Tíminn - 01.02.1962, Page 5

Tíminn - 01.02.1962, Page 5
★ Tólfta ársþing Landssambands hestamannafélaga var að þessu sinni haldið í Hlégarði í Mosfells- sveit dagana 11. og 12. nóv. s.l. Þingið sátu um 50 fulltrúar frá 22 hestamannafélögum. Formaður landssambandsins, Steinþór Gests- son, bóndi á Hæli, setti þingið og bauð fulltrúa velkomna, en kjör- bréfanefnd hafði áður farið yfir kjörbréf fulltrúa og talið þau full- gild. Forsetar þingsins voru kjörnir: Gísli Jórisson, Arnarholti og Þor- lákur Ottesen, Reykjavík, en þing skrifarar: Jón Bjarnason, Selfossi og Sigfús Jónsson, Einarsstöðum. Þingnefndir voru 5 að þessu sinni: Fjárhagsnefnd, fræðslunefnd, alls- herjarnefnd og landsmótsnefnd. Formaður sambandsins flutti greinargóða skýrslu um störf stjórnarinnar á liðnu ári og ritari sambandsins las upp skýrslur hinna einstöku hestamannafélaga. Engar umræður urðu um þessar skýrslur og voru þær samþykktar samhljóða. En Pétur Jónsson þakk aði formanni glögga greinargerð og stjórninni allri vel unnin störf. Gjaldkeri las upp endurskoðaða reikninga sambandsins fyrir síðast liðið ár og skýrði um leið einstaka Ársþing hestamannafélaganna liði þeirra. Reikningunum var síð- an vísað til fjárhagsnefndar og voru þeir samþykktir athugasemda laust síðar á þinginu samkvæmt tillögu nefndarinnar. Milliþinganefnd um reglugerð fyrir góðhestadóma skilaði áliti sínu, en í nefndinni voru Steinþór Gestsson, Sigurður Haraldsson og Kristinn Hákonarson. Nefndin hafði ekki orðið á eitt sátt um ein stök atriði og skilaði því tveim nefndarálitutn, meiri- og minnihl. Framsögumaðuc meirihlutans var Sigurður Haraldsson, en Kristinn Hákonarson sKHaði séráliti. — Um þetta mál urðu talsverðar um- ræður, en að þeim loknum var því vísað til laganefndar, sem tókst síð ar að ná samkomulagi um ágrein- ingsatriðin. Nokkrar umræður urðu þó enn um málið er það kom frá laganefnd, en framsögumaður hennar var Einar G. E. Sæmund- sen. Að lokum var svo þessi nýja reglugerð um góðhestadóma sam- þykkt samhljóða. Seinni hluta laugardagsins og fram eftir kvöldi sátu nefndir að störfum og voru nefndarálit að mestu tilbúin er þingmenn komu aftur saman á sunnudagsmorgun. Verður hér stuttlega getið helztu ályktana er þingið gertíi: Þo^kell Bjarnason, settur hrossa ræktarráðunautur, flutti þinginu skýrslu um starfsemi síná á veg- um sambandsins og lýsti þingið á- nægju sinni yfir þeim erindrekstri „-----og telur nauðsyn að þess ari starfsemi sé haldið áfram og sem flest sambandsfélögin heim- sótt árlega. Enn fremur séu athug aðir möguleikar á að erindrekinn heimsæki framhaldsskóla landsins og kynni þar starfsemi hesta- mannafélaganna og L.H.“. Um tamningastarfsemi L.H. urðu athyglisverðar umræður og samþykkt „-------að vinna áfram að frekari framgangi málsins og vill í því sambandi leggja áherzlu á að þessi starfsemi geti náð til sem flestra sambandsfélaga." Mun að þessu unnið eftir því sem unnt er. Bætt aðstaða við' kappreiðar. — Samkvæmt tillögu Jóns Bjarnason ar var samþykkt „-------að fela stjórn sambandsins að efna til hugmyndakeppni um bása og aðra aðstöðu er setja mætti upp á rás- línum kappreiða, ef með því mætti leysa þann vanda, sem við er að etja á öllum kappreiðamótum, að fá hesta til að standa kyrra á rás- línu áður en ræst er til hlaups“. Athugun á áfangastöðum. — Þingið taldi „brýna nauðsyn til þess bera, að víðtæk athugun fari fram á því, hvort ekki væri fram kvæmanlegt að koma upp ákveðn- um áfangastöðum á sumarleiðum hestamanna. Jafnframt beinir þing ið því til sambandsfélaganna, að þau geri tillögu um og bendi á lík- lega áfangastaði og sendi þær til- lögur til 5 manna milliþinganefnd- ar, sem ársþingið kýs, og skal hún skila ! áliti til stjórnarinnar fyrir naesta ársþing.