Tíminn - 16.09.1961, Blaðsíða 13

Tíminn - 16.09.1961, Blaðsíða 13
tlfrfcM I^yj.JaMg^rd.aginnlg.sept.ember 1961. Nógur tími f K’imíiaia aJ 7 sfðul hreinskilinn við fólk, það skildi eftir kala hjá sumum, sem kann að hafa torveldað rétt mat á mann inum og verkum hans. í kvenfélögunum starfaði ég Iíka, einkum Framtíðinni. Kven- félagið Hlíf var stofnað sem hjúkr unarfélag og síðar sneri það sér að því að stofna bamaheimili í Pálmholti. Framtíðin var stofnuð sem líknarfélag, en þegar fram liðu stundir, einbeitti það sér einkum að fjársöfnun til elliheim ilis og síðar fjórðungssjúkrahúss- inS. Það hélt Jónsmessuhátíð ár hvert, og stóð hún tvo daga. Þar voru margs konar skemmtiatriði og veitingar. Við fengum lánað geysistórt tjald og reistum í því leiksvið og sýndum sjónleiki, auk margra annarra skemmtiatriða. Mestur undirbúningur var unninn sem sjálfboðavinna, en það var samt mikið verk að skipuleggja þessar hátíðir, og við í skemmti- nefndinni sögðum stundum, að okkur væri ætlað erfiðasta verkið í félaginu. Já, við kepptum sjálf- ar í boðhlaupi og það þótti ekki alveg ónýt skemmtun! Eg held ég hafi tekið þátt í því öll árin, nema síðasta árið, sem við vorum á Akureyri. — Þér hafið komizt yfir að sinna ótrúlega mörgum málum utan heimilisins. Hvemig fóruð þér að því? — Eg er vön að taka daginn snemma og eins og ég sagði áðan, þá verða störfin léttari þegar maður hlakkar til að sinna hugð arefnum sínum að loknum skyldu störfum. En því aðeins gat ég leyft mér þetta, að maðurinn minn skildi hve mikils virði það var mér að mega sinna öðru en heimilisstörfunum. Hann hvatti mig alltaf fremur en latti og ha-fði líka mikinn áhuga á leik- list. Þar kom kannski á móti, að ég dró aldrei úr honum við að safna gömlum bókum og and- mælti aldrei þó að bókasafnið stækkaði og stækkaði. Þó sagði ég, þegar hann ætlaði að fara að setja bókaskápa í svefnherbergið, að ég setti það skilyrði, að mega ráða fyrirkomulaginu þar. — Og frú Sigurjóna sýnir mér hve hug vitssamlega hún hefur leyst þann vanda að sameina bókasafn og svefnstofu. — Hérna eru þó ekki bækur í eWhúsinu og baðherberginu, seg ir frúin brosandi, er við göngum fram með bókaskápunum, sem þekja flesta veggi íbúðarinnar. í „París“ voru þær líka komnar í baðherbergið. Þorsteinn M. Jónsson á eitt stærsta einkabókasafn, sem til er hérlendis. Varlegast er að stað- næmast ekki of lengi fyrir fram an skápana, því þar er margt for vi.tnilegt að sjá. Eg minnist þess að þegar ég sá frú Sigurjónu fyrst á götu á Akureyri, varð mér starsýnt á hana fyrir glæsilegan limaburð og sérlega frítt bros. Þeim einkenn- um heldur hún enn, þó að hár hennar sé nú hvitt, en væri þá dökkt. Eg þakka henni viðtalið, og óska henni til hamingju með sjö- tugsafmælið. Sigríður Thorlaeius. Bæjarbókasafníð FramhaW af 8. síðu. Kristín Bjarnadóttir segir okk-' ur sögu um annan heiðursmann, sem er á stjái í gömlu höllinni.: Hún kveðst eitt sinn hafa verið stödd á neðri hæð hússins, er hún sá 'háan, grannvaxinn mann skjót- ast upp stigann. Kristín átti þá að gæta lesstofunnar, sem er uppi, og flýtti sér á eftir manninum. Hún sá hann hverfa inn í lesstof- una og láta aftur dyrnar á eftir sér. I — Þegar ég svo kem inn í stof-J una, þá er þar ekki nokkur maður, sagði frú Rristín, og þar er engin undankamuleið nema fyrir fugl- inn fljúgandi. Mér varð ekki um sel og stend þarna í sömu spor- um nokkra stund. Þá vei-t ég ekki fyrr en tekst á loft blaðabunki, sem lá kirfilega ofan í bófcfi, sem dagblöðin eru geymd í. Og það var einmitt dagblaðið Tíminn, sem þarna skall í gólfið. Þá varð mér svo mikið um, að ég lét fallast ofan á