Tíminn - 23.08.1961, Blaðsíða 8

Tíminn - 23.08.1961, Blaðsíða 8
t TÍMINN, miðvikudaginn 23. ágúst 1961. Vígt félags- heimiBI á Barðaströnd Um síðustu helgi var vígt á Barðaströnd nýtt félagsheimili og hlaut það nafnið Birkimelur. Vígsluhátíðin hófst á laugardag 12. ágúst. Fór fyrst fram guðs- þjónusta í félagsheimilinu og pre- dikaði séra Grfmur Grímsson, sóknarprestur í Sauðlauksdal. Að guðsþjónustunni lokinni hófst borð hald, og voru þar saman komnir heimamenn og margt brottfluttra Barðstrendinga, auk fleiri boðs- gesta, alls um 150 manns. Undir borðum voiu margar ræð- ur fluttar, en á milli var almenn- ur söngur, sem frú Guðrún Jóns- dóttir frá Sauðlauksdal stjórnaði. Veizlustjóri var séra Grímur Grímsson, Sauðlauksdal. Ræðumenn voru Karl Sveinsson, oddviti Barðastrandarhrepps, Há- kon J. Kristófersson, hreppstjóri, frú Guðrún Kristófersdóttir, form. kvenfélagsins Neista á Barða- strönd, Ári Kristinsson, sýslumað- ur, og Kristján Þórðarson, bóndi á Breiðalæk, formaður framkvæmda nefndar og eigendafélags að hinu nýja félagsheimili. Kristján rakti sögu húsbygging- arinnar, en það er steinsteypt á einni hæð, 238 fermetrar. Sam- komusalur er 60 fermetrar og veit ingasalur 30 fermetrar. í félags- heimilinu er rúmgott leiksvið, eld hús og snyrtiherbergi. Undir leik- sviði eru búningsherbergi fyrir leikstarfsemi, og þar er einnig miðstöðvarherbergi. Þá er í hús- inu rúmgott herbergi ætlað til af- nota fyrir konur sveitarinnar. Geta þær stundað þar ýmsan heim ilisiðnað. Enn fremur er gott her- bergi sérstaklega innréttað fyrir bókasafn hreppsins og rúmar það um 5000 eintök af bókum. Þeir eru margir íslend- ingar sem hleypa heimdrag anum og halda út í heim til að skoða sig um. Svo eru aðrir íslendingar sem halda að heiman og fara heim til íslands. Það eru Vestur-íslendingarnir, þeir sem fyrir og um aldamót flykktust vestur um haf í leit að betra viðurværi og í von um betra líf. Ófáir þeirra hafa komið hingað aftur heim í pílagrímsför til að líta gömlu heimkynn- in augum. Einn þeirra er Karl Hanson frá Winnepeg, sem lagði upp frá fslandi seint á sumri 1912 og ætlaði sér að dvelja 2—3 ár í Canada til að afla sér fjár. Karl tafðist í Canada tæpa hálfa öld. Heim kom hann aft- ur á þessu sumri snemma og hverfur innan skamms vestur um haf á ný. Nú er vhvergi fátækt Blaðamaður Tímans hitti Karl að máli eina dagstund og forvitnaðist um ferðir hans þau áttatíu ár, sem hann hefur flakkað um jarðir. — Ég var orðinn þrítugur, þegar ég tók mig upp og hélt til Canada, sagði Karl Hanson, þá hafði ég tvívegis dvalið lang dvölum erlendis og þótti í þá daga mikil forfrömun að vera tvísigldur maður, svo ungur. — Hvaðan ertu ættaður? — Fæddur á Strýtu við Ham arsfjörð, en alinn upp á Djúpa vogi, svarar Karl, — við vorum 8 systkinin, 7 bræður og ein systir. Öll komust þau á legg en nú orðið er ég einn eftir af þessu dóti. — Hvernig var á Djúpavogi í bernsku þinni? — Þá var fátækt mikil og stundum skortur eins og víðar á fslandi á þeim tíma, svarar Karl, — fólkig bjó við hörð kjör. Þá var ekkert nema sjór- inn, tveir og hálfur eyrir pund- ið af verkuðum fiski. Pabbi stundaði sjóinn auk þess sem hann var bátasmiður. Nú hef ég hvergi séð fátækt á íslandi, þann tíma sem ég hef farið um landið. — En þú fórst ungur að heiman? — Já, seytján ára gamall tók á kvöldin og varð að vinna fyr- ir mér sjálfur, en náminu lauk á þremur árum, þótt