Tíminn - 24.12.1961, Side 12

Tíminn - 24.12.1961, Side 12
tvö mörk í fyrsta leiknum Glasgow Rangers, Arsenal, Milan, Racing Club de Paris — fjögur þekktustu knatt- spyrnulið fjögurra stórvelda á knattspyrnusviðinu, Skot- lands, Englands, Ítalíu og Frakklands — Nancy, Nizza. Með öllum þessum félögum lék fyrsti atvinnumaður okkar í knattspyrnu, Albert Guð- mundsson, og á þar með um leið óvenjulegasta feril at- vinnumanns í knattspyrnu í heiminum, feril, sem ekki á sér hliðstæðu meðal atvinnu- manna. Enginn knattspyrnu- maður hefur fyrr né síðar leik ið með fjórum beztu liðum fjögurra þjóða — eða orðið meistari í fjórum löndum, enda var ferill Alberts langur, og á 10 ára tímabili var hann einn dáðasti knattspyrnumað- ur meginlands Evrópu og þó víðar væri leitað. „ísland er síðasti staður ver aldar, sem nokkur myndi setja í samband við knattspyrnu“, skrifaði hinn frægi, skozki knattspyrnumaður, Willie Waddell eitt sinn í blaðavið- tali um Albert, þegar hann var að hefja feril sinn er- lendis sem knattspyrnumað- ur. Þetta var fyrir 17 árum — og síöan hefur margt breytzt. Knattspyrna, ísland og Al-. bert var nefnt í sömu and-1 ránni og hann var sá sendi- herra, sem bezt kynnti land sitt um langt skeið. Nú kem- ur engum á óvart, þó góður knattspyrnumaður komi frá íslandi. Fyrir nokkrum vik- um gerist annar íslendingur Þórólfur Beck, atvinnumað- ur í knattspyrnu, og í tilefni þess bað blaðið Albert að segja nokkuð frá fyrstu ár um sínum í knattspyrnu er- jendis, en það var einmitt á Skotlandi, þar sem Þórólfur er nú að byrja sinn feril. — Albert varð góðfúslega við; þessum tilmælum, og ef til vill gefst síðar tækifæri til að fylgjast áfram með honum til Englands, Frakklands, ítalíu, Spánar, Brazilíu og víðar, en saga hans er svo umfangsmikil og merkileg, að hún myndi fylla mörg blöð Tímans. Hins vegar er hér á blaðsíðu 13 sagt frá nokkrum helztu atburðum í knattspyrnuferli Alberts — og þá aðeins stiklað á stóru. En nóg um það, nú bregðum við okkur til Skotlands. Verzlunarnám á Skotlandi Þegar Albert Guðmundsson hafði lokið námi í Samvinnu skólanum heygðist hugur hans að verzlunarstörfum og hann ákvað þá að afla sér framhaldsmenntunar i verzl unarfræðum. Fyrir valinu varð Skerrys College 1 Edinborg á Skotlandi, og þangað hélt Al- bert haustið 1944. - Hallur Símonarson ræðir við Albert Guðmundsson um knattspyrnuferil hans á Skotlandi Hann var orðinn mjög kunn ur knattspyrnumaður hér heima, þegar hann hélt utan og var þá búinn að vinna til allra verðlauna sem hægt var á þeim árum að vinna i íslenzkri knattspyrnu, m. a. hafði hann oftar en einu sinni orfiið íslandsmeistari með félagi sínu Val. En Al- bert var ákveðinn í þvi. þegar hann hóf nám í Edinborg, að leggja knattspyrnuskóna algerlega á hilluna, og ein- beita sér þess í stað að nám inu. Knattspyrnan hafði hing að til tekið mest allan tíma hans, er% nú skyldi verða á því breyting. Þó fór nú svo, að hann fór eitt sinn á æf- ingu hjá Hearts — öðru stærsta kanttspyrnufélagi Edinborgar (hitt er Hiberian) — vegna eindreginna tilmæla Ottós Jónssonar, sem þar var einnig við nám. Ottó hafði leikið með Fram og var góð- kunningi Alberts, og þeir kepptu báöir í fyrsta lands- leik íslands árið 1946 gegn Danmörku. Forráðamenn HeartS hrifust mjög af leikni Alberts og buðu honum samning hjá félaginu, en hann sagðist nættur knatt spyrnu, og varð þetta þvi upp hafið og lokin á knattspyrnu hans í Edinborg. Albert sóttist námið vel í Edinborg — en svo kom að því, aö hann flutt ist í aðra deild í skólanum, sem hafði aðsetur í Glasgow. Murdo MacDougal sem hafði verið þjálfari Alberts í Val, bjó í Glasgow og hann bauð Albert að koma honum í kynni við forráðamenn. bezta félags Skotlands, Rangers í Glasgow. Þá freistingu stóðst. Albert ekki, þótt ekki hyggði hann á að stunda æfingar að ráði. Hann hafði tal af forráða- mönnunum — og það var til þess, að í tvö keppnistíma- bil keppti hann talsvert með aðalliði Rangers. Fyrsti leikurinn Þegar hann