Tíminn - 30.08.1961, Blaðsíða 5
TlMI N N, miSvikudaginn 30. ágúst 1961.
5
Utgetantí! »=RAMS0KNARFlOKKURINN
Framkvænjdast.ióri Tómas A.rnason Rit
stjórar Þórarmn Þórarinsson 'ób /. Andrés
Kristiansson lón Helgason c'ulltrú) rit
stjórnar Tómas Karlsson Augiýsinga
stjórl Egil) Biarnason - Skrtfstoiui
i Edduhúsinu - Slmar 18300 1830?
Auglýsingaslmt { 19523 Atgreiðslusimi
12323 — Prentsmiðjan Edda h.t
Gengislækkunin
var óþörf
StjórnarblöSin eru nú fyrir löngu hætt að revna að
verja gengislækkunina og þá skerðingu þingræðisins,
sem átti sér stað í sambandi við hana. í stað þess kepp-
ast þau við að vaða elginn um allt hugsanlegt annað.
Allt er þetta gert til þess að reyna að draga athyglina
frá þvi óhæfuverki ríkisstjórnarinnar að fella krónuna
að þarflausu og skerða jafnframt þingræðið í landinu.
Eysteinn Jónsson hefur sannað það bezt með út-
reikningum sínum varðandi frystihúsin, hve óþörf og
ástæðulaus gengislækkunin var. Frystihúsin eru þau at-
vinnufyrirtæki, sem staðið hafa höllustum fæti. í sumar
var samið um 5% kauphækkun umfram það, sem ríkis-
stjórnin og ráðunautar hennar töldu atvinnuvegina þola
(tilboð sáttasemjara). Eysteinn Jónsson hefur sannað, að
til þess að bæta frystihúsunum þessa 5% kauphækkun,
þurfti ekki nepia 1% hækkun á útflutningsverðinu. Þetta
getur hver og einn líka reiknað sjálfur, þar sem kaup-
greiðslur eru 20% af rekstrarkostnaði húsanna.
Lækkun vaxtanna um 2% eða i hið sama og þeir
voru í fyrir „viðreisnina“, hefði líka nægt til þess að
bæta frystihúsunum þessa 5% kauphækkun og meira
en það.
Betur verður það ekki sannað, að gengislækkunin var
algerlega óþörf og ástæðulaus! Hún var hefndaraðgerð
ráðvilltrar ríkisstjórnar, sem ekki vildi láta það sjást í
verki, að kjarasamningar þeir, sem samið hafði verið um
og hún hafði beitt sér á móti, voru ekki aðeins vel fram-
kvæmanlegir, heldur hefðu lagt grundvöll að vélmegun
og vinnufriði á næstu misserum. Vegna þessara hefndar,-
aðgerða ríkisstjórnarinnar hefur stórfelldu dýrtíðarflóði.
margs konar upplausn og auknum stéttarátökum verið
hleypt af stokkunum.
Það er von, að stjórnarblöðin gefist upp við að verja
gengislækkunina. En það er ekki nóg Sú stjórn, sem að
slíkum ófarnaði stendur, verður að víkja, ef slík saga á
ekki að geta endurtekið sig í annað sinn.
Hvað kemur næst?
Með bráðabirgðalögum ríkisstjórnarmnar um að taka
gengisskráningarvaldið af Alþingi. var stigið hið stærsta
skref til að skerða þingræðið og lýðræðið í landinu.
Aldrei áður hefur það gerzt hér eða í öðru þingræðis-
landi. að vald væri þannig tekið af Alþingi með bráða-
birgðalögum og raunverulega fært i hendur ríkisstjórn-
arinnar Til þess að finna hliðstæð dæmi verður að fara
aftur i tímann allt til þess, er Hitler var að murka lífið
úr þingræðinu i Þýzkalandi. Það var gert i nokkrum
áföngum — m. a. með bráðabirgðalögum.
Þess vegna er nú spurt víða um Island: Hvaða vald
tekur ríkisstjórnin af Alþingi næst tneð bráðabirgðalög
um, ef hún kemst upp með þettav Hvað verður orðið
eftir af þingræði og lýðræði i lanriinu eftir skamman
tíma. ef haldið verður áfram á þessart braut?
Það er von að menn spyrji En gegn þessart öfug
þróun er ekki nema eitt öruggt ráð Það er að þjóðin
losi sig sem fyrst við stjórn, sem er komin út á slíka
glapstigu.