ég ætti oftast erfitt uppdráttar. — Þegar heim kom, var ég einn vetur á Blönduósi við hús- byggingar, og svo á Akureyri um sumarið, þar næst fór ég aftur utan, í þetta sinn til Kaup mannahafnar til að læra meira í smíðalistinni. Jafnframt fékk Við gullgröft kveitirækt og trésmíhar vestanhafs Rabbað við Karl Hanson, Vestur-íslending, sem er kominn heim eftir hálfa öld ég mér fari til Noregs, settist að í Stavangri félaus og mál- laus og byrjaði nám í hús- gagnasmíði. — Og hvernig vegnaði þér í Noregi? — Það var að sumu leyti bezti tími ævi minnar, þó að ég væri félítill. Fólkið var mér syo ákaflega gott og hjálpsamt. Ég stundaði nám í teikniskóla mér fiðlu og lærði að leika á hana. Ég sé dálítið eftir því, að hafa ekki lagt meira kapp á tónlistarnámið meðan ég var ungur, en Kaupmannahöfn var gleðinnar borg og margt að sjá og heyra fyrir ungan pilt utan af íslandi. En fiðluna á ég enn þann dag í dag, ég lék á hana siðar vestur í Canada, spilaði fyrir dönsum á skemmtunum fslend inga, eftir að ég var orðinn bóndi og gullgrafari vestra. — Nú er ég hættur að hreyfa við fiðlunni, fingurnir orðnir hnýtt ir og bognir af löngu erfiði. Hálf öld í stað tveggja ára — Varstu lengi í Kaupmanna höfn? — Ég fór heim aftur eftir tvö ár, þá settist ég að á Akureyri og setti þar á stofn smíðaverk- stæði. Atvinna var sæmileg þessi ár og ég hafði það af að útskrifa tvo sveina. Síðan lá leiðin til Seyðisfjarðar um vorið 1911 og þar var ég eitt ár. Síðan fór ég örlagaferðina miklu til Vesturheims. Þar átti ég enga kunningja eða frænd- ur nærtæka og langaði ag afla mér fjár. Ég kom 1. ágúst 1912 til Canada og var byrjaður að vinna daginn eftir á hæsta kaupi, sem þá þekktist, fimm dali á dag. Ég vann þá við húsa smíðar og reiknaði út ag ég yrði fljótt efnaður á tveim þrem árum, ef reiknað væri í krónum. Ég hafði ætlað mér heim eftir 2—3 ár. En þegar ég hafði verið eitt og hálft ár í Winnipeg, þá skall á heims- styrjöldin. Hermennsku eSa hveifirækt — Og þá átti ég ekki nema tveggja kosta völ, að fara í herinn eða fara upp í sveit og rækta hveiti. Og ég valdi síðari kostinn. — Hvemig stóð á því? — Þeir sem lögðu fyrir sig hveitirækt voru undanþegnir herþjónustu og mig langaði ekki til Frakklands að berjast. Ég er hræddur um ég hefði ílenzt þar. — Þú meinar þú mundir hafa kunnað vel við þig í Frakk landi. — Ég er viss um að beinin mín hefðu ílenzt þar, svarar Karl, — Canadamenn og þá íiww»»í>wwí>»>>í)wwmiiíiíwí>íiíii tiimiMiWiiiiiiimiiiWiWinniiiniiiinmtnninmiiiiiwa Fjórtánda þing Kven- félagasambandsins Á mánudag var sett í Rvík 14. þing Kvenfélagasambands íslands og voru mættir til fundarsetunnar 44 fulltrúar frá 18 kvenfélagasamböndum, alls staSar af landinu. Eru þaS fulltrúar 14.183 kvenna í 216 félögum. Fór þingsetning mjög hátíSlega fram. Séra Þorsteinn Björnsson frí- kirkjuprestur, flutti ávarpsorð og sungnir vora sálmar fyrir og eftir ræðu hans, en frú Bryndís Þórar- insdóttir lék undir sönginn. Séra Þorsteinn rómaði störf kvenfélaga í þeim prestaköllum, sem hann hefði þjónað. Einnig vítnaði hann í ritningargreinar til stuðnings því, að farsæld heimilis og þjóð- félags færi mjög eftir því, hvort það, sem i biblíunni er kallað vizka konunnar, nyti sín í þjóðfé- laginu. Taldi hann hina beztu eig- inleika karla og kvenna svo bezt njóta sín, að báðir aðilar störfuðu saman á jafnréttisgruodvelli til þess, að gera mannlífið