stól. Rétt á eftir kom sam- starfskona mín inn og varð að orði: — Þú hefur það rólegt hér, þykir mér. Já, það voru meiri rólegheitin. Jökull. Allir komu þeir aftur Framh al 9 siðu staðið við að pússa klós'ettskál- arnar og fægja kranana í heila viku. En nýliðinn er einfaldur, ungur maður og kann sig ekki í hernum. Hann segir ofurstanum, að hann hafi fengið fast starf við að halda náðhúsinu hreinu. Of- urstinn tryllist og klagar upp á liðþjáfcfann og segir, að hann skuli verða fastur starfsmaður náðhúss- ins, ef nýliðinn hafi ekki lokið öllum prófum á vikutíma. Næsta áhyggjuefni liðþjálfans er að „redda“ nýliðanum gegnum próf- „Honorinn" En nýliðinn er svo ánægður með sig í náðhúsinu, að hann beitir hugviti sínu til að finna upp útbúnað til að lyfta öllum klósett setunum og sturta samtímis. Þeg- ar ofursti og hershöfðingi koma til að skoða braggann, stendur hann á gólffcnu og sýnir þeim stoltur uppátækið og afcfcar klósettsetrrrn- ar gera honor. Liðþjálfinn fær bágt fyrir. Þetta er dágott grín um banda- ríska hermenn. Og í rauninni birt- ast þeir þarna eins og þeir koma fyrir sjónir, margir hverjir. Barna le.gir ungir menn. Með hendur í vösum í bók eftir þýzkan rithöfund og fyrrverandi stríðsmann í þriðja ríkinu segir frá undrun höfundar, þegar hann sá bandaríska her- menn fyrst. — Hvernig er hægt að sigra Þýzkaland með hend- urnar í vösunum? sagði maðurinn við sjálfan sig. Skyldu framámenn þriðja ríkisins hafa þolað svona grín um þýzka herinn? En saga félaganna í leiknum er ■ekki hérmeo sögð. Þeir fara í ferðalag, fljúgandi, og komast í 1 Brazilíu er nú verið aS byggja staersta raforkuver SuSur-Ameríku. Bygging raforkuversins mun kosfa 73 bráðan lífsháska. Það er þar sem iniiljónir dollara og hefur alþjóðabankinn lánaS fé til framkvæmdanna. Myndln er tekin í mynni eins af vísuparturinn á við. , .... „ . En að leikslokum er bezt að afrennslisgongunum aS turbínunum. spyrja í Þjóðleikhúsinu. í — ALLT Á SAMA STAÐ TIMKEN-LEGUR ..li|U RÚLLULEGUR og Tlllr/ril KÚLULEGUR I IMKIN ' FLESTA BÍLA Sendum gegn kröfu Heimsþekkt vörumerki. EGILL VILHJÁLMSSON H.F. Laugavegi 118 — Sími 22240. jiiö : 11 Sigríður G. Vigfúsdóttir, áttræð Síðasta húsfreyjan á Fjallaskaga Bóndinn djarfur sjóinn sótti, sá ei deigur mönnum þóttl, -bugaSi hann hvorki brim né ótti bátnum ýtti landi frá ótryggur er Ægir stundum yfir boSa og lokar sundum þá var makans þrek í mundum þaS sem konan treystl á. Fagurt er á Fjallaskaga féð sér unir vel f haga. Sól er björt um sumardaga, sorgir allar gleymast þá. En þegar koma frost og fannír falla þungar hafsins hrannir útnesjanna synir sannlr sjaldan manna fundum ná. Svellabungur banna vegi brimið heftir för á legi, einn þó veikist eða deyji enginn fær þar bjargir veitt Fannir hátt úr fajlli hrynja, feikna byljir yfir dynja, örlögunum undir stynja aumir menn en fá ei breytt. Þegar fældumst frost og myrkur faðmur þinn var okkur styrkur, móðurarmur mlkilvirkur meinum öllum réði bót. Börnunum þú sagðir sögur söngst um álfabörnin fögur hríðln hvarf en láð og lögur Ijómuðu vorsins sólu mót. Er það mála allra sannast ótal margir við það kannast, fjórtán börn að fæða og annast fékk f engu bugað þig. Smalaðir fé með barn á baki bóndinn meðan var á skaki, þú varst kvenna margra maki mörg var raun um ævistig. Hjartans móðir þér skal þakka þfna rausn við svanga krakka, gafst þú oft af smáu að smakka smæsta bitann hafðir þú. Þér gaf Drottinn þrek í raunum þú fékkst blessun hans að launum börn þín lifðu laus frá kaunum lífs aflþitt var kristin trú. AfmæliskveSja frá börnunum. (G.G.G.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.