Tíminn - 23.08.1961, Blaðsíða 2

Tíminn - 23.08.1961, Blaðsíða 2
* TÍMINN, migvikudaginn 23, ágúst 1961. Happdrætti Framsóknarfl. Dregið næst 23. setpember Svíar ekki í sammarkað NTB—Stokkhólmi 22. ágúst. — Sænska stjórnin hefur ákveðið að fylgja ekki fordæmi Breta og Dana og sækja um upptöku í sam- markað ríkjanna 6 í EEC, sem þar voru fyrir. Erlander forsætis- ráðherra skýrði frá þessu á árs- þingi sambands járniðnaðarmanna í Stokkliólmi. Hann benti á, að Noregur og Portúgal hefðu heldur ekki sótt um upptöku. Hann sagði, að hægt væri að túlka upptökubeiðni Breta á margan veg, og reyndar settu þeir svo mörg skilyrði, að þeir hefðu óbundnar hendur ennþá. Danir væru svo tilneyddir að íylgja þeim. Samrýmist ekki hlutleysinu Sænska stjórnin hefur komizt að þeiiri niðurstöðu, að Rómarsamn- ingur EEC geti í núverandi formi sínu ekki farið saman við hlut- leysisstefnu Svía, sem heimurinn og þé einkum stórveldin væru sí- fellt að læra að virða betur, enda væru nú hlutlaus ríki í meirihluta í Sameinuðu þjóðunum. Einnig sagði hann, að forsendur þær, sem væru fyrir inngöngu Bieta (og I Dana) í EEC, giltu ekki fyrir Svía. I Svíþjóð er aðili að ytra markaðs- bandalagi ríkjanna sjö. Goya-mál- verk horfið Aðfaranótt þriðjudagsins var mjög frægu og dýru málverki stol- ið úr National Gallery í London. Þetta var málverk spánska málar- ans Goya af hertoganum af Well- ington, og keypti safnið verk þetta nýlega fyrir sem svarar 17 milljón- um ísl. kr'óna. Málverkið er 50 sinnum 38 sentimetrar að stærð og gert á viðarplötu. Safnmenn telja, að ómögulegt muni vera fyr- ir þjófinn að selja verk þetta. Scotland Yard var tilkynnt um hvarfið í morgun, og eru nú um- fangsmiklar ráðstafanir gerðar til að hindr'a að málverkið verði flutt út úr landinu. Biskupinn fer utan Biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson, tók sér far með flugvél til Norðurlanda í gær morgun. Förinni er heitið til Finn- lands til þátttöku í norræna bisk- upafundinum, sem háður verður í Lárkkulla dagana 22.—28. þessa mánaðar. Eftir fundinn í Lárkkulla mun biskupinn halda til Svíþjóðar og sitja prestafund í Linkjöping 4.— 8. september. Síðan mun hann dvelja nokkra daga í Noregi og er væntanlegur heim aftur 17. sept. Vígð ný kirkja Þann 20. þessa mánaðar var vígð ný sóknarkirkija að Efra-Núpi í Melsstaðapi'esfakalli í Húnavatns- prófastsdæmi. Vígslubiskup Hóla- stiftis, séra Sigurður Stefánsson, framkvæmdi vígsluna í umboði biskups. Einnig tóku þátt í vígslu athöfninni • héraðsprófasturinn, séra Þorsteinn Gíslason, sóknar- prestur staðarins Gísli Kolbeinsson og fleiri prestar. Fjölmenni var mjög mikið og athöfnin öll hin há- tíðlegasta og virðulegasta. Nýjungar á iðnstefnu Iðnstefna Samvinnumanna hefst| á Akureyri á morgun og mun hún standa í 4 daga. Er þetta bæði kaupstefna oig almenn vörusýning, í þar sem 15 iðnfyrirtæki sýna fram leiðslu sína. Munu þar koma fram ýmsar nýjungar i iðnaði. Iðnstefnan verður sett kl. 10, f.h. á morgun af framkvæmdar- stjóra Iðnaðardeildar SÍS, I-Iarry Frederiksen. Erlendur Einarlkon mun einnig halda ræðu við það tækifæri. Fyrstu tveir dagar kaupstefn- unnar eru einkum ætlaðir inn- kaupastjórum hinna 58 kaupfé- laga landsins, og verður þá vænt anlega verzlað mikið. Á laugardag inn verður opnuð almenn vöru- sýning fyrir bæjarbúa og aðra, sem hana vilja