Tíminn - 18.08.1961, Side 12
12
TÍMINN, föstudagiiui 18. ágúst 196L
REYKJAVÍKURKYNNING 1961
haldin 18.—27. ágúst í tilefni
af 175 ára afmæli
Reykjavíkurbæjar.
Kl. 09.00
— 19.30
— 19.40
— 19.55
— 20.00
— 20.20
— 20.30
Dagskrá 18. ágúst
Pósthús Reykjavíkurkynningarinnar opnað fyrir almenn-
ing í kringlu Melaskólans.
Sýningarsvæðið opnað.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur. Stjórn: Paul Pampichler.
Forseti íslands kemur á sýningarsvæðið. —
Gengið í Neskirkju.
Guðsþjónusta í Neskirkju. — Predikun: Séra Bjarni Jóns-
son, vígslubiskup. Fyrir altari: Séra Jón Thorarensen.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur.
Kynningarhátíðin sett (úti við Melaskóla, ef veður leyfir,
annars í sal Hagaskólans).
Ávarp: Formaður framkvæmdanefndar, Björn Ólafsson,
fyrrverandi ráðherra.
Afmæli Reykjavikur minnzt: Vilhjálmur Þ. Gíslason út-
varpsstjóri.
Einsöngur: Guðmundur Jónsson, óperusöngvari.
Setning Reykjavíkurkynningar 1961: Geir Hallgrímsson
borgarstjóri.
Kórsöngur: Karlakórinn Fóstbræður. Stjórnandi: Ragnar
Björnsson.
•— 21.00—23.00 Sýningin skoðuð.
Pósthúsid í Melaskólanum
verður opið frá kl. 9—19 og verða hin nýju Reykjavíkurfrímerki stimpluð með
útgáfustimpli og stimpli Reykjavíkurkynningarinnar. Þar verða og til sölu sér-
stök umslög, sem prentuð hafa verið vegna kynningannnar.
Verð aðgöngumiða:
Fyrir fullorðna kr. 20.00
, Börn 10—14 ára — 10.00
Börn undir 10 ára þurfa ekki að
greiða aðgangseyri.
Framkvæmdanefndin
Umtalið um .
(Framhaid af 11 síðu)
ara Morgunblaðsins grundvalla
menn von sína á þessu almenn-
ingsáliti. Á þessari 70 ára ævi
minni hef ég ekki séð annað, en
að almenningsálitið sé eins og
önnur tízka. Pilsin ef til vill niður
á öklum og víð ag sama skapi
annað árið, en fyrir ofan hné og
vel þröng hitt árið. Almennings-
álitið er eins og þokukúfur, sem
fljótlega eyðist fyrir hverjum and
blæ. Líklega er almenningsálitið
á móti þjófnaði, en þó eru þjóf-
arnir svo margir nú á dögum, að
engar fangabúðir myndu rúma þá,
ef allir væru handsamaðir Sið-
gæði og góð hegðun hefur verið
boðuð um þúsundir ára, en hvar
stundum vi með siðgæði í stjórn-
málum. viðskiptum og einkalffi.
Það er of auðveld lausn á mál-
inu, að standa í skjóli kröfunnar
um almenningsálitið Og hví
skapa ekki þessir trúuðu menn á
almenningsálitið þetta almennings
álit? Þeir hafa í þjónustu sinni
sum víðlesnustu blöð landsins og
jafnvel ríkisútvarpið líka, en þar
er ungmennum tíðum sunginn
þessi boðskapur.
„Mikis lifandis skelfingar ó-
sköp er gaman
að vera svolítið hífaður"
Ungur maður, sem var átalinn
norður á Laugum fyrir að drekka,
svaraði: „Hvers vegna má ég ekki
drekka þetta, fyrst það er selt?“
Ungi maðurinn hitti naglann á
háusinn. Það er salan, áfengissal-
an, en ekki einstaklingurinn, sem
á sökina á öllu áfengisbölinu í
öllum löndum. Jeppi á Fjalli
drakk ekki, vegna þess að kona
hans væri skass, heldur hins, að
Jakob skósmiður varð ailtaf á vegi
hans. og skósmiðurinn seldi á-
fengi. Ágætur maður í einu
stærsta kauptúni landsins, varð
sökum þess, hve ölvaður hann var.