fegurra og betra. Fomaður Kvenfélagasambands- ins, Rannveig Þorsteinsdóttir hrl., setti síðan þingið með ræðu. Minntist hún' fyrst frú Ragnhildar Pétursdóttur, fyrsta formanns sam bandsins og eins af aðalhvata- mönnum að stofnun þess. Var frú Ragnhildur formaður sambands- ins fyrstu 17 árin, sem það starf-i aði. Vottuðu fundarkonur minn-j ingu þessarar merkiskonu virðingu sína með því að rísa úr sætum. I Síðan ræddi formaður um verk-j efni sambandsins — aðalmarkmið þess væri að stuðla að heill ogj hamingju islenzkra heimila og þó að ekki væri sá tilgangur þess sí- fellt í hámæli hafður, hlyti hann ^að vera sem rauður þráður gegn i um hvert það verkefni, sem það 'tæki sér fyrir hendur. Þá gat formaður þess, að von væri góðra gesta í lok þessa þings, þar sem hér verður nú í fyrsta sinn haldinn stjórnarfundur Nor- ræna húsmæðrasambandsins og eru konur frá öllum Norðurlönd- um ' væntanlegar til þátttöku i þeim fundi. Eru það 7 konur frá Danmörku, 1 frá Finnlandi, 4 frá Noregi og 3 frá Svíþjóð. Koma (Framhald á bls. 6.) Saga og skáldskapur Sögulegir viðburðir hafa ósjaldan orðið rithöfundum hvati til skáldverks. Eins og fram kemur hér á eftir, tel ég það t.d. hafa haft úr- slitaáhrif, að Leo Tolstoj tók þátt í Krimstríðinu, Dostojevski varð hugtekinn af „mannguðinum“ Jesú, og að danska skáldið Morten Nielsen lifði í síðustu heims styrjöld. Það liggur í augum uppi, að viðburðir sögunnar hafa haft margháttuð áhrif á skáldskap, en þau dæmi, sem ég hef kosið að nefna og skrifa um, eru sérstakrar at hygli verð, einkum vegna þess, að skáldunum Tolstoj og Dostojevski hefur tekizt að leggja undir sig heilan heim með hugsanaauðgi skáldskapar síns. Þriðja dæmið um að sögulegir við- burðir móti skáldskap, og ég nefni hér, kemur ljóst fram við athugun á hugsun og verkum Mortens Nielsens, hins unga danska skálds. í Krímstríðinu 1853—56 barðist Leo Tolstoj sem ung ur liðsforingi í rússneska hernum. Hann hafði gengið í herþjónustuna sem sjálf- boðaliði, vegna þess að á hann sótti lífsleiði, sem var afleiðing svalls í líferni. Krímstríðið gerði Tolstoj ekki að skáldi föðurlands- ástarinnar, og hann varð heldur ekki skáld eldmóðs- ins og baráttunnar. Nei, hann varð einn hinn mesti friðarpostuli, sem nokkru sinni hefur lifað, og honum Þetta er dálítið óvenjuleg mið- vikudagsgrein — danskur mennta skólastíll eftlr íslenzkan mann. Það er ekkl oft, sem stúdentar i Danmörku fá ágætiseinkunnina UG fyrir stíl á stúdentsprófi — kemur aðeins örsjaldan fyrir, segja menn. Þetta skeði þó í sum- ar, þegar Otto Sigvaldi Petersen lauk stúdentsprófi í menntaskól- anum í Ordrup og þótti tiðindum sæta. Dönsk blöð hafa birt stíl- inn með viðurkenningarorðum. Efnið var: „Nokkur dæmi um það, að sögulegir viðburðir hafi speglazt í skáldskap". En hver er Sigvaldi Petersen? Móðir hans er íslenzk, Lundfríð- ur Sigurlaug Jóhannsdóttir, fædd að Ketu á Skaga 6. sept. 1915, ólst upp á Akureyri, en flutti síð- an til Danmerkur. Þess má líka geta, að langa-langafi Sigvalda er sagður hafa verið séra Jón skáld Þorláksson á Bægisá. — Tímanum þótti rétt að birta þennan óvenju lega og snjalla menntaskólastíl. tókst að snúa mörgum til þeirrar trúar, að allt, sem gott er, eigi rót sína í friði. „Sevastopol“ er lítil bók, sem lýsir þrem köflum Krím stríðsins, og það er einkenn andi fvrir skáldið, að bað

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.