sækja. Verður þar til sýnis framleiðsla 15 iðnfyrir- tækja og mjög margar nýjungar í íslenzkum iðnaði. Sýningin verð^ ur til húsa í samkomusal starfs-j fólks verksmiðjanna á Akureyri. | StórveíöÍn Flestar iðnaðarverksmiðjur sam vinnumanna eru á Akureyri, og vinna við þær 5—600 manns. Er því eðlilegt að þeSsi kaupstefns sé haldin þar. Jarlinn seg- ir af sér NTB—Stokkhólmi, 22. ág. ÞingmaSurinn Jarl Hjalmars- son sagði í dag af sér sem for- maður Hægriflokksins sænska og óskaði jafnframt eftir því, að hann yrði einnig leystur frá störfum sem formaður þingflokksins. Flokksstjórnin og trúnaðarmannaráðið bað hann samt halda stöðunni sem formaður þingflokksins. Hjalmarsson segir, að aðeins persónulegar ástæður séu fyrir ákvörðun sinni. Stjórn flokksins hefur ákveðið að V I N N I N G A R i 1. Þriggja iferb. íbúð, fokheld, að Safamýri 41 kr. 140.000,00 2. Mán.ferð með skipi um Miðjarðarhaf, til Rússl. — 10.000,00 3. Flugfar fram og til baka Reykjavík—Akureyri — 1.638,00 4. Flugfar fram og til baka R.vík—Vestm.eyjar — 828,00 5. Páskaferð til Mallorka ásamt vikudvöl — 24.000,00 6. Hringferð með m.s. Esju umhverfis landið — 3.822,00 7. Flugfar fram og til baka Rvík—ísafjörður — 1.638,00 8. 16 daga ferð til Madeira og Kanaríeyja — 32.000,00 9. Flugfar fram og til baka Rvík—Egilsstaðir — 2.322,00 10. Öræfaferð með Guðmundi Jónassyni — 5.000,00 Öll ferðalögin gilda fyrir tvo. — Dragið ekki að kaupa miða. Aðalskrifstofa happdrættisins er í Framsóknarhúsinu 2. hæð, sími 12942. Eftir mánuð verður dregið í fyrsta skipti. sitja hjá? NTB-New Yoi'k, 22. ágúst. — Umræðum var í dag halidð áfram á aukaþingi Sameinuðu þjóðanna um Bizerte-deiluna. í dag var helzt veitt athygli ræðu Stevensons, full trúa Bandaríkjanna. Sagði hann þá von sína helzta um samkomulag, að Túnisbúar og Frakkar reyndu þegar í stað að semja með sér. j Hann var hvassyrtur í garð Ráð-j stjórnarfulltrúans, sem daginn áð- ur hafði atyrt Frakka fyrir ný- lendupólitík þeirra. Hefðu Frakk- ar veitt jafnstórum nýlendusvæð- um frelsi og Ráðstjórnin sölsað undir sig. Bandarikin munu að lík indum sitja hjá við atkvæða- greiðslu um tillögu Asíu og Afríku ríkjanna um viðurkenningu á rétti Túnisbúa til að reka franska her- inn burt. Talið er, að Bretar hafi j nú á prjónunum breytingartillögu við tillögu þessa, en að henni óbreyttri munu þeir að líkindum sitja hjá eins og Bandaríkjamenn. veita honum lausn frá flokks- formennskunni. Hjalmarsson hefur verið formaður flokks- ins síðan 1950. Smokkfiska rekur á land ísafirði 21. ágúst. — Undanfarið hefur rekið á land mikið af smokk fiski, og hafa trillurnar, sem héð- an róa notað hann talsvert til beitu. Hann er ekki enn fullþroska og smár vexti. Ekki er fyllilega vitað, hvað veldur því, að hann hleypur á land. Ef til vill eru það ljósin, sem tæla hann upp úr djúpinu. Sumir eru þó ekki nema í meðallagi hrifnir af komu hans, því að hann étur seiði þau, sem þorskurinn lifir á, og hverfur þá þorskurinn úr Djúp f :u, Kemur það sér illa fyrir þorsknetaveið- arnar. G.S. Sérhver þrifin og hagsýn húsmóðir notar hið kosta- ríka VIM við hreinsun á öllu í eldhúsinu. VIM er fljót- virkt, drjúgt, gerileyðandi og hreinsar fitu og hvers konar bletti á svipstundu. X-V 547/IC-Í.4I-50 W.' ■.Y." SE HREINSUNIi ÍHITIÐ, MVVANTAR WIM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.