Tíminn - 16.08.1961, Qupperneq 9

Tíminn - 16.08.1961, Qupperneq 9
9 ^tffllNN, migyikudaginn 16. ágúst 1961. Eysteinn Jónsson Hvers vegna gengislækkun? eyrl, stappaði nærri alls- herjarverkfalli. Undirbún- ingur síldarvertíðar stóð sem hæst og síldarúthaldið allt í hættu. Þegar hér var komið mál um ,náðu Samvinnufélögin samningum við verkalýðsfé lögin um lausn kjaradeil- unnar og var aðalatriði samkomulagsins, að dag- vinnukaupgjald hækkaði um 10% og 1% 'yrð'i lagt í sjúkrasjóði verkalýðsfé- laganna. Enn fremur voru ákvæði um, að samningar giltu til ársins, nema geng islækkun yrði eða fram- færslukostnaður hækkaði um 5 stig; þá væri hægt að segja upp með stuttum fyrirvara. Þessum samningum var almennt fagnað með þjóð- x inni, án tillits til afstöðu manna í stjórnmálum. Var það almannaskoðun, að hér væri fundin hófleg lausn, og bjargað frá gíf- urlegu tjóni. Sérstaka athygli vakti, að Samvinnufélögin lögðu sig fram um að reyna að tryggja vinnufrið, vara'n- lega, með því að koma því ákvæði inn í samningana, að kaupið stæði í gildi ó- breytt samningstímann (1 ár í senn), nema fram- færslukostnaður hækkaði um 5 stig á fyrsta ári og 7 stig á öðru ári samning- anna. Það ber að hafa í huga, að 5 stig í vísitölu nú jafn gilda 10 stigum í þeirri vísi tölu, sem var í gildi 1958, þegar átökin urðu um þessi mál á vegum vinstri stjórn arinnar, og hún fór frá vegna þess, að vísitölu- skrúfan fékkst alls ekki tekin úr sambandi, og alls ekki fékkst frá því fallið, að hækkun vísitölu væri að fullu tekin inn í kaupgjald og verðlag á víxl. Enginn veit fyrir víst hvað rlkisstjórnin ætlaðist fyrir. Hvort hún ætlaðist til, að yrði margra mánaða verkfall og síldar- vertíðinni fórnað, til að reyna að beygja verkalýðs- félögin, eða hvort hún ætl aði að setja bráðabirgðalög um kaupgjaldið, og þar með efna til úrslitaorustu við verkalýðsfélögin á þann hátt, sem sennilega hefð’i ekki kostað þióðina minna en hin aðferðin. Það vita rpenn á hinn bóginn, að ríkisstjórnin gerði ekkert til að leysa vandann og að hún brást við ofsareið, þegar Sam- vinnufélögunum tókst að semja. Enn fremur að ríkis Eysteinn Jónsson stjórnin stóð með atvinnu- rekendafélaginu í því að framlengja verkföllin svo vikum skipti, til að þvæl- ast fyrir því að 1% af kaupi færi í sjúkrasjóði verkalýðsfélaganna. Þá vita menn og að ríkis stjórnin tók í bræði sinni að hóta mönnum mótað- gerðum, vegna þess að kjaradeilan hefði verið leyst öðruvísi en hún vildi og kauphækkun orðið svo mikil að kerfið hlyti að bresta. í þessari afstöðu ríkis- stjórnarinnar hefur aldrei nein heil brú verið eins og nú skal rætt örfáum orð- um. Áður en Samvinnufélög- in gerðu samning sinn höfðu sjómenn á bátaflot anum fengið nýja samn- inga, sem víða gáfu 15— 20% kjarabætur, eftir því sem talsmenn þeirra upp- lýstu. Verkamenn í Vestmanna eyjum höfðu samið um 14,7% hækkun. Ekki veitti af þessu eins og á málum liafði verið hajldið, enda hafði engin athugasemd verið við þessa eða aðra slíka samninga gerð úr stj órnarherbúðunum. Það fær því blátt áfram ekki staðizt að álasa Sam- vinnufélögunum og verka- lýðshreyfingunni fyrir að semja um 11% kauphækk- un til verkamanna. þegar hér var komið málum og til þess að bjarga frá óbæt anlegu tjóni af löngu verk falli. Meðal annars var með þessu bjargað beztu síldarvertíð, sem hér hef- ur komið síðan 1944. — Enda er hreinlega leitun á mönnum utan skrifstofa stjórnarblaðanna, sem taka undir þessar barna- legu ásakanir. Mununnn á þeirri lausn, sem varð í kjaramálunum og þeirri kauphækkun (6%), sem „kerfið" þoldi, að því er stjórnin lét segja, er slíkúr, að enginn maður með fullu viti trúir því, að hans vegna þurfi að hækka verð á öllum erlendum gjaldeyri um 13%. — Næg- ir í því sambandl að benda á þá staðreynd enn einu sinni, að sá munur sam- svarar 1—2% breytingu á útflutningsverði afurða frá meðal frystihúsi. Lengi vel var leitun á manni, sem trúði því, að ríkisstjórnin væri svo ósvif in að lækka nú gengið í annað sinn, og öllum var ljóst, að út af mismunin- um á kjarasamningnum var það ekki, ef hið ótrú- lega kynni að ske. En nú hefur ríkisstjórn- in samt sem áður lagt í þetta og nú er að skýrast af hverju. Hér ber fyrst til, að við- reisnin var strönduð. Sést það m.a. á því, ofan á allt annað, að nú með sjálfri gengislækkuninni er inn- leitt nýtt uppbótarkerfi, þar sem gert er ráð fyrir greiðslu trygingariðgj alda og uppbóta vegna togara- flotans, ásamt fleíru, enda mun ekki af slíku veita, þar sem ætlunin mun að halda okurvöxtum og öðrum bú- sifjum viðreisnarinnar. — Hljóta það að vera þung spor þeim, sem mest hafa fordæmt allar uppbætur, að innleiða nú þessar upp- bætur til viðbótar gengis- lækkun í annað sinn. Þá á að nota gengislækk unina sem hefndarráðstöf- un til að bæla niður al-' mannasamtökin og samtök bændanna, því að hér fara saman mál þessara stétta beggja, svo sem kunnugt er. En illa þekkja þessir menn vlnnandi fólk á ís- 'ÍVambaJd é 13 þaö? Ójú — t.d. heitir Sig- urður „grikkur“ Eyfirðing- ur einn 1 Guðmundar sögu dýra. „Grikkur” er þar sama sem „Grikki“, eftir nútíma beygingu orðsins, þ.e.: Sig- urður sá kom úr grísku mála liði frá Miklagarði um 1190, og því er viðurnefnið Grikki. Sigurður „grikkur“ hafði heim úr Miklagarði sverðið Brynjubít; það sverð hafði Sveinn sveitarbót í Víðines- bardaga „og hjó með stórt“, segir Sturlunga. Hann hjó fyrir málstað Guðmundar góða. Þennan kjörgrip sverða átti Gizur jarl. Þegar brennumenn þustu að bæn- um á Flugumýri í haust- næturmyrkrinu, segir að Gizur komst í brynju yfir línklæðin ein. „Gróa tók sverðið Brynjubít og spretti friðböndum og fékk Gizuri.