Tíminn - 03.01.1962, Blaðsíða 3
1
Ekki nauðsynlegt að
Irian fái sjálfstæði
NTB—Haag, 2. janúar.
Hollendingar eru reiðubún-
ir að falla frá því sem skilyrði
fyrir samningum við Indónesa
um framtíð Irian, að nýlendan
hljóti sjálfstæði, sagði Jan De
Quay forsætisráðherra Hol-
lands í þinginu í dag, þegar
Irian-deilan var þar á dagskrá.
Hann sagði jafnframt, að í við-
ræðum við Indónesa mundi
hollenzka stjórnin leggja aðal-
áherzluna á velferð Papúanna,
sem byggja Irian.
Á meðan rætt var £ hollenzka
þinginu um Irian, stöðvaði Indó-
nesía allt póst- og símasamband
við Holland. Nasution landvarna
ráðherra Indónesíu, sagði í dag,
Eldur í
verkfæraskúr
Þingeyri, 2. jan.
Daginn fyrir gamlársdag kvikn-
aði í verkfæraskúr, sem áfastur er
við fjós á bænum Húsatúni í
Haukadal. Bóndinn þar, Valdimar
Þórarinsson, hafði um morguninn
verið að þíða þar frost í vatnspíp-
um með mótorlampa, en skrapp
síðan að Þingeyri. Skömmu eftir
að hann kom þangað, brauzt eldur
út í skúrnum. Húsadalur stendur
ásamt fleiri bæjum í hvirfingu, og
tókst fólki af þessum bæjum fljót-
lega að slökkva eldinn. Skúrinn
stendur enn, en talsvert brann af
verkfærum, sem Valdimar geymdi
í skúrnum, og voru þau öll óvá-
tryggð. ÁHS
Arnór GuSmtmds-
son lætur af
starfi
að Irian mundi rerða hertekin,
ef Hollendingar afhentu hana
ekki þegar í stað. Súkarnó forseti
Indónesíu, sagði, að hér eftir væri
Irian hérað í Indónesíu.
Kæra Indónesíu ekki
Jan Kuay forsætisráðherra sagði
í þinginu, að stjórnin hefði verið
að huigsa um að kæra Indónesíu
fyrir Öryggisráðinu eftir hótana-
ræðu Súkarnós 19. desember, en
hefði hætt við kæruna, þar sem
útlit væri fyrir friðsamlega lausn.
Kuay kvað hollenzku stjórnina
hafa skipulagt endurnýjunarþróun
£ Irian, sem ekki mætti rifa niður
strax. Hann sagði, að Holland
vildi hjálpa landinu úr einangr-
un sinni og þróa efnahagslega
möguleika þess, um leið og þjóðin
þroskaðist til sjálfstjórnar.
Súkarnó svaraði ekki Thant
Hann lagði á það áherzlu, að
Súkarnó hefði ekki enn svarað
umleitunum. U Thant framkvstj.
SÞ um að reyna samninga. Hann.
THOMPSON.
kvað hollenzku stjórnina hafa
bundið miklar vonir við milli-
göngu U Thant.
Prentuðu byltingar
fréttina fyrirfram
NTB—Beirut, 2. janúar.
1000 manns hafa verið tekn-
ir höndum í Líbanon eftir hina
misheppnuðu uppreisnartil-
raun, sem þar var gerð á laug-
ardaginn._________________
Spónbrotið hús
í fyrrakvöld sást jeppi utan veg-
ar skammt austan við Hveragerði,
og hafði auðsýnilega oltið. Hús
jeppans var gersamlega brotið í
spón, og trúðu þeir, sem sáu, ekki
öðru en að stórslys hefði orðið.
En þrátt fyrir eftirgrennslanir i
gær tókst blaðinu ekki að afla sér
vitneskju um, hvað að höndum
hafði borið. — Jeppinn bar númer
úr Kópavogi.
Lögreglan gerði i dag húsleit hjá
tveimur dagblöðum í Líbanon, sem
höfðu skrifað og prentað nákvæm-
ar lýsingar á gangi uppreisnarinn-
ar áður en hún var gerð. Hafa rit-
stjórar þessara dagblaða verið
handteknir.
