Tíminn - 11.10.1961, Síða 16
Miðvikudaginn 11. október 1961.
261. blað.
Danskur læknir ger-
ir merka uppgötvun
— á sviði krabbameinsrannsókna
Danskur læknir, sem stund-
ar krabbameinsrannsóknir
í Fibiger-rannsóknarstöSinni,
sem rekin er af Krabbameins-
varnafélaginu danska, hefur
gert uppgötvun, sem talin er
mjög mikilvæg í baráttunni
gegn krabbameini. Maður
þessi er dr. med. Jörgen Kiel-
er, ungur læknir.
Uppgötvuin dr. Kielers er fólgin
Villigöltur í
heimsókn á
samyrkjubúi
Samyrkjubúið Domos í Ung-
verjalandi fékk óvenjulega
heimsókn nú á dögunum. 450
punda þungur villigöltur rudd-
inn í það í dögun og ruddist
þar á hvað, sem fyrir varð.
Það varð að sjálfsögðu uppi fót-
ur og fit, því að villigeltir eru ekki
lömb að leika sér við, þegar móður
er í þeim. Var nú hlaupið af stað
að leita veiðimanna, sem áttu byss-
ur, og þegar þeir komu loks á vett-
vang, var villisvínið komið inn í
hlöðu vínbónda nokkurs. Hafði
það fyrst farið hamförum milli
vínámanna, en þegár skytturnar
komu, var allt orðið hljótt. Kom
þá í Ijós, að gölturinn hafði
drukkið sig svo ölvaðan af víni
bóndans, að hann gat ekki staðið,
og varð hann auðunnin bráð að
lokum.
í því, að hann hefur Komizt að
raun uim, að krabbameinsseliur
geta breytt efnaskiptuim sínuim
sér til varnar, þegar þær eru í
hættu staddar. Er talið, að þessi
vitneskja muni á komandi tím-
um reynast mjög mikils virði.
Dr. Kieler segir svo frá, að við
smásjánmælingar 4 sellum, sem
nú eru frainkvæmanlegar með
tæki, er Linderström-Lang próf.
í rannsóknarstofnun Carlsbergs
hefur búið til, hafi komið í ljós,
hvernig krabbameinssellur geti
breytt starfisemi sinni O'g lifað
með' því af, þegar tilraun er gerð
til þess að „kæfa“ þær. Koltvísýr
imgsinnihaldið stígur og veldur
efnaskiptingum, sem geta fullnægt
80—90% af orkuþörfum seJJunn-
ar og kemiur í stað „öndunar“
þeirra.
Dr. Kieler segir, að til séu lyf,
sam gætu hamlað gegn þessari
viðleitni krabbamein9seillanna. í
Slóan Ketteringstofnuninni í
Bandaríkjunum eru árlega reynd
tuttugu þúsundir efna, í því skyni
að kanna áhrif þeirra á efna-
skipti í krabbameinsselluim. Mörg
af þeim geta hamlað gegn því, að
krabbameinssellurmiar geti breytt
efna'Skiptuim sínum, en þar er sá
gaili á, að þau eru einnig eitur
fyrir heilbrigðar frumur. Vand-
inn verður því sá að finna efni,
sem einungis eða að langmestu
'leyti orka á sjúkar frumur.
Dr. med. Jóhannes Clemmesen,
yfirlæknir í Kaupmannahöfn, hef
ur látið hafa eftir sér, að uppgötv
un Kielers sé meðal hinna merki-
legustu, er gerðar hafa verið á
sviði krabbameinsrannsókna nú um
sinn. Hún mun ekki þegar í stað
koma að hagnýtu gagni, en það
er ástæða til þess að vænta, að
hún beri góðan ávöxt síðar meir.
Strompleikur-
inn kominn út
„Ja, sér eru hverjjr karj-
mennirnir! Voru þeir ekki
skárri en þetta í þinni tíS,
Gunna mín? Bjóða manni á
ball uppá asna, þangað til þeir
eru sjálfir orðnir rauðir og út-
tútnaðir í framan og búnir að
fá brauðfætur; halda, að þeir
geti svo dregið mann heim
með sér, þó þeir séu kannske
náttúrulausir; eða jafnvel sex
barna feður; eða hvort
tveggja; reka mann svo út
fyrir dögun. Aldrei tilboð, sem
hægt er að anza. Heyrirðu til
mín, Gunna mín?"