hafði rætt við þá, var hann beðinn að taka þátt í leik næsta laugardag og var það með varaliði fé- lagsins. Tókst honum ágæt- lega í þeim leik, og lögðu for ráðamenn félagsins hart að honum, að gera samning við það, en Albert neitaöi ein- dregið. Var hann þá beðinn að koma á æfingar í næstu viku. en aftur neitaði Al- bert og sagðist ekki geta það vegna skólanámsins og próf in i skólanum gengu fyrir öllu. Hins vegar sagðist hann skyldi leika með þeim ef þeir álitu hann nógu góöan. \ Albert var þá beöinn að mæta á ákveðnum stað í Glas gow næsta laugardag, og var gefin upp teikning af staðn- um. Vikan leið nú og kom að laugardeginum, keppnisdeg- inum. Albert hætti í skólan- um klukkan tvö — og var nú eins gott að hafa hraðan á, þvi leikurinn átti að hefjast klukkan þrjú. Hann fór á neð anjarðarbraut nálægt skólan- um og bað um miða, en þetta tók talsverðan tíma, því mikil þröng var við aðgöngumiða- söluna. En loksins komst hann af stað og hélt til hverfis þess, sem var á teikningunni. Hélt hann eftir götu einni, og sá mjög stóra byggingu öðrum megin hennar, sem fólk streymdi inn í. Áleit hann að þar væri verksmiðja en hin um megin götunnar sá hann knattspyrnuvöll. Hélt hann þegar þangað, en hlið vallar- ins voru lokuö. Umhverfis var steinveggur og ofan á stál- grindverk og tók Albert það ráð að klífa yfir vegginn og gekk það slysalaust Hélt hann síðan að byggingu og barði bar upp en hvernig sem hann bamaðist var ekki anzað og burðir harðlæstai Ekki leizt Albert á þetta og hélt því sömu leið til baka. En þegar hann hafði klifrað yfir vegg- inn aftur sér hann hvar Murdo stendur við byggingu þá, sem hann hélt verksmiðju. Fór hann til hans og vantaöi klukkuna þá tíu mínútur í þrjú. Murdo fór þegar með hann inn í hina stóru byggingu, og gekk nú allt fljótt fyrir sig. Var farið með hann í stórt búningsherbergi, og þar þrifu til hans menn í hvítum slopp um og hann var beinlínis tættur úr fötunum, lagður á bekk og einn byrjaði að nudda hann og bera á hann smyrsl, en aðrir hófu að klæða hann í búning félagsinp. Síðan fór Albert í röð leikmanna, sem hlupu af stað. Fyrst var farið eftir löngum, dimmum gangi, og þaðan yfir innanhúss- hlaupabraut, og Albert var varla búinn að troða peys- unni niður í buxurnar þeg- ar leikmennirnir komu skyndi lega í dagsljósið. Brá Albert þá mjög, því að þar var eitt iðandi mannhaf „og aldrei hefur mér fundizt ég eins lít- ill og þá.“ Rann nú upp fyrir honum ljós. Þetta var Ibrox Park — hinn mikli leikvöll- ur Rangers í Glasgow. Á eft- ir fékk hann að vita, að á- horfendur voru um 90 þús- und þennan dag, enda leikið gegn öðru Glasgow-liði, Clyde. Hins vegar má geta þess, að mesti áhorfendafjöldi í Ibrox hefur verið rúmlega 118 þús. manns. Albert var hægri innherji hjá Rángers „og mestur hluti fyrri hálfleiksins fór í að virða fyrir mér áhorfendafjöldann og leikni meðspilara mína“. En þrátt fyrir það tókst Al- bert mjög vel upp Rangers sigraði örugglega með þrem- ur mörkum gegn einu — og íslendingurinn skoraði tvö af mörkum Rangers; tvö mörk í fyrsta leik $ínum með heims frægum knattspyrnumönnum. Mest allt landsliðsmenn Þrátt fyrir að Albert var nýliði hjá Rangers, og allt skozkir landsliðsmenn. sem hann lék með í leiknum hlaut hann lofsamlegustu dómana í blöðunum. Við skulum líta á nöfn Rangers-leikmann- anna. í marki var Jerry Daw- son, sem var fastur maður í skozka landsliðinu. Tiger Shaw var hægri bakvörður og fyrirliði skozka landsliðsins, og vinstra megin var Duggie Gray, hinn bakvörðúr lands- liðsins. í framvarðalínunni voru Scot Symon, núverandi framkvæmdastjóri Rangers, og Woddie Woodburn, báðir margreyndir landsliðsmenn, og í miðjunni var George You'ng, sem þá var nÝbyrjað- ur hjá Raneers. Síðar varð hann fyrirliði landsliðsins og xkunnasti leikmaður Rkotlancis eftir styrjöldina. f framlín- unni voru Willy Waddell, Al- bert, Willy Thorton, Jimmy 12 TÍMINN, sunnudaginn 24. desember 1961.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.