Tíminn - 16.09.1961, Page 4
2
TÍMINN, Iaugardaginn 16. septembcr 196L
Tilkynnin
Afmælisfundur
símstjóra
Verðlagsnefnd hefur ákveðið nýtt hámarksverð á
blautsápu sem hér segir: ; , | ' ■
Heildsöluverð pr. kg............... Kr. 14.40 0 010(1(111031
Smásöluverð með söluskatti pr. kg. . . — 18.10
Reykjavík, 15. sept 1961.
VerSlagsstjórinn.
•v»v»v*vvv«-
Nr. 23/1961
Tilkynning
í sambandi við verð á innlendu sementi hefur Verð-
lagsnefnd ákveðið eftirfarandi:
Miðað við núgildandi c.i.f. verð á sementi frá Sem-
entsverksmiðju ríkisins, kr. 1100.00, hvert tonn,
má útsöluverðið hvergi vera hærra en kr. 1200.00,
að viðbættum sannanlegum uppskipunarkostnaði,
hafnargjöldum og 3% söluskatti.
Sé sement flutt landveg, þarf að fá samþykki verð-
lagsstjóra eða trúnaðarmanna hans fyrir söluverð-
inu.
Reykjavík, 15. sept. 1961.
VerSlagsstjórinn.
Auglýsing
um innflutning bifreiSa.
Ráðuneytið vill hér með vekja athygli á því, að
eftirfarandi reglur hafa verið settar um innflutn-
ing bifreiða:
1. Innflutningur nýrra og ónotaðra bifreiða er
frjáls. Hins vegar er innflutningur notaðra fólks-,
sendi- og jeppabifreiða, að burðarmagni minna en
3 tonn, háður leyfum (sbr. reglugerð útgefna 15.
september 1961 um breytingu á reglugerð nr. 78,
27. maí 1960, um innflutnings- og gjaldeyrisleyfi).
2. Innflutningsleyfi fyrir notuðum bifreiðum
verða hér éftir aðeins veitt eftirtöldum aðilum:
a. Aðilum, sem flytja búferlum til landsins, enda
færi slíkir aðilar sönnur á, að þeir hafi átt viðkom-
andi bifreið erlendis í eigi skemmri tíma en eitt ár.
b. Aðilum, sem kaupa bifreiðar af starfsfólki er-
lendra sendiráða hér, enda mæli utanríkisráðu-
neytið með sölunni.
Landsbanki íslands og Útvegsbanki íslands munu
annast útgáfu leyfa samkvæmt grein þessari.
3. Gjöld samkvæmt 16. gr. laga nr. 4 1960 verða
innheimt við tollaafgreiðslu. Verða gjöld þessi inn-
heimt af öllum bifreiðum að burðarmagni minna
en 3 tonn að undanskildum jeppabifreiðum. Gjöld-
in eru ákveðin 135% af fob-verði eða eftir atvikum
matsverði bifreiða þyngri en 1150 kg., ,en 100%
af bifreiðum 1150 kg. og léttari, án tillits til þess,
hvort bifreiðin er ný eða notuð
Viðskiptamálaráðuneytið,
15. sept. 1961.
Félag símstöðVastjóra, sem er
deild í Félagi íslenzkra síma-
I manna, hélt sinn árlega fund á
í Blönduósi dagana 25. og 26. ágúst
| síðast liðinn.
J Deildin, sem nær yfir allt land-
ið, heldur fundi sína til skiptis ó
ýmsum stöðvum úti um land. Að
þessu sinni varð Blönduós fyrir
valinu, enda var þetta 20 ára af-
mælisfundur, og hafði fyrsti fund
ur verið haldinn á þessum sama,
stað. í fyrstu voru samtök þessi;
sjálfstæður félagsskapur, en með
náinni samvinnu við Félag ís-
lenzkra símamanna. Fyrir 5 árum
sameinaðist það aðalfélaginu og
starfar nú sem deild í því. Fyrstu
stjórn þess skipuðu Karl Helga-
son á Blönduósi, Hjálmar Halldórs
son á Hólmavík og Þorkell Teits-
son í Borgarnesi. Núverandi stjórn
þess skipa Jón Tómasson í Kefla-
vík, Karl Helgason á Akranesi og
Sigríður Pálsdóftir í Hveragerði. j
Á fundinum mættu nú nær
hejmingur félagsmanna. Formaður'
F.Í.S., Sæmundur Simonarson í
Reykjavík, mætti einnig á fund-
inum og gaf skýrslu um ýmis ipál,
sem félagið vinnur nú að fyrir
deildina.
