Tíminn - 09.01.1962, Blaðsíða 13

Tíminn - 09.01.1962, Blaðsíða 13
sem allir skíSamenn þekkja: Tyrola skíSabindingar Molifor skíSaskór Kneissl skíSi. Togo skíSaáburSur. Sport PÓSTSENÐUM. Æðardúnsængur Vöggusængur Æðardúnn í V4, Vz og 1 kg pökkum Danskur hálfdúnn Patons ullargarnið fyrirliggjandi í mörgum litum og grófleikum. SKIPAÚTGERO RÍKISINS M.s. Esja fer vestur um land í hringferð hinn 11. þ. m. Vörumóttaka í dag til Pat- reksfjarðar. Bíldudals, Þingeyr- ar, Flateyrar, Súgandafjarðar-j ísafjarðar, Siglufjarðar, Akuij- eyrar, Húsavíkur og Raufar- hafnar. Farseðlar seldir á miðviku- dag. Herjó!f,„’r fer til Vestmannaeyja og Horna- fjarðar á morgun. Vörumóttaka í dag. Herðuhreiö fer austur um land í hringferð hinn 12. þ. m. Vörumóttaka í dag til Djúpa- vogs, Breiðdalsvíkur, Stöðvar- fjarðar. Mjóafjarðar, Borgar- fjarðar, Vopnafjarðar, Bakka- fjarðar. Þórshafnar og Iiópa- 5'kers Farseðlar seldir á fimmtudag. FIMMTUGUR: Vesturg. 12. Sími 13570. Bréfaskriftir - Þýðingár HARRY ViLHELMSSON Haðarstíg 22. Simi 18128 Vörubíistjóraféiagið Þróttur Auglýsir eftir framboðslistum í lögum félagsins er ákveðið að kjör stjórnar trúnaðarmannaráðs og varamanna skuli fara fram með allsherjaratkvæðagreiðslu og viðhöfð lista- kosning. Samkvæmt því auglýsist hér með eftir framboðslistum og skulu þeir hafa borizt kjör- stjórn í skrifstofu félagsins eigi síðar en miðviku- daginn 10. þ. m. kl. 5 e. h. og er þá framboðsfrestur útrunninn. Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli mihnst 23 fullgildra félagsmanna. KJÖRSTJÓRN. Hjartkær móSir okkar \ GuSlaug Einarsdóttir, frá Vík í Mýrdal andaðist a3 heimili dóttur sinnar, Þórustíg 17, Ytri-Njarðvik, laug- ardaginn 6. þ.m. Börnin. Hjartkær eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir Kjartan Einarsson, trésmiðameistari, Hvolsvelli, verður jarðsettur miðvikudaginn 10. þ.m., og hefst afhöfnin með bæn að heimili hans, kl. 1 síðd. Jarðsett verður að Stórólfshvols- kirkju. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Slysavarnafélag íslands. Katrín Aðalbjörnsdóttir Aðalbjörn Þ. Kjartansson, Hólmfríður Kjartansdóttlr Einar Einarsson, Hólmfríður Jónsdóttir HeHi Einarsson, Jón Einarsson Anna E. Haukdal. SigurSur Þórarinsson jarðfræð- ingur er orðinn fimmtugur, fædd- ur 8. janúar 1912. Margir munu reka upp stór augu og segja: Er hann virkilega orðinn svona gam- all hann Sigurður? Síðan bæta þeir kannske við: Ekki þar fyrir, fimmtíu ár er auðvitað enginn aldur. En það er svona með suma menn, þeir eru þannig af guði gerðir, að fólk varar sig ekki á því að þeir eldist, því finnst ein- hvern veginn þeir alltaf vera ung- ir menn og upprennandi. Sigurður Þórarinsson hefur fengið að kenna á þessu, enda hefur hann sjálfur sagt í gamni að hann sjái ekki fram á að hann komizt nokkurn tíma lengra í vitund sinnar eigin þjóðar en vera talinn efnilegur ungur maður. Gott á meðan svo er, því að ástæðan er sú að Sig-1 urður er svo blessunarlega laus við alla góðborgaralega stöðnun, svo bráðlifandi og hefur lítið af þeim ellimörkum, sem koma svo snemma á flesta menn og birtast í ýmsum líkjum og ganga undir ýmsum gervinöfnum. Þegar svo litið er