Tíminn - 18.08.1961, Page 16
Þórður Björnsson, bæjarfulltrui, ritar
Þróun og vöxtur
REYKJAVlKUR
Þórður Björnsson, bæjarfulltrúi
I Landnámu segir frá
upphafi byggðar í Reykjavík
og með'al annars svo:
„Þá er Ingólfr (Arnarson)
sá fsland, skaut hann fyrir
borð öndvegissúlum sínum til
heilla; hann mælti svá fyrir,
at hann skyldi þar byggja,
er súlurnar kæmi á land.“
„Þau missari fundu þeir Vífill
og Karli öndvegissúlur hans
við Arnarhvál fyrir neðan
heiði.“ „Ingólfr fór um várit
ofan um heiði. Hann tók sér
bústað þar sem öndvegissúl-
ur hans höfðu á land komit;
hann bjó i Reykjavík."
„Ingólfr var frægastur allra
landnámsmanna, þvíat hann
kom hér að óbyggðu landi, og
byggði fyrstur landit.“
Þannig hófst saga íslands
með sögu Reykjavíkur.
Jörðin Reykjavík varð síð-
an óðal ættar hins fyrsta land
námsmanns. Jarðarinnar er
síðan getið nokkrum sinnum
í fomum heimildúm en á mið
öldum var hún jafnan nefnd
Vík á Seltj amarnesi, og þykir
margt benda til þess, að hún
hafi á þeim tímum ekki verið
neitt höfuðból.
Eftir siðaskiptin voru orðn-
ar margar sjálfstæðar jarðir
í grennd viö bæinn Reykja-
vík, svo sem Hlíðarhús, Arn-
arhóií, Sel, Rauðará og Skild-
inganes.
Samkvæmt jarðabók þeirra
Páls Vídalíns og Árna Magn-
ússonar frá árinu 1703 fylgdi
Efri myndin sýnir höfnina í
Reykjavik 1836, sú neðri höfnina í
Reykjavík 1961. Ný höfn og stærri
er orðin aðkallandi og nú er lokið
við nýja uppdrætti af hafnargerð
og er vikið að því máli á öðrum
stað í blaðinu. Efsta og neðsta
myndin sýna Reykjavík 1786 og
og dregið mjög kjark úr lands
mönnum. Árferði var illt bæði
til lands og sjávar. Fiskibáta
eign landsmanna hrakaði með
ári hverju. Menn flosnuðu af
jörðum og hungursneyð geis
aði víða um héruö.
1961.
þá jörðinni Reykjavík 7 hjá-
leigur og samkvæmt manntal
inu frá sama ári voru íbúar
á jörðum innan núverandi
umdæmis Reykjavíkur alls
150 manns.
Verzlunarstaður þessa byggð
arlags var fyrir vestan Örfir-
iseyjagranda í „Hólminum“,
sem hinir dönsku kaupmenn
kölluðu „Holmens Havn“.
II.
Um miðja 18. öld var hagur
landsmanna mjög bágur. Ein
okunarverzlunin hafði leitt
hörmungar yfir land og lýð
Þegar eftir að Skúli Magn-
ússon varð landfógeti fyrstur
íslendinga árið 1749 hóf hann
baráttu fyrir því að efla hag
(Framhald á 14. síðu).