Tíminn - 18.08.1961, Síða 4
4
TÍMINN, föstudaginn 18, ágúst 1961.
Sfripulagið
(Framh. aí 16. síðu)
leikfimisal Melaskólans, en þang
að boðaði dómnefndin frétta-
menn blaða og útvarps á sinn
íund.
Lýsti nefndin yfir ánægju sinni
með það, hversu þátttakan í sam
keppninni hefði orðið mikil og
hve mikinn áhuga hún hefði vak
ið meðal arkitekta bæði utan
lands og innan, og hefði allur
þorri þátttakenda sýnt glöggan
skilning á verkefninu. Hefðu
flestir þátttakenda tekið fullt
tillit til bæjareinkenna Reykja-
víkur og landslagsins, eins og það
er nú á samkeppnissvæðinu, að
því er snertir meginskipulag [ úrlausnunum er tekið fullt til-
byggðarinnar. lit til skjóls, sólarljóss og út-
Allflestir þátttakenda ætluðu: sýnis, og í flestum tillögunum
miklum hluta byggðarinnar stað j hefur verið fallizt á, að Kringlu
í norðurhlíð dalsins, sem hallar mýrarbraut verði aðaltengiliður
jafnt mót suðri. Geri þeir ráð, við athafnasvæði og vinnustaði
fyrir aðkomu frá Bústaðavegi norðan megin á nesinu, og Mikla
eða vegi samhliða honum. Gert braut verði aðaltengiliðurinn við
er ráð fyrir, að dalbotninn sé' riúverandi miðbæ. Margir þátt-
óbyggður og eru orsakir til þess j takenda hafa ekki tekið nægi-
tvær, bæði það, að hann er síður, lega tillit til hins sérstæða lands
hæfur til bygginga, hvað snert-1 lags, sem um er að ræða, og eru
ir jarðveg og sólarljós og svo íbúðagötur víða og jafnvel dreifi
hitt, að með því er lögð áherzla götur óþægilega brattar.
á Seltjarnarnesið í heild, því að Ekki kemur til greina, að nota
þá verður opið svæði alla leiðina einhverja úrlausnina sem skipu
milli Fossvogs og Elliðaárvogs. lagsgrundvöll óbreytta, því að
Hefur dómnefndin fallizt á þessi þrátt fyrir að sumar úrlausnirn-
megin sjónarmið. í langflestum ar séu mjög góðar að mörgu
leyti, er enginn þeirra án galla.
En úrlausnirnar sem heild gefa
athyglisvert og alhliða yfirlit
um flest þau atriði, sem skipta
meginmáli. Telur dómnefndin
þó, aö tillaga nr. 63445 beri af
öðrum, bæði að því er snertir
meginkröfur, sem gerðar eru, og
jafnframt sé hún byggð upp
með listrænum og hagkvæmum
hætti. Verða henni því veitt
fyrstu verðlaun, krónur 175.000
íslenzkar. Önnur verðlaun, kr.
65.000 hlaut tillaga nr. 72353, en
að henni standa árkitektarnir
Ib Andersen og Elith Juul Möll-
er frá Danmörku. Önnur verð-
laun hlaut einnig tillaga nr.
23584 og gerðu hana þeir Schern
• f • 1 ■ '
'3\
SBtal
bmtsbh
fSVIkMKTXKB
tifUHD M KM11 0« MflWWn
lt R01 M CWfOTKITT imlK TMl
' ittlllUHT SIWIMSM
CLOZONE er grófkornað þvottaefni
sem náð hefur miklum vinsældum hér
sem erlendis.
CLOZONE hefur hlotið viðurkenningu
sem úrvals framleiðsla.
CLOZONE er drjúgt og kraftmikið —
sléttfull matskeið nægir í 4,5 lí^ra vatns.
CLOZONE er þvottaefnið sem leysir
vandann með ullarföt og viðkvæm efni.
CLOZONE fer vel með hendur yðar.
CLOZONE gerir þvott yðar hvítan sem
mjöll.
CLOZONE ER HVÍTAST
Heiidsöiubírgðir: Eggert Kristjánsson og Co. H.F.
