Tíminn - 24.12.1961, Blaðsíða 3

Tíminn - 24.12.1961, Blaðsíða 3
Tveir póstar að leggja upp frá Pósthúsinu, hlaðnlr klyfjum. Milt veður um jólin ÞaS er útlif fyrir meinlaust og stillt veður um allt land jóladagana, svo að ekki ætti veðrið að koma í veg fyrir geðileg jól. Blaðið hafði í gær tal af Jóni Eyþórssyni veðurfræðingi og spurðist fyrir um, hvernig veðrið yrði um jólin. Sagði Jón að þoku- bakkinn, sem lægi með sunnan- verðum Faxaflóa, næði frá Kefla- vík til Reykjavíkur og Þingvalla, RúmSega háSf miIEjón jólabréfa í Reykjavík Bögglapóstpokarnir atJ og frá Reykjavík voru 12800 talsins i cn annars staðar sunnanlands ‘væri bjart veður. i Þetta þokusvæði er aðgerðar- lítið, svo að það gæti alveg eins 'farið svo, að þokan yrði þrálát. Sennilega myndi eitthvað kólna í veðri hér sunnanlands, en síðdegis í gær var hiti um frostmark í Reykjavík. Þá var frostlaust norð- anlands og vestan, og sagði Jón, að allt útlit væri fyrir, að milt veð- ur hcldist þar áfram. Það er sem sagt útlit fyrir, að veðrið verði meinlaust og stillt yfir jólin, sagði Jón að lokum'. Tíminn hafði í gær samband við Matthías Guðmundsson póstmeistara, og fékk hjá hon- um upplýsingar um jólapóst- inn í ár. Taldi hann líklegt, að jólabréfin hafi orðið rúmlega hálf miiljón talsins, og jóla- bögglarnir, sem fóru frá bögglapóststofunni í Reykja- vík voru um 100 tonn að þyngd. Það var ekki fyllilega vitað, hve mörg jólabréfin yrðu, en sýnilegt að þau yrðu allmiklu fleiri en í fyrra. Þá voru 476 þús. bréf borin til viðtakanda í Reykjavík, og Matthías taldi sennilegt, að í ár hefði bréfafjöldinn aukizt um tiu af hundraði, og þar með losað hálfa mi'Ujón. Ef hvert þessara bréfa hefur vegið 10 grömm, sem mun láta næm sem meðaltal, hafa jólapóstarnir þvi borið um fimm tonn af jólaóskum fram og aftur um bæinn í gær og fyrra- dag. 12800 bögglapokar Þá fór mikið af jólabögglum um hendur manna í bögglapóst- stofunni í Reykjavík. Erlendis frá bámst þangað 5000 pokar, utan af landi 3000 pokar og frá Reykja- vík voru sendir 4800 pokar, eða 105 tonn. Allur póstur til skila kominn Fyrir jólin hafði pósthúsið í Reykjavík lengri afgreiðslutíma en annars tíðkaðist, og var af- greif lan opin frá kl. 8,30 á morgn ana til kl. 7 á kvöldin ,og síðasta dag, sem tekið var á móti pósti til dreifingar fyrir jól — 18. des. — til 12 á miðnættL Síðan var allur jólapóstur borinn út í gær og fyrradag, en ekki stóð til að bera neitt út í dag. Undanfarin jól hefur verið tekið á móti pósti til dreifingar fyrir jól til 19. des., en í ár var takmarkið sett degi fyrr vegna þess, að aðfangadag ber upp á sunnudag. Vantar nafnmerkingar Að þessu sinni unnu um 250 manns í jólapóstinum. Fastaliðið er um 150 manns, en auk þess réð ust 100 skólapiltar ti Ipóstburðar. Dreifingin hefur gengið allsæmi- lega, en það hefur tafið fyrir, að enn vantar víða póstkassa á hús-, og nafnamerkingu á dyr er mjög áfátt. Það greiddi mjög fyrir póstaf- greiðslunni, að frímerki voru seld á 60 stöðum víðs vegar um bæinn. Notuðu margir sér það, með þeim árangri að ekki varð eins mikil ös í pósthúsinu sjálfu og oft hefur orðið á þessum tíma. En póst- mennirnir sjálfir búa svo þröngt, að Matthías taldi vafasamt, hvort hægt yrði að notast við húsnæði pðstihússins eitt fyrir næstu jól. jr*.. ] / Niorbuo a Olafsfirði Ólafsfirði, 19. des. — í síðastlið- inni viku reru minni þilfarsbát- arnir á Ólafsfirði. Var afli þeirra dágóður eða frá þremur upp í sex tonn í róðri. Stærri dekk- bátarnir hafa ekki róið, síðan of- veðrið gerði fyrir mánuði síðan, nema hvað. Guðbjörg reri einu sinni í vondu veðri og fékk sex tonn. — Flestir minni þilfarsbát- arnir