“ í nefndina voru kosnir: Þorlákur Ottesen, Reykjavík; sr. Guðm. Óli Ólafsson, Torfastöðum; Einar G.E. Sæmundsen, Reykjavík; Jón M. Guðmundsson, Reykjum og Jón Bajrnason, Selfossi. Félagsmerki L.H. — Sambands- stjórninni var falið „að undirbúa reglugerð fyrir næsta ársþing um félagsmerki fyrir sambandsfélög- in, — samræmd verði gerð merkja anna og mælt með oddveifulagi". Allsherjarnefnd fjallaði um þetta mál en frumkvæði að því átti Jón Sumarliðason frá félaginu Glað í Dalasýslu. — Er nánar að þessu máli vikið í tímariti sambandsins — Hestinum okkar. Afkvæmastöðvar. — Aðalfundur Hrossaræktarsambands Suðurlands Kárlmannaföt Karlmannaföt Jakkar - Buxur W .iv Al 1 llii iT amm Stórkostleg verðlækkun f ææ fc íwir ^ 1 ÉÉf JIIÍ titii- '•::::::.síttttttiti ÍW. & oxecsaxv Aðeins til laugardags W CtttZZtJl+ Notið tækifærið 'l •WÍHHffh Anderscn I lauth h.í. Dánarmmning: HALLGRÍMUR ÞORBERGSSON j F. 8. jan. 1880. • D. 11. febr. 1961 Sorgarómar svífa í lofti, samvistarbönd er slitna vina. Húmar i heimi, hljóðna svanir. ; Ilmur hverfur og allur blómi. ; Augu daprast, arinn kólnar. Kveina bárui við klettaströnd. Heyrðist dimmur hófadynur, liér var dauði á ferð um jörð. Æskudals- og ættarhlynur j aldurhniginn féll á svörð. Minningarnar mæla hljóðar, mála breytni og ævistörf: Lánsmaður i Iífi þjóðar, leystu hnúta ráðin djörf. Bóndans reisn og bóndans merki bar hann alla daga hátt. i Orkusnjali • orði og verki orti dalabóndans þátt. í hörðu starfi hertra munda hugumgiaður bergði Iíf. Við sorg og gleði stórra stunda styrkur varð — og öðrum hlíf. Audans f jör og augna sindur áttu fáir meira til. — Samúð hans var sól og vindur sálarklakans bræddi þii. Ilér er fallinn stofninn sterki, stækkað skarð < bændalið. En brautryðjandans bjarta merki blaktir enn um lífsins svið. Þegar moldin dala djúpa drengrium sínum tekur við, Margir höfði daprir drúpa, döggvast brár um vinalið. 5. maí s.l., hafði „skorað á Bún- aðarfélag íslands að beita sér fyrir að komið verði á stofn afkvæma- rannsóknarstöðvum fyrir kynbóta hesta,“ bæði á Norður- og Suður- landi og mælti þingið eindregið með þeirri áskorun. Hesturinn okkar. — Samþykkt var að halda áfram útgáfu tíma- ritsins og jafnframt var skorað á hin einstöku hestamannafélög „að vinna ötullega að útvegun á efni í blaðið og að frekari útbreiðslu þess.“ Næsta landsmót verður haldið i Skógarhólum við Þingvelli fyrri hluta júlímánaðar næsta sumar og verður reynt að vanda til þess sem bezt. Mörg fleiri mál voru rædd á þinginu og um þau samþykktar á- lyktanir, þótt þeirra sé ekki getið að þessu sinni. Gunnar Bjarnason. — Að írum kvæði formanns sendi þingið Gunn ari Bjarnasyni skólastjóra á Hól- um, þakkarskeyti fyrir störf hans í þágu hestaræktarinnar og lið- semdar við L.H. Jafnframt var hon um árnað allra heilla í hinu nýja starfi sínu. Kosningar. — Úr stjórninni áttu að ganga að þessu sinni Jón 'Bryn jólfsson (aðalgjaldkeri) og Sigur- steinn Þórðarson (aðalritari), en voru báðir endurkjörnir. Harald- ur Sveinsson var kosinn varagjald keri og Guðm. Þorláksson vararit- ari. — Endurskoðendur voru báðir endurkjörnir en þeir eru Leifur Sveinsson og Magnús Stephensen. Þingið fór að öllu vel fram og mikill einhugur ríkti þar um þau verkefni, sem sambandið beitir sér fyrir. Stjórn landssambandsins skipa nú: Steinþór Gestsson, Hæli, for- maður; Jón Brynjólfsson endur- skoðandi, gjaldkeri; Sigursteinn Þórðarson, Borgarnesi, ritari; Karl Kristjánsson, alþ.m og Kristinn Hákonarson, Hafnarfirði. Varafor- maður er Páll A. Pálsson yfirdýra læknir. Sófasett vel meS farið til sölu á tækifærisverði. Uppl. í síma 10795 eftir kl. 6. Vöru- happdrœtti S.Í.B.S. 12000 vinningar d ari Hæsti vinningur i hverjum flokki 1/2 milljón krónur. . Dregið 5. hvers mánaðar. Lækningastofa mín í Túngötu 3 verður framvegis opin mánudaga og föstudaga frá kl. 3V&. Viðtalsbeiðnum veitt móttaka í síma 1 37 51, máúudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 3—4. FRIÐRIK EINARSSON, dr. med. Sérgrein: Skurðlækningar og kvensjúkdómar. Gjörið svo vel að leggja auglýsinguna í símaskrána. TIMIN N, fimmtudagur 1. febrúar 1962 I

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.