á það sem Sig- urður Þórarinsson hefur afkastað, þarf engan að undra, þótt hann eigi hálfa öld að baki — og þó gott betur væri. Það eru ekki ýkj- ur, að hann sé heimsþekktur vís- indamaður, enda eru ritgerðir hans um náttúru íslands í vís- indaritum um allar jarðir fleiri en tölu verður á komið, og farið hefur hann víða um lönd austan hafs og vestan til fyrirlestrahalds í boði háskóla og vísindastofnana. Það er hvort tveggja, að náttúra landsins er 'auðugt rannsóknarsvið endá héfur Si^úrður ekki legið á líði siriu að ávaxta þann auð og leggja ágóðann í hinn mikla sjóð alþjóðlegra vísinda. Og hér heima er Sigurður löngu þjóðkunnur 2 akkeri ekki Vestmannaeyjum, 8. janúar. Nærri lá, að illa færi hér í höfn- inni í gær. M.s. Goðafoss lá við svokallaða Friðarhafnarbryggju, en á var austanrok og mikið brim. Upp úr hádegi kom mikið ólag í höfninni, sem dró skipið með sér inn með bryggjunni og sleit tvo víra, sem skipið var fest með við land. Með útsoginu lækkaði skipið á annan meter jnið'að við bryggj- una, og sleit þá af sér öll böád og rak út á miðja höfn. Bakborðsakkerið var úti með 30 faðma keðju, og stjórnborðs- akkerið var einnig látið falla, er skipið var laust við land, en samt rak skipið. Þá var vélum beitt og haldið upp í í rúmar 20 mínútur. Þá kom hafnarbáturinn Lóðsinn á vettvang og hjálpaði Goðafossi að leggjast að bryggju aftur, en Lóðsinn er einnig búinn sem dráttarbátur með sterkum vélum, og komu þær nú í góðar þarfir. f þessum sviftingum skall Goða- foss á v.b. Ófeigi, sem undan högginu hrökk á v.b. Sídon og braut á honum lunninguna. Ófeig- ur skemmdist eitthvað, en ekki eru skemmdimar á þessum bátum taldar stórvægilegar. SK maður fyrir rannsóknir sínar og ritstörf og lífræna alþýðlega kynn ingu á fræðum sínum. Við íslend- ingar erum svo heppnir að eiga marga náttúrufræðinga, sem eru í senn góðir vísindamenn og alþýð- legir fræðarar. Það er prýði hvers vísindamanns að hann hafi vilja til og lag á að ger'a fræði sín eins aðgengileg þorra manna og efni standa til hverju sinni. Og á því sviði hefur Sigurður Þórarinsson sízt svikizt undan merkjum. Sigurður Þórarinsson er ham- ingjulega skapi farinn og raunar lukkunnar pamfíll og sést það oft í smáu. Fyrir mörgum árum fór hann upp að Þórarinsstöðum á Hrunamannafrétti o^ gróf holu of- an í fornar bæjarrústir þar til þess að skoða öskulögin, sem yfir lágu. Hann gróf alla leið niður á gólf og á botni holunnar fann hann Ijómandi fallega steinkolu, sem stóð bísperrt á stoðarsteini við vegg. Hann færði okkur koluna á Þjóðminjasafnið, og okkur kom saman um að þarna hlyti að vera náma af forngripum. Skömmu síð- ar fór ég með mannafla að Þórar- insstöðum og við grófum upp all- an bæinn hornanna í milli. Rúst- irnar voru ágætar og fróðlegar, Hvort skal meta meir? -1 -arr.naio it n nðu og Gullfossi og norður Kjöl. Tungufljótsbrúin var þá ó- fær, þvi að dregizt hafði að ýta að brúarsporðinum vest an megin. Varð því að ríða Fljótið á vaði. Þótti mér engan veginn ör- uggt að láta fólk fara þar án fylgdar. Má segja að hér sé teflt á tæpasta vað, því margt af þessu ferðafólki var óvant hestum og að ríða yfir vötn, sumt gamallt fólk