Tíminn - 16.09.1961, Blaðsíða 11
/
TÍMINN, laugardaginn 16. septembei;.1961.
11
aða álit kona
hefuráþér
Er nokkur sá eiginmaSur til, sem ekki hefur einhvern
tíma velt því fyrir sér í fyllstu alvöru, hva8 konan hans
hugsar um hann innst í hugarfylgsnum sínum? Þegar hún
þrástarir þegjpindi á hann yfir matarborðið, hvað hugsar
hún þá í rauninni um hann?
Það er ekki rétt af nokkrum manni, að ganga hreint til verks
og spyria konuna sína, hvað hún hugsi um hann. Annað hvort segir
hún honum sannleikann í fáum orðum en róttækum athöfnum, eða
hún fer hjá sér og verður feimin.
Þess vegna færum við öllum eiginmönnum í dag lymskulegt
spurningakerfi, sem gerir þeim kleift að komast að hinu sanna
án þess að spyrja hana — beinlínis.
Þetta kerfi er sett saman úr 10 spurningum Sjö spurningum
þar af getur þú sjálfur — eiginmaðurinn — svarað, en þrjár spurn-
inganna verður þú að leggja fyrir konu þina — svo að lítið ber á
Þessar þrjár spurningar eru þannig gerðar og orðaðar, að hana
mun aldrei gruna, hvaða tilgang þú hefur með þeim (skaltu vonall
Sumar þessara spurninga líta ef til vill nokkuð kæruleysis-
lega út, en í raun og veru eru þær byggðar á gaumgæfilegum sál-
fræðilegum rannsóknum, og ekkert bölvað kák. Þú skalt því svara
þessu með mestu gát, og reyna að fá konuna þína til þess að svars
eins alvarlega og rétt og hún getur.
En gleymdu því ekki, að þótt þér líki kannske ekki niðurstaðan
er það engin afsökun til þess að fara beina leið í Þórskaffi til
þess að ná þér í félaga til þess að fara raeð til Mallorca. Þegar
allt kemur til alls, ert það þú sjálfur, sem svarar spurningunum,
og það er ekki að vita, nema þér skjátlist. En nú skulum við snúa
okkur að spurningunum:
Spurðu sjálfan þig:
1. Þegar þið farið saman út að
skemmta ykkur, er þá hennar
hluti af reikningnum
a. nokkurn veginn jafn þínum?
b. minni en þinn?
c. meiri en þinn?
2. Síðast, þegar hún gaf þér
gjöf, var það þá gjöf, sem þú
a. þurftir á að halda, en áttir
ekki von á?
b. þurftir á að halda og áttir
von á?
c. þurftir ekki á að halda og
áttir ekki von á?
3. Þegar þú ferð í ferðalag,
hver gengur þá frá farangrinum?
a. Þið bæði
b. Hún
c. Þú
4. Þið eruð í mjög skemmti-
Iegu samkvæmi, en það er orðið
framorðið. Hver stingur fyrst
upp á að leggja af stað heim?
a. Stundum hún, stundum þú.
b. Venjulega hún.
c. Venjulega þú.
5. Hvernig finnst þér að eyðsla
hennar í föt hafi verið á síðustu
árum?
a. Rétt eins og nauðsyn krefur
b. Varla nóg.
c. Of mikil.
6. Hvort ykkar á upphafið að
kossunum nú orðið?
a. Nokkurn veginn jafnmikið
bæði.
b. Aðallega þú.
c. Aðallega hún.
7. Hvað finnst þér urn afbrýði-
semitilhneigingu hennar? Er hún
nokkurn veginn
a. eðlileg?
b. minni en eðlilegt mætti telj-
ast?
e. Meirí en eðlilegt mætti telj-
ast?
Og svo er að spyrja hana:
. — Ef þú hefðir allt, sem til
þess þarf, hvað vildir þú þá helzt
vera, snjöll tónlistarmanneskja.
snjall læknir eða góð leikkona?
9. — Hvað finnst þér vera
versti gallinn við mig?
10. — Ef ég dæi, og þú ættir
að giftast aftur, hvern þeirra
hvar þú ert veikastur fyrir, en
hún veit iíka, að þú ert að mörgu
leyti sterkur og fastur fyrir. Hún
metur skoðanir þínar mikils og
hefur ánægju af því að tala við
þig-
Vinur þinn og ástkona
Stundum finnst h'enni ef til
vill, að þú sért of vanafastur
og óskar þess með sjálfri sér,
að þú komir henni einhvern tima
á óvart, kannske með óvenjulegri
ástleitni, riddaraskap eða jafn-
vel reiðikasti. En venjulega er
hún ánægð með þig og hegðun
þína. Og það sem samband ykk-
í huga þínum. En oft óskar hún
þess, að þú værir örlítið snyrti-
legri og reglusamari, og hefur
áhyggjur af því, að þú gætir
heilsu þinnar ekki nógu vel. |
j
Þú skalt vera húsbóndinn
C. Konan þín ber ':la virð-1
ingu fyrir þér. Þótt hún kvarti,
ef til vill undan þér og jafnvel!
slái í brýnu við þig ískyggilega
oft, vill hún í raun og veru, að
þú sért iiúsbóndinn á heimilinu.
Stundum finnst henni, að þú
veitir henni ekki nóga athygli.
Og vei þér vesölum manni, ef
þú gle.vmir afmælisdeginum1
hennar eða brúðkaupsdeginum 1
ykkar!
Hún er gjörn á að spyrja þig
ráða, en það er algengast, að
hún gleymi að fara eftir þeim J
ráðum.
i
Þér finnst stundum, að hún
geri úlfálda úr mýflugu, og henni
finnst stundum, að þú sért of
nízkur, og þegar hún er reið, er
ekki fráleitt, að hún kalli þig
bölvaðan nirfil. En þegar til kast
anna kemur, treyStir hún á þig
og líkar vel við viðbrögð þín í
öllum meiriháttar alvöiumálum.
