Tíminn - 16.09.1961, Qupperneq 3
TÍMINN, laugardaginn 16. september 1961.
15 tyrknesk stórmenni
dæmd til dauða
NTB—Istambul, 15. sept.
Hæstiréttur Tyrklands kvað
í dag upp dóm í máli því, sem
höfðað var gegn leiðtogunum
í fyrrverandi ríkisstjórn lands-
ins. Fimmtán kunnir stjórn-
málamenn og háttsettir emb-
ættismeEm, þeirra á meðal
í réttinum, og flaug fyrir, að
hann hefði fengið taugaáfall. Sam
kvæmt frétt frá sjúkrahúsi í Tyrk
-landi leikur grunur á, að hann
, hafi tekið of stóran skammt af
töflum. Féll hann í djúpan svefn,
og er nú haldið við á þrúgusykri
og súrefni.
Meðal þeirra, seim dæmdir voru
til dauða, er fyrrverandi utanríkis-
Sveitir S. Þ. eiga
í vök aö verjast
MENDERES
fékk taugaáfall
Menderes, fyrrverandi for-
sætisráðherra og fyrrverandi
forseti landsins, Celal Bayar,
hlutu hengingardóm.
31 var dæmdur til ævilangrar
þrælkunarvinnu, 418 tveggja til
fimmtán ára fangelsis, en 123
hinna ákærðu voru sýknaðir. Enn
fremur var Menderes gert að
greiða ríkissjóði fjórar milljónir
tyrkneskra punda, sem hann
reyndist sekur um að hafa notað
í eigin þágu.
Menderes á sjúkrahúsi
Menderes hlýddi ekki sjálfur á,
þegar dómamir voriT| lesnir upp
ráðherra, Fatim Sorlu, fyrrver-
andi fjármálaráðherra, Nolatkan,
ifyrrverandi forseti þjóðþingsins,
Koraltan o. fl.
Dauðadómarnir bíða enn stað-
festingar þjóðlegu einingarnefnd-
arinnar, sem hefur úrslitavald í
þessu máli, en í henni eiga sæti
hershöfðingjar þeir, sem steyptu
Menderes af stóli í fyrravor.
Áreiðanlegar fréttir herma, að
hörð klofning sé í nefndinni um
málið, og margir álíta, að stjórn-
in muni bíða álitslinekki, ef hún
lætur taka andstæð'inga sína af
lífi, en eins og kunnugt er, fara
kosningar fram í Tyrklandi í
næsta mánuði.
NTB—Elisabethville, 15. sept.»
Örvæntingarfullir og harðir
bardagar geisuðu í dag á
nokkrum stöðum í Katanga
milli hersveita Sameinuðu
þjóðanna og Katangahers, og
varð mikið mannfall á báða
bóga.
Katangaþota sleppti niður (
sprengjum í námunda við bústað
Conor O’Brian, fulltrúa Samein-|
uðu þjóðanna í Katanga, og í
grennd við búðir SÞ fyrir flótta!
menn í úthfverfi Elisabethviile-
borgar. Flugvélin skaut litlum
eldflaugum að herstöð SÞ í Kam-;
ina í Norður-Katanga og hnitaði'
hringa yfir flugvellinum í Elisa-
bethville. Ekkert manntjón varð
af loftárásum þessum.
Mikið mannfall
Conor O’Brian skýrði frá því
í dag, að bardagamir síðustu daga |
hefðu kostað Katangaher 200
mannslíf, en 500 hefðu særzt. Af
mönnum SÞ hefðu 7 fallið og 261
særzt. Við þessar tölur bætist
manr.tjón beggja í hörðum bar-|
dögum í Jadotville í dag. Sá bær(
er 18 mílum norðan við Elísabeth!
ville. Þar var vitað, að fjölmargir I
írskir hermenn féllu. Þeir urðu
meðal annars fyrir árás orrustu-
þotunnar, sem fyrr var getið.
Fregnir hermdu, að írsku
hermönnunum hefðu verið
settir úrslitakostir, og að þeir
hefðu gefizt upp fyrir inn-
fæddum undir stjórn evr-
ópskra liðsforingja. Ekki
vildi O'Brian staðfesta þá
frétt, en víst var, að bardagan-
um var þá lokið á þessum stað.
50 írar fallnir?
Hin hálfopinbera belgíska frétta
stofa, INBEL, skýrir frá því, og
hefur útvarp Tshombemanna í
Katanga að heimild, að 150 írskir
menn í Jadotville hafi gefizt upp
eftir að um 50 þeirra voru falln-
ir. Þessi frétt á að hafa heyrzt í
Ruanda-Urundi, og hafa Belgar
hana þaðan.
Það virðist fullvíst, að írsku
hermennirnir séu að minnsta kosti
umkringdir fjölmennu Katanga-
liði, sem hefur á að skipa fall-
byssum og sprengjuvörpum, og
flugvélinni, sem áður getur, en
brezka útvarpið segir þó í frétt,
að hvítur maður frá Rhodesíu
stýri henni.
Herstjórn SÞ hefur skorað á
; Katangaher a$ gefast upp. Að-
staða hans sé vonlaus, en Kat-
; angaher þverskallast við, og segja
menn SÞ, að það sé vegna áhrifa
belgísku liásforingjanna, sem nú
■ hæli sér af því að ráða öllu í her
Tshombe.
Joseph Ileo, upplýsingamálaráð
herra í Kongóstjórn, sagði í dag
í Leopoldville, að stjómin væri
ákveðin í að halda áfram að berj-
ast við undirróðursöflin í Kat-
anga. Er hann var spurður, hvort
i stjórnin myndi senda her til Kat
anga, svaraði hann, að SÞ virt-
ust hafa ástandið á sínu valdi.
