, að vinnulaunin,
bæði bcin og óbein, ncmi 50—52%.
En eru vinnulaunin ekki aðallega vegna vinnu við fisk,
sem húsin kaupa! Fiskkaup frystihúsanna eru hvergi reiknuð
með hjá Morgunblaðinu! Það gleym!ir alveg að frystihúsin
þurfa að kaupa fisk.
Handbærar skýrslur, sem auðvelt er að birta, sýna, að fisk-
urinn kostar um 50% af heildarútgjöldum.
Sé þetta sett inn í hið ófullgerða dæmi Moggans, neyðist
aumingja ritstjórinn til að lækka prósentutölu sfna um mcira
en helming.
Svo gerir Morgunblaðið kröfu til að vera tckið alvarlega,
þegar um atvinnumál er að ræða!!!
Utvarpsstöðin á
Reykjavíkurhátíð
Á afmælishátíð Reykjavíkur
verður starfrækt sérstök iútvarps-
stöð í Melaskólanum. Mun hún út-
varpa á kvöldin ýmsu efni i tilefni
hátíðarinnar, og verður útvarpað
hvert kvöld þá tíu daga, sem há-
tíðin stendur yfir, frá klukkan átta
til klukkan tíu eða ellefu.
Útvarpað verður á örbylgjum, 96
megarið, og einnig á miðbylgjum,
217 metra. Stjórn útvarpsins hafa
þeir Thorolf Smith og Ævar Kvar-
an. í útvarpið verða fluttar kvöld-
vökur, viðtöl, bókmenntakynning-
ar og gamlar Reykjavíkurminning-
ar, svo og dansmúsík.
Föstudagur 18. ágúst.
20.00 Einkennislag afmælis-
útvarpsins.
7 HátíðSn sett — ræður, á-
vörp, tónleikar o. fl. (út-
varpað af sviði).
? Danslög.
Laugardagur 19. ágúst.
20.00 Einkennislag afmælis-
útvarpsins.
Útvarp úr veizlusal að Hótel
Borg (tvær ræður — létt
tónlist).
21.00 Rætt við þrjá bæjarráðs-
menn (Sig. Magnússon).
21.20 Viðtöl: Borgarritari, borgar-
lögmaður, skrifstofustjóri
borgarstjóra (Sigurður
Magnússon).
21.40 Skemmtiþáttur (Svavar
Gests og fleiri — útvarpað
dí sviði).
^22.00 Dagskrárauki (Hljómsveit
Svavars Gests — af sviði).
Danslög.
Sunnudagur 20. ágúst.
20.00 Einkennislag afmælis-
útvarpsins.
Erindi: Bjarni Benediktsson
ráðherra — fyrrverandi
borgarstjóri.
20.20 Reykjavík — ííöfuðstöð at-
vinnulífsins.
Rætt við forystumenn
þriggja aðalatvinnuvega:
Hafstein Bergþórsson,
Sverri Júlíusson,
Guðmund Halldórsson,
Gunnar Guðjónsson og
Sveinu Valfells
(Högni Torfason) — brugð-
ið upp svipmyndum úr þess
um atvinnugreinum í gömlu
Reykjavík.
21.15 Æskulýðskvöldvaka (séra
Bragi Friðriksson o. fleiri
— útvarpað af sviði).
22.00 Dagskrárauki: Lúðrasveit
Reykjavíkur (af sviði).
Danslög.
Mánudagur 21. ágúst.
20.00 Einkennislag afmælis-
útvarpsins.
Lögreglu- og dómsmál (Þór
Vilhjálmsson ræðir við d$m
ara og fleiri — brugðið upp
þáttum frá fyrri tíð um
efnið).
20.30 Heilbrigðis- og félagsmál
(viðtöl í umsjón Magnúsar
Óskarssonar).
21.00 Erindi: R«ykjavík í augum
TcÍMLLNffetpiigvikudfl^Ptw,ieyfeÚ8t 1961.
Stórhóp íslenzks skólafólks er um þessar mundir á ferSalagi I Danmörku í boðí Norrænu félaganna á NorSur.
löndunum. Helmsóknln verSur til 26. ágúst, og eiga íslendlngarnlr a Sheimsækia háskóla og aSra skóla og
hltta fulltrúa fræSslumála I Danmörku. Hér sjást íslendingarnir vera aS skoSa prentsmiSju BerlingatlSinda.
erlendra ferðamanna (Þórð-
ur Björnsson bæjarfulltrúi).
21.20 Svipmyndir frá fyrstu árum
Reykjavíkur (tengdar með
léttri tónlist).
21.40 — Þar fornar súlur — Ljóða
krvöld (kvæði oit til Reykja-
víkur).
22.00 Dagskrárauki: K.K.-sextett
(af sviði).
Þriðjudagur 22. ágúst.
20.00 Einkennislag afmælis-
útvarpsins.
Mannvirki og stofnanir —
rafveitan, höfnin og hita-
veitan, gatna- og holræsa-
gerð, vatnsveitan^ (viðtöl í
umsjón Sveins Ásgeirsson-
ar — milli atriða svipmynd-
ir frá fyrri tíð).
20.45 Kvöldvaka Reykvikingafé-
lagsins — Ævar Kvaran
stjór’nar. Flytjendur: Séra
Bjarni Jónsson, Helgi Hjör-
var rithöfundur., Þórhallur
Vilmundarson prófessor., og
Árni Óla ritstjóri. Auk þess
einsöngur, píanóleikur og
gluntasöngvar — af sviði).
22.00 Dagskrárauki: Karlakórinn
Fóstbræður ( af sviði).
