Tíminn - 16.09.1961, Qupperneq 2

Tíminn - 16.09.1961, Qupperneq 2
Nýr verðlagsgrundvöllur landbúnaðarins ákveðinn Yfirnefnd felldi úrskurð sinn í gær Meðalhækkun á afurðaverði til bænda sam- kvæmt hinum nýja grundvelli er 14.5% Tók inar Gíslason sæti í henni sem fulltrúi neytenda, en Sverrir Gfslason sem fulltrúi framleið- enda. Á fundi yfirnefndar í dag, föstu dag, var ákveðinn nýr verðlags- grundvöllur, sem gildir frá þessu hausti. Er hann miðaður við nokkru stærra bú en grundvöllur inn 1960—‘61, eins og sjá má af því, að magn sauðfjárafurða vex um 9.5% og magn nautgripaaf- urða um 5.3%, en afurðaaukning grundvallarins i heild er 6.8%. Meðalhækkun á afurðaverði til bænda samkvæmt hinum nýja grundvelli er 14,5%, en verð til bænda á kjöti og mjólk og kart- Blaðinu barst í gærkveldi svofelld fréttatilkynning frá hagstofustjóra um ákvörðun yfirnefndar á verölagsgrund- velli landbúnaöarvara 1961 — 1962: „Sex manna nefnd, sem skipuð er fulltrúum framleiðenda og neyt enda og hefur það hlutverk að á- kveða verð á landbúnaðarvörum, náði að þessu sinni ekki samkomu lagi um verðlagsgrundvöll land- búnaðarvara fyrir verðlagsárið 1961—’62. Þrjú fyrstu árin, sem nefndin starfaði (1947—1'49), varð hún ekki sammála um verðlags-| grundvöll, en síðan 1950 hefur alltaf orðið samkomulag um hann 1 þar til nú. — Þegar fulltrúar framleiðenda | og neytenda í Sex manna nefnd koma sér ekki saman um verð- lagsgrundvöll, ganga ágreinings- atriðin til yfirnefndar, sem fell- ir um • þau fullnaðarúrskurð. í yfirnefnd á sæti einn fulltrúi fyr- ir hvorn nefndarhluta Sex manna nefndar, en hagstofustjóri er odda maður. Þá er íyrir lá, ag Sex manna nefnd mundi ekki ná samkomu-' lagi um verðlagsgrundvöll 1961- ins situr á rökstólum ___________ 62, visuðu fulltruar framleiðenda , . . , | í nefndinni málinu til yfirnefndar. bor9 s,oari hlura Pessa mátv öflum hækkar heldur minna, eða 13.5% að meðaltali. Ástæða þessa munar er sú, að verð á gærum og ull til útflutnings hækkar meira en á öðrum afurðum og vegur upp hluta af verðhækkun þeirra. Þessi hækkun búvöruverðs staf ar sumpart af hækkun kaupgjalds á síðastliðnu sumri og af nýorð- 1 inni gengisbreytingu, en sum- ' part af því, að „kaupbóndans" í j verðlagsgrundvelli fylgir breyting um á meðaltekjum verkamanna, l sjómanna og Iðnaðarmanna, og var — samkvæmt niðurstöðum úr- , taksathugana — um að ræða veru i lega hækkun á meðaltekjum þess I ara stétta frá 1958 til 1960. Sex manna nefnd á eftir að fjalla um nýtt verð til bænda á einstökum afurðum og um þann vinnslu- og dreifingarlcostnað, sem leggst á afurðirnar á þessu hausti. Er því ekki enn hægt að segja neitt um væntanlegt útsölu verð á einstökum landbúnaðar- vörum." TÍMINN, laugardaginn 16. september 1961. Foráttuveður austan lands Mjóafirði, 15. september. ! Smalamennskur eru ekki byrj- Foráttuvatnsveður af austri|fðaf.’.riog ekkl íar,lð .að. taka opp , , i u / r- , kartoflur nema til daglegrar atu. hefur staðið her yfir siðan 1, Yfirleitt er allt með seinna móti fyrradag. I gær hægði ögn, en hér, enda hefur sumarið verið í dag hefur hann náð sér upp j óhagstætt. V.H. aftur með stormi og rigningu. Heyskapur hefur gengið ákaf- lega stirt. Margir eiga töluyerð hey úti og óslegna há á túnum. Seinni partinn í sumar hefur verið unnið lítils háttar að lagfær- ingum á veginum á Mjóafjarðar- heiði. Nokkuð af því, sem búið var að gera, skemmdist í vatnsveðrinu um daginn. Bjartsýnn á Berlín Rannveig með fram- sögu í Strassborg Ráðgjafarþing Evrópuráðs- Stras- Forsetinn kom- inn til Winnipeg Winnipeg. 