Tíminn - 30.08.1961, Qupperneq 13
T f M I N N, miðvikudaginn 30. ágúst 1961.
Á förnum vegi
(Framiiala at b siðui
og þar með rænt Svínafelli þeim
möguleika, að vötnin falli frá og
upp grói mikið beitarland, eins
og alltaf hefur átt sér stað á 20—
30 ára fresti. Meira að segja
munu Austurfljótin senn taka
flugvöll og sandgræðslu við Svína
fellsnesið og um leið loka bílvegi
frá Svínafelli • yfir sandana, ef
ekkert verður að gert. En ekki
skal því vantreyst að óreyndu".
Að lokum segir Sigurbergur,
að máske séu þessar beisku hug
Ieiðingar óréttlátar og fremur
beri að þakka valdhöfunum fyrir
það traust, sem afkomendum
hans sé sýnt, að ekki þurfi að
brúa neinar toríærur fyrir þá,
enda hafi það sýnt sig, að þeir
séu í irezta lagi þeim vanda vaxn-
ir. — FerðamaSur.
Aöglýsið í Tímanum
Húsmæ'Sur
Framhaid af 8. síðu
sem baðst undan endurkosningu,
en hún hefur setið í stjórninm i
18 ár. í varastjórn voru kosnar
Ólöf Benediktsdóttir, Guðlaug
Narfadóttir og Elsa Guðjónsson.
Er þinginu var lokið, voru kynn
ingarfundir með hinum erlendu
gestum, og á fimmtudagskvöldið
voru flutt erindi og _ sýnd kvik-
mynd til að kynna ísland. Gest-
irnir fluttu kveðjur og afhentu
minjagripi frá samböndum sínum.
Fyrr sama dag buðu norrænu
sendiráðin fulltrúum sinna landa
og stjórn Kvenfélagasambandsins
til sín, en kona bandaríska sendi-
herrans bauð öllum öðrum þing-
fulltrúum heim, og áttu þær á-
nægjulega stund með frú Penfield,
sem er gestrisin kona og vingjarn-
leg.
Að endingu vil ég þakka á-
nægjulegar samvistir með þing-
fulltrúunum og gestrisni sambands
stjórnar.
Sigríður Thorlacius.
Hildigunnur
Magnúsdóttir
frá Kambhóli
F. 16. sept. 1905. D. 25. júlí 1961.
Happdrætti Framsóknarfl.
Oregið næst 23. september
V I N N I N G A R :
2. Mán.ferð með skipi um Miðjarðarhaf, til Rússl. — 10.000,00
3. Flugfar fram og til baka Reykjavík—Akureyri —• 1.638.00
4. Flugfar fram og til baka R vík—-Vestm.ey.iar — 828.00
5. Páskaferð til Mallorka ásamt vikudvö) — 24 000,00
6. Hringferð með m.s. Esju umhverfis landið — 3.822,00
7. Flugfar fram og ti) baka Rvík—ísafjörður — 1.638.00
8. 16 daga ferð til Madeira og Kanaríeyia —- 32.000,00
9. Flugfar fram og ti) baka Rvík—EgUsstaðir — 2 322,00
10. Öræfaferð með Guðmundi Jónassym — 5 000.00
01) ferðalögm gilda fyrir tvo. — Miðinn kostar 25 ktÓBur.
Aðalskrifstofa happdrættisins er i
Framsóknarhúsinu 2. hæð. sími 12942.
1. Þriggja herb. íbúð, fokheld. að Safamýrt 41 kr 140 000,00
iiií ' '■: •
EYÐIÐ
FLÚGUNUM
IVSEÐ
j Hníga í valinn einn og einn,
j ei má lögmáls sköpum breyta
i hryggðin slær, og sárin veita,
i sálu mannsins und, sem fleinn.
I Hverfa oss vinir, misst er mikið,
! maðurinn er sem duftið, rykið.
Horfin ertu, Hildigunnur,
hugurinn leitar fornra daga,
það er óskráð ævisaga,
inndæll, fagur blómarunnur.
Er við saman ung og glöð
ærsluðumst heima á bæjartröð.
Þú varst ung og létt þín lund,
líka dugleg, fögur meyja,
mátti ei hugsa að mundir deyja
miðaldra, en langa stund,
lifa hjá oss laus við sorgir.
— En líka hrynja skýjaborgir. —
Þitt var erfitt þetta líf,
þvi skal bikar sorga drekka?
Sumum lífið sífelld brekka
sorg og mæða, engin hlif.
Samt varst glöð, og sorg vel barstu
Sannur lífsins geisli varstu.
Kveð ég svo þig, kæra „Nunna“
kærleik drottins vafin sért,
senn að margra hjarta er hert,
harmur, laus við gleðibrunna.
Þakkir sendi af hlýjum hug.
Himins dvöl er almáttug.
t
Norðlendingur.
•X *v • x-x-
"Postsen d u m
VARMA
PL AST
Þ. Þorgrimsson & Co.
Borgartúni 7, sími 22235.
Tugon er öruggasti flugna'
eyðirinn.
Tugon er auðvelt í notkun
Það er þynnt út með j
vatni og borið á fjöl
eða annan við með
pensli.
Tugon hefur varanleg áhrif.
Tugon eykur hreinlætið.
EKKERT GRIPAHÚS MÁj
VERA ÁN TUGON
!
j
Tugon fæst í kaupfélögunum
um land allt.
