Tíminn - 03.01.1962, Blaðsíða 12
Miðvikudagur 3. janúar 1962
.
•jmaimitttnní.;
iaöflffHRmi
1 Ljósmyndarar Ttmans voru á
þönum á gamlárskvöld. Efsta
myndin á fremri dálkunum er af
föSur meS börnin sín vlð brennu
í Kringdumýri. Þar fyrir neðan
er mynd frá brennunni í Skjól-
unum. Efst á aftari dálkunum er
drengur á Melunum með blysið
sitt. Eindálka myndin var tekirí
af sólunum, sem skotið var á loft
í Kvisthaga, en neðst eru for-
söngvarar við Skjólabrennuna,
því að þar, var söngur haður uppi
sem vera bar.
LJÓSMYNDIR: TÍMINN — GE og ÞI.
verið brotnar, 10 strákar teknir úr
umferð fyrir ærsl o.g sprengingai'
og 43 fyrir ölvun frá því á hádegi
á gamlárs'dag þar til á nýársdags-
morgun, og jafnvel þótt 30 manns
hafi leitað á læknavarðstofuna til
að láta plástra sig eða spelka eftir
minniháttar skrokkskjóður. Slíkt
ætti engum að ofbjóða í 70 þúsund
manna bæ, þar sem fast er drukk-
ið og dans stiginn og mikið brallað
á "nýjársnótt.
Blaðið ræddi að venju við
Erling Pálsson, yfirlögregluþjón,
um atburði þessa kvölds og nætur.
Eriingur sagði, að 101 bálköstur
hefði logað í Reykjavík. í flestum
var kveikt um klukkan hálf ellefu,
en í stærstu brennunum um hálf-
tíma síðar. Stærsta brennan var í
Kringlumýri. Þá voru tvær stórar
brennur við Ægissíðu og ein við
Sörlaskjól.
Veður var milt og mannfjáldi
horfði á brennurnar og virtist
skemmta sér vel. Mikil umferð var
milli brennustaðanna, en hún gekk
slysalaust. Unglingar fóru með
nokkra háreysti um miðbæinn
eins og títt er á gamlaárskvöld, og
köstuðu smásprengjum. 10 strákar
(Framhald á 3. siðu.)