og jafnvel börn, má þá oft litið út af bera að ekki verði slys. Mér er sagt að nú sé i ráði að leggja veg frá Laugarvatni á Þingvallarbraut hjá Arnar felli, 18 km. Styttist þá leiðin milli Laugarvatns og Þing- valla ærið mikið. Veit ég að þessi framkvæmd er þörf. Þó mun sú þörfin brýnni, að leggja þegar veg skemmstu leið að Gullfossi og brúa Tungufljót Þetta er 9 km. löng leið, eins og áður er get- ið. — Fyrir þessu þykist ég hafa fært gild rök. Á Þorláksmessu 1961, Sigurður Greipsson. en forngripir voru þar t-ngir. Sig- urður hafði með holugrefti sín’.im grafið rakleiðis niður á eina boðlega forngripinn, sem til var í öllum tóftunum. Svona er 'Uadínseðlið ríkt í honum. Hitt eru svo höpp á heimsmælikvarða áð honum hefur þagar auðnazt að lifa Heklugos og Öskjugos og hef- ur góða von í Kötlugosi, áður en hann verður sextugur. Verkefnin eru óþrjótandi, og mikið getur dagsverkið orðið úr því svo mikiu er búið að koma í verk fyrir há- degi. Ég viidi með þessum fáu orðutn færa Sigurði og Ingu konu hans innilegar heillaóskir á þessu merk- isafmæli hans. Ég leyfi mér að senda þessa kveðju opinberlega af því að ég veit að ég mæli fyrir munn margra. Kristján Eldjárn. Stærri síld . . . i'-ímn di ih <i0u i ir þeiria, einkum hinir minni, hyggja til línuveiða á vertíðinni. Víðir II hæstur Frá því að vetrarsíldveiði við Suðurland hófst, hafa 30 skip feng- ið 10 þúsund tunnur eðá meira. I Hæsta skipið er Víðir II með 22.564 tunnur, þá Höfrungur II með 20.228 og þriðji í röðinni er Björn Jónsson frá Reykjavík með 16.517 tunnur. Fólk stimpast . . . ■ framtiftia ii ih jiðU' nauðsynlegt hefði verið að sleppa einni aukamynd. Sýningin hófst fimm til tíu mínútum eftir að sal- urinn var opnaður. Áður en miðasöluvélin kom til sögunnar, var oftast beðið um beztu sætin. En þá kom fyrir, að þeir sem höfðu pantað miða komu ekki á sýningu. Betri sætin voru auð því öðrum hafði verið vísað frá. — Fólk verður að meta kost og löst á þessu nýja fyrirkomulagi, sagði framkvæmdastjórinn. — Við teljum, að við séum að veita því betri þjónustu, en það er auðvitað leitt þegar vandræði hljótast af, eins og á sunnudagskvöldið. Sætin eru nú aðgreind í fremri og aftari, pantaðir miðar verða geymdir fram á það síðasta — en við vild- um vinsamlegast biðja þá, sem eiga pantaða miða að slá á þráðinn og láta vita, ef þeir koma ekki, sagði framkvæmdastjórinn að lok- um. Þess má geta, að sama fyrir- komulag er á miðasölu í Háskóla- bíói. í báðum bíóunum eru stúlk- ur, sem eiga að aðstoða fólk við að fá sér sæti og sjá um að það sitji sem haganlegas-t Blaðinu er tjáð. að engir teíjandi árekstrar hafi orðið í Háskólabíói vegna þessa, þótt borið hafi á óánægju, en þeir sem koma seint verða stundum að tvístrast. Sá sem blaðið talaði við þar, sagði að bíóið hefði tvisvar endurgreitt miða vegna þess, að fólk var óánægt með að fá ekki sæti saman Hins vegar virtust menn venjast þessu fyrirkomulagi og kunna þá vel við það í Lögfræðiskrifstofa SKIPA og BÁTASALA rómas Arnason hdl Vilhiálmui A-nason hdl Laugavegi 19 | Símar 24635 og 16307 TÍMINN, þriðjudaginn 9. janúar 1962. 13

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.