Umboðsmaður
til sölu 31. farþega í mjög
góðu ásigkomulagi. — Upp-
lýsingar hjá Helga Geirs-
syni í síma 18911 og Sæ-
mundi og Valdimar, Borg-
arnesi.
Vegna fjölda áskorana
verður leiksýningin
KILJANSKVÖLD
1 í Iðnó annað kvöld kl. ,30.
Aðgöngumiðasala frá kl. 2
í dag. — Aðeíns þessi eina
sýning.
13
Vinsælar skemmtibækur
Eftirtaldar bækur eru að minnsta kosti helmingi ódýrari
en et þær væru gefnar út nú. Flestar bækurnar hafa ekki
verið til sölu í bókaverzlunum árum saman, og jafnvel um
áratugi. Af sumum bókunum eru aðeins til nokkrir tugir
eintaka.
Hetjan á Rangá. Norræn hetjusaga úr fornöld. 133 bls. kr. 15,00
Einvígið á hafinu. Óvenjuleg saga um ást, hatur og einvígi
úti á opnu hafi. 232 bls. ób. kr. 15,00.
Svarti sjóræninginn. Frábærlega skemmtileg sjóræningjasaga.
ób. kr. 15,00.
Svarta iiljan. Ævintýraleg saga eftir hinn heimskunna höfund
Rider Haggard. 352 ób. kr. 25,00.
Percy hinn ósigrandi, 5. bók 196 bls. kr. 15,00.
Percy hinn ósigrandi, 6. bók 192 bls. kr. 15,00.
Percy hinn ósigrandi, 7. bók. 220 bls. kr. 15,00.
Úalagaerjur, eftir Zane Grey. Stórbrotin skáldsaga um ástir
og bardaga í „villta vestrinu". 332 bls. ób. kr. 25,00.
Hart gegn hörðu. Hörkuspennandi leynilögreglusaga, 142 bls.
ób. kr. 15.00.
Horfni safírinn. Spennandi saga um gimsteinarán. 130 bls.
ób. kr. 15.00.
Gullna köngulóin. Leynilögreglusaga. 60 bls. ób. kr. 5,00.
Verzlunarhúsið Elysium. Hugnæm ástarsaga. 96 bls. ób. kr.
10.00.
Hver vissi hvað sannast var? 94 bls. ób. kr. 7.00.
Silfurspegillinn. 66 bls. ób kr. 7,00.
Skugginn. 44 bls ób. kr. 5.00.
Hvítmunkurinn. Saga um dularfullt fyrirbæri. 130 bls. ób.
kr 15.00
Mynd Abbotts. Stutt en eftirminnileg saga. 40 bls. ób. kr. 5,00.
Leyndarmálið í Cranebore. Mjög sérstæð saga um ást og af-
brot 238 bls. ób. kr. 20.00
Morðið i Marshole. Spennandi sakamálasaga. 76 bls. ób. kr. 10.00.
Vitnið þögla. Enginn, sem les þessa sögu býst við þeim endi
sem hún fær. 142 bls. ób. kr. 10,00.
Eigandi Lynch-Tower. Saga um ástir. vonbrigði, undirferli og
að lokum sigur hins góða. 232 bls. ób. kr. 20,00.
í vesturvíking. Æsandi sjóræningjasaga. 168 bls. ób. kr. 15.00.
í villidýrabúrinu. Saga úr sirkuslífinu. 40 bls. ób. kr. 5.00.
Smásögur eftir ýmsa höfunda. Winnipeg 1906. 90 bls. ób. kr.
15.00. '
Smyglaravegurinn. 72 bls. ób. kr. 10.00.
Nafnlausi samsærisforinginn. Spennandi og dularfull sakamála-
saga. 292 bls. ób. kr. 25.00.
Milljónaævintýrið. Skemmtileg og gamar.söm saga um auðæfi
og ástir. 352 bls. ób. kr. 25.00.
Allan Quatermain. Ein frægasta skáldsaga Rider Haggards. 418
bls. ób. 30.00.
íslenzkir hnefar. Spennandi saga um ævintýri og afrek íslend-
ings erlendis. 165.00 bls. ób. kr. 15.00
Námar Saiomons konungs. Heimsfræk skáldsaga eftir Rider
Haggard. 344 bls. Ób. kr. 25.00 (Örfá lesin, en óskemmd
eint.)
Carlos vísundabani. Viðburðarík og spennandi saga eftir Mayne
Ried. 202 bls. ób. kr. 15.00 (Lesin en ógölluð eint.).
Eineygði óvætturinn, 1, og 2. b. 470 bls ób. kr. 40.00 (1. b. lesið)
í vopnagný 1.—3. b. Af þessari vinsælu indíánasögu eru aðeins
fá lesin. en ógölluð eint. Alls 702 bls ób. kr. 60.00.
Ofurhuginn Rupert Hentzau e. Anthony Hope höfund Fangans
í Zenda. 1—2 b. 390 bls. ób. kr. 40.00 (2. b. lesið en ógallað.
Löngu uppseld).
Klippið auglýsinguna úr blaðinu og merkið x við þær bæk-
ur. sem þér óskið að fá sendar gegn póstkröfu Merkið og
skrifið greinilega nafn og heimilisfang
Gorillaapinn o. fl. sögur: 76 bls. Ób. kr. 7.00.
Undirrit óskar að fá bæT bækur sem merkt er við
i augiysingu pessari sendai gegn posikröíu.