Jchann M. Kristjánsson:
agfræði lífsins
Hugleiðingar um væntanlegan dóm í Eichmann-málinu
Sök Eichmanns er hlutdeild í
og framkvæmd á verknaði, sem
grundvallast á hatri og hefnd. Ef
Eichmann er dæmdur til dauða nú,
þá lýtur sá dómur sama lögmáli
Gyðingahatarainir litu á glæp
Gyðinga — það. er meinta svik-
semi við þjóðfélagið og föðurland-
ið í heild — sem glæp glæpanna
í ofstækisfullu hatri gegn kynstofn
inum öllum gripu þeir til dauða-
refsingar í stærri stíl en mannkyn
ið veit dæmi til. Frá sjónarmið'
þeirra hafði þetta tilgang. Þeir
töldu sér trú um, að með þessu
væru þeir að bæta þjóðfélagið, —
jafnvel mannkynið allt. Óminnugii
þess, að mannkynið á Gyðingum
að þakka mikið af hinni tæknilegu
þróun og andlegu verðmætum
Þær milljónir, sem nú heimta
dauðadóm yfir Eichmann fyrir
glæp hans á Gyðingum, grípa til
sama ráðs. — hefndarinnar. Að
því leyti er hér status quo. Hatur
gegn hatri. hefnd gegn hefnd, en
sjáanlegur tilgangur er enginn
Það er of seint að drepa Eich
mann. Tilgangurinn fyrir því er lið
inn hjá. Hefði náðst til hans með-
an hann var að verki og einhverj-
um mannslífum bjargað með því,
þá hefði hann tilgang Nú veit all-
ur heimurinn. að Eichmann getur
engin illvirki framið meir. — svo
framarlega sem hann fær að lifa.
— Með ströngu en mannúðlegu eft
irliti, er hann óskaðlegur Krafan
um dauða hans nú er því nakin
hefnd og hatur.
Myrkri verður ekki eytt með
meira myrkri. Aðeins verður
myrkri eytt með Ijósi Illu verður
ekki útrýmt með meira illu. Kær-
leikurinn einn útrýmir illu, og
heimskuna læknar ekkert nema
skynsemin.
Hvar sem við lítum á lífið, sjá-
um við að öll rök hníga að því, að
æðsti tilgangur þess er kærleikur.
Barnið í vöggunni dafnar ekki án
umönnunar, gróður jarðar verður
til fyrir birtu og yl Myrkur og hat
ur er ríki dauðans og þjáninganna.
Lög, sem ganga gegn svo skýlausu
lörmáli eru röng.
Hér er aðeins tæpt á þeim innri
rökum. sem liggja * að þvi. að
dauðadómur yfir Eichmann, sem
eingöngu byggist á hatri og hefnd.
er rangur.
Hin yfri rök eru:
Glæpurinn, sem Eichmann-málið
er risið af, er svo stór, að hann
getur ekki hvílt á samvizku eins
manns Hann er sameign og sam
sök mannkynsins í heild Frá alda
öðli hafa mennirnir hefnt og hat-
að, framið glæpi og valdið þjáning-
um. Lífið, sem engu glatar, glatar
ekki heldur þessu, það skilar því
aftur í órofa hringrás orsaka og
afleiðinga lögmálsins Allt, sem
mannkynið afrekar — gott og illt
— er sameign okkar allra Við &et-
um ekki slitið okkur lausa einn og
einn. látizt vera saklausir og skellt
skuldinni á aðra því að mannkyn
ið er ein heild Það er samofið
órofa böndum og órofa örlögum
í efni=heiminum eru þetta augl.iós
lög, en á hærri sviðum lífsins lýt
't það bó enn ákveðnara lögmáli
Sameiginlega og sem einstakl
'ngar söfnt"^ ”ið með breytni okk
ar f o r ð a iákvæðrar og nei
kvæðrar orku Þessi forði er satn
eign alls mannkvns og eldsneyti
þróunar þess o.s öntaga Af ávöxt
um han= fáum við hvert oa eitt
okkar skerf í rettum hlutföllum
við það sem við legejum til bvi
að lífið skitpir rétt Að sínu leyti
eins og við aukum hina iákvæðu
orku með göfugri lífsstefnu bræðra
Jáhann M. Kristjánsson
lagshugsjónarinnar, hverju einu
okkar og mannkyninu í heild til
blessunar og meiri þroska, og auk-
um þannig skilyrði fyrir komu and
legra mikilmenna manngöfgi og
mannvit, 'eins vex hin neikvæða
orka með hverju illvirki, er við
fremjum og hverju hatursfullu
hugarfóstri, er við ölum, og stofn-
um þar með til meira böls og þján-
inga, og þegar mælirinn er fullur,
leitar hún útrásar að algildu lög-
máli, yfir garðinn. þar sem hann
er lægstur Hinir andlega sjúku —
oft miklu valdamenn — haldnir
hatri og ofstæki, verða farvegur
f.vrir þessa útafflóun misgerða
mannkynsins. Þannig verða til
styrjaldir, ofsóknir og útrýming
heilla þjóða.
Með dauðadómi yfir Eichmann,
rís ný alda hefnda Svo mikið hat-
ur, sem þar hleðst upp, kemur yfir
mannkynið aftur í nýjum hryðju-
verkum, og þannig gengur það koll
af kolli.