14. september.. Forsetinn kvaddi Diefen- baker, forsætisráðherra Kan- ada, á flugvellinum í Ottawa í morgun og flaug með fylgdar- liði sínu til Winnipeg. Hefur nú bætzt í föruneyti hans einn maður, þingmaður af íslenzk- um ættum frá Selkirk. Fellibylur gerir usla í Japan NTB—Tókíó, 15. sept. Hvirfilvindur sá, sem kallast Nancy, æddi í dag yfir Suður- Japan og olli manntjóni og eyðileggingu á ferð sinni norð- ur yfir landinu. Þegar hefur frétzt um fjögur dauðsföll, sem hvirfilvindurinn olli, en 50 manns hafa slasazt og þúsundir heimila eru í rúst, annað hvort eftir vindinn sjálfan eða flóðið, sem honum fylgir. Þegar Nancy æddi af stað í morgun með fullum krafti, var vindhraðinn 272 km. á klst. Búizt er við, að óveðrið geysi í Tókíó á iiugardagskvöld. Margt fólk fagnaði forsetanum í Winnipeg, og tóku þar á móti honum Willis fylkisstjóri og Robl- in, forsætisráðherra Manitobafylk- is. Ekið var til þinghússins, og fór þar fram virðuleg athöfn. Sæmdi Roblin forsetann þar vísundaorðu Manitobafylkis. Að lokinni þessari athöfn áttu mörg hundruð manna þess kost aðl heilsa forsetanum, og síðan komu| á vettvang sjónvarpsmenn og blaðamenn. Þegar forsetinn fór úr þinghús- inu,- lagði hann blómsveig að styttu Jóns Sigurðssonar, sem fólk af íslenzkum ættum, lét reisa við það. í ávai'pi, sem forsetinn flutti í þinghúsinu, minntist hann Tómas- ar H. Johnsons, sem um skeið var, dómsmálaráðherra í Manitoba- fylki. ISIátrun að hefiast i * * |í Oræfurn Fagurhólsmýri, 15. sept. i Slátrun mun hefjast hér á mánudagmn,, og verður kjötið flutt með flugvélum Flugfé- lagsins til Reykjavíkur eins og venjulega. Slætti er nú lokið á öllum bæj- um í sveitinni Hey. eru góð og heldur með meira móti. Kartöflu- spretta virðist góð. aðar. Einn íslenzkur fulltrúi mun verða á fundum þingsins að þessu sinni. Er það Rann- veig Þorsteinsdóttir, fyrrver-! andi alþingismaður. Verður hún framsögumaður, þegar þingið fjallar um fiskveiðar í Evrópu. Sjálft ráðgjafarþingið mun koma saman til funda fimmtu-] daginn 21. september. Þó munu fulltrúarnir á þinginu áður sitja á sameiginlegum fundi ráðgjafar þingsins og Evrópuþingsins svo- nefnda, sem verður haldinn dag-, ana 19. og 20. september. Evrópu þingig er skipað þingmönnum frá þeim sex ríkjum, sem eiga aðild að Efnahagsbandalagi Evrópu og| hafa með sér samvinnu á öðrum sviðum. Á þessum sameiginlega fundi verður fjallað um starf efnahagsbandalagsins og fleiri mál. Búizt er við, að þá liggi fyr- ir afstaða Evrópuþingsins til um- sók-nar Grikkja um auka-heimild að bandalaginu. Á dagskrá ráðgjafarþings Evr- ópuráðsins eru að þessu sinni 35 mál. Á fyrsta degi mun Kýpur veitt aðild að ráðinu og fáni lýð- veldisins verða dreginn að hún framan við Evrópuhúsið í Strass, burg. Að Kýpur meðtöldu eru að-; ildarríki Evrópuráðsins 16. Fyrstu daga þingsins verður fjallað um landbúnaðar- og sjávarj útvegsmál, samstarf við vanþróuð, iönd, ástandið i Evrópulöndum, j sem ekki eru í Evrópuráðinu og, um óhreinkun andrúmsloftsins Mánudaginn 25. og þriðjud. 