Danslög.
Miðvikudagur 23. ágúst.
20.00 Einkennislag afmælisút-
varpsins.
Bókmenntakvöld.
Erindi: Vilhjálmur Þ. Gísla
son útvarpsstjóri.
20.20 Upplestur: Úr verkum" eldri
Reykjavíkurhöfunda.
20.45 Ung Reykjavlkurskáld.
Erindi: Sigurður A. Magn-
ússon flytur.
21.00 Upplestur úr verkum yngri,
Reykjavíkurhöfunda.
21.15 Erindi: Gunnar Einarsson. j
Prentlist í Reykjavík.
21.30 Reykjavíkurlög (einsöngur: j
Kristinn Hállsson óperu- j
söngvari útv. af sviði).
22.00 Dagskrárauki: Björn R. Ein-
arsson og hljómsveit (af
sviði).
Danslög.
Fimmtudagur 24. ágúst.
20.00 Einkennislag afmælis-
útvarpsins.
Viðtal um skipulagsmál: j
Hörður Bjarnason (Jónas '
Jónasson).
20.15 Viðtal við Lárus Sigurbj,-
son, safnvörð (J.J.).
20.25 Rabbað við ritstjóra Reykja
víkurblaðanna (Thorolf
Smith).
Gluggað I gömul blöð.
21.00 Tónleikar í Neskirkju (útv
frá kirkjunni).
2J.30 Leiklistin í Reykjavfk (Sv
Einarsson ræðir við for
ystumenn leikhúsmála).
21.45 Íþróttalíf höf.uðstaðarins —
22.00 Dagskrárauki: Karlakór
Reykjavíkur (útvarpað af
sviði).
Danslög.
Föstudagur 25. ágúst.
20.00 Einkennislag afmælis-
útvarpsins.
Fræðslumál — Baldur
Pálmason talar við fræðslu
stjóra Reykjavíkur og fl.
skó'lamenn.
20.20 Sjóimannafél. Reykjavíkur,
Dagsbrún, Iðja, Verzlunarm.-
félag Reykjavíkur og Iðn-
sveinaráð (Sigurður Magn-
ússon ræðir við formenn
félaganna — milli atriða
svipmyndir frá liðinni tíð).
20.45 Kirkja og söfnuðir — Bisk
upsstóll í Reykjavík —
(rætt við hr. Sigurbjörn
Einarsson — Margrét Ind-
riðadóttir).
Safnaðarlíf í Reykjavík —
(rætt við dómprófastinn í
Reykjavik, séra Jón Auð-
u.ns — M.I.).
21.00 Kvöldvaka kvenna — Er-
indi, viðtöl og tónlist —
(Blín Pálmadóttir stjórnar
kvöldvökunni).
22.00 Dagskrárauki: Óperusöngv-
ararnir Guðm. Jónsson og
Þorsteinn Hannesson syngja
tvísöngva (af sviði).
Danslög.
Laugardagur 26. ágúst.
20.00 Einkennislag afmælis-
útvarpsins.
Samgöngumál Reykjavikur,
götur — flugmál. (Sveinn
Ásgeirsson). *
20.20 Reykjavíkurkvæði Tómasar
borgarskálds.
20.40 Búðarþátturinn úr Pilti og
stúlku (Leikstjóri Ævar
Kvaran).
21,10 Kvöldvaka unga fólksins í
umsjá Hauks Haukssonar
(Sv. Gests o fl. — útvarp-
að af syjði).
22.00 Dagskrárauki: HLjómsveit
Svavars Gests (af sviði).
Danslög.
Sunnudagur 27. ágúst.
20.00 Einkennislag afmælis-
útvarpsins.
Erindi, Gunnar Thoroddsen
ráðh., fyrrv. borgarstjóri.
20.20 Nokkrir merkisviðburðir í
sögu Reykjavíkur.
20.50 (óráðstafað).
22.00 Hátíðarsýningunni slitið (ó-
ráðstafað).
Dagskrárlok.
Runnur Vestur-
íslendingur látinn
í gær barst blaðinu úrklippa
úr Winnepeg Free Press, þar sem
skýrt er frá því, að Ragnar Egg-
ertsson hafi látizt hinn 28. júlí.
Ragnar heitinn var 55 ára að aldri,
sonur Árna G. Eggertssonar, sem
lengi var í stjórn Eimskip h.f., og
bróðir Árna Eggertssonar, sem nú
er í stjórn Eimskip. Ragnar heit-
inn lét eftir sig ekkju og fimm
börn. Hann var mikill framámað-
ur í ýmsum fyrirtækjum og fé-
lögum.
TILKYNNING
Verðlagsnefnd hefur1 ákveðið eftirfarandi hámarksverð
í benzíni og gasolíu og gildir verðið hvar sem er á
landinu:
L Benzín, hver lítri ........................... Kr. 4,20
l. Gasolía, hver Iítri ......................... — 1,50
Heimilt er að reikna 5 aura á Iítra af gasolíu fyrir út-
keyrslu.
Heimilt er einnig að reikna 16 aura á lítra af gasolíu
í afgreiðslugjald frá smásöludælu á bifreiðar.
Sé gasolía og benzín afhent í tunnum, má verðið vera
'IVi eyri hærra hver olíulítri og 3 aurum hærri hver
bcnzínlítri.
°fangreint hámarksverð gildir frá og með 16. ágúst 1961.
'iHskattur c*■ •,'"ðinu.
i
Verðlagsstjórinn
Viðtöl við íþróttaleiðtoga
(Sigurður Sigurðsson).