Tíminn - 16.08.1961, Blaðsíða 5

Tíminn - 16.08.1961, Blaðsíða 5
^ÍMINN, miðvikudagimx 16. ágúst 1961. 5 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. FramJcvæmdastjóri: Tómas Arnason Rit stjórar: Þórarinn Þórarmsson (áb.), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason Fulltriii rit- stjórnar: Tómas Karlsson Auglýsinga- stjóri: Egili Bjarnason — Skrifstofur i Edduhúsinu — Simar: 18300—18305 Auglýsingasimi: 19523 Afgreiðslusími: 12323. — Prentsmiðjan Edda h.f. Getur Island orðið Kúba Norðurlanda? í blöðum stjórnarflokkanna og Þjóðviljanum hefur nokkuð verið rætt undanfarið um viðtal, sem nýlega birt- ist við séra Jóhann Hannesson í norsku blaði. í viðtali þessu ræðir prófessorinn almennum orðum um stjórnmál og siðferðismál á íslandi og lætur í ljós verulegar áhyggj- ur í sambandi við hvorutveggja. Þetta ber líka fyrirsögn viðtalsins greinilega með sér, en hún er í spurnarformi og hljóðar svo: „Getur ísland orðið Kúba Norðurlanda?“ Séra Jóhanni finnst þó ástandið hér ekki aðeins minna á Kúbu, heldur og á Kína fyrir byltinguna þar. Honum farast m. a. orð á þessa leið: „Eg var í Kína á stríðsárunum og fylgdist með bylt- ingunni sem trúboði. Eg kemst ekki hjá því að sjá hlið- stæðurnar í þróun míns eigin lands, ef til vill ljósast að því er varðar verðbólguna í efnahagslífinu“. Svo virðist sem skoðanir séra Jóhanns falli hvorki vel í geð ritstjórum Þjóðviljans eða Morgunblaðsins. Þjóð- viljinn telur hann óvinsamlegan kommúnistum, en Mbl. telur hann of svartsýnan á ágæti „viðreisnarinnar“! Sannleikurinn um séra Jóhann mun sá, að erfitt mun vera að daga hann í nokkurn ákveðinn pólitískan dilk og vitanlega mun honum geta missýnzt sitthvað, eins og öðr- um mönnum. Hitt hljóta hins vegar allir sanngjarnir og óhlutdrægir menn að viðurkenna, að það er mikill sann- leikur í þeim orðum hans, að ástandið á íslandi minni nú hörmulega mikið á ástandið í Kína og á Kúbu áður en kommúnistar brutuzt þar til valda — eða m. ö. o. sagt, á ástandið, sem ruddi kommúnistum þar braut til valda. Undir handleiðslu þeirra Batista á Kúbu og Chiang Kai Sheks í Kína var markvisst stefnt að því að auðga ör- fáa menn á kostnað fjöldans. Eitt ráðið til þess var að skerða verðgildi gjaldmiðilsins hvað eftir annað. Þing- ræði hélzt ekki nema að nafni til í þessum löndum. Ofríki og valdníðsla fór alltaf vaxandi. Kjöj- almennings síversn- uðu meðan auðjöfrarnir græddu. í kjölfar alls þessa fylgdi margs konar óreiða og upplausn. Þannig var skap- aður jarðvegur, sem reyndist hinn ákjósanlegasti fyrir kommúnismann. Raunar voru það hvorki Mao Tse Tung né Castro, er ruddu kommúnismanum braut á Kúbu og í Kína, heldur þeir Chaing Kai Shek og Batista. Ef þessi öfugþróun á íslandi á ekki að fá eins ömur- leg endalok og á Kúbu og í Kína, þá verður þjóðin að rumska við og hverfa af þeirri braut, sem nú er gengin, jafn stjórnmálalega og siðferðislega. Það verður að hverfa frá afturhaldsstefnunni, sem er fyrst og fremst miðuð við þá fáu ríku — stefnu Chiang Kai Sheks og Batista. ísland má hvorki verða Kúba né Kína. Hér þarf að hefja að nýju merki framsækinnar umbótastefnu, sem stefnir að því að bæta hag alls fjöldans og eyðileggur þannig vaxtarmöguleika kommúnismans. Kommúnisminn hefði aldrei komizt til valda í Kína eða á Kúbu, ef slíkri stefnu hefði verið fylgt þar. Þetta þarf að verða ljóst öllum þeim, sem vilja ekki fremur en séra Jóhann Hannesson, að ís- land verði Kúba norðursins. Fyrirspurn til Mbl. Er það íslenzku þjóðinni til góðs, að fá hingað er- lent einkafjármagn, ef sá böggull á að fylgja skamm- rifi, að skilyrðið sé, að lífskjör fólks séu hér helmingi lakari én í nágrannalöndunum? Meginmunur á afstöðu Banda- ríkjanna nú og sumarið 1939 ,>egar Kennedy forseti flutti útvarpsræðu sína 25. júlí síðastliðinn, minnti ástand alþjóðamála að mörgu leyti á atburðina sumarið 1939, þeg- ar Hitler hótaði öllu illu. Þó er sá reginmunur á þessu, að 1939 vildu Bandaríkin leiða hjá sér deilur Evrópuþjóða. Þau vildu hvorki fórna lífi né fjármunum til að jafna mál og