Annars hafa Lundula, herstjóri
stjórnarinnar i Stanleyville og Mo
butu ofursti í Leopoldville tjáð
sig fúsa að senda hersveitir sínar
á vettvang, Ileo sagðí, að mála-
liðar þeir af evrópskum stofni,
sem enn væru í Kongó, væru flest
ir Frakkar, Bretar og Suður-Afr-
íkumenn.
Liðsauki til SÞ
Sameinuðu þjóðirnar flytja nú
aukið herlið á vettvang, og í
kvöld voru þungvopnaðar sveitir
Svía, Indverja og Malaja á leið
til Elisabethville. Ekki er vitað,
hversu marga hermenn hér er
um að ræða. Talsmaður Samein-
(Framhald á 2. síðu.)
Lausn er tryggi
beggja hag
ætti að vera möguleg. Kennedy svarar
hinum hlutlausu
Bandaríkin sprengdu kjarnorku-
sprengju neöanjaröar í Nevada
NTB—Washington, 15. sept.
Bandaríkin framkvæmdu í
(dag kjarnorkusprengingu neð-
anjarðar, og er þetta fyrsta
.sprengingartilraun þeirra um
þriggja ára skeið.
I í yfirlýsingu, sem gefin var út
frá Hvíta húsinu, segir, að spreng-
'ing þessi hafi ekki valdið neinu
geislavirku rykfalli. Sprengjan var
fremur lítil og var sprengd undir
Nevada-eyðimorkinni.
Enn fúsir til viðræðna
í yfirlýsingunni frá Hvíta húsinu
segir, að Bandaríkin hafi verið
neydd til að taka tilraunirnar upp
aftur eftir að reynt hafi verið ár-
um saman að komast að samkomu-
lagi við Ráðstjórnarríkin um bann
j við slíkum tilraunum. Talað var
um sprenginguna í dag sem hina
fyrstu í áætlun, sem hefði það
' mark og mið að styrkja varnir hins
frjálsa heims. En eftir því, sem
fram í sækti, yrðu tilraunirnar
notaðar til þess að kanna, hvaða
gagn hafa mætti af kjarnorkunni í
friðsamlegu skyni. Tekið er fram
enn á ný, að Bandaríkin séu fús
til samninga við Ráðstjórnina um
bann við sem flestum tegundum
slíkra tilrauna undir eftirliti’.
Bandaríkjaforseti skýrði einnig
frá því, að blaðamenn myndu
ekki fá að vera viðstaddir nema
fáar þær sprengingar, sem nú
stæðu fyrir dyrum. Um sumar
þeirra yrði jafnvel ekkert til-
kynnt opinberlega.
NTB—Washington, 15. sept.
Kennedy Bandaríkjaforseti
lét í dag í Ijós það álit sitt, að
samningaviðræður um Berlín-
armálið myndu geta borið ár-
angur. Á hinn bóginn myndu
Bandaríkjamenn alis ekki setj-
ast að samningaborði, meðan
þeim væri hótað hörðu og
settir úrslitakostir.
„Það ætti að 'vera mögulegt,
að finna lausn, sem tryggði brýn-
ustu hagsmunamál beggja aðila”,
sagði forsetinn í bréfi sínu til
hlutlausu ríkjanna 25, sem tóku
þátt í ráðstefnunni í Belgrad.
Bréfið var afhent Sukarno Indó-
nesíuforseta og Keita, forseta
Mali, en þeir voru sendir frá Bel-
gradráðstefnunni vestur um haf
þeirra erinda að færa Kennedy
Bandarikjaforseta erindi ráðstefn
unnar og biðja hann að setjast
sem fyrst að samningaborði með
Krustjoff um Berlínarmálið og
kjarnorkumálin.
Fundur K og K
Um þá tillögu .að hann kæmi
til fundar við Krustjoff forsætis
ráðherra, sagði Kennedy, að slík
an fund yrði að undirbúa vand-
lega. Ef tryggt útlit væri fyrir ár-
angur, sagði hann hins vegar, að
ekki skyldi standa á sér. En ef
1 slíkur fundur væri haldinn án
nægilegs undirbúnings, gæti far
ið út um þúfur og gert ástandið
enn verra en áður, sagði Kennedy,
lagði áherzlu á það í bréfi sínu,
að Berlínarkreppan hefði nú síð
ast komið upp vegna aðgerða Ráð-
j stjórnarríkjanna en ekki Banda-
: ríkjanna.
! -■ 1
„Við erum ekki með neinar
! ráðagerðir um að beita valdi eða
1 hótunum til þess að leysa vanda-
málin í Berlín eða Þýzkalandi, en
við erum staðráðnir í að standa
við skuldbindingar okkar, og við
erum reiðubúnir að mæta ofbeldi
með ofbeldi”, sagði í orðsending-
unni. Forsetinn útskýrði einnig
ákvörðun Bandaríkjastjórnar að
taka aftur upp tilraunir með
kjarnorkuvopn og harmaði,' að
Ráðstjórnin skyldi hafa vísað á
bug tillögunni um stöðvun kjarn- , _-----^------------------------------------------------------------------------
orkuvopnatilrauna í andrúmsloft- A laugardaginn var valf olíuflufningabifreið frá Esso á HolfavörSuhslðl Eifreiðarstjórann sakaði ekki. Mynd-
inu- i ln sýnir bifreiSina, þar sem hún liggur utan viS veginn. (Ljósmynd: Kristinn Arnþórsson).