j Félagsdeildin hefur ætíð unnið
; tvíþætt, bæði að hagsmunamáium
! félagsmanna og einnig að bættum
■kjörum starfsfólks þessara stöðva
Enn fremur hefur hún látið sig
varða skipulagsmál stofnunarinn-
ar og sett fram sín sjónarmið á
ýmsu er snert hefur rekstur henn
ar. Fundurinn gerði samþykktir
um ýmis mál, m. a. þessi:
Nauðungaruppboð
annað og síðasta, á m/s Baldri E.A. 770, talin eign
Jóns Franklín Franklínssonar, fer fram við skipið,
þar sem það liggur á Reykjavíkurhöfn, mánudag-
inn 18. september 1961, kl. 3V2 síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Baðvarðarstaða
(karlmaður) við fimleikahús Barnaskóla Hafnar-
fjarðar, er laus til umsóknar. Enn fremur dyra-
varðarstaða við sama skóla. Umsóknir berist for-
manni, fræðsluráðs Hafnarfjarðar, fyrir 25. þ.m.
Formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðar.
Frá Barðstrendingafélaginu:
I
Félagsfundur
verður haldin í Skátaheimilinu við Snorrabraut,
þriðjudaginn 19. sept. 1961 ki. 20.30.
Umræðuefni: Framkvæmdir í Bjarkalundi.
Stjórn Barðstrendingafélagsins.
Verð á Skodabifreiðum
Athugið, áður en þér kaupið aðra bifreið, að verð
á Skoda er lágt: frá 103 þús. fvrir fólksbifreiðar.
Tékkneska bifreiðaumboðið h/f
Laugavegi 176. Sími 37881. ,
<V»V*V«V»V«V*V*V*‘
Fundurinn fagnar þeim stórhug,
sem lýsir sér í hinni yfirgrips-
miklu framkvæmdaáætlun póst-
og, símamálastjórnar, sem nú hef-1
ur verið samin og þakkar þeim
aðilum, sem að henni hafa unnið. j
jFélagið'mun með samtökum Sín-j
um veita þessu stórmáli stuðning
sinn, eftir því sem unnt' er, svoj
að áætlun þessi takist.
Fundurinn lítur svo á, að til
þess að opinber rekstur geti innt
af hendi þá þjónustu, sem honum
er ætlað, þurfi hann að geta orðið
samkeppnisfær um beztu starfs-
krafta við einkareksturinn. Því
séu launamáí starfsmanna ríkisins
ekki leyst með því einu, að hækka
laun þeirra um 13,8%, svo langt
sem þeir hafa dregizt aftur úr,
miðað við aðrar stéttir þjóðfélags-
ins. Fundurinn telur núverandi
launalög algerlega óviðunandi og
þar gæti einnig hins mesta ósam-
ræmis. Sé því aðkallandi að taka
þau nú þegar til endurskoðunar,
þar sem fyllsta tillit sé tekið til
hinna mismunandi ábyrgðarstarfa.
Það verður að teljast óeðlilegt, að
ýmsar stofnanir í landinu, sem á
beinan eða óbeinan hátt heyra
undir ríkisrekstur eða njóta sér-
stakra fríðinda af opinberri hálfu,
samræmi ekki launagreiðslur og
rekstur, hliðstætt því, sem gildir
hjá opinberum aðilum. Telur fund
urinn því eðlilegt, að t. d. Hag-
stofa íslands safnaði launaskýrsl-
um allra ríkisstofnana með það
fyrir augum að vinna úr þeim til
launasamræmingar.
T' |-T , , Fundurinn leggur áherzlu á, að
Jonas Haralz/ stjórn b.s.r.b. beiti sér fyrir því,
Halldór Jónatansson. að viðurkenndur verði á næsta
alþingi samningsréttur allra opin-i
berra starfsmanna. I >
Maður
vanur skepnuhirðingu getur fengið vinnu á búi
við Reykjavík. Góð íbúð getur fylgt. Tilboð sendist
skrifstofu Tímans merkt „Góð íbúð“.
• vv.* v- vv*v*v*
ÍBÚDIR TIL SÖLU
Til sölu eru 2 íbúðir að Flókagötu 45. íbúðirnar
eru:
1) íbúð á efri hæð, sem er 6 herbergi, eldhús og
baðherbergi, ásamt geiymsluherbergi í kjallara og
bílskúr. íbúð þeirri fylgir rishæð hússins, 3 íbúðar-
herbergi, salerni og geymsluherbergi.
2) íbúð í kjallara, 3 herbergi, eldhús og geymsla.
Verðtilboð í hvora íbúð fyrir sig skulu hafa borizt
fjármálaráðuneytinu fyrir kl 5, mánudaginn 25.
september n. k.
íbúðirnar verða til sýnis frá kl. 5—6.30 e. h. mánu-
daginn 18. september n.k.
Fjármálaráðuneytið.
•v*v*v*v** .*v*v*v»v*v*v*v*v*v»v*v*v