Þannig hefst Strompleikur Hall-
dórs Kiljans Laxness. Þannig hef-
ur stássmæiin Ljóna ræðu sína,
þegar hún birtist á sviðinu.
Og nú geta menn gert hvort
tveggja, farið í þjóðleikhúsið og
horft þar á þennan margumtalaða
sjónleik eða gengið inn í bókabúð
(Framhald á 2. slðu.)
Akureyrarkaupstaður hefði
raunar getað minnzt 175 ára af-
mælis síns í sumar, eigi síður en
Reykjavík. En 29. ágúst 1862
fékk Akureyri aukin kaupstaðar-
réttindi, og hundrað ára afmæiis
þess verður minnzt að sumri. Því
er lagt kapp á, að menn máli hús
sín sem bezt utan og innan, svo
að bærinn verði þá sem snyrtileg
astur, og útvegar Fegrunarfélag-
ið á Akureyri mönnum utanhús-
málningu með 25% afslættl. Hér
eru málararnir Jakob Olsen og
Guðmundur Jónatansson að
starfi í Hafnarstrætt. Þeir eru
hátt uppl eins og menn sjá. —
(Ljósmmynd: GPK).
Moskvustúdentar
höfðu sitt fram
Nybygging vlð hraðfrystihúslð Norðurtangi h.f. á Isafirði. Húsið var byggt í sumar. I nybyggingunni verða
pökkunar- og flökunarsaiir. Framleiðsluafköst hússins munu aukast að miklum mun við þessar endurbætur. Hrað
frystthúsið Norðurtangi hf. tók tll starfa 1942. (Ljósm. G. S.)
Víða um lönd eru farnar
langar göngur fólks, sem
krefst þess, að kjarnorkutil-
raunum verði hætt og stór-
veldin semji sín á milli um
deilumálin og framkvæmi af-
vopnun. Hafa þeir, sem fyrir
þessum göngum eru, leitað
eftir að ná tali af ráðamörm-
um stórveldanna, sem í deil-
um eiga, og túlka fyrir þeim
sjónarmið sín.
Þrjátiu stúdentar frá ýmsurn
löndum í Vestur-Evrópu og Vest-
urheimi komu af slíkri göngu til
Moskvu í síðustu viku. Boðuðu
þeir ti-1 fundar með rússneskum
stúdentuim í Moskvuháskóla í sam
vimnu við nefnd, sem valin hafði
verin af ráðamönnum háskólans.
Þegar fundurinn hafði staðið í um
það bil eina klukkustund og full-
trúar göngumanna talað um hríð,
risu háskólaprófessorar upp og
kröfðust þess, að fundi væri slitið.
Orsökin virðist hafa verig sú, að
ræðumaður sagði, að enginn eðlis-
munur væri á afstöðu rússnesks
þegns, secn styddi kjarnorkutil-
raunir Sovétstjórnarinnar og
beirra borgara á Vesturlöndum,
er létu sér vel líka hervæðingu
þar. „Þegar ég kom hingað og sá
ykkur styðja rikisstjórn yklkar
við tilraunir með kjarnorku-
sprengjur, skildi ég, að viðhorf
ykkar eru í engu frábrugðin þeim,
sem drottnandi eru á Vesturlönd
um“. Þag var friðarsininiim Jó-
hannes Meyer frá Vestur-Þýzka-
landi, sem talaði.
Þegar slíta átti fundinum, létu
rússneskir stúdentar til sín taka.
Þeir sveiuðu og börðu i borðin
með krepptum hnefum. Einn
þeirra réis á fætur og hrópaði:
„Láturn þá tala. Þið getig verið
ósammála, en lofum þeim að
segja það, sem þeim býr í brjósti."
Eftirlitsmenn háskólans komu á
vettvang og heimtuðu salinn
rýmdan, því að nú ættu ag hefjast
fyrirlestrar, en stúdentarnir hróp
uðu að þeim og kváðu það fyrir-
sl'átt. -Svo fór líka, að fundi var
enn haldið áfram í hálfan annan
klukkutima, og þegar gestirnir
gengu ag lokum brott, hylltu rúss
nesku stúdentarnir þá.
Margir rússneskir stúdentar
réttu gestunum miða á fundinum.
Á einum stóð á ensku: „Þið skul
uð ekki taka of mikið mark á yfir-
völdunum — við erum með ykk-
(Framhald á 2. síðu.)