Tíminn - 16.08.1961, Side 16
Vélar í staðinn
fyrir kennara
Vélkennsla! — Finnst þér það
vera hrollvekjanöi framtíðarspá?
En vélkennsla er orðin stað-
reynd á nokkrum stöðum í Banda
ríkjunum og Englandi, og er alls
ekki eins hrollvekjandi, þegar
maður hefur kynnt sér alla mála-
vexti,
Áreiðanlega verður mikil and-
spyrna gegn kennsluvélunum með-
al kennara og foreldra. En vél-
arnar eiga einmitt að létta af kenn
ar'anum, sem losnar við staglið
og getur þess vegna snúið sér að
hinu raunveirulega uppeldi. Og
foreldrarnir ættu líka að fá tæki-
færi til að setjast fyrir framan
vélina til að sjá, hvernig hún
vinnur.
Lærða véiin
Fyrsfa kennsluvélin var fundin
upp 1926 af Bandaríkjamanninum
S. L. Pr'essey, en vakti þá ekki
sérstaka athygli. Síðan var hún
endurbætt og 1954 kom Harvard-
prófessorinn B. F. Skinner henni
í nútímahorf.
Kennsluvél hans er svo fullkom-
in, að hún sér um, að ekki séu
göt í þekkingu nemendanna. Um
leið gefur hún hinum duglegu og
gáfuðu nemendum tækifæri til
þess að læra hraðar en hinir, svo
að þeim leiðist ekki, meðan hinir
tregari eru teymdir með.
Vélin lítur eftir
| Vélin er þannig gerð, að hún
gefur bæði upplýsingar og spyr
til að sjá, hvort nemendurnir
hafa skilið það, sem hún segir
þeim.
Hver nemandi hefur sína eigin
vél, sem kennarinn hefur matað
með vissam þekkingarforða. Þeg
ar vélin spyr, fær nemandinn fjóra
eða fimm möguleika gefna á réttu
svari. Ef hann velur rétt svar, held
ur vélin áfram, en velji hann j
rangt svar, fer vélin til baka að I
þessu þekkingargati nemandans,
en hægt er að finna það alveg,
því vélin greinir á milli ýmissa
rangra svara.
Ekkert stagl
Bekkurinn losnar á þennan hátt
við stglið. Og komið hefur í Ijós,1
að börnin þreytast alls ekki á vél-!
unum, heldur finnst þeim spenn-
andi að eiga við viðfangsefnin.
Þau eru leiðrétt jafnharðan, svo
að kennslan er lík einkatímum.
Með vélunum geta skólabörn
um allan heim haft gagn af be?tu
kennurum, sem tií eru í hverri
grein, því á hverju sviði er hægt1
að láta sérfræð'inga vinna saman
efnið, sem á að mata vélina með.
En vélin kemur ekki í staðinn fyr
ir lifandi kennara. Hann verður
alltaf- nauðsynlegur í kennslustof
unni — þar sem hægt er að ná
til lians.
En það er víða í heiminum ekki
mögulegt, til dæmis í vanþróuðú
rrdmnajo a 10 nðu.
Kvikmyndir þessar voru sýndar í Reykjavík
fyrir nokkrum áram eins og mörgum er minnis-
stætt. Kvikmyndin Gilitrutt er gerð eftir sam-
nefndri þjóðsögu um lötu húsfreyjuna. Ágústa
Guðmundsdóttir, sem varð fegurðardrottning ís-
Iands fyrir nokkrum árum, leikur húsfreyjuna.
Tunglið, tunglið taktu mig segir frá ferð lítils
drengs með eldflaug til tunglsins og ævintýrum
hans þar. Leikur Jón Guðjónsson drenginn. Kvik-
myndin er að mestu tekin við Víti við Kleifar-
vatn, en þar er ákaflega tunglslegt landslag. —
Leikstjórinn að báðum þessum kvikmyndum var
Jónas Jónasson útvarpsþulur. Samanlagt eru þess
ar tvær kvikmyndir full sýningar-
lengd.
