Tíminn - 18.08.1961, Page 8

Tíminn - 18.08.1961, Page 8
TÍMINN, föstudaginn 18. ágúst 1961.' 8 IV GREIN FerSin okkar hafði gengið eins og í sögu, og okkur tókst á einhvern hátt að halda á- ætlun, þótt stundum hefði ekki mátt miklu muna. Að vísu var oft ekið hraðar en lög gera ráð fyrir, en við slupp um með það, þar sem lögregl- an lét ekki sjá sig, þar sem við fórum um. Eldheitur þjóð- vegurinn leið fram hjá á ógn- arhraða og stundum lá við, að hann dáleiddi mann, ef maður starði á brautina smá- stund. I Síðustu grein minni lauk, er við kvöddum San Francisco, og þaðan fórum við til höfuðborgar Kaliforníuríkis, Sacramento. Þar tók á móti okkur maður nokkur, sem átti smá tryggingarfyrirtæki og var mormóni. Við hittum hann niðri í bæ, hjá gömlu virki og verzlunarmiðstöð, sem hafði verið endurreist. Fór hann með okkur Kletta-andlit forsetanna fjðgurra. fyrir fslending, eða um 45 stig á Celcíus og jafnóðum og ég drakk eitthvað, kom það jafnskjótt til baka í formi svita, er draup af mér. Um kvöldið fórum við svo með hjónunum og börnum þeirra tveimur í lítið þorp í 40 mílna fjarlægð frá Sacramento, sem má nefna ungmeyjuna fallegu, sem var svo fátæk, síðan hetjuna, sem bjargar henni á síðustu stund undan þorparanum, plús aðrar persónur þorpsins, sem við sögu koma. í gamla daga var ekki hlaupið að að fá góða leikara, svo að vanalega var ekki mikill lista- blær yfir sýningum, enda kærðu ið og lækkaði í bjórkönnunum, urðu hróp áheyrenda hæirri og stemmningin óx. Mér fannst ég vera kominn aftur til 1870, þegar allt var í fullum gangi í Þurra- þorpi, enda held ég, að stemmn- ingin hafi varla verið betri þá. Er við félagarnir gengum út að lokinni sýningu, vorum við veikir í maganum af hlátri og hásir eftir öll hrópin. Á eftir fórum við „á bakvið“ og spjölluðum við fólkið. Sagði það okkur, að það gerði þetta að- eins fyrir ánægjuna, það fengi engin önnur laun. Ágóðinn rann i að endurbæta húsið og byggja smáviðbyggingu fyrir svefnher- bergi og annað slíkt. Flestir koma um 350 mílna vegalengd til að geta gert þetta um hverja helgi og eyða helginni þarna fjóra mán- uði á ári. Leikstjórinn sagði við okkur, þegar við fórum: „Það eina, sem við förum fram á, er að á- horfendur taki virkan þátt í sýn- ingunni og fari ánægðir heim. Það eru okkar iaun, og þið getið verið vissir um, að þau eru þess virði. Enginn okkar hefur lært að leika. Aðeins ein kona hefur lært að syngja. Við höfum allir ólíka at- vinnu, einn er t. d. forstjóri, ann- ar iðnaðarmaður, þriðji rakari o. — Hvað segir frúin? 1 — Ahhaha, hvað, ertu frá ís- landi? Hver er þetta? — Þú mátt geta þrisvar. — Nei, ég sver, að ég get það ekki. f öllum bænum segðu mér, liver þú ert, ég er svo forvitin. — Eg heiti Jón Magnússon. — Ó, guð! JÓN? Hvað ert þú að gera hér? i Konan heitir Berta Eiðsdóttir og er gift Jim Rail, sem er kenn- ari í Sacramento. Berta er systir kollega míns á Alþýðublaðinu, Arnar Eiðssonar, íþróttafréttarit- ara. Þar sem ég átti frí þennan eftirmiðdag, fór ég til þeirra og eyddi deginum. Við sátum og röbb uðum um gamla daga á íslandi og Jim sýndi okkur litmyndir, sem hann hafði tekið þar. Tíminn flaug áfram, og um miðnætti varð ég að kveðja þessa gömlu vini að heiman, eftir skemmtilegan dag, og er ég fór, sagði ég: „Sé ykkur aftur heima á íslandi.“ Berta var eini landinn, sem ég sá allan tím- ann. Ekki kommúnismi, heldur lýðræöi Aftur var haldið út á þjóðbraut- ina, lífæð bandarísku þjóðarinnar, Vináttulör um þver og endilöng Bandaríkin. - Jón H. Magnússon, blatSama'Öur: Góðan daginn, herra Bjössi í gegnum þetta rammgirta vígi, sem einu sinni hafði verið það eina á þessum slóðum. Þarna mátti sjá gamla hestvagna, stað þann, sem gullinu var komið í peninga, herbergi bað, sem fyiirmenn höfðu sofið í og herbergi það, sem kallað er svarthol og var fyrir þá, er brutu þau fáu lög og reglur, sem í þá daga þóttu nauðsynleg. Við sáum líka frumstæð vopn Indíán- anna, gamla framhlaðninga, púð- urhorn, gamlar fallbyssur, er spúðu járnkúlum á óvini. Gamla verzlunin líktist þeim, er Danir ráku á íslandi áður fyrr, með varning jafnt á veggjum og hang- andi í lofti. Þurraþorp og 300 vínbarir Eftir að hafa skoðað vígi þetta, sem eitt sinn var úti í „hurðar- lausu helviti", fórum við heim og komum okkur fyrir hjá þessari mormóna-íjölskyldu, sem hafði opnað heimili sitt fyrir okkur út- lendingana. Hitinn var óskaplegur heitir „Þurraþorp“ (Drytown) og var í gamla daga höfuðstöð gull- grafara, en er í dag hálfgert „draugaþorp". Ekkert um að vera, aðeins ’fáeinar hræður lifa þar. Þarna voru eitt sinn nokkur þús- und gullgrafarar og þrjú hundruð vínbarir, flestum fyrir komið í tjöldum, þar sem hús voru fá og þaðan kemur nafnið „Þurraþorp". í Þurraþorpi var eitt leikhús og stóð það autt frá því á dögum gullæðisins, þar til fyrir fimm ár- um, að nokkur hjón tóku sig sam- an og löguðu það til. Melodramá og allt það Þessi leikflokkur hefur síðan vaxið, fleiri hjón komin í hópinn og þeirra börn, jafnvel tengda- mömmur og pabbar. Sumarmánuð- ina sýna þau svo á hverju föstu- dagskvöldi leikrit, eins og þau tíðkuðust í Þurraþorpi og öðrum slíkum þorpum á dögum gullæð- isins. Eru þessi leikrit kölluð Melo drama og eru flest eins. Fyrst gullgrafararnir sig lítið um það. Leikflokkur sá, er ég hef minnzt á, heldur þessu öllu uppi eins og það var. Leikurinn, sem við sáum, hét „Drusilla frá landi gullsins" og var í nokkrum þáttum. Á milli þátta var svo ýmislegt til skemmt- unar og má þar á meðal nefna dansa, gamla slagara og annað slíkt. Áhorfendur eiga eins mik- inn þátt í leiknum eins og leik- endur sjálfir, þeir hrópa húrra fyrir hetjunni, klappa fyrir yngis- meyjunni, æpa að þorparanum og svo framvegis. Bjór var borinn fram í könnum frá gulltímabilinu og gengu þjónusturnar um í síð- um kjólum og með fjaðraskraut á höfði og geymdu peningana í sokkabandinu eða í brjóstahaldar- anum. Maðurinn, er stóð við bar- inn hafði teygjubönd um handlegg ina, með harðan flibba og brjóst og stóran vindil á milli tannanna eins og maður sá í kúrekamynd- unum. Eftir því, sem leið á kvöld- Hér er höfundur greinanna — hinn fslenzkl ambassador of friendships — að ræða við tvo Indíánahöfðingja. Annar þeirra er að sýna honum háls- festi, sem hann hafði sjálfur búið til. í Yellowstone park. s. frv. Við seldum upp alla miða strax í vor fyrir sumarið. Er við fréttum af ykkur fjórum, datt okk ur í hug, að við gætum holað ykk- ur niður hér til að gefa ykkur kost á að sjá leikritin eins og þau voru hér fyrir hundrað árum og vonum, að þið hafið skemmt ykkur vel.“ Er ég var að fara, kom til mín kona sú, er var sú eina í hópnum, er lært hafði að syngja, og sagði „Þú ert frá íslandi? í stríðinu var ég í skemmtiflokki hersins og kom við á íslandi. Þar söng ég fyrir forsetann. Mig minnir, að hann hafi heitið herra Björnson. Eg man alitaf eftir þessu, því að mér þótti þetta mjög gaman.“ „Ó, ertu frá íslandi" Næsta dag áttum við að kveðja Sacramenío, en þar sem prógramið sagði, að við ættum að tjalda úti þá um nóttina, ákváðum við að dvelja einum degi lengur hjá þess- ari mormóna-fjölskyldu, sem hafði tekið okkur sem gömlum vinum. Þetta var sunnudagurinn 16. júlí og þá um morguninn fórum við í mormónakirkju staðarins og var það mjög gaman, sérlega þar sem enginn okkar hafði áður gert það. Eftir hádegi höfðu þau svo smá- boð inni fyrir okkur og ýmsa bæj- arbúa. Eftir það höfðum við frí. Eg vissi, að þarna í Sacramento var ein kona, sem ég hafði þekkt vel heima og var gift Bandaríkja- manni. Það tók mig nokkra stund að hafa upp á þeim. Síðan tók ég upp símann og hringdi. Konurödd svaraði og ég sagði: og stefnan tekin á nýjan stað til að hitta enn nýtt og óþekkt fólk. Borgin hét Bosie og er í Idaho- ríkinu. Við tjölduðum úti þessa nótt, nálægt stórum ávaxtabúgarði. Þar hittum við bóndann og hann sýndi okkur landið sitt, sem eitt sinn hafði verið fáeinar ekrur, en var nú komið yfir þúsund. Hann sendir nokkur hundruð tonn af ávöxtum á markaðinn á ári og var orðinn vel efnum búinn. Er við , kvöddum hann, sagði hann: |Haldið þið, að þetta væri hægt, ef við hefðum kommúnisma hér í þessu landi? Nei, við höfum lýð- jræði og ég vann mig upp, byrj- aði með tvær hendur tómar fyrir Ifjörutíu árum. Eg vissi ekki einu jsinni, hvernig átti að planta epla- trjám. Nei, ég trúi ekki á komm- únisma.“ Fátækt fólk og konungsfæða Það eina, sem við vissum um fjölskyldu okkar í Bosie, var heim- ilisfangið þeirra. Er þangað kom næsta dag, komumst við að raun um, að fjölskylduna var að finna í fátækrahverfinu. Hjónin voru ung og með fimm börn, hann hafði verið bóndi, en fékk ofnæmi fyrir heyi og eins eitt af börnum hans. Svo þau fluttu til borgar- innar, ha’nn reyndi að opna skó- smíðaverkstæði, en viðskiptin voru of lítil, svo að það fór á hausinn. Nú vann hann á bílaverkstæði, en hún í stærstu verzlun bæjarins við að senda út reikninga til viðskipta manna. Við vissum, að þau hefðu ekv> i

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.