eru einnig hættir róðrum o glagstir í skipakvína á Akureyri, þar sem þeir verða yfir jólin. Út vegsmenn hyggja siðan á frekari veiðiskap upp úr áramótum. — Aflahæstu bátarnir á haustvertið inni eru Guðbjörg 230 lestir, Anna 213 og Þorleifur Rögnvaldsson 200 lestir. Hér er nú þíðviðri, sv<?að snjór sígur mjög. Sæmilega bílfært er orðið um sveitir. B.St. Skiptust á föngnm NTB—Bonn, 23. desember. Vestur-Þýzkaland og Tékkósló- vakía hafa skipzt á föngum. Hafa Vestur-Þjóðverjar afhent Tékkum tvo dæmda njósnara og fengið í staðinn þrjá dæmda hershöfðingja. Skiptin fóru fram á miðvikudag- inn við landamærin milli Bæheims og Bæjaralands. 45 á Rín árekstri NTB—Koblenz, 23. desember. Fjörutíu og fimm fljótaprammar og bátar á Rín lentu saman í árekstri í niðaþoku í gær. Engan mann sakaði, en 15 bátar fengu meiri eða minni áföll. Fljótslög- reglan var marga tíma að greiða úr flækjunni. Hollendingar óttast um sig Hermenn Sþ skjóta ýlfr- andi hunda i Leopoldville NTB—Elisabethville, 23. des. Tvær stuttar vélbyssuskot- hríSir og tíu riffilskot rufu kyrrðina í Elisabethville snemma í morgun. Annars hefur ríkt kyrrð í höfuðborg Katanga og bæjarlífið er að taka á sig vanalegan blæ. Mikil umferð er um göturnar og fólkið myndar biðraðir í verzl- ununum. | Hermönnum Sameinuðu þjóð- |anna hefur verið skipað að skjóta alla húsbóndalausa hunda í borg- inni, en þeir flakka um göturnar að næturlagi ýlfrandi og geltandi. Elisabethville er enn vatns- og rafmagnslaus, en vonir standa til, að vatnsrennslið komist í samt lag í dag. NTB—Djakarta og Haag, 23. des. Hollenzka ríkisstjórnin hefur setið á fundum í þrjá daga vegna hótana Indónesíustjórnar að her- taka Irian, nýlendu Hollendinga á vesturhluta Nýju-Guineu. Á stjórn- arfundum hefur verið rætt um, hvort reyna eigi að semja við Indónesíu um málið, og virðist sá kosturinn ætla að verða ofan á. Hermálaráðherra Indónesíu, Na- sution hershöfðingi, skipaði í dag herjum Indónesíu að vera reiðu- búnum árásarkalli gegn Irian. Súkarnó forseti landsins réðist í Urtdiralda og uggur i Mikil undiralda er nú í stjórn- málaheimi Kongó í sambandi við j samning þeirra Tsjombe Katanga- j forseta og Adoula forsætisráðherra Kongó. Ríkir mikil óvissa um, hvaða afstaða verður tekin til samninganna meðal ráðamanna i Katanga, og óttast sumir, að Tsjombe hyggi flátt í þeim efnum. Elzta konan í Reykjavík látin Elzta konan í Reykjavík, Þóiunn Bjarnadóttir frá Núpi á Berufjarð- arströnd, andaðist í fyrradag, rúm- lega 101 árs að aldri. Þórunn fæddist 2. nóvember 1860, og fyrir sem næst réttum sjötíu árum gekk hún að eiga mann sinn, Jón Bjarnason. Þau reistu bú ? Fagureyri við Fáskrúðs- fjörð, en fluttust til Reykjavíkur nokkru eftir aldamótin. og þar missti Þórunn mann si'nn háaldrað an fyrir tiu árum. Um svipað leyti varð hún fyrir því slysi a'ð lær- brotna. Nú fyrir fáum dögum fékk Þór unn kvef. og varð það henni að aldurtila. jólaræðu í dag harðlega á nýlendu- stefnuna í heiminum. £kki dropi í 8 mánuði NTB—Canberra, 23. desember. Miklir þurrkar geisa nú í Ástr- alíu, svo að víða er hreint hörm- ungarástand. Ekki hefur komið dropi úr lofti í átta mánuði í sum- um héruðum. Þar hvíla þykk ryk- ský yfir stórum landssvæðum og nautgripum hefur fækkað um þriðjung af vatnsskorti, l Srapaði it&yr NTBCatanzaro, 23. desember. Þrjátíu og fjórii menn létust þegar síðasti vagn farþegalestai fór út af sporinu við brautar tengsli og féll niður í djúpt gil t m fjörutiu manns liggja á sjúkra húsi. sumir illa slasaðir. F.rfitt var að eiga við björgunarstörf. T f M I N N, sunnudaginn 24. desember 1961. 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.