Tíminn - 14.12.1961, Side 3

Tíminn - 14.12.1961, Side 3
T f M I N N , fimmtudaginn 14. desember 1961 3 S. Þ. að hefja allsherjar sókn gegn Katangaher NTB—Elisabethville, 13. des. Allt benti til þess í gær- kvöldi, að herlið Sameinuðu þjóðanna í Katanga væri að hefja allsherjarsókn. Mikið viðbótarlið var komið til Elisa- bethville og var þá herstyrk- ur SÞ í borginni orðinn 4500 manns. Indverskir hermenn lirundu í dag árás Katangamanna, sem reyndu acV brjótast á brynvörðum bílum gcgnum varnarstöður Sþ við flug- völlinn í Elisabethvillc.' Sprcngj- um rigndi allan daginn í borginni og höfðu margir óbreyttir borgar- ar særzt af þeirra völdum. Tsjombe sagði að allir Katanga- hermenn mundu berjast fyrir föð- urland sitt til síðasta blóðdropa og ekki gefa þumlung lands eftir. Sókn í undirbúningi Talsmaður Sameinuðu þjóðanna í Leopoldville skýrði frá því, að sókn væri í undirbúningi. Fjöldi ethiopiskra hermanna hefur verið fluttur til Elisabethville, svo að herstyrkur Sameinuðu þjóðanna þar nemur nú 4500 manns, en Katangaherinn í borginni er að- eins 2000 manns. Union Miniére ásakar SÞ Katangastjórn hefur beðið dr. Ralph Bunche að koma til Elisa- bethville til að kanna ástandið þar. Bunche kom í gær til Leopold- ville. Námufélagið Union ásakar Sþ stöðugt fyrir að eyðileggja skipulega efnahag landsins með loftárásum á fyrirtæki félagsins í Katanga og hirði þá ekki um mannslífin í loflárásunum. Bandaríkin og Bretar ekki sammála Talið er að Sþ vilji flýta fram- kvæmdum í Katanga til þess að geta þvingað fram vopnahlé. Bret- ar hafa greinilega látið í ljós vilja sinn í þeim cfnum, en Bandaríkin telja vopnahlé ekki tímabært enn. Flugsprengjubeiðni S.Þ. dregin til baka Bandaríkin lýsa yfir stuðningi við samtökin og segja vopnahlé í Katanga ekki tímabært NTB—London, 13. desember. Stöðugar loftárásir Flugvélar Sameinuðu þjóðanna gera stöðugar árásir á verksmiðj- ur og aðra mikilvæga staði. Tvær sænskar flugvélar réðust í dag á hótel Lido í Elisabéthville og skutu helming þaksins í rúst, en í hótelinu höfðust Katangahermcnn við. Indverskar Canberraflugvélar sprengdu upp tvo ölfluthningabíla, sem stóðu fyi’ir utan brugghús eitt í borginni. Ávarp Tsjombe til þjóðarinnar Tsjombe Katangaforseti sagði í gærkveldi í ávarpi til þjóðarinnar, að Sameinu.ðu þjóðirnar væru að hefja allsherjaráhlaup. Skoraði Tsjombe örvæntingarfullt á borg- ara landsins að verjast og á hinn fr’jálsá hcim að koma þcim til hjálpar. Sprengingarnar voru svo miklar meðan Tsjombe flutti ávarpið, að sendingar útvarpsins trufluðust stöðugt. Framkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna, U Thant, hefur dregið til baka beiðni samtak- anna til Bretlands, að þeir láti flugsprengjur í té til notkunar í Katanga. í bréfi U Thanls segir, að beiðn in hafi valdið áhyggjum í Bret- landi, og sé málið bezt leyst með því að l'áta það niður falla, Æskja vopnahlés Aðstoðarutanr.rh. Bandaríkjanna, George Ball, sagði í dag, að Banda ríkin æsktu vopnahlés í Katanga, en það væri ekki framkvæman- legt, fyrr en herlið Samein. þjóð- anna hefur tekizt að friða landið. Hann sagði, að allar leiðir yrði að reyna til að koma á samkomu- lagi milli Katangastjórnar og Kongóstjórnar og innlima Katanga friðsamlega í Kongólýðveldið. Stefnuyfirlýsing Yfirlýsing Ball er talin jafn- (Frámhald á 3. sihu.) írski hershöfðinginn McKeown stiórnar nú aðgerðum herliðs Sam- cinuðu þjóðanna í Kongó, en hefur í hyggju að láta af störfum eins og fram hefur komið í fréttum. Krústjoff meö Bandaríkjunum segja Albanir NTB — Tirana, 13. desember AlbanS'ka ríkisfréttastofan sagði í dag, að stjómmálasambandsslit Sovétríkjanna við Albaníu væri ný sönnun hinnar and-marxistís'ku stjórnarstefnu Sovétrikjanna. Krústjoff og tengdasonur hans, ritstjóri Izvestia, voru sakaðir um að fylgja Bandaríkjunum að mál- um. Var viðtal Izvestia við Kenne- dy Bandaríkjaforseta nefnt í því sambandi. Ég er ekki skrímsli - segir Eichmann NTB—Jerúsalem, 13. des. í dag var 120. og sennilega þriSji síðasti dagur réttarhald- anna gegn Eichmann. Verj- andi og sækjandi sögðu álit sitt á væntanlegri refsingu Eichmanns og einnig talaði Eichmann sjálfur. Eichmann sagðist ekki vera það skrímsli, sem menn álitu hann vera. Hann væri fórnardýr mis- skilnings. — Ég skammast mín fyrir glæpina, sem hér hefur ver- ið talað um, en það eru stjórn- málaleiðtogarnir, sem