Meðal þeirra, sem handteknir
voru í dag, eru margir foringjar
sýrlenzka þjóðaiflokksins og blaða-
menn flokksblaðanna. Stjórnin tel-
' ur, að sá flokkur hafi staðið á bak
við byítingartiiraunina.
i í Madhi-héraðinu, þar sem sýr-
,lenzki þjóðarflokkurinn er sterk-
astur, hafa fundizt vopnabirgðir og
ýmis skjöl, sem varpa ljósi á bylt-
ingartilraunina.
ARNÓR GUÐMUNDSSON
Um áramótin lét Arnór Guð-
munds'son af starfi skrifstofustjóra
hjá Fiskifélaginu. Hefur hann
gegnt því i 27 ár, en í meira en
37 ár hefur hann unnið hjá fé-
laginu, Arnór verður sjötugur í
febrúar.
Frá sama tíma heíur verið ráð
inn skrifstofustjóri Már Elisson.
Már, sem er 33 ára, er hagfræðing
ur að menntun, stundaði nám £
Brctlandi og Þýzkalandi og hefur
síðan 1954 starfað á skrifstofu
Fiskifélagsins.
Gott gamlaárskvöld
< Framhald ai I'l siðu
segir, þar af 4 konur. 30 manns
fengu aðstoð á læknavarðstofunni.
Sumir þeirra höfðu brennt sig á
púðurkerlingum, aðrir hlotið
skrokkskjóður á hálkunni; þar af
voni þrír beinbrotnir.
Erlingur kvaðst telja þetta ró-
legt gamlaárskvöld og sannkall-
aða friðarhátíð miðað við þau
gamlaárskvöld, þegar menn veltu
bílum og konur flúðu felmtursfull
ar undan sprengjuleasti, og
minnstu munaði að þær yrðu
sprengdar i loft upp.
Á nýársmorgun voru nokkur
rúðubrot kærð t.il rannsóknarlög-
reglunnar. Rúður höfðu verið
brotnar í vefnaðarvörudeild KRON
á Skólavörðustíg, ritfangaverzlun
ísafoldar í Bankastræti, Manchest’
er við Skólavörðustíg og i verzlun
P Bernburg á Vitastíg. Ein rúð-
anna hafði verið brotin til gam-
ans einvörðungu. Úr hinum glugg
unum var stolið. Tveir þjófnað-
anna báru vott um tækifæris-
sinni, kjólföt, sem stolið var úr
glugga Manchester og munnhörp
ur frá Bernburg. Sá, sem braut
gluggann hjá KRON, var hvers-
dagslegur í sér og stal skóm.
Einhverjir slógust og útdeildu
glóðaraugum og þiggjendur voru
að koma með þau til rannsóknar-
lögreglunnar í gær. Aðrir höfðu
fengið kjaftshögg og gerðu um-
kvörtun á sama stað. Lögreglan
hafði yfirleitt í nógu að snúast,
nema umferðardeild rannsóknar-
lögreglunnar; hún fékk að hvíla
sig um nýárið.
Slátrarar í
NTB—París, 2. janúar.
Hinir 2000 slátrarar Parísar-
borgar samþykktu í dag með mikl-
um meirihluta að halda áfram
kjötsöluverkfalli sínu, þrátt fyrir
handtöku sjö foringja sinna. Verk-
fallið er tveggja vikna gamalt, en
slátrararnir eru að mótmæla því,
að ríkisstjórnin hafi eftirlit með
kjötverðinu.
í dag var verzlun eins slátrarans
eyðilögð af plastsprengju. Hann
hafði neitað að taka þátt i verk-
fallinu.
Fríðsæl áramót
Vestmannaeyjum, 2. janúar —
Áramótahátíðin fór vel fram í
Vestmannaeyjum að þessu sinni
og má segja, að gamla árið hafi
verið kvatt og hinu nýja fagnað
af virðuleik. Út voru gefin rúm-
'lega 40 brennuleyfi og voru brenn-
urnar jafnmargar, en ekki nema
2—3 stórar. Engin spjöll voru
unnin og lögreglan þurfti lítil af-
skipti að hafa af fagnaðinum.
