Tíminn - 18.08.1961, Blaðsíða 16
Föstudaginn 18. ágúst 1961.
186. blaS.
Skipulagið í Fossvogi!
Norömaður og Finn-
ar hlutu 1. verðlaun
Enginn íslenzku arkitekt-j
anna hlaut verðlaun |
Úrsjiurður dómnefndar í hinni
norrœnu samkeppni í skipulagi i
Fossvogsdals er nú fram kominn.
Fyrstu verðlaun, 175.000 íslenzk-1
ar krónur, hlutu'þrír arkitektar,
sem stóðu sameiginlega að úr-i
lausn, sem merkt var nr. 63445.!
Voru það Norðmaðurinn Lyder
Braathen og tveir Finnar, Marita
Hagner og Olli Paviainen. Tvenn
önnur verðlaun voru veitt, og
hrepptu danskir arkitektar þau.
Þriðju verðlaun hlutu sænskir
arkitektar. Auk þess voru keypt
ar þrjár skipulagstillögur. AllS|
barst þrjátíu og ein skipulagstil-
laga, og stóðu að þeim arkitekt-'
ar frá öllum Norðurlöndunum. j
Það var í febrúar 1960, sem
ákveðið var að efna til sam- i
keppni um skipulag í Fossvogs-,
dal, og var síðan unnið að því,
að útbúa nauðsynleg gögn til
keppninnar, þar til um mánaðar-
mótin janúar-febrúar þessa árs,
að samkeppnin var boðin út.
Áttu þátttakendur að skila úr-
lausnum i síðasta lagi 24. júlí.
Var arkitektum frá öllum Norð
urlöndunum boðin þátttaka í
samkeppninni, og er það í fyrsta
skipti, sem slíkt er gert hér á
landi. Frá þessu skýrði Geir Hall
grímsson borgarstjóri í gær
fyrir hönd dómnefndar, en hana
skipa auk hans þeir Ágúst Páls-
son arkitekt, Sigurður Jóhanns-
son, vegamálastjóri, Karl Fred-
rik Ahlberg og Peter Bredsdorff.
Höfðu allir uppdrættirnir og
skipulaginu verið hengdir upp í
(Framhald á 4. síðu).
Efst á síðunni er rissmynd, sem fylgdi verðlaunateikningunni að skipu-
laginu í Fossvogl. Þar sér inn Fossvoginn utan af Kársnesi, sem Kópa-
vogskaupstaður er. Efst til vinstri sjást hitaveltugeymarnlr á Öskju-
hlíð og siðan Bústaðahálsinn. Við Fossvoginn er bátahöfn. — Á neðri
myndinni sést skipulagsuppdrátturlnn sjálfur. Miklubrautin sést efst
og mót hennar við Kringlumýrarbraut eru efst á miðrl myndinnt. Að-
eins nýja skipulagið er teiknað inn, en ekki þegar byggðu hverfin.
Fossvogurinn sést neðst tll vlnstri og fyrir ofan hann hitaveitugeym-
arnir á Öskjuhlíðinni.
Flotadeildin í
Reykjavíkurhöfn
Liðlega hálft sjöunda hundraÖ manns.
Kanadíska flotadeildin kom
Ihingað til Reykjavíkur í gær-
morgun og lögðust herskipin
fjögur við Ingólfsgarð.
Gagnkvæmar kurteisisheimsókn-
ir fóra fram fyrir og eftir hádegi,
en síðdegis var fjölda manns boðið
í hanastélssamkvæmi um borð. f
dag fara margir skipverjar til
Keflavíkurflugvallar og 175 þeirra
fara í boði ríkisstjórnaricinar til
Þingvalla. Annar eins hópur fer
svo til Þingvalla á morgun í boði
Reykjavíkurbæjar.
Fréttamenn gengu um borð
eftir hádegi í gær og ræddu stutt-
lega við flotaforingjann,' Latham
B. Jensson, og aðra yfirmenn skip-
anna. Flotaforinginn kvað sér og
mönnum sínum ánægjuefni að
koma til fslands. Gat þess meðal
annars, að hann hefði áður haft
nokkur kynni af íslendingum, en'
tveir kennara hans í gagnfræða-
skóla hefðu verið íslendingar. Þá
sagði hann, að einn skipverja í
flotadeildinni væri af íslenzkum
uppruna. Flotadeildin fer héðan
22. þ. m. norður með landinu
yfir heimsskautsbaug, suður með
austurströnd Grænlands, framhjá
Nýfundnalandi til Halifax. Um
borð í skipunum fjórum er liðlega
hálft sjöunda hundrað manns.
Kanadisku freigáturnar hlið vlð
hlið í Reykjavíkurhöfn.