Valgarð heldur fyrstu sýming-
una á Akranesi í kvöld, en fer
síðan á Snæfellsnes og þaðan síð-
an norður og ef til vill austur á
land.
Á efri myndinni er Ágústa í hlut
verki húsfreyjunnar í kvikmynd-
inni Gilitrutt. Hin myndin er úr
sömu kvikmynd. Valgarð Runólfs-
son, Ágústa Guðlaugsdóttir og við
hásætið situr ein hirðmeyjanna og
er það Guðlaug Guðmundsdóttir.
Rússneskt tankskip
Siglufirði, 14. ágúst. — Tvívegis
hefur rússneskt tankskip, Groz-
neft, komið hingað til að taka
vatn, og tók í bæði skiptin um
1000 tonn. Vatnið fer það með til
rússneskra síldveiðiskipa, sem eru
út af Kolbeinsey. Þar eru nokkuð
mörg rússnesk skip á reknetum,
en aflinn er rýr.
Gilitrutt í
hringferð
Valgarð Runólfsson hefur í dag ferð um landið
með tvær ævintýrakvikmyndir íslenzkar, sem
hann og Ásgeir Long framleiddu fyrir nokkrum
árum, Gilitrutt og Tunglið, tunglið taktu mig.
Veldur Efnahagsbandalagið
afnámi fiskveiðilögsagna?
l
Dauðasiys í KaupmannahöfEi
Eins og lesendum Tímans er kunnugt af fréttum í gær, vildi
sá sorglegi atburður til í Kaupmannahöfn á sunnudaginn, að
frú Steinunn Sigurðardóttir, ekkja Svcins Sigurðssonar bakara,
til heimilis að Bræðraborgarstíg 2 í Reykjavík, lenti í bílslysi
og beið bana, 74 ára að aldri. Steinunn var í bíl Knúts Björns-
sonar læknis í Svíþjóð. Við áreksturinn valt bíll Knúts og
rann á þakinu langan veg. Var myndin liér að neðan tekin
skömmu eftir slysið. Bíllinn liggur á þakinu illa skemmdur.
Þátttaka Danmerkur í efna-|
hagsbandalagi Evrópu geturi
haft þær afleiðingar, að Dan-
mörk verði að opna landhelgi
sína alveg fiskiskipum hinna
meðlimaríkjanna, segir
danska blaðið Dagens Nyhed-
er. Vandamálin um fiskveiði-
lögsöguna verði þar með að
líta á í allt öðru Ijósi, segir
blaðið.
Greinar 52 til 58 í Rómarsamn-
ingnum, þar sem skráð eru grund
vallaratriði stofnunar þessa efna-
hagsbandalags, fjalla um „réttinn
til frjálsrar atvinnustundunar", og
ákveðið er að leggja niður „þær
hindranir, sem koma í veg fyrir,
að borgari í einu meðlimaríkinu
geti stundað atvinnu innan um-
ráðasvæðis annars ríkis“, og lögð
er áherzla á, að meðlimaríkin
megi ekki koma á fót nýjum tak-
mörkunum á þessu sviði. Ekki er
minnzt sérstaklega á fiskveiðar í
þessum greinum samningsins.
Hingað til hefur ekkert komið
fram um, að þátttökuríkin ætli al-
mennt að leggja niður fiskveiði-
lögsögu. En efnahagsbandalagið er
lika enn á byrjunarstigi. Holland
og Belgía hafa þegar haldið fundi
um gagnkvæmt fiskveiðifrelsi.
Dagens Nyheder segir, að afnám
dönsku fiskveiðilandhelginnar
muni sæta mikilli andspymu Dana.
Ekki sízt verði menn að tryggja
að Færeyjar og Grænland verði
ekki illa úti í samningunum, þar
sem íbúarnir þar byggi afkomu
sína svo mikið á fiskveiðum, segir
\Dagens Nyheder að lokum.
Kaldi
en Veðurstofan lofar úr-
komu litlum degi í dag.
Óörugg vindátt.