Á sama hátt væntir hún þess,
að þú gætir hennar og verndir
hana. Hún lætur sig miklu varða,
hvernig þér lízt á klæðaburð
hennar og ætlast ákveðið til, að
þú hjálpir henni að velja hús-
gögn og þess háttar.
Dirfstu ekki að hlæja
En þótt traust hennar sé mikið,
er henni hætt við að fá afbrýði-
semiköst, en það er auðvelt að
lækna þau með því að veita
henni meiri athygli. Og á sama
hátt gengur hún af gÖflunum,
ef þú dirfist að hlæja að henni,
þegar hún er í reiðikasti.
Hún hefur sterka tilhneigingu
til þess að breyta þér efir sínu
eigin höfði. Hún hefur geysilegt
álit á þér, og verður fyrir þung-
um vonbrigðum, ef þú bregzt
vonum hennar. Og henni er ekki
verr gert en ef hún heyrir ein-
hvern gera lítið úr þér.
Og að lokum: Þótt hún skammi
þig fyrir nirfilshátt, er hún undir
niðri mjög ánægð með varasemi
þína í fjármálum.
manna, sem við þekkjum bæði
myndirðu þá helzt velja?
Teljið nú saman, hve mörg a
og b og c þið hafið fengið úr
spurningunum nr. 1—7. Og finn-
ið svo, hvort þið eigið að merkja
nr. 8, 9, og 10 með a, b, eða c.
á eftirfarandi hátt:
Nr. 8: Tónlistarmaður = a.
Læknir = b. Leikkona = c.
Nr. 9: Ef gallinn, sem kona
þín nefnir, er þess eðlis, að þú
viðurkennir í hjarta þínu — þótt
þú látir hana aldrei verða þess
áskynja, — að er slæmur galli,
merkir þú þessa spurningu með
a.
Ef hún nefnir galla, sem hún
hefur einnig, merkir þú spurn-
inguna með b.
Ef hún nefnir galla, sem er
mjög lítilfjörlegur, er rétt að
merkja með c.
Nr. 10. Ef koná þín velur
mann, sem hefur nokkurn veg-
inn meðalmanns skapgerð, ekki
of framsækinn, ekki of værukær.
ekki mjög aðsjáll og ekki mjög
kærulaus. skaltu merkja a við
þessa spurningu
Ef hún velur sér mann með
mikla persónutöíra, en þekktan
að því að vera fremur óáreiðan-
legur, er rétt að merkja spurn-
inguna með b.
Ef hún velur sér viljaster/.an
mann, sem líklegri væri til þess
að vera góður fjölskyldufa-iir en
skemmtilegur félagi, skaltu setja
c við þessa spurningu.
Lykill kerfisins
Þegar þú hefur nú lokið merk-
ingum allra spurninganna, tel
urðu saman öll a-in, öll b-in og
öll c-in. Og sá stafur, sem verður
í meirihluta er hinn rétti ein-
kenniss^ai'ur, og því fleiri spurn-
ingar, sem eru merktar þeim
staf, þe'm mun meira er að
marka úrslitin:
A: Konan þín hugsar í raun-
inni harla vel um þig. Henni
finnst þú skilningsríkur, áreiðan-
legur og athugull. Hún er skarp-
skyggn kona og veit svo sem,
þaS er ekki aS undra þótt vér hrösum/meÖ ástarinnar gleraugu á nösum“
ar ef til vill vantar með tilliti
til leyndradóma og funa, bætið
þið upp með gagnkvæmum skiln-
ingi og virðingu. Konan þín er,
í raun og veru, vinur þinn og
ástkona.
Góður, sætur, heillandi
B. Þóít hún kveði ef til vill
aldrei upp úr með það, finnst
konunni þinni að þú sért „góð-
ur“ og „sætur“ og heillandi.“
Henni þykir vænt um að mega
sýsla um þig og þína hluti.
Ef hún er ein af þeim, sem
lesa mikið um sálarfræði, getur
verið að hún kalli þig með
sjálfri sér „ófullburða“ (hvort
það er rétt eða aðeins ímyndun
hennar er hlutur, sem þið getið
þráttað um ykkar í milli).
Hún verður stundum svolítið
pirruð á þér, þegar hegðun þín
bregður eitthvað frá því, sem
hún álítur að rétt sé. En henni
finnst þú hafa frábærlega þrosk-
aða kímnigáfu.
Meira en sinn helming
Hún er ákaflega stolt fyrír
þína hönd, þegar þér heppnast
eitthvað vel, og vitnar oft í þig
við vini sína. Stundum veltir
hún því lyrir sér, hvort þú gætir
ekki verið svolítið ákveíinari og
fastari fyrir. Og endrum og eins
finnst henni, að hún verði að
bera meira en sinn helming af
fjölskylduábyrgðinni
Hvað um heilsuna?
En undir niðr;i vill hún bara
hafa þig eins og þú ert. Hún
finnur, að þér þykir vænt um
hana, og að hún er hátt skrifuð
3 tegundir tannkrems
QDD
FIF
Með piparmyntubragði og virku Cum-
asinasilfri, eyðir tannblæði og kemur í
veg fyrir tannskemmdir.
0DBE
4
Sérlega bressandi með Chlorophyl, hinni
hreinu blaðgraenu, fjarlægir leiða munn-
þefjan.
0BDEiQ
Freyðir kröftuglega með pipar-
myntubragði.
VEB Kosmetik Wcrk Gera
Deutsche Dcmokratische Kcpublik
• 'w x.* x.-