“ Glímubragðið „grikkur“ er einfaldlega sama sem „gríska bragðið“. En hvers vegna það? — því að mörg grísk brögð voru fyrir æva- löngu orðin íslenzk. Þetta bragð hefur orðið eftirlegu- kind; það hefur komið með nokkrum hætti seinna og eitt í för til íslands, með málaliðsmönnum frá Grikk- landi, Væringjum, ef til vili beint framhjá öðrum Norður löndum. Bragðið hefur alla tíð þótt fruntalegt, þótt hrekkjabragð; þess vegna verður það að orðtaki: að gera einhverjum grikk. — Jakob Benediktsson segir mér að Jón Grunnvíkingur (1706—1779) hafi fyrstur fest orðtakið á blað, en ekki mun það þá hafa verið ný- tilkomið. Varla þarf að efa, að glímubragðið gerði orð- tækið, einmitt af því að það er áflogabragð og hrekkur. Annað orðtæki, náskylt, gæti verið úr glímumáli: að gera einhverjum glennu; það gæti átt við innanfótar- leggjarbragð, sem er og einkum var algengt blekki- bragð, en sumir kunnu að beita því sem ljótu byltu- bragði. Það væri þó að ger- ast um of lærdómsgjarn, ef svo einfalda líkingu hefði þurft að sækja í glímumál- ið. En kjaxni þessa máls eru Borgfirðingarnir tveir, Sig- urður dýraskytta úr Hvítár- síðu og Þorsteinn bóndi á Miðfossum. Þeir glímdu í þjóðhátíðarglimu á Hvítár- bökkum 7. ágúst 1898. Báðir voru vaskir menn og varð glíman harðsótt. Sigurður sleppti tökum, laut snögg- lega niður, eins og Hvítur hér á myndinni, og þó lengra; hann þreif báðum höndum aftur fyrir kálfa eð'a hæla Þorsteini og hljóp á hann fyrir neðan miðju. Þetta var sá rétti „grikkur“ íslendinga; þeir höfðu ekk- ert hálfverk á, — þó að „grikkur“ sé það kallaður í glímuskrifum að grípa „báðum höndum í hnésbót hins“. En nú kemur til kasta Þor steins á Miðfossum; fráleitt hefur hann verið mjög laus á fótum né fisléttur fyrir slíku tilræði. Hann lét ekki „gera sér grikk". Það kom ekkert fát á bóndann; því að hann kunni mætavel þessa 4000 ára gömlu vörn svarta Súdanmannsins. — Hann laut áfram. yfir keppi naut sinn hálfboginn og sagði með hægð: Ónei! Þér heppnast nú ekkl þetta, lagsi! Og Þorsteinn læsti báðum handleggjum undir kvið hinum. Hann náði enn betra taki en Svartur úr Súdan, af því að Sigurður skytta varði sér meir til bragðsins en Hvítur í Egiptó. Það er undursamlegt hvað handtökin lifa lengi með þjóðunum, sínu eigin lífi. Þau lifa áfram, þó að þjóð- irnar deyi frá þeim. Hvaðan hef ég þetta um „grikkinn" á Hvitárbökk- um? Guðmundur Þorbjarn- arson, sauðamaður Þorbjarn ar í Steinum, var í glím- unni, vart tvítugur ungling- ur. Hann horfði á og hiýddi til. En hann sagði mér 10. júlí 1953. G.Þ, var einn gagn vitrasti maður sem mér hef ur auðnazt að fræðast af um glímur. Hann var einn vask asti maður í Ármanni upp úr aldamótum, síðar múrari á Seyðisfirði. G. Þ. kunni ekkert nafn á þessu ferlega bragði; þó hafði hann í æsku séð Norð lendinga beita því á Akra- nesi. Það þóttist G. Þ. viss um, að Þorsteinn á Miðfoss- um hefði verið tallnn rétti- lega fallinn fyrir „grikkn- um“, ef svo hefð'i tekizt til. Og þó var dómnefnd við glímuna. En með áhorfend- um varð kurr og þetta kall að fantabragð. Það hafði hann líka heyrt á Akranesí gegn þessu bragði og svo skessubragði. En hitt þekkt ist ekki, að fallinn maðúr væri ekki fallinn, að byltan sjálf gæti verið marklaus; hún varð ekki aftur tekin.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.