26. september mun þingið ræða al- mennt um samstarf Evrópuríkj- anna y stjórnmál, menningar- mál og efnahagsmál. Tvo næstu daga þar á eftir mun rætt um ým is önnur mál varðandi menninga> samskipti. um fióttamenn, fólks- fjölgun og um sveitarstjórnarmál. Þá verða einnig kosnir dómarar í mannréttindadómstól Evrópu Búizt er við, að fundum ráðgjaf- arþingsins liúki 28; september. i Hvað ræðir Krustjoff við Spaak? NTB-Brussel, 15. sept. Paul Henry Spaak, utanríkisráð herra Belgíu, átti í dag að halda ræðu hjá þingmannasambandinu í Brussel, en hann tilkynnti forföll á síðustu stundu. Telja menn, að sú ákvörðun standi í sambandi við heimsókn hans til Moskvu, sem nú stendur fyrir dyrum. Hefur Krustjoff forsætisráðherra boðið Spaak í opinbera heimsókn. Belgíska utanríkisráðuneytið bar í dag til baka, að Spaak myndi leggja sérstakar friðartillögur fyr- ir Krustjoff í Moskvu. Sagði utan- ríkisráðuneytið, að Spaak myndi ræða Kongóvandamálið við Krust- jc.i, ef hann óskaði þess. Haft er eftir áreiðanlegum heimildum, að Krustjoff hafi boðið Spaak heim vegna þess, að hann hafi sérstak- an boðskap að flytja honum. jNTB—Washington, 15. sept. Lucius Clay hershöfðingi, sérstakur fulltrúi Kennedys Bandaríkiaforseta í Berlín, i sagði í dag við blaðamenn eftir síðasta samtal sitt við forset- ann, en áður en hann lagði af stað til Berlínar, að hann liti björtum augum á ástandið jþar. I „Ég geri ráð fyrir, að með vænt- anlegri lausn verði helmingur vestuiveldanna af borginni að frjálsri borg, sem tilheyri okkur,“ sagði hershöfðinginn á blaða- mannafundi. Hann taldi að vísu ástandið i' Berlín tvísýnna og spenntara en nokkru sinni fyrr, en hann bæri fullt traust til Vestur- Berlínarbúa. Þeir hefðu áður sýnt, að þeir þyldu að búa við ótraust ástand. Hlutverk Clays í Berlín verður fyrst og fremst að gefa Kennedy forseta og Rusk utan- ríkisráðherra skýrslur um ástand- ið þar, en annars fær hann ekkert sérstakt vald í hendur. Gromyko rætSir vit5 Rusk NTB—MOSKVA, 14. september. — Andrej Gromyko utanríkisráð herra Sovétríkjanna er fús til þess að skiptast munnlega á skoðunum við Dean Rusk utanríkisráðherra Bandaríkjanna um Þýzkalandsmál ið og önnur mikilsverð alþjóða- mál, tilkynnti sovézka utanríkis- ráðuneytið í Moskvu í dag. Gromy ko verður formaður sovézku sendinefndarinnar á allsherjar- þing Samcinuðu þjóðanna, sem hefst í New York hinn 19. þ.m. Hersveitir S. Þ. (Framhald af 3. síðu) uðu þjóðanna sagði í dag í útvarp inu í Katanga, að Tshombe myndi ! koma til fundar við O’Brian í höf | uðstöðvar SÞ í Elísabethville á | laugardag. í skýrslu frá Sture , Linner, sem birt var 1 New York í kvöld, segir, að Tshombe hafi j hringt til fulltrúa SÞ í Elísabeth vUle strax eftir að vopnuð átök hófust til þess að leita hófanna um vopnahlé. Hafi hann þá sagt, að SÞ skyldu fá að vin-na sitt verk I án íhlutunar Katangahers. Síðán | hefðu SÞ gert allt, sem í þeirra j valdi stóð til þess að ná sambandi við Tshombe aftur, en án árang- urs. Happdrætti Framsóknarfl. Dregið næst 23. september Á laugardaginn kemur verður dregið um fvrstu vinning- ana í happdrætti Framsóknarflokksins. Þá verður m. a. dreg- ið um hið glæsilega ferðalag til Kanaríevja og Madeira, sem er að verðmæti 32 þúsund krónur. Ennþá er nægilegt til af miðum hiá skrifstofu happdrætt- isins í Framsóknarhúsinu, en á nokkrum stöðum úti á landi eru miðar þrotnir og sumir umboðsmanna hafa nú þegar pantað viðbót. — Reykvíkingar, sem ætla að ná sér í miða, geta hringt í síma 12942 og fengið þá senda heim eða keypt þá í sölubíl, ef þeir eiga leið um Austurstrætið. í dag, laugardag, verður skrifstofan í Framsóknarhúsinu opin til klukkan 4 til hagræðis fyrir þá, sem vildu gera skil eða ná sér í miða.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.