SamstætSa frá Vopnafirði
(Framhald ai 1 siðuj
nótt eða morgun kom svo rafvéla
samstæða, sem rafmagnsveitur rik
isins áttu á Vopnafirði, og verður
hún fljótlega tengd inn á bæjar-
kerfið ásamt þessari litlu, og
verða þá framleidd hér 120—30
kv., og ætti það að nægja í bili.
Nú er hér skikkanlegasta veður,
var til skamms tíma hláka og tók
upp snjó, en nú er aðeins tekið
að frysta á ný. Óli.
Ánægöur
meö sam-
taliö viö
Gromyko
NTB—Moskva, 2. janúar.
í skýrslu Thompson sendi-
herra Bandaríkjanna í Moskvu
til Bandaríkjastjórnar segist
hann vera mjög ánægður með
viðræður sínar við Gromyko
utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna í morgun, þegar þeir
ræddu Berlín og Þýzkaland.
Hvorki Thompson né Gromyko
hafa vUjað láta neitt uppi um
viðræðumar £ bili, en sögja, að
þeir muni hittast aftur. Það telja
margir út af fyrir sig vera þó
nokkurn árangur.
Samræður þeirra Thompson og
Gromyko áttu sér langan aðdrag-
anda, en fundurinn sjálfur stóð
yfir í hálfan þriðja klukkutíma.
Thompson sagði i dag, að rík-
isstjómum Bretlands og Frakk-
lands og annarra vestrænna ríkja
verði skýrt frá árangrinum af
þessum fyrsta fundi þeirra. Á
morgun á hann von á heimsókn
sendiherra Bretlands, Frakklands
og Vestur-Þýzkalands, en hann
hefur beðið þá um að koma til
fundar við sig.
Viðræður Thompsons og Gromy
ko miða aðallega að þvi að kanna
jarðveginn fyrir fundi leiðtoga
austurs og vesturs.
GROMYKO.
erkamenn hófu upp
reisnina í Portúgal
Síldarhaugur
á bryggjunni
Vestmannaeyjum, 2. jan.
í morgun stóð til að róa, en gaf
ekki á sjó. Búizt er við, að bátar
fari út í kvöld. Talsverð síld kom
hingað fyrir áramótin og þrær
fylltust, og um tíma var meira að
segja síldarhaugur á bryggjunni.
ÍÞað er nóg að bræða sem
stendur. SK
NTB—Lissabon, 2. janúar.
Handteknir hafa verið 28
menn í Portúgal eftir hina
misheppnuðu byltingartilraun
þar að morgni nýársdags. Að-
allega eru þetta verkamenn
frá bænum Almada, sem er
nálægt Lissabon, en í þeim bæ
er eitt helzta vígi róttækra í
landinu.
Uppreisnarmenn reyndu að ná
á sitt vald herbúðum í Beja í suð-
urhluta landsiiis. Þar varð snarpur
en stuttur bardagi, sem lauk með
sigri stjórnarsinna. Þrir féllu í
átökunum og fimm særðust. Meðal
Iþeirra. sem féllu, var aðstoðarher-
málaráðherra landsins. Gomez,
leiðtogi uppreisnarmanna, var tek-
inn höndum.
Formaður kaþólsku æskulýðs-
samtakanna, Diario De Manha,
var handtekinn á flótta til spönsku
landamæranna. Hann hefur áður
, verið dæmdur i fjarveru fyrir að
hafa tekið þátt í uppreisn gegn
stjórninni 1959.
Talið er, að uppreisnarmenn
hafi reiknað með, að stjórnarand-
stæðingar um allt land mundu
grípa til vopna, ef uppreisnar-
mönnum hefði tekizt að ná her-
; stöðinni í Beja á sitt vald.
rkWoSar kosta
mörg mannslíf
NTB—New York, 2. janúar.
11.700 Bandaríkjamenn fórust í
eldsvoðum á síðastliðnu ári. Skað-
ar af völdum bruna námu 42 millj
örðum íslenzkra króna á árinu.
JT fjIII N N, miðvikudaginn 3. janúar 1962.
3