Fyrir skömmu lagSi blaðið Nú
tíminn þá spurnlngu fyrir nokkrs
menn, hvort þeir teldu rétt að
dæma Eichmann til dauða Meðal
þessara manna var Jóhann M
Kristjánsson. Svar hans hefur
vakið verulega athygli og bvkir
þvi rétt að láta það koni’ fyrir
sjónir fleiri en þeirra, sem lesa
Nútímann TÍMINN lætur það
hins vegar eftir lesendum sinum
aði^dæma um skoðanir Jóhanns
Með því að dæma Eichmann ein-
an fyrir svo stórkostlegan glæp. er
mannkyninu stungið svefnþorn.
með þeim dauðadómi er þið raun-
verulega seka mannkvn sýknað í
heimsku sinni færir það alla sök-
ina á hinn dæmda mann. sljóvgast
l'vnr stærð og orsnk glæpsins. og
telur að með dauða Eichmanns sé
friðþægt fyrir glæpinn og hann
gleymist Sjálfur verður Eichmann
hetja og píslarvottui hjá þeim,
sem enn eru haldnir þeirri blindu.
að trúa þvi að „hugsjón“ Eich-
manns og skoðanabræðra hans geti
frelsað 'heiminn og enn rís alda
hsturs
Hve leng; verður mannkvnið
svo heimskt að skilja ekki. að
dauður líkami getur aldrei frið
þægt fyrir nemn glæp. en máttur
hefndarinnar nær ekki lengra
Andinn, sem líkamanum stjórnaði,
þar sem glæpurinn var skapaður
og framkvæmdur, — með líkam-
ann aðeins sem tæki, lifir enn.
Hann sleppur, fær jafnvel stærra
svigrúm, þar sem tregða líkamans
hemlar ekki lengur orku hans,
Hann heldur áfram að styrkja hið
nsikvæða element í framþróun
mannkynsins, með auknu vega-
nesti, þar sem hatrið fyrir líkams-
dauðann bætist við. Þannig snýst
hefndin gegn skapara sínum. Með
því að deyða líkamann, sleppa þeir
manninum sjálfum.
Hvenær lærir Ifiannkynið, að
það er enginn dauði til í þessum
skilningi. Það vonda í mönnunum
er ekki hægt að deyða með dauða.
Lífið þarf að koma til. Lækning
hins sjúka, eyðing hins illa með
hinu góða, það er samræming og
sameining hugans og atliafnanna
við meginrök lífsins.
Eichmann er fóstur hins nei-
kvæða elements mannkynsins.
Hann er sjúkdómur þess og ill sam
vizka. Honum þarf að hjálpa. Við
verðum öll að bíða eftir Eichmann.
Við komumst ekki alla leið, nema
hann komi með.
ísrael-þjóðin á nú stórt tæki-
færi. Allur heimurinn hlustar og
bíður í ofvæni niðurstöðu þessa
mikla máls ísrael-þjóðin á tæki-
færi til að framkvæma á eftir-
minnilagan hátt boðorð meistarans
mikla „Fyrirgef þeim, því að þeir
vita ekki, hvað þeir gjöra“.
Með þvi að dæma ekki Eich-
mann til dauða. hefur hún beint
sökinni á hendur mannkynsins alls
og vísað því veginn frá þyrnigöngu
hefndarinnar Það hlýtur að
staldra við. undrast og hugsa.
Glæpurinn, sem framinn var á
Gyðingunum. gleymist ekki Sam-
vizka mannanna hefur vaknað.
Það er dögun að bjartari og betri
heimi.
í þætli mínum um leiðbeininga
þjónustu landbúnaðarins hinn 17
ágúst sl féllu niður allmörg orð,
svo að fyrsti hluti greinarinnar
er óskiljanlegur Þvi birtist hann
hér aftur:
I dag ætla ég að ræða mál. sem
efalaust mun verða ofarlega á
baugi meðal forystumanna bænda
á næstu misserum Þetta mál er
biónustan Einum bætti bænda
vikunnar síðastliðinn vetur var
varið ti! þess að reyfa þetta mál
Þótt enginn vandi væri þar leyst-
ur, komu fram vmis sjónarmið.
sem vert er að gefa gaum Þarna
var kastað hanzka. og sem flestir
skyldu taka hann upp
Nú sem stendur hafa öll bún-
aðarsamböndin einn eða fleiri hér
aðsráðunaut í þiónustu sinni. auk
þess sem Búnaðarfélag íslands hef
ur ráðunauta ""n hafa allt land-
ið að starfssvæði
Lesendur eru beðnir velvirð-
ingar á mistökunum. L.J.
Innbrot
Um helgina var brotizt inn i Ai-
þýðubrauðgerðina við Laugaveg
Innhrotsþioturinn hafði mölvað
rúðu og skemmt tvær læsingar.
Ekki er vitað til að hann hafi
haft neín verðmæti á brott með
sér