deilur, sem þau töldu sér óviðkomandi. Nú standa Bandaríkin eins og veggur með Vestur-Evrópu og Kenn- edy segir: Við viljum ekki þurfa að berjast, en við höf- um barizt áður," — Þannig fórust Thor Thors, am- bassador íslands í Washington, orð í gær, er ég átti við hann stutt blaðaviðtal um viðhorf Bandaríkja manna til alþjóðamála og um önn- ur alþjóðamál yfirleitt, en Thor Thors fylgist með þeim manna bezt, og hefur haft til þess góða aðstöðu, sem aðalfulltrúi íslands hjá Sameinuðu þjóðunum um 15 ára skeið. Thor hélt áfram: — Ef slík yfirlýsing hefði verið fyrir hendi af hálfu Bandaríkj- anna sumarið 1939 og Kennedy gaf I ræðu sinni, tel ég útilokað, að Hitler hefði þorað að hefja árásarstyrjöld. Ef vitfirringin skyldi samt brjótast út nú, verður því ekki kennt um, að ekki hafi verið skýrt talað og varað við. Misskilningur er því útilokaður að þessu sinni. Allir segjast nú vilja Ieysa Ber- linardeiluna með samningum. Þó hefur hliðum borgarhlutanna i Berlín verið lokað. Hættan er mikil, en öllum er þó ljóst, hversu hryllileg morðtólin eru í vopna- búrum stórþjóðanna og óttinn við gagnkvæmar heimsóknir hindrar sennilega eyðilegginguna. Sambúð austurs oq vesturs Thor vék því næst að sambúð- inni milli austurs og vesturs. Hann sagði: — Tvö hagkerfi berjast nú um völdin í neiminum. Frá fyrri tím- um höfum við sögur af því, hvern- ig trúarbrögðin börðust um yfir- ráðin og völdin í löndunum. Það er enginn vafi á því, að komm- únisminn hefur breiðzt út og get- ur breiðzt út enn. Hann getur hæft sumum þjóðum, en öðrum ekki. Eg hef ekki talið, að hann sé við hæfi íslendinga fremur en hinna Norðurlandaþjóðanna, Breta og Bandaríkjamanna. Eins og við höfum mörg trúarbrögð, eins ætt- um við að geta þolað mismun- andi hagkerfi og unnt hverri þjóð að lifa í friði og una sér við þau kjör og aðstæður, sem henni eru hagstæðust og hugleiknust. Indland og Brasilía Talið barst að þeim löndum, sem standa utan mestu átakanna, eins og Brasilíu, en þar er Thor sendiberra íslands. Thor sagði: — Það mun ráða miklu um ör- lög heimsins, hvernig lönd eins og Indland haga málum sínum í framtíðinni. Einnig mun Brasilía hafa djúptæk áhrif á framvinduna í Suður-Ameríku og Mið-Ameríku. Mér þótti mjög fróðlegt að eiga langt viðtal við forseta Brasilíu, Janios Quadros, er ég fór þangað í maímánuði. Það var auðheyrt á Rætt við Thor Thors, ambassador Islands í Washinttton ÁGÚSTA og THOR THORS Myndina tók Ijósmyndari Tímans á herbergi þeirra hjóna að Hótel Borg í gær. máli hans, að liann vildi miðla málum í átökunum á alþjóðavett- vangi. Glöggt var þó, að honum var mest hugleikið að leiða þjóð sína úr fátækt og menntunarskorti til bjargálna og sæmilegs mann- lífs. Eg undraðist, að hann vissi talsvert um ísland og bað hann mig fyrir kveðjur til íslenzku þjóð- arinnar. Það verður og einnig mjög þýð- ingarmikið, hvernig hið mikla meg inland Afríku og hinar mörgu þjóðir þar reynast í alþjóðamálum, þegar þær nú eru vaknaðar til sjálfstæðis og búast > til fram- sóknar. v Kanadaför forseta íslands Eg spurði Thor nú frétta af er- indum hans hingað , Hann sagði: — Erindi mitt heim var tvíþætt að þessu sinni. í fyrsta lagi kom ég til að ræða við forsfta íslands um væntanlega för hans til Kan- ada, en þar er ég sendiherra ís- lands. í öðru lagi kom ég til þess að ræða við ríkisstjórnina um mál þau, sem verða til meðferðar á næsta allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, er hefst 19. sept. næstk. Forseti íslands mun hefja Kan- adaför sína 11. september og dvelja þar í landi til 30. sept- ember. Ferðalag hans verður þó ekki opinbert, nema fyrstu dagana, er landstjóri Kanada tekur á móti honum í Quebec og forsætis- ráðherra Kanada í Ottawa. Eftir að hinni opinberu heimsókn lýk- ur, mun forsetinn ferðast um ís- lendingabyggðir í Kanada. Eg mun aðeins verða með honum meðan hin opínbera heimsókn stendur yfir og síðan fara með honum til Winnipeg. Eg mun verða kominn aftur til Washington 17. sept., en (Framnaia a 13 siðuj.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.