Sími 11400
ing Dubbro og Knud Hasrup,
einnig danskir arkitektar. Þriðju
verðlaun hlaut tillaga nr. 43685,
og stóðu að henni þrír sænskir
arkitektar: Lars Bryde, Arne
Christiansen og Axel Schov. —
Auk þess hafði dómnefndin til
umráða kr. 50.000, sem hún not
aði til þess að kaupa þrjár til-
lögur. Voru tvær þeirra eftir
danska arkitekta, en ein eftir
íslenzka, þá Gunnlaug Halldórs-
son og Manfreð Vilhjálmsson.
Allar tillögurnar munu verða til
sýnis á Reykjavíkursýningunni.
Reykjavíkurhöfn
(Framhald af 1. síðu.)
Axel Oddsson og Karl Guðmunds-
son.
Skýrslan afhjúpar gersamlega
kosningabrellu íhaldsins og gerir
bæjarstjórnarmeirihlutann bein-
línis hlægilegan. — Það var 5. des.
1957, nokkrum vikum fyrir bæjar-
stjórnarkosningar, að fram kemur
hjá bæjarstjórnaríhaldinu svoköll-
uð tillaga um hafnarmál. í tillögu
þessari var kveðið svo á, að bæjar-
stjórn samþykkti, að láta gera
nýja höfn og aðalmannvirkið í sam
bandi við höfnina var bygging
hafnargarðs út í Engey. Þessi til-
laga var keyrð í gegn í mesta
hasti umræðulítið. Síðan var reglu-
strikunni stungið niður og teikn-
aður garður út í Engey af hinu
•mesta handahófi og án þess nokk-
ur rannsókn hefði farið fra'm og
prentun bláu bókarinnar gat haf-
izt. — í skýrslu Almenna bygginga
félagsins kemur fram, að hafnar-
gerð er ódýrari og haganlegri á
annan hátt en bæjarstjórn sam-
þykkti og gerðar ákveðnar tillög-
ur, sem mjög álitlegar munu vera.
f skýrslunni eru margir uppdrætt-
ir af einstökum stöðum og að
sjálfsögðu einnig af höfninni í
heild og er þetta verk mjög vel
og vandvirknislega unnið. — Sam-
kvæmt uppdráttum munu helztu
hafnarmannvirkin verða á svæðinu
frá Olíustöð B.P. í Laugarnesi, í
Vatnagörðum og inn að Klepi. f
Gr'afarvogi verður byggð bátahöfn,
en uppgröftur á vognum mun auð-
unninn. í Elliðaárvognum munu
einnig verða hafnarmannvirki og
vogurinn fylltur upp að einhverju
leyti, en þó ekki svo, að heft gæti
laxagöngur.
íhaldið liggur á skýrslunni eins
og hæna á eggjum og um málið
hefur ekkert heyrzt, þótt rannsókn
sé löngu lokið og tillögurnar liggi
fyrir hjá hafnarstjóra. Tillögurnar
stangast reyndar alveg á við kosn-
ingabrelluna, samþykktina um
Engeyjarhöfnina, sem keyrð var í
gegn til að skreyta bláu bókina.
Ný og stærri höfn í Reykjavík er
brýnt hagsmunamál, sem ekki má
dragast lengur úr hömlu. Þar sem
loks hefur fengizt eitthvert vit í
þetta mál, verður að krefjast þess,
að þessi skýrsla verði gerð opinber
og tekin til umræðu fyrir onpum
tjöldum, bæjarstjórn endurskoði
afstöðu sína og Engeyjarævintýr-
inu í bláu bókinni verði kastað fyr
ir róða. Þessi mál verður að taka
föstum tökum og vonandi verða
hinar nýju tillögur annað og meira
en ný mynd í bláu bókina næstu.
Fómariambið
svipti sig lífi
Tokio, 12. ágúst. — Japani, sem
varð fyrir geislun fyrir 16 árum,
þegar kjarnorkusprengjunni var
varpað á Hiroshima, hefur hengt
sig og arfleitt vísindamennina að
geislavirku líki sínu til frekari
rannsókna.
AugJýsið í Tímanura