bera ábyrgð á þeim. En cg mun bera þær byrð ar, sem örlögin hafa lagt á herðar mínar. I Dæmið til dauða Heusner sækjandi krafðist dauða dóms yfir Eiohmann. — Þessi per- sóna hefur tekið þátt í útrýmingar- herfei’ð af dýpstu sannfæringu og grimmd árum saman, sagði hann í lokaræðu sinni. Sýnið miskunn Verjandinn Servatius kvað Eich- mann aðeins hafa hlýtt skipunum yfirboðara sinna. Hann sagði einn- ig, að Eiehmann hefði breytzt cftir styrjöldina. í ævisögu sinni hafi hann skrifað einn kafla sem að- vörun til æskunnar í heiminum. — Ég bið réttinn að sýna þessum manni miskunnsemi. Myrtu 11 þúsund NTB — Berlíní 13. desember Sex fyrrverandi SS-menn hafa verið ákærðir af saksóknara V- Berlínar fyrir morð eða þátttöku í morðum 11.000 barna, kvenna og gamalmenna af Gyðingaættum. Liðsforingjarnir sex voru með- limir framkvæmdanefndar, sem stóð að baki Gyðingamorðunum i Vilna-hóraði Sovétríkjanna seinni hluta ársins 1941. Formaður nefndarinnar var handtekinn 1959, en þá var hann orðinn banka stjóri í Berlín. erlín viö Rússa Aðeins Frakkar á móti. Norstad ánægður með aukinn henstyrk NATO NTB—París, 13. desember. \ Á ráSherrafundi Atlants- hafsbandalagsins í París í dag virtist almennur stuöningur vera vi3 þá skoðun brezka ut- anríkisráðherrans, Home lá- varðar að hafnir verði samn- ingar við Sovétríkin um Ber- lín eftir fundi þeirra Kennedy og Macmillan á Bermuda í næstu viku. Aðeins De Mur- ville frá Frakklandi var and- vígur samningum, sem hann taldi ekki tímabæra. Utanríkisráðherrar Bandaríkj- anna, V-Þýzkaland-s, Kanada, Bel- gíu, Danmerkur og Noregs styðja, að samningar hefjist um Berlín. Dean Rusk, utanr.rh. Bandaríkj- anna ræddi málið í dag við De Gaulle Frakklandsforseta. Meira öryggi en áður Lauris Norstad, yfirmaður her- afla NATO, sagði á fundinum, að öryggi Vestur-Evrópu væri nú kom ið í mun betra þorf en áður. Benti hann á í því sambandi sam- eiginlegar Eystrasaltsvarnir Dana og Þjóðverja, sameiginlegt loft- varnarskipulag Vesturveldanna, 12% aukningu flugflota landanna og stórbætta herstjórn NATO-ríkj anna. Aukinn landher Á fundinum var samþykkt, að auka landher NATO í minnst 40 herdeildir á miðsvæðinu í Evrópu. Einnig var samþykkt að stuðla að friðsamlegri samvinnu allra landa í geimrannsóknum. / ) t t t t 't t ) ) ) ) ) ) ) f ) ) ) ) ) 't ) ) ) ) ) ) ) t ) ) ) ) ) Skorinorðar ályktanir bændafundar á Akureyri Almennur Bændafundur. boðaður af Búnaðarsam- bandi Eyjafjarðar og bænda félagi Eyfirðinga, var hald- inn á Hótel KEA s.l. mánu- dagskvöld. Fundinn sóttu 81 maður. Fundarefni var verðlagsmál landbúnaðar- ins, svo sem auglýst var. Ármann ,Dalmannsson, for- maður BSE. setti fundinn, en Eggert Davíðsson, form. BFE stjórnaði honum. Framsögumaður var Ketill Guðjónsson bóndi á Finna- stöðum. Hann og Þór Jó- hannesson, bóndi í Þórs,- mörk, mæltu fyrir tillögum þeim, sem stjórnir nefndra bændasamtaka höfðu orðið ásáttar um að leggja fyrir fundinn. Tillögur þær, sem samþykkt- ar voru, fara hér á eftir, og voru þær samþykktar með öll- um greiddum atkvæðum: 1. Almennur bændafundur, haldinn á Akure'yri mánudag- inn 11. desember 1961, að til- hlutan BSE og BFE, samþykk- ir eftirfarandi: Vegna úrskurð- ar meirihiuta verðlagsnefndar á s.l. hausti um verðlagningu búvara næsta verðlagsár, sem fundurinn telur algerlega óvið- unandi fvrir bændur, harmar hann, að stjórn Stéttarsam- bands bænda skyldi ekki fc'OÖa til aukafundar um málfð. Fund- urinn skorar á stjórn Stéttar- sambandsins, að taka skelegga afstöðu til verðlagsmálanna og vinna að því af fullri einurð, að bændur verði einráðir um verðlagningu sinnar fram- leiðslu, og hvika hvergi, jafn- vel þótt koma þurfi til sölu- stöðvunar á framleiðsluvörum bænda, til að leiða málið til farsælla lykta. 2. Fjölmennur bændafundur, haldinn á Akureyri mánudag- inn 11. des. 1961, samþykkir eftirfarandi: 1) Aburðarsala ríkisins hef- ur verið vel rekið fyrirtæki og notið óskoraðs trausts bænda. 2) Áburðarverksmiðjan h.f. hefur aftur á móti að mörgu leyti brugðizt trausti bænda, sem hafa verið mjög óánægðir með framleiðslu hennar (korna stærð áburðarins) og þrátt fyr- ir marggefin fyrirheit um lag- færingu, situr enn við hið sama. (Framhald á 3. síðu.) t t 't t ) ) 't ) ) ) ) 't ) 't 't ) ) ) 't ) ) ) ) 't ) ) 't ) ') t ) ) l 't )

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.