Á þessum árum riðu stundum
merkisbændur um héruð og
sjónarvottur að því, er sex ungir hneykslanlegir atburðir gerðust,
menn komu út úr áfengisverzlun- Þótt ekki verði sagt frá þeim enn
inni með minnst sína áfengisflösk einu sinni. Prestarnir báðir, sem
una hver, og þó á leið til íþrótta ®g vissi mest deili á, á þessum
móts. Til mótsins hefðu þeir ekki unglingsárum mínum, drukku og
farið með þessar áfengisflöskur, Þa® ekki í neinu hófi, læknirinn
ef áfengissalan hefði ekki verið einnig, og þannig gæti ég nú nefnt
á vegi þeirra. j bæði faktor, sem drap sig á of-
! drykkju og aðra, sem supu dug-
SÓTT Á BRENNTVÍNSKÚT ; lega. Einn morgun leiddi ég lækn
Því miður er þessi grein mín heim út úr drukkinn, en hann
að verða of löng, en nú langar gat ekki náð í annan en mig til
mig til að segja í sem fæstum orð að sitja með sér alla nóttina yfir
um sögu, sem ég hef oft sagt áð- koníaksflösku, og honum til þókn
ur. Margsinnis hef ég heyrt talað unar, því að hann var annars
um þetta ágæta almenningsálit, sóma- og gæðamaður, varð ég að
sem á að hafa ríkt í landinu áður kyssa flöskustútinn við og við, en
en áfengisbannið kom til sögunn- innihaldsins naut hann fyllilega
ar. Hér er þá saga mín, og skal og kom það sér vel um morgun-
þar er^» logið og ekkert ýkt: inn að ég gat staðið á styrkum fót
Laust eftir fermingu var ég beð um. Kornung stúlka á læknis-
inn að fara tvær dagleiðir upp á heimilinu gaf okkur, tveimur ung
Sauðárkrók til þess að sækja um mönnum eitt sinn 7 eða 8
brennivín á kút. Það átti að jarða staup af brennivíni og þótti okkur
heiðvirðan bónda, og hvernig Það ekki stór skammtur.
mátti það verða áfengislaust Þeg / Þannig var ástandið þar sem j
ar ég kom vestur í Hegranesið, ég þekkti bezt til á fyrsta tug ald-
kom drukkinn maður í loftköstum arinnar, og hér er þó sannarlega
á eftir mér og steyptist annað minnst talið af drykkjuslarki til
slagið á hausinn í leirbleytuna. lands og sjós og skemmdarverk-
Þegar á ferjustaðinn kom, var um í sambandi við það. Svo fór
flaskan á lofti og áfengi á boð- ég til útlanda og kom heim aftur
stólum. Á Króknum flaut áfengi 1914 og ferðaðist þá mikið um
engu síður en mjólk og ekki var landið, og þá var orðin á glæsi-
fyrirstaða að fá á kútinn. Báts- leg breyting, en það er of löng
ferð fékk ég um nóttina norður saga hér. Sú breyting var ekki
á Hofsós, bátverjar voru ölvaðir almenningsáliti að þakka, heldur
og sá sem sat við stýrið, söng há- hömlum. sterkum hömlum.
róma: „Ands'kotinn stýrir illsku- En hvað sem almenningsáliti
gnoð, útþaninn eins og sköturoð. líður, gagnsemi þess eða mátt-
Heilaga Patrekskeita". o.s.frv. i leysi, þá er eitt víst, að það verð-
Nokkru síðar var ég sendur ur ekki skapað, ef halda skal á-
norður í Siglufjörð. Þegar kom fram áróðri gegn okkur bindindis
niður að Könnusteini, sátu menn mönnum, eins og gert hefur ver
þar og drtikku, og vildu fá mig ið undanfarið hvað eftir annað
til að drekka með sér. Gistingu í dálkum Velvakanda. Vandalaust
fékk ég í Firðinum um nóttina, væri að hrekja þær firrur lið fyr-
en maður, sem svaf þar einnig, ir lið og heíur það reyndar verið
kom seint í bólið, og var að gubbagert oft áður, en ótrúlegt er, að i
Velvakandi vinni Morgunblaðinu
mikið gagn með slíkum málflutn-
ingi, þótt ýmsum sé rógburðurinn
jafnan gómsætur. — Hér ætti við
forna heilræðið: „Skjóttu geiri
þínum þangað sem þörfin meiri
fyrir er“.
Þjóðin sigrar seint í baráttu
sinni gegn áfengisbölinu, ef allt-
af er verið að vega að þeim, sem
eitthvað reyna þó að aðhafast,
því að hinir, sem deila á okkur
aðhafast reyndar aldrei neitt til
úrbóta. Þar er áfengisáróður og
ónot til bindindismanna.
Pétur Sigurðsson.
íslandsvinur
(Framhald af 7. síðu).
unnar og heiðursskjali frá Slysa-
varnafélagi íslands.
Á þessum merku tímamótum í
ævi Einars Johanson sendir fjöl-
mennur hópur íslenzkra vina Ein-
ars honum og fjölskyldu hans þakk
ir og árnaðaróskir um áframhald-
andi farsæld og gengi og áreiðan-
lega verður það fjölmennur vina-
hópur, sem heimsækir hið vistlega
og stílhreina heimili á hæðinni,
sem rís yfir Djupvik í dag. — H.B.
Yfirhjúkrunarkonustaða
Sjúkrahúsið á Selfossi vantar yfirhjúkrunarkonu
nú þegar. Umsóknir sendist sjúkrahússlækni.
Sjúkrahúsið á Selfossi
M,s.„Gullfoss“
M.s. Gullfoss fer frá Reykjavík á morgun
19. ágúst kl. 15,00 til Leith og Kaup-
mannahafnar. Farþegar eru beðnir að
koma til skips kl. 13,30.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS