Tíminn - 18.08.1961, Side 4

Tíminn - 18.08.1961, Side 4
4 T í MIN N, fimmtudaginn 17. ágúst 1961. Jón Helgason, ritstjóri, ritar um t Við erum stödd í Vík á Seltjarn-| arnesi sumarið 1786. Hinir björtu jBÚmarmánuðir eru að kveðja, og Jlþað hallar að hausti — senn kom-j íinn tvímánuður. Ágústnóttin dreg- húmtjöld sín á Akr'afjall og sju, þegar sólin er hnigin að beði isínum vestur í flóanum, og grös I jarðar munu senn glata skarti sínu ■til fullnægingar því boðorði, sem felzt er og æðst allra lífslögmála. Grásleppan er horfin úr þaranum úti við skerin. Krían, sem verpir á Skildinganesmelum, hefur kom- ið upp ungum sínum, ef egg henn- ar hafa jþá ekki öll lent í soðpott- inum. A sunnudaginn var lagði presturinn á Lambastöðum út af þvi, þegar Jesús grét yfir Jerúsal- em: „Og er hann kom nær og sá borgina, grét hann yfir henni“. Við, sem tökum stökk úr nútíð- inni, 175 ár aftur í tímann, áttum oklkur' ekki kannske undir eins á þessum stað og því fólki, sem hann byggir. Híbýlakosturinn, klæðaburðurinn, hættir fólksins — allt kemur þetta okkur framand- lega fyrir sjónir — jafnvel málfar þess einnig. Og þessi holt og brekk ur, móar og grundir — við þekkj- um þetta ekki. Með undrun og for- vitni vir'ðum við fyrir okkur dá- litla lækjarsytru, sem liðast milli lágra bakka undir eystri brekk- unni og seytlar niður fjöruna neð- an við Arnarhól. Farvegur þessa skrítna lækjar er leirborinn, og| sums staðar er'u dálitlir pollar, þar sem hornsíli skjótast milli steina, er tekið hafa á sig lit af mýrar- rauða. „íslands lítill ábati“ Samt er þetta hún Reykjavík. Þetta er sem sagt staðurinn, sem landsmenn hafa nú í mqira.en þrjá tugi ára spjallað mest um með samþlanþi af óvild og háði og kvcðið utn rammast níð —.höfuð- setur innréttinganna og alls hins nýja brambolts, sem fólki stendur stuggur af — Sódóma og Gómorra, þar sem stórhýsi hefur verið byggt handa þjófum og hórkonum og lagður til þess tollur af öllu land- inu, goldinn af sístritandi bænd- um. Margur hærukollur hefur ver- ið hristur yfir þessum stað og str'angir sýslumenn hafa jafnvel kveinkað sér við að dæma saka- menn í hið mikla typtunarhús, þar sem glæpafólkið hefur lifað því býlífi, er mátti upptendra reiði guðs og láta hönd hans ljósta land- ið allt í bræði sinni. Ja, var furða, þótt ort væri: Reykjavítaur vesenið ,háa virða undrar, stóra og smáa, áttunda er heimsfurða haldin, hætt er við, hún setji ofan faldinn. Með fylgdi meistarinn danske, menntirnir kunni sá ganske, passlega sæðinu að sóa, segja mátti af því hún Gróa. Eitt er, sem yfir má klaga og ekki kann landinu haga: Fólkið í fransósnum pínist, fárlegur skaði það sýnist. ísland í ánauðum þreyir, ekkert mót nýjungum segir. Varnarlaus almúginn aumi eins hrekst og tré fyrir straumi. Og hefur það ekki líka sannazt, að þeir spáðy rétt, er sögðu, að „íslands lítill ábati“ yrði af inn- réttingunum? Fransósinn er að vísu hjaðnaður. En hvar eru sauð- fjárkynbæturnar og hvað varð um sáðvei'kið? Innréttingarnar hjara að vísu enn á heljarþröm, en hvar' er ábatinn af þeim? Og var það eklki hönd guðs, sem laust Reykja- vík, þegar mörg hús innrétting- anna brunnu eina vetrarnótt, og hvers vegna lét himnasmiðurinn fjárkláða og Móðuharðindi ganga yfir þetta land? Sumir þóttust að REYKJAVf K -1786 Reykjavík litlu áður en hún fékk kaúpstaðarréttindi, — hús innréttinganna, kirkjan og tukthúsið. Konungs- verzlunin hefur eicki enn verið flutt úr Örfirisey. Teikning Jóns biskups Helgasonar). Reykjavík örfáum árum eftir að hún fékk kaupstaðarréttindi. Mörg verzlunarhús hafa þegar verið relst frammi við malarkambinn. (Teikning Jóns biskups Helgasonar). minnsta kosti vita, að prjálið ogj nýjungarnar í Reykjavík og synd-J samlegur lifnaður tukthúsfanganna ■ í skjóli sjálfra höfðingjanna hefði' vakið reiði máttarvaldanna. I Eigi að síður liefur Reykjavíki nú verið kjörin til þess að verða höfuðstaður fslands. Höfðingjarj hafa setið á rökstólum úti í Kaup-j mannahöfn, og ráðgjafar konungs-l ins hafa orðið ásáttir um að af-l nema konungsverzlunina á íslandi,! veita öllum þegnum Danakonungs verzlunarfrelsi og stofna kaup- staði með ýmsum fríðindum. Og þarna bíður hún hins nýja hlut- verks, Vík á Seltjarnarnesi. ★ Við kiomum siglandi af hafi, og skipstjórinn danski lætur varpa akkerum frammi á víkinni. Örfiris- ey er á hægri hönd, og þar sjást enn leifar gamla verzlunarstaðar- ins, ásamt mörgum torfkofum þurrabúðarmanna. Bak við malar- kambinn fyrir botni víkurinnar eru allstór, bikuð hús með bröttu, spón lögðu þaki. Þetta eru hús konungs verzlunarinnar, sem flutt hefur verið úr Örfirisey fyrir fáum ár- um. Þar er einnig fálkahús kon-( ungs, lítið timburhús, og skammt þaðan klúkir kaðlarahúz innrétt-l 1786 1961 inganna, harla hrörlegt og kumb- aldalegt torfhús, og við það grind- ur miklar, sem ætlaðar eru til þess að breiða á þær dúka til þerris. í fjörunni liggja fáeinir bátar, sem dregnir hafa verið undan sjó, og uppi í einu vikinu er bryggjugarm- ur. Grjótgaríar setja svip á staftinn Hægra megin við víkina eru þrír torfbæir, ærið lágreistir. Það er Arnarhóll, Arnarhólskot og Sölv- hóll. Hjá Arnarhóli eru traðir ská- hallt niður að lækjarósnum og Innréttingarnar Hús innréttinganna eru í tveim- ur hvirfingum. Önnur hvirfingin er spölkorn sunnan kirkjunnar — hin norðan og vestan við hana. Þar eru fimm timburhús, og er hús forstöðumanns innréttinganna þeirra mest. Annað timburhús er ætlað aðstoðarmanni hans, en hin eiu spunastofan, vefstofan og ló- skurðarstofan. Við þessi hús eru nokkrir torfkofar, og er eitt þeirra nefnt Skálinn. Því húsi fylgir sú sögn, að það hafi verið skáli hins gamla bæjar í Vík. Þar búa spuna- konur innréttinganna. í syðri hvirfingunni eru nokkiir torfkofar. Þar er litunarhús, smiðja og hús beykis og fleiri starfsmanna innréttinganna. I Hér og þar á milli þessara bygg- ■inga eru svo aðrir kofar minni, ýmist ætlaðir til geymslu eða handa gripum. Sums staðar hefur líkia hey verið borið upp, og víða getur að líta móhlaða. Með jafn- i framt troðnum gangstígum snöltra ! hestar með reiðingsfar á bakinu, því að síðsumars eru miklar ann- ir á þessum stað við að reiða heim mó til vetrarins. Siginn fiskur og grásleppa hangir á stöfnum og giindum. GengitS um gartia í eystri brekkunni eru þrír torf- bæir sunnan hins mikla typtunar- húss. Þar heitir Þingholt, Stöðlakot og Skálholtskot. Uppi á brekkunni vestan tjarnarinnar ber mikla bygg ingu við loft. Það er hinn nýi skóli, sem nú er verið að leggja á síðustu hönd, því að sjálf menntagyðjan er að halda inni’eið sína í Reýkjavík, og það jafnvel um það rætt, að Hannes biskup í Skálholti fylgi skólanum eftir vestur yfir heið- arnar. Tveir torfbæir eru á brekiku brúninni sunnan við nýja skólann, Melshús og Melkot, en Hólakot skammt norðan við hann. Uppi á bungunni, miklu vestar, er Landa- kot og Götuhús, mikið húsaþorp, nálega miðja vega milli Landakots og víkurinnar. í brekkunni vestan við hús inn- J réttinganna er mikil hvirfing torf- | bæja. Þar heitir Grjóti, og þar búa j sjö fjölskyldur. Önnur torfbæja- ; hvirfing, Hlíðarhús, er upp frá ströndinni vestan við víkina. All- reiðgötur vestur sjávarmalirnar að kaupmannshúsunum. Nokkru sunn an við Arnarhólsbæinn gnæfir^ mesta hús staðarins, typtunarhús- ( miklu vestar er Ánanaust, og enn ið. Við það eru langir grjótgarðar, miklu vestar Sel og Bráðræði. sem fangarnir hafa hlaðið á liðn-1 Við leiðum þetta allt forvitnum um árum, þegar þeim var ekki! augum aðkomumannsins og hnuss- komið í vinnu hjá verzluninni eða embættismönnunum í nágrenninu. Annars eru grjótgarðar eitt af því um dálítið, þegar við göngum fram hjá mykjuhaugum, sem sums stað ar eru milli torfkofanna eða jafn- sem einkennir þennan stað, því að vel á bæjarhlaðinu, og krækjum hér hafa þeir, sem dugur er í, keppzt við að hlaða grjótgarða. Nokkuð sunnan við typtunarhúsið er trébrú yfir lækinn. Því að þetta er fínn staður, þar sem menn láta sig ekki muna um að brúa smá- læk. Þegar á land kemur, sjáum við, að flest eru þó húsin undir vestri brekkunni, norðan við tjörnina. Þarna getur nefnilega að líta hin- ar frægu innréttingar. Þarna er líka kirkjan og kirkjugarðurinn. Kirkjan er úr timbri, ellefu staf- gólf, og snýr austur og vestur, því að annað þætti guðlast á þessu landi. Á henni er lágur turn með krossi. Hún stendur vestast í kirkjugarðinum, sem er afmarkað- ur með grjótgarði að norðan og austan, en grindum úr timbri að sunnan og vestan heldur, þegar á vegi okkar verða forarvilpur, .sem fleygt hefur verið í slógi og grásleppuhausum. Eitt af því, sem okkur verður star’sýnt á, er eins konar gaffall, sem stendur upp í loft við hvert kot. Á þessu verkfæri þurrka fiskimennirnir sjóbrókina sína, þegar þeir koma heim úr róðri eftir barning og ágjöf. ★ ,Það er sundurleitur söfnuður, sem býr á þessum stað, sem við erum nú komin á, svo að hvergi er sundurleitari á öllu landinu. Hér er danskt fólk og^ þýzkt, og hér eru samankomnir fslendingar úr fleiri byggðarlögum en annars staðar, því að hingað hefur komið fólk úr fjarlægum héruðum til starfa við innréttingarnar, hér